Fréttablaðið - 18.04.2018, Side 18
– Tengir þig við framtíðina!
Sjónvarpsdreifikerfi
fyrir hótel, gistiheimili og skip.
Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660
oreind@oreind.is • www.oreind.is
Nýtt öflugt
bókhaldskerfi í skýinu
frá manninum sem færði
okkur Dynamics Ax
Prófaðu
frítt í
30 daga
www.uniconta.is
Lagast að þínum þörfum
Erik Damgaard
Stofnandi Uniconta
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5800
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
Eigendur kaffihúsakeðjunnar Kaffitárs, sem rekur sjö kaffihús á höfuðborgarsvæðinu
auk bakaría og veitingastaðar, hafa
sett félagið í formlegt söluferli. Sam
kvæmt heimildum Markaðarins
hafa nokkrir sýnt keðjunni áhuga
en engin tilboð hafa enn verið lögð
fram. Er söluferlið í höndum fyrir
tækjaráðgjafar Íslandsbanka.
Aðalheiður Héðinsdóttir stofnaði
Kaffitár árið 1990 með eiginmanni
sínum, Eiríki Hilmarssyni, en þau
eru einu eigendur félagsins. Kaffi
húsakeðjan tapaði 10,5 milljónum
króna árið 2016 borið saman við
19,7 milljóna króna tap árið 2015.
Eftir jákvæða afkomu árin 2012 og
2013, þar sem hagnaðurinn nam
um og yfir 80 milljónum króna,
hafa síðustu rekstrarár reynst félag
inu erfið. Velta Kaffitárs var tæplega
1.100 milljónir árið 2016.
Kaffitár stofnaði dótturfélagið
Kruðerí bakarí árið 2015 sem sér
hæfir sig í framleiðslu meðlætis með
kaffi en bakaríið má finna á tveimur
stöðum, á Stórhöfða og Nýbýlavegi.
Þá opnaði félagið veitingastaðinn
Út í bláinn í Perlunni síðasta sumar.
Aðalstöðvar félagsins eru í Reykja
nesbæ þar sem öll kaffiframleiðslan
fer fram.
Forstjóraskipti urðu hjá félaginu
fyrr á árinu þegar Kristbjörg Edda
Jóhannsdóttir lét af störfum eftir
rúmlega ár í starfi. Aðalheiður tók
við forstjórastarfinu á ný og Krist
björg Edda var kjörin stjórnarfor
maður. Þá var Andrea Róbertsdóttir
auk þess ráðin framkvæmdastjóri
kaffihúsa Kaffitárs. – kij
Kaffitár sett í formlegt söluferli
Aðalheiður
Héðinsdóttir,
stofnandi og
aðaleigandi
Kaffitárs.
Gamli Byr, sem lauk nauðasamningum í janúar 2016, hefur enn ekki getað greitt stöðugleikaframlag til íslenska
ríkisins sem yrði að óbreyttu rúm
lega tveir milljarðar króna sökum
ágreinings við Íslandsbanka um
virði útlánasafns sem bankinn keypti
af Byr og ríkissjóði haustið 2011.
Íslandsbanki, sem er alfarið í eigu rík
isins, telur að ofmat á verðmæti lána
safnsins hafi valdið bankanum fjár
tjóni og hefur krafist þess að Gamli
Byr og ríkissjóður greiði bankanum
skaðabætur upp á 7,7 milljarða króna
auk vaxta. Bankinn borgaði samtals
6,6 milljarða á sínum tíma fyrir allar
eignir Byrs.
Í greinargerð sem Byr lagði fyrir
Héraðsdóm Reykjavíkur í byrjun árs
er meðal annars vakin athygli á því
að Íslandsbanki hafi viðurkennt í
júlí 2017 að hafa veitt dómkvöddum
matsmönnum rangar upplýsingar
um tryggingar og greiðsluflæði þeirra
lána sem þeim var ætlað að gefa álit
á til að meta meint fjártjón bankans.
ViðskiptaMogginn greindi frá því í
síðasta mánuði að bankinn hefði lagt
fyrir matsmennina gögn sem gáfu til
kynna að 993 lán sem hann tók yfir
með kaupunum hefðu verið án trygg
inga. Í ljós hafi hins vegar komið að
tryggingar lágu að baki nær öllum
lánanna.
Þá segir í greinargerðinni, sem
Markaðurinn hefur undir höndum,
að í skýrslu sem endurskoðunarfyrir
tækið PwC gerði fyrir Byr á grundvelli
þeirra gagna sem Íslandsbanki lagði
fram hafi eins verið sýnt fram á að
bankinn hefði í mörgum tilfellum
tekið til sín tryggingar sem voru að
baki lánum Byrs. Þannig hafi hann
ráðstafað þeim inn á eigin kröfur án
þess að færa Byr til tekna þau verð
mæti sem komu í stað trygginganna.
