Fréttablaðið - 09.04.2018, Page 12
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Sendibíll ársins 2017.
Nýr Crafter.
Við látum framtíðina rætast.
Alþjóðlegur sendibíll
ársins 2017.
Nýr Volkswagen Crafter er hannaður með þarfir
iðnaðarmanna að leiðarljósi. Fyrsti sendibíllinn
með 8 þrepa sjálfskiptingu fyrir allar útgáfur.
Crafter er betri en nokkurn tímann áður en
hægt að velja um fjölda útfærslna á hleðslurými,
farþegarými og aðstoðarkerfi.
Sendibíll verð frá 5.970.000 kr. m/vsk
Pallbíll verð frá 5.610.000 kr. m/vsk
Staðalbúnaður
• 270° opnun á afturhurðum
• Rennihurðir á báðum hliðum
• Hiti í afturrúðum
• Composition Media útvarp með 6,5" skjá
• Hliðarklæðningar
• Vatnsheldur krossviður á gólfi
• Comfort seat plus fyrir ökumann
• Skilrúm með glugga
• Hraðastillir
• Bakkmyndavél
• Aðgerðastýri
• 12V og 230V tengi
• Þokuljós að framan
• Loftkæling
9 . a p r í l 2 0 1 8 M Á N U D a G U r12 S p o r t ∙ F r É t t a B l a ð i ð
sport
HaNDBolti „Frammistaðan á móti
heimsmeisturum Frakka var algjör-
lega stórkostleg. Þetta var frábær
leikur af okkar hálfu, bæði í vörn
og sókn,“ segir Guðmundur Guð-
mundsson við Fréttablaðið eftir
tveggja marka tap íslenska hand-
boltalandsliðsins fyrir því franska,
26-28, í síðasta leik þess í Gulldeild-
inni, fjögurra þjóða móti sem fór
fram í Björgvin í Noregi.
Þótt allir leikirnir á mótinu hafi
tapast var frammistaðan til mik-
illar fyrirmyndar, sérstaklega í ljósi
þess hversu ungt íslenska liðið var.
Þá gátu Rúnar Kárason og Ágúst
Birgisson ekkert verið með vegna
meiðsla og Aron Pálmarsson og
Haukur Þrastarson léku ekki með
gegn Frökkum vegna smávægilegra
meiðsla.
„Við mátuðum okkur við þrjú
af fimm bestu landsliðum heims;
Norðmenn á heimavelli, Ólympíu-
meistara Dana og heimsmeistara
Frakka. Við sýnum styrk með því að
vera í jöfnum leikjum á móti þessum
frábæru liðum. Við getum verið
stoltir af því sem við höfum verið að
gera,“ segir Guðmundur sem gaf sex
nýliðum tækifæri í Gulldeildinni:
Hauki, Viktori Gísla Hallgríms-
syni, Teiti Erni Einarssyni, Ragnari
Jóhannssyni, Elvari Erni Jónssyni og
Alexander Erni Júlíussyni. Þeir tveir
síðastnefndu stimpluðu sig vel inn
gegn frönsku heimsmeisturunum í
gær.
Breyttur varnarleikur
Elvar var markahæstur í íslenska
liðinu með sjö mörk og Alexander
spilaði vörnina og gerði það vel.
Hann var oft og iðulega mættur út
á punktalínu til að brjóta á frönsku
leikmönnunum sem var lýsandi fyrir
þær breytingar sem Guðmundur
hefur gert á íslenska varnarleiknum.
„Ég sá framfarir í varnarleiknum í
dag [í gær]. Vörnin var á köflum ágæt
á móti Noregi en gegn Frakklandi
var hún algjörlega til fyrirmyndar,“
segir Guðmundur.
„Þetta tekur tíma. Við fengum
bara tvo daga til að æfa og erum að
gjörbreyta varnarleiknum og líka
fullt af hlutum í sókninni. Þar fyrir
utan erum við komnir með algjör-
lega nýtt lið. Það voru meiðsli og
forföll og við vorum í þessari stöðu.
