Fréttablaðið - 09.04.2018, Qupperneq 11
Einar skautar hins vegar í
öllu fram hjá að svara því er
fram kemur í skýrslu norsku
vísindanefndarinnar þar
sem staðfest var að mestu
ógnina við villta laxastofn-
inn þar í landi megi rekja
til laxeldis í sjókvíum og að
laxalúsin frá sjókvíaeldinu
nái til allra stofna í Noregi,
líka þeirra sem eru ekki í
nálægð við veiðiár og árósa.
Don't enlarge the this template.
The size of this template can be reduced.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
NÝJUM NISSAN MICRA
NISSAN MICRA
VERÐ FRÁ: 2.190.000 KR.
HUGVITSSAMLEG
NEYÐARHEMLUN
ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ:
DÍSIL 3,2 L/100 KM.*
BENSÍN 4,4 L/100 KM.*
AKGREINAVIÐVÖRUN
OG LEIÐRÉTTING
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
2
6
N
is
s
a
n
M
ic
ra
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
f
e
b
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
B
íll
á
m
yn
d
N
is
sa
n
M
ic
ra
T
ek
na
. V
er
ð
2
.6
9
0
.0
0
0
k
r.
Einar K. Guðfinnsson, formaður stjórnar Landssambands fisk-eldisstöðva, viðheldur enn
þrályndi sínu í grein er hann ritar
í Fréttablaðið þann 23. mars sl. og
telur mig stritast við að halda uppi
andófi gegn uppbyggingu atvinnu-
tækifæra og verðmætasköpunar í
fiskeldi. Ekki er nú málefnaleg byrj-
unin hjá honum Einari, en lengi skal
manninn reyna.
Rétt er að halda því til haga að ég
er í engu afhuga fiskeldi í lokuðum
kerfum. „Þrákelkni“ mín snýr ein-
vörðungu að eldi í sjókvíum og þá
sérstaklega þeirri ótrúlegu stað-
reynd að notast sé við kynbættan
lax af norskum stofni í eldinu. Það
er hins vegar gömul saga og ný að
ef einhver gerist svo djarfur að vilja
vernda náttúru Íslands fyrir nátt-
úruspjöllum fær viðkomandi slíka
einkunn frá þeim sem rekur áróðurs-
maskínuna. Í þeirri grein er Einar
kveðst vera að svara fór ég skilmerki-
lega yfir þá miklu fjárhagslegu hags-
muni sem eru í húfi í hinum dreifðu
byggðum landsins. Eins og við var að
búast svaraði Einar því hins vegar í
engu enda stendur hann þétt að baki
hinum erlendu aflandsfélögum sem
ætla að fénýta íslenska náttúru.
Einar lætur sannleikann ekki
þvælast fyrir sér er hann síterar til
áhættumats Hafrannsóknastofn-
unar þar sem hann heldur því rang-
lega fram að áhætta af erfðablöndun
sé bundin við þrjár ár aukinheldur
sem hann heldur því fram að sú
erfðablöndun sem tilkynnt var af
framangreindri stofnun í sex vatns-
föllum á Vestfjörðum ágústmánuði í
fyrra, sé ekki marktæk þar sem árnar
eigi það sammerkt að vera ekki með
eiginlega laxastofna! Er það nema
von að mér verði orða vant að lesa
svona rangfærslur. Einari er vel
kunnugt um það að margir þættir í
hinu tilvitnaða áhættumati eru mjög
umdeildir, m.a. það dreifingarlíkan
sem mat þetta byggir á.
