Fréttablaðið - 18.04.2018, Síða 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Á listanum
eru væntan-
lega einstakl-
ingar sem
hafa ekkert til
saka unnið
annað en að
vinna sína
vinnu en af
því að hún er
fólgin í því að
draga fram
sannleika
sem getur
reynst óþægi-
legur þá
teljast við-
komandi
erfiðir.
Þeir hafa
gagnrýnt
hugmyndir
um að fella
niður
fasteigna-
skatt á eldri
borgara og
staðið gegn
umræðu um
lausnir í því
efni.
AÐALFUNDUR
Eflingar-stéttarfélags 2018
Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags 2018 verður haldinn á Grand Hótel
fimmtudaginn 26. apríl 2018. Fundurinn hefst kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni að
Sætúni 1/Guðrúnartúni 1 Reykjavík frá og með miðvikudeginum
18.apríl nk.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Eflingar-stéttarfélags
Sífellt fleiri ná því að komast á lífeyrisaldur. Eldri borgurum fjölgar. Margir hafa enn þá getu og vilja til að vinna, en fá á sig ýmsar tekjuskerðingar á
móti. Þetta fyrirkomulag hefur verið gagnrýnt enda
samþykkti Sjálfstæðisflokkurinn á landsfundi sínum
að afnema beri slíkar skerðingar. Álögur á íbúa í
Reykjavík hafa hækkað mikið á síðustu fjórum árum.
Fasteignagjöld og gjaldskrár hafa hækkað um tugi
prósenta. Við sem skipum framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins viljum létta byrðar þeirra sem eldri eru og
stuðla að því að þeir fái lifað sjálfstæðu lífi með reisn.
Reykjavík getur lagt sitt af mörkum.
Eitt af því sem við höfum lofað að beita okkur
fyrir er að þeir sem eru komnir yfir sjötugt þurfi ekki
lengur að greiða fasteignaskatt af lögheimili sínu. Slík
niðurfelling hefur verið háð þröngum tekjumörkum
og hefur þannig verið einn af þeim jaðarsköttum
sem bitna illa á þeim sem komnir eru á efri ár. Það er
skynsamlegt að draga úr refsisköttum og skerðingum.
Borgin hefur misst tökin á húsnæðismálunum þrátt
fyrir fögur fyrirheit. Leiguverð og kaupverð hafa
snarhækkað á síðustu fjórum árum með tilheyrandi
hækkunum á gjöldum.
Borgin hefur staðið í málaferlum við öryrkja og
neitað að borga lögbundnar húsaleigubætur. Full-
trúar núverandi meirihluta hafa fellt tillögur okkar
um lækkun fasteignaskatts í 0,16%. Þeir hafa gagnrýnt
hugmyndir um að fella niður fasteignaskatt á eldri
borgara og staðið gegn umræðu um lausnir í því efni.
Í staðinn fyrir þessa neikvæðu stefnu á Reykjavík að
vera leiðandi og stuðla að heilbrigðri þátttöku eldri
borgara í starfi og leik. Styðja þá sem geta og vilja búa
heima hjá sér og bæta jafnframt heimaþjónustuna.
Höfuðborgin hefur upp á margt að bjóða í menningu
og sem ferðamannaborg. Okkar skylda er að gera vel
við íbúana. Ekki síst þau sem byggðu upp samfélagið
sem við búum í og eru nú komin á efri ár. Léttum
byrðar þeirra sem ruddu brautina og lækkum gjöldin
á íbúana.
Léttum byrðarnar
hjá þeim eldri
Eyþór Arnalds
skipar fyrsta
sæti á lista
Sjálfstæðis-
flokksins í
Reykjavík
Það eru aðeins rétt rúm tvö ár síðan upp-ljóstrað var um stöðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáverandi forsætisráð-herra, í Panamaskjölunum og reyndar einnig fleiri ráðamanna. Þessar mikilvægu
uppljóstranir leiddu eðlilega til þess að ríkisstjórnin
hraktist frá völdum en hvort miklar umbætur hafa
átt sér stað innan íslenskra stjórnmála og samfélags
frá þeim tíma skal ósagt látið. Eitt af því sem var hvað
átakanlegast við að fylgjast með því, þegar ljóstrað
var upp um stöðu Sigmundar Davíðs í Panamaskjöl-
unum, var algjör afneitun hans á því að hafa gert
nokkuð rangt. Hann tók sér stöðu sem fórnarlamb
fjölmiðla sem hefðu horn í síðu hans og gerði því
jafnvel skóna að eitthvað persónulegt eða annarlegt
lægi að baki uppljóstrunum. Hann var fórnarlamb
sannleikans.
