Fréttablaðið - 18.04.2018, Síða 40
Dans
Vakúm, poppópera
HHHHH
Melkorka sigríður Magnúsdóttir
Tjarnarbíó
Tónlist: Árni Rúnar Hlöðversson
Texti: Auður Ava Ólafsdóttir
Leikmynd og búningar: Magnús
Leifsson og Arnar Ásgeirsson
Flytjendur: Auðunn Lúthersson,
Ásgeir Helgi Magnússon, Elísa Lind
Finnbogadóttir, Gunnar Ragnars-
son og Melkorka Sigríður Magnús-
dóttir
Verkið Vakúm, poppópera eftir Mel-
korku Sigríði Magnúsdóttur, sem
frumsýnt var í Tjarnarbíói 12. apríl
2018 og varðaði upphaf danshátíðar
Tjarnarbíós, Vorblóts, ber sterk ein-
kenni höfundar. Verkið er fallegt,
einlægt, fyndið og fjörugt eins og
flest verka hennar og í því bræðir
hún saman ólíkar listgreinar, tón-
list, dans, leiklist, ljóðlist og mynd-
list í eina heildræna mynd. Sam-
starfsmenn og -konur Melkorku í
þessum listbræðingi hafa greinilega
lagt mikið í verkið rétt eins og hún
því að allir þættir eru mjög faglega
unnir og heildin feikna sterk. Þó
að verkið væri rúmur klukkutími
í flutningi hvarf tíminn á meðan
horft var á.
Höfundur verksins og meirihluti
flytjenda, þau Ásgeir Helgi, Elísa
Lind og Melