Fréttablaðið - 09.04.2018, Page 43
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Hvort sem þú
velur margverðlaunaðan KODIAQ eða glænýjan og snjallan KAROQ gerir þú hvorutveggja.
Komdu og prófaðu jeppabræðurna frá ŠKODA. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
MEÐ KODIAQ OG KAROQ.
KODIAQ OG KAROQ. FYRIR FÓLKIÐ ÞITT OG NÁTTÚRUNA.
ŠKODA KAROQ frá:
3.890.000 kr.
ŠKODA KODIAQ 4x4 frá:
5.590.000 kr.5 ára
á
by
rg
ð
fy
lg
ir
f
ól
ks
bí
lu
m
H
E
K
LU
a
ð
up
pf
yl
lt
um
á
kv
æ
ðu
m
á
by
rg
ða
rs
ki
lm
ál
a.
Þ
á
er
a
ð
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
by
rg
d
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-19
Hildur Frænka 18:00
Doktor Proktor & Tímabaðkarið 18:00
Doktor Proktor & Prumpuduftið 18:00
Hleyptu Sól í hjartað 20:00
The Shape Of Water 20:00
Loving Vincent 22:00
The Florida Project 22:30
Loveless 22:30
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Mánudagur
hvar@frettabladid.is
9. apríl 2018
Tónlist
Hvað? Björk – Utopia – Aukatónleikar
Hvenær? 20.00
Hvar? Háskólabíó
Björk er án efa þekktasti listamaður
Íslands fyrr og síðar. Plötur hennar
hafa selst í milljónum eintaka út
um allan heim og fyrir þá síðustu,
Vulnicura, vann hún m.a. Brit-verð-
launin sem besta alþjóðlega söng-
konan. Hún kemur fram með 7
flautuleikurum, slagverksleikara og
raftónlistarmanni. Hópurinn hefur
verið við æfingar á Íslandi sl. vikur.
Í Háskólabíói verður m.a. leikmynd
tónleikaferðarinnar frumsýnd en
hún er hönnuð af Heimi Sverrissyni
og smíðuð í Irma Studios. Dans-
höfundur er Margrét Bjarnadóttir.
Um er að ræða aukatónleika þar
sem seldist upp á „aðal“ tónleikana
12. apríl.
Hvað? Mánudjass
Hvenær? 21.00
Hvar? Húrra, Naustunum
Djassinn dunar á Húrra í tilefni
mánudags.
Viðburðir
Hvað? Digital LA –
Iceland: Silicon Beach
meets Silicon Vikings
Hvenær? 17.00
Hvar? Loft hostel
Hressir startup-
spaðar frá Íslandi
mæta startup-spöðum
frá LA.
Hvað? Gestagangur: Stefan
Laxness – Forensic Architecture
Hvenær? 12.15
Hvar? Listaháskóli Íslands
Stefan Laxness arkitekt, rann-
sakandi og verkefnafulltrúi hjá
Forensic Architecture, heldur opinn
fyrirlestur.
Hvað? Hilda frænka – Frumsýning
Hvenær? 18.00
Hvar? Bíó Paradís, Hverfisgötu
Hilda frænka lifir fyrir plönturnar
sínar. Á meðan hún ræktar heilan
helling af gróðri inni í ævintýralegri
glerhöll, vinnur alþjóðlegt stórfyrir-
tæki að því að rækta töfraplöntu
sem kallast Attilem. Stormasöm og
stórskemmtileg blanda af spennu,
fjölskyldudrama og ástarsögu,
stórkostleg skemmtun sem hentar
börnum 8+ ára og eldri. Myndin
verður sýnd með íslenskum texta á
Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð
Hvað? Business process excellence
champion league - How to get there
Hvenær? 12.00
Hvar? Háskóli Íslands
Í dag kemur Vidas Petraitis LEAN-
sérfræðingur í heimsókn og mun
hann halda fyrirlestur í boði við-
skiptafræðideildar í Ingjaldsstofu
HT-101 í Háskóla Íslands. Fyrir-
lesturinn hefst kl.12.00 og lýkur
kl.13.00. Vidas starfar hjá fyrir-
tækinu Honsa sem
LEAN-sérfræðingur
og er menntaður frá BI
og Harvard. Fyrirlesturinn
fer fram á ensku.
