Fréttablaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@frettabladid.is, Máté
Dalmay mate@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /
FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut
Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Hönnun og
Lífsstíll
með Völu Matt
365.is 1817
MARGFALT SKEMMTILEGRI
ÞRIÐJUDAGA
Glænýir og stórskemmtilegir þættir
með Völu Matt sem fer í
ævintýralegan leiðangur og
heimsækir skapandi og
skemmtilegt fólk.
Jóhanna Elísa Skúladóttir, söngkona og lagahöfundur, sendi frá sér glænýtt mynd-band við lagið The Advent-urous Dream sem hún tók upp á Grænhöfðaeyjum.
Myndbandið var tekið upp
fyrir framan og á 100 ára
gamalli skútu en Jóhanna hafði
einmitt samið lagið á þessari sömu
skútu fyrir tveimur árum.
„Ég fór fyrir tilviljun í seglskipa-
keppnina The Tall Ships Races. Ég
var sjálfboðaliði á einu seglskipi
þarna, 100 ára gömlu hollensku
seglskipi. Þarna er einungis siglt
fyrir seglum, það er bannað að nota
vélarafl. Upplifunin að sigla þetta
var einstök. Ég var laus við allar
áhyggjur og áreiti – það eina sem
var til í heiminum þessa daga var
skipið, sjórinn og sólin. Maður gat
setið uppi á dekki tímunum saman
og horft á sjóndeildarhringinn án
þess að leiðast. Það var akkúrat á
þannig augnabliki sem ég samdi
lagið en það hefur aldrei gerst hjá
mér áður að lag komi svona til mín.
Lagið fjallar einfaldlega um upp-
lifunina á skipinu.“
Hvernig gerðist það að þú endaðir
í þessari keppni?
„Ég bjó í Svíþjóð á þessum tíma
og einn daginn var ég að skrolla
í gegnum Facebook og rak augun
í auglýsingu sem hljómaði ein-
hvernveginn svona: „Viltu verða
sjálfboðaliði á seglskipi í seglskipa-
keppni?“ Ég varð forvitin og ákvað
að slá til. Svo sótti ég bara um ásamt
400 öðrum og fékk þetta. Við vorum
þarna nokkur ungmenni á skipinu.
Í kringum þetta voru svo skrúð-
göngur, hátíðarhöld og risapartí
með öllum skipverjum af öllum
skipunum – þetta var bara alveg
sjúklega gaman!“
Svo gaman var þetta að Jóhanna
gat bókstaflega ekki hætt að hugsa
um ferðalagið.
„Eftir keppnina dreymdi mig um
að snúa aftur á skipið – ég vissi að
það væru ferðir í boði með skipinu
um Grænhöfðaeyjar en það fannst
mér ótrúlega heillandi. Einu ári
síðar var ég að taka upp nokkur lög
á komandi plötu, þar á meðal þetta
lag sem ég samdi á skipinu, og þá
datt mér í hug að snúa aftur á skipið
og taka upp tónlistarmyndband. Ég
ætlaði mér að ná þessu takmarki og
með miklu áræði og skipulagningu
tókst mér það.“
Jóhanna tók myndbandið upp á
skipinu á Grænhöfðaeyjum í byrjun
árs og nú er það komið út og draum-
ur hennar hefur ræst, hvorki meira
né minna.
Var þetta ekkert vesen?
„Nei. Ég var svo heppin að fá
ótrúlega fínan danskan kvik-
myndagerðarmann með mér. Ég
hafði aldrei hitt hann áður en hann
kom í gegnum Eyk Studio. Hann
kom með sínar græjur; myndavél
og dróna. Við tókum þetta upp á
tveimur dögum plús eitt kvöld á
þriðja degi. Einn daginn vorum við
bara í landi með skipið í bakgrunni.
Við vorum á eyðieyju með gömlu
virki þangað sem var farið með
okkur á gúmmíbát. Svo vorum við
bara á skipinu í einn dag á siglingu.
Þetta gekk allt ótrúlega greiðlega
fyrir sig.“
Fram undan hjá Jóhönnu er að
klára plötuna sína, en The Advent-
urous Dream er annað lagið sem
hún gefur út af plötunni. Annars er
hún bara að semja á fullu og segir
að það sé mikið í pípunum.
Myndbandið má finna á YouTube
og á like-síðu Jóhönnu á Facebook.
Lagið má svo finna á Spotify og
öðrum streymisveitum.
stefanthor@frettabladid.is
Tók upp myndband á
100 ára skipi í Afríku
Jóhanna Elísa Skúladóttir samdi lag á hollensku skipi fyrir tveimur
árum þegar hún var þar sjálfboðaliði. Hún fór svo til Grænhöfðaeyja
þar sem skipið var statt og tók upp tónlistarmyndband við sama lag.
Jóhanna lét drauminn um að snúa aftur á skipið rætast og tók upp myndband í leiðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Jóhanna upplifði drauminn um borð í skipinu Oosterschelde sem má sjá hér.
MAður gAT seTið
uppi á dekki TíM-
unuM sAMAn og horfT á
sjóndeildArhringinn án
þess Að leiðAsT. þAð vAr
AkkúrAT á þAnnig AugnA-
bliki seM ég sAMdi lAgið.
9 . a p r í l 2 0 1 8 M Á N U D a G U r22 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð
0
9
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
1
-4
E
C
4
1
F
6
1
-4
D
8
8
1
F
6
1
-4
C
4
C
1
F
6
1
-4
B
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K