Fréttablaðið - 09.04.2018, Qupperneq 14
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms
Hallgrímsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur
H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay,
mate@frettabladid.is, s. 512 5442 ,
Ég byrjaði þarna svona þrettán ára,“ segir Þorkell sem er kvikmyndagerðarmaður sem á
meðal annars að baki heimildar
myndirnar Fiðrað kókaín (Feath ered
Cocaine) sem fjallar um fálka smygl
og Trends Beacon um tískuiðnaðinn
í New York. „Þá var ég með sítt hár,
fínlegur og talaði mjög lítið og allir
héldu að ég væri stelpa fyrstu tvö
árin. Ég var alltaf að furða mig á því
að gamlir básúnuleikarar voru að
hjálpa mér að binda bindishnútinn
en það var af því þeir héldu að ég
væri stelpa og kynni þetta ekki.“
Þorkell lék með Svaninum til
rúmlega tvítugs. „Það er eins og
segir í frægri minningargrein að
bestu vinina eignast maður í lúðra
sveitum,“ segir hann og bætir við:
„Ég kynntist konunni minni, Rögnu
Fróðadóttur, fatahönnuði til dæmis
í lúðrasveitinni. Ég spila á klarínett
og konan mín á horn. Svo tek ég
stundum að mér bassatrommuna og
gjöllin þegar við erum að marsera en
á þessum tónleikum leik ég einleik á
lögreglusírenu og bílflautu.“
Nám og störf drógu þau hjónin til
útlanda og þau dvöldu bæði í New
York og Berlín um árabil. „Hljóðfærin
voru með okkur þegar við bjuggum
erlendis en við spiluðum nú ekki
mikið samt. Svo voru börnin farin að
leika sér með hljóðfærin og þá varð
maður öfundsjúkur og tók þau til
baka,“ segir Þorkell. „Börnin fengu
svo bara sín eigin hljóðfæri að leika
sér á og önnur dóttir okkar spilar
einmitt á trompett í Svaninum svo
þarna leika kynslóðirnar hlið við
hlið í kvöld. Ég tók eiginlega ekki upp
klarínettið fyrr en við fluttum heim
fyrir fjórum árum og fann að ég hafði
engu gleymt í pásunni. En ekkert lært
heldur.“
Þorkell fór að mæta aftur á æfingar
og segir það veita sér mikla ánægju.
„Svo sá ég að ef ég vildi hafa einhver
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Þorkell er ekki aðeins klarínettleikari í lúðrasveitinni Svani heldur líka varaformaður, sírenuleikari og bílflautari. MYND/EYÞÓR
Hér má sjá lúðrasveitina undir stjórn Carlos Caro Aguilera í mikilli sveiflu á
Blúshátíð sem haldin var í nýliðinni dymbilviku. MYND/RAGNA FRÓðADÓTTIR
áhrif á hvað hljómsveitin væri að
spila þá yrði ég að koma mér í stjórn.
Ég er varaformaður Svansins núna
og nýtti mér aðstöðu mína til að
þröngva þessari blúshugmynd í gegn
og sveitin er aðallega að spila blús á
tónleikunum í kvöld og smá sveiflu
líka.“
Lúðrasveitir leika ekki oft blús og
Þorkell viðurkennir að persónulegur
metnaður hafi legið að baki blúshug
myndinni. „Blús er svo kúl tónlist, það
er ekkert meira kúl en að spila blús
en ég kann ekkert á rafmagnsgítar og
lítið á trommur, svo þetta var eigin
lega eina leiðin sem ég sá mér færa til
að fara upp á svið og spila blús.“
En blúsar fyrir lúðrasveit voru
ekki auðfundnir. „Þessi hugmynd
hljómaði rosalega vel alveg þangað
til við fórum að leita að lúðrasveitar
útsetningum á blúsum til að spila
og þá kom í ljós að það er ekki um
auðugan garð að gresja og þetta
var mikið vesen. Við fundum þó að
lokum lúðrasveitarblúsa síðan í forn
öld og sitthvað fleira sem tónleika
gestir í kvöld fá að heyra.“
Blúsáhugi Svansins varð til þess að
sveitin spilaði á Blúshátíð í Reykja
vík á um páskana. „Við opnuðum
hátíðina með skrúðgöngu niður
laugaveginn á blúsdeginum og svo
hituðum við upp fyrir Langa Sela og
Skuggana,“ segir Þorkell og malar
við tilhugsunina. „Við völdum okkar
mestu stuðlög, blésum af lífi og sál og
ég held að við höfum verið það atriði
sem kom mest á óvart á Blúshátíð.“
Þorkell hefur gert fjölda heimildar
mynda og viðurkennir að sig dreymi
um að gera mynd um Svaninn.
„Draumurinn er að láta bjóða okkur
á lúðrasveitarhátíð í NorðurKóreu
áður en landið opnast og múrarnir
falla. Ástæðan er sú að okkur var
boðið til AusturÞýskalands einu
sinni á níunda áratug síðustu
aldar og átján mánuðum síðar féll
múrinn,“ segir Þorkell og segist rekja
fall múrsins beint til heimsóknar
Svansins. „Ég lít svo á að við höfum
blásið íbúunum frelsinu í brjóst. Í
Biblíunni er talað um múra Jeríkó
sem féllu þegar lúðrarnir blésu svo
það eru fordæmi fyrir þessu.“
Tónleikarnir í kvöld eru eins og
áður sagði í Hörpu. „Ég held að þetta
verði síðustu tónleikarnir sem verða
haldnir í Hörpu því við ætlum að
vera með svo mikil læti að þakið
fari af húsinu og glerhjúpurinn
splundrist út á Faxaflóa,“ segir Þor
kell og bætir við að Sinfó og Skálmöld
verði bara að finna sér annan stað
fyrir sína tónleika. „Við verðum 45
á sviðinu í kvöld og ætlum að vera
með læti og losna undan ímyndinni
að lúðrasveitir geti ekkert annað en
að freta niður Laugaveginn á fyrsta
maí.“ Ýmislegt er svo á döfinni hjá
Svaninum næsta vetur. „Við erum að
láta semja fyrir okkur nýja tónlist við
þögla mynd sem við ætlum að flytja
í vetur og þá á ég draum um að vera
með hundrað manns á sviðinu.“
En fyrst verður blúsinn blásinn í
kvöld af hjartans lyst. „Það er gaman
að segja frá því að konan mín hann
aði nýja búninga lúðrasveitarinnar
sem eru bláir. Svo í kvöld mun blár
Svanur spila blús.“
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
Afmælistilboð
Kínahofið fagnar 30 ára afmæli
með frábærum tilboðum sem gilda frá 9. apríl til og með 15. apríl.
Veglegt hádegishlaðborð
8 bragðgóðir réttir ásamt úrval af sósum og meðlæti
Verð aðeins kr. 1.590 kr.
Gildir á milli kl. 11 og 14.
Freistandi kvöldtilboð
Allir kjúklinga, nauta, lamba og svínakjötsréttir af matseðli.
Hrísgrjón fylgja öllum réttum.
Verð aðeins kr. 1.590 kr.
2 KYNNINGARBLAð FÓLK 9 . A p R Í L 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
0
9
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
1
-4
9
D
4
1
F
6
1
-4
8
9
8
1
F
6
1
-4
7
5
C
1
F
6
1
-4
6
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K