Sýningar
Hvað? Eitt leiðir af öðru og öðru og
öðru – Ásgeir Skúlason
Hvenær? 12.00
Hvar? Listasalur Mosfellsbæjar
Ásgeir er fæddur árið 1984 og býr
í Mosfellsdal. Hann útskrifaðist
úr myndlistardeild Listaháskóla
Íslands árið 2013 og er þetta fyrsta
einkasýning hans. Myndlist Ásgeirs
einkennist af þráhyggjukenndri
endurtekningu með aðferðir og
efnivið en öll verkin á sýningunni
eru unnin úr PVC-rafmagnsein-
angrunarteipi. Um ferlið segir
Ásgeir: „Ég ræð ekki við mig, þegar
þráhyggjan kemur yfir mig verð ég
að gera tilraunir, ég verð að halda
áfram sama hver endanleg útkoma
verður, burtséð frá því hvort mér
þykir hún góð eða slæm. Verkin á
sýningunni eru afrakstur þessara
tilrauna og þróunar.“ Sýningu
Ásgeirs lýkur 4. maí og er aðgangur
ókeypis.
Hvað? Ex libris | Sýning á bókmerkjum
Hvenær? 10.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Tryggvagötu
Sýningin er sett upp í samstarfi
við Myndlistaskóla Reykjavíkur og
Landsbókasafn Íslands. Í dag eru
bókmerki ekki algeng sjón, en áður
fyrr voru slík skrautmerki hönnuð
af listafólki og sett innan á bókar-
kápur til að tilgreina eiganda þeirra.
Óhætt er að segja að um er að ræða
menningarverðmæti sem lítið hefur
farið fyrir og gaman er að kynna
betur fyrir yngri kynslóðinni. Það
þótti því kjörið að fá nemendur við
Myndlistaskólann í Reykjavík til að
spreyta sig á hönnun bókmerkja
með skírskotun í hefðina en um leið
með skýra tengingu inn í nútímann.
Nemendum var jafnframt gert að
setja fram hönnunarferli sitt með
skissum og myndum sem gefa til
kynna hvaðan hugmyndir þeirra eru
sprottnar.
Hvað? Elina Brotherus – Leikreglur
Hvenær? 11.00
Hvar? Listasafn Íslands
Listasafn Íslands sýnir ný verk eins
þekktasta ljósmyndara samtímans,
Elinu Brotherus. Elina Brotherus
(f. 1972 í Finnlandi) fæst að mestu
við gerð sjálfsmynda og landslags-
mynda. Í verkum Elinu má skynja
sterka nálægð hennar sjálfrar en
hún kemur fyrir í öllum ljósmynda-
og vídeóverkum sýningarinnar,
berskjölduð og hispurslaus. Verkin
eru unnin á árunum 2016-2017 og
einkennast af marglaga frásögnum
sem sveiflast á milli kímni og trega.
Í mörgum þeirra setur Elina sér
leikreglur og fer eftir þeim innan
ramma myndavélarinnar, sem er
í senn leikfélagi hennar og sálar-
spegill.
Hvað? Korriró og dillidó – Þjóðsagna-
myndir Ásgríms Jónssonar
Hvenær? 11.00
Hvar? Listasafn Íslands
Ævintýrin gerast enn! Myndheimur
íslenskra þjóðsagna og ævintýra
sem Ásgrímur Jónsson skapaði með
verkum sínum er sannkallaður
töfraheimur. Álfar, tröll og draugar,
sem lifað höfðu með óljósum hætti
í hugskoti þjóðarinnar í rökkri bað-
stofunnar, tóku á sig skýra mynd í
verkum Ásgríms, en hann sýndi slík
verk í fyrsta sinn á Íslandi árið 1905.
Björk, hin eina sanna,
heldur stærðar-
innar tónleika þann
12. apríl. Í kvöld
verða aukatón-
leikar enda seldist
upp á örskots-
stundu.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 19m Á n U D A g U R 9 . A p R í L 2 0 1 8
0
9
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
6
1
-6
7
7
4
1
F
6
1
-6
6
3
8
1
F
6
1
-6
4
F
C
1
F
6
1
-6
3
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K