Frammistaðan hjá kornungu liði
Íslands var til fyrirmyndar í dag, á
móti heimsmeisturunum sem voru
með sitt sterkasta lið fyrir utan einn
mann.“
Aðspurður hvað hefði mátt betur
fara í leikjum helgarinnar nefndi
Guðmundur sóknarleikinn gegn
Dönum.
„Það er svo stutt á milli. Í leiknum
gegn Dönum kom smá óðagot
í sókninni og við slúttuðum of
snemma. Við gáfum okkur ekki
nægilega mikinn tíma í nokkrar
sóknir og spiluðum yfirtöluna ekki
nógu vel,“ segir Guðmundur.
Gegn Dönum var staðan jöfn,
24-24, þegar stundarfjórðungur var
til leiksloka. Þá fór sóknin að hiksta
og Ólympíumeistararnir gengu
á lagið og unnu að lokum þriggja
marka sigur, 31-28. Rasmus Lauge
reyndist íslenska liðinu erfiður á
laugardaginn og skoraði 13 mörk.
Kornungir leikstjórnendur
Gísli Þorgeir Kristjánsson stýrði
íslensku sókninni lengst af í leikj-
unum í Noregi og fórst það vel úr
hendi. Hann skoraði einnig fimm
mörk gegn Danmörku og var marka-
hæstur Íslendinga ásamt Aroni og
Stefáni Rafni Sigurmannssyni sem,
auk þess að spila í vinstra horninu,
leysti stöðu bakvarðar í vörn.
Líkt og gegn Norðmönnum
kom Haukur inn á í seinni hálfleik
gegn Dönum. Selfyssingurinn 16
ára skoraði tvö mörk og var hvergi
banginn þrátt fyrir ungan aldur og
litla reynslu á stóra sviðinu.
Næst á dagskrá hjá íslenska lands-
liðinu eru leikirnir tveir í júní gegn
Litháen í umspili um sæti á HM
2019.
„Nú fara menn til sinna félaga. Þar
er staðan á mönnum mjög mismun-
andi eftir því hversu stórt hlutverk
þeirra er. Þeir þurfa að gæta þess að
halda sér toppstandi. Síðan er mjög
mismunandi hvenær þeir eru búnir
og við hittumst ekki fyrr en í júní.
Við verðum að sjá hversu snemma
við getum hafið æfingar með hluta af
hópnum,“ segir Guðmundur.
ingvithor@frettabladid.is
Frammistaða sem lofar mjög góðu
Selfyssingarnir Elvar Örn Jónsson og Ómar Ingi Magnússon spiluðu vel í Gulldeildinni. FréttaBlaðIð/EyþÓr
Gulldeildin í handbolta
Danmörk 31-28 ísland
(14-13)
Mörk Íslands: Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 5, Stefán Rafn Sigurmanns-
son 5, Aron Pálmarsson 5, Vignir
Svavarsson 4, Ómar Ingi Magnús-
son 4, Haukur Þrastarson 2, Ragnar
Jóhannsson 1, Arnór Þór Gunnars-
son 1/1, Arnar Freyr Arnarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavs-
son 6/1, Viktor Gísli Hallgrímsson 3.
Gulldeildin í handbolta
ísland 26-28 Frakkland
(12-17)
Mörk Íslands: Elvar Örn Jónsson
7, Vignir Svavarsson 4, Ómar Ingi
Magnússon 4, Bjarki Már Elísson
3, Arnór Þór Gunnarsson 3/2, Gísli
Þorgeir Kristjánsson 3, Stefán Rafn
Sigurmannsson 1, Arnar Freyr
Arnarsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavs-
son 5, Viktor Gísli Hallgrímsson 3/1.
Guðmundur Guð-
mundsson stýrði ís-
lenska landsliðinu í
fyrsta sinn í sex ár í
Gulldeildinni, æfinga-
móti í Noregi. Leikirnir
þrír töpuðust en frammi-
staðan var stórgóð,
sérstaklega gegn heims-
meisturum Frakklands.
Sex leikmenn léku sína
fyrstu landsleiki í Gull-
deildinni.
0
9
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
1
-3
B
0
4
1
F
6
1
-3
9
C
8
1
F
6
1
-3
8
8
C
1
F
6
1
-3
7
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K