Fórnarlamb sannleikans vildi halda áfram í stjórn-
málum en þjóðin var öll meira og minna fjúkandi
vond út í forsætisráðherrann sinn fráfarandi. Þá var
auðvitað ekkert annað til ráða en að búa til einhvern
annan sannleika. Einhverja hlið málsins sem sýndi að
þetta væri allt í lagi og það væri fullt af fólki sem stæði
einhuga á bak við stjórnmálamanninn hugprúða. Það
vildi bara ekki koma fram undir nafni af ótta við alla
þessa skelfilegu fjölmiðlamenn sem væru alltaf að
fara fram á að ráðamenn segðu satt. Slíkt getur auð-
vitað verið þreytandi og jafnvel til vandræða þegar
fram líða stundir og völdin renna úr greipum.
Hið rétta var reyndar að Sigmundur Davíð setti
sig í samband við almannatengilinn Viðar Garðars-
son sem tók að sér að setja upp vefsíður ímyndaðra
stuðningsmanna og þannig var leitast við að blekkja
almenning. Þetta er svona næsti bær við falskar fréttir
og eins og þær auðvitað ekkert annað en vísvitandi
blekking og þar með aðför að lýðræðinu. Það er
dapurlegt að Sigmundur Davíð og almannatengillinn
Viðar skuli ekki hafa séð, eða þá viljað sjá, hversu
siðferðislega rangt er að blekkja almenning með
þessum hætti. Nú situr Viðar eftir með sárt ennið og
ógreiddan reikning, fórnarlamb heimatilbúins sann-
leika án kaupanda. Vonandi er siðferðisþröskuldur
almannatengla alla jafna hærri en sá sem þarna var
rúllað yfir.
Viðar situr reyndar enn á lista yfir fjölmiðlamenn
sem eiga að vera forsætisráðherranum fyrrverandi
erfiðir. Á listanum eru væntanlega einstaklingar sem
hafa ekkert til saka unnið annað en að vinna sína
vinnu en af því að hún er fólgin í því að draga fram
sannleika sem getur reynst óþægilegur þá teljast við-
komandi erfiðir. Því miður er það ekkert einsdæmi
að stjórnmálamenn og fleiri valdamenn láti í sífellu
að því liggja að fjölmiðlar hafi horn í síðu þeirra
eða þar séu fréttamenn sem hafi eitthvað misjafnt í
huga. Þetta er auðvitað óþolandi með öllu því erindi
fréttamanna er að leiða fram sannleikann og ef vald-
hafi hefur eitthvað við það að athuga þá hefur hann
eitthvað að fela. Einhvern sannleika sem á erindi við
almenning og það er fyrir þann sama almenning sem
fréttamenn starfa.
Fórnarlömb
Þverpólitísk áreitni
Þingheimur naut á föstudags-
kvöld eðalvína frá Suður-
Evrópu í árlegri þingveislu.
Guðmundur Sævar Sævarsson,
varaþingmaður Flokks fólksins,
fór heldur geyst í veigarnar og
eins og Fréttablaðið.is greindi
frá fyrst miðla í gær varpaði
framferði hans skugga á gleðina.
Hann gerðist ágengur og fjöl-
þreifinn við konur í veislunni,
að sögn þvert á flokkalínur þótt
konur í Sjálfstæðisflokknum
hafi einna helst þurft að verjast.
Að sama skapi vekur athygli að
þverpólitískt samkomulag virð-
ist vera um að segja sem minnst
um málið þar sem fjölmiðlum
hefur veist flókið að fá þingfólk
til þess að tjá sig um það.
Pólitískur dans
Gleðin hélt þó velli enda virðist
þingfólki almennt tamt að
skemmta sér saman. Þannig
vöktu þau sérstaka athygli fyrir
fágaða framkomu þau Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra
og Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra. Þegar dansgólfið var
opnað stigu þau fyrst allra
saman fram og tóku snúning.
Ákaflega fallegt augnablik þar
sem pólitískir og oft harðir and-
stæðingar svifu í takt um gólfið.
Það er greinilega póli tískur
möguleiki að skemmta sér
saman utan veggja vígvallarins
við Austurvöll.
thorarinn@frettabladid.is
1 8 . a p r í l 2 0 1 8 M I Ð V I K U D a G U r10 s K o Ð U n ∙ F r É T T a B l a Ð I Ð
SKOÐUN
1
8
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
E
-D
C
4
0
1
F
7
E
-D
B
0
4
1
F
7
E
-D
9
C
8
1
F
7
E
-D
8
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K