Ekki hafi verið unnt að fullyrða, byggt
á þeim gögnum sem voru fáanleg,
hver sú fjárhæð hafi samtals verið
en þó megi ætla að hún nemi tugum
milljóna króna. Íslandsbanki hafnaði
þessum athugasemdum PwC í „öllum
megindráttum“ og segir að trygging
arnar hafi að mestu réttilega tilheyrt
bankanum, en ekki Byr.
Skoða að krefjast rannsóknar
Gestur Jónsson, lögmaður Byrs,
staðfestir í samtali við Markaðinn
að félagið hafi í kjölfar þess að upp
komst um að Íslandsbanki hafi veitt
matsmönnunum rangar upplýsingar
séð ástæðu til að skrifa bréf til stjórn
ar bankans í september í fyrra til að
vekja athygli á vinnubrögðum hans í
málinu. Aðspurður segir hann að það
hafi verið til skoðunar hjá Gamla Byr
að krefjast rannsóknar á því hvernig
það kom til að Íslandsbanki lagði
fram rangar upplýsingar sem grund
völl að meintu tjóni og hver beri
ábyrgð á því. Með þessu móti hafi
bankinn getað fengið til sín verðmæti
sem hann hafi ekki átt tilkall til.
Gestur segir að Gamli Byr hafi
óskað eftir því við Íslandsbanka að
hann veiti aðgang að réttum upp
lýsingum um innheimtu alls lána
safns Byrs, aðgang að niðurstöðum
áreiðanleikakönnunar sem bankinn
vann á verðmæti eigna Byrs og geri
jafnframt grein fyrir gangvirðismati
sem hann gerði vegna samruna Byrs
og Íslandsbanka. Það skjóti skökku
við, útskýrir Gestur, að bankinn hafi
sjálfur metið útlánasafnið á rúmlega
80 milljarða seinni hluta ársins 2011
þegar hann færði niður keypta við
skiptavild Byrs um 17 milljarða en fari
nú fram á að fá 7 milljarða greidda til
baka vegna þess að safnið hafi ekki
staðið undir væntingum um 90 til 95
milljarða.
Gamli Byr hefur krafist þess að
Íslandsbanki felli dómsmálið niður
hið fyrsta en bankinn hefur sagst vilja
bíða eftir því að hinir dómkvöddu
matsmenn, sem hafa unnið að virðis
matinu frá 2013 og fengið greitt á
annað hundrað milljóna króna fyrir
þá vinnu, ljúki verki sínu.
Forviða á vinnubrögðum
Kröfuhafar Byrs, að stærstum hluta
þýskir bankar og sparisjóðir sem
eru upprunalegir lánveitendur
sparisjóðsins, eru sagðir forviða
á vinnubrögðum Íslandsbanka,
að sögn þeirra sem þekkja vel til
málsins. Þeir hafi lengst af sýnt því
skilning að bankinn eigi rétt á því
að bera ágreining sinn undir dóm
stóla enda þótt þeir hafi undrast
málatilbúnaðinn. Það eigi ekki síst
við með hliðsjón af því að stór fjár
málastofnun eins og Íslandsbanki,
sem framkvæmdi eigin áreiðan
leikakönnun við kaup á mun minna
fjármála fyrirtæki skuli krefjast
skaðabóta með þeim rökum að
virði útlánasafns, sem var yfirtekið
skömmu eftir fordæmalaust fjár
mála og efnahagshrun, hafi ekki
verið í samræmi við væntingar.
Steininn hafi hins tekið úr fyrir um
ári þegar uppvíst varð um ranga
upplýsingagjöf Íslandsbanka sem
hefði getað leitt til þess að bankinn
hefði auðgast með ólögmætum
hætti á kostnað annarra kröfuhafa
og hluthafa Gamla Byrs.
Það mál sem nú er rekið fyrir
dómstólum hefur tafið verulega
lok slitameðferðar Gamla Byrs og
þar með um leið komið í veg fyrir
útgreiðslur til hluthafa. Þá hefur
Gamli Byr, sem fyrr segir, enn ekki
getað innt af hendi stöðugleika
framlag sitt til íslenska ríkisins
sem er áætlað að eigi að óbreyttu
að verða rúmlega tveir milljarðar
króna, samkvæmt upplýsingum
Markaðarins.
hordur@frettabladid.is
Ríkið bíður enn eftir
milljarða greiðslu Byrs
Gamli Byr getur ekki greitt stöðugleikaframlag vegna deilu við Íslandsbanka.
Byr sakar bankann um að hafa veitt rangar upplýsingar vegna kröfu um sjö
milljarða skaðabætur. Skrifaði stjórn bankans bréf vegna vinnubragða í málinu.
Stærstu hluthafar Byrs eru þýskir bankar og sparisjóðir. FréttABlAðið/SteFán
6,6
milljarða króna greiddi Ís-
landsbanki fyrir allt hlutafé
Byrs haustið 2011.
1 8 . a p r í l 2 0 1 8 M I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn
1
8
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
E
-F
E
D
0
1
F
7
E
-F
D
9
4
1
F
7
E
-F
C
5
8
1
F
7
E
-F
B
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K