Í skýrslunni kemur vissulega fram
að gert sé ráð fyrir að fjórar ár séu í
hvað mestri hættu, þ.e. af þeim ám
er féllu undir þau viðmið er skýrslu-
höfundar miðuðu við. Í þessu sam-
bandi má m.a. vísa til nýlegs viðtals
við Leó Alexander Guðmundsson
líffræðing þar sem hann lýsir þeirri
skoðun sinni að laxeldi ógni villta
laxastofninum og vísar sérstak-
lega til þess að ýmsar ár sem séu á
eldissvæðum séu ekki inni í áhættu-
matinu. Þá vísar Leó einnig til þess
að erfðasamsetning stofna á Vest-
fjörðum gefi til kynna að þeir myndi
sérstakan erfðahóp, m.a. þær ár sem
Einar kveður ekki vera með eigin-
lega laxastofna.
Sjókvíaeldi er vissulega stundað
í nálægð við veiðiár og árósa í Nor-
egi, sem skýrir m.a. hið skelfilega
ástand laxastofna í Noregi þar sem
erfðamengun hefur verið greind í
tveimur þriðja hluta laxastofnana.
Einar skautar hins vegar í öllu fram
hjá að svara því er fram kemur í
skýrslu norsku vísindanefndarinnar
þar sem staðfest var að mestu ógn-
ina við villta laxastofninn þar í landi
megi rekja til laxeldis í sjókvíum og
að laxalúsin frá sjókvíaeldinu nái
til allra stofna í Noregi, líka þeirra
sem eru ekki í nálægð við veiðiár
og árósa. Norskar rannsóknir hafa
líka sýnt að strokulaxar hafa ferðast
í allt að 2.000 km áður en þeir hafa
gengið upp í ár. Hér má t.a.m. taka
ána Tista í Noregi sem dæmi en hún
er í um 500 km fjarlægð frá næstu
eldisstöð en er samt sem áður upp-
full af eldislaxi. Þessar staðreyndir
byggja á vísindum og þekkingu.
Þá vísar Einar til þess að á sama
tíma og laxeldi hafi margfaldast í
Noregi séu villilaxastofnarnir þeir
sterkustu í Norður-Atlantshafi.
Það mætti hafa gaman af þessari
nálgun Einars að staðreyndum ef
málefnið væri ekki svona alvarlegt.
Staðreyndin er einfaldlega sú að
umræddur erfðamengaður villilaxa-
stofn hefur ávallt verið sá sterkasti
á umræddu svæði en hefur engu að
síður minnkað um rúmlega helm-
ing. Til að setja þetta í rökfræðilegt
samhengi að hætti áróðursmeistar-
ans mætti líkja þessu við það að
gefið hefði verið út sérstakt leyfi
á Íslandi í lok maí 1844 til veiða á
geirfugli þar sem sá stofn væri sá
sterkasti í Norður-Atlantshafi, en
eins og sagan segir okkur voru þeir
tveir síðustu veiddir í Eldey í júní
1844.
Að lokum varðandi tilvísun Ein-
ars til niðurstaðna Kevins Glover,
prófessors í Bergen. Glover hefur
sjálfur staðfest að umrætt líkan
eigi ekki við Ísland þar sem eldi á
norskum ræktuðum laxi feli í sér
aukaáhættu vegna viðbótar erfða-
fræðilegra þátta sem ekki er tekið
tillit til í líkaninu. Glover hefur
einnig í ræðu og riti lýst þeirri
skoðun sinni að full ástæða sé til að
óttast erfðablöndun villtra laxa og
eldislaxa hér á landi og að viðbúið
yrði að sambærileg þróun mundi
eiga sér stað á Íslandi og í Noregi
með auknu laxeldi. Þar með eru öll
„rök“ Einars K. Guðfinnssonar, sem
hann skrýddi sig með, fallin. Það
þarf ekkert lítið barn til að hrópa
„En áróðursmeistarinn er allsber“ til
að opna augu almennings hér um.
Nýju rökin áróðursmeistarans
Jón Þór Ólason
formaður
Stangaveiði-
félags Reykjavík-
ur og lögmaður
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M Á n u D A G u R 9 . A p R í L 2 0 1 8
0
9
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
1
-3
F
F
4
1
F
6
1
-3
E
B
8
1
F
6
1
-3
D
7
C
1
F
6
1
-3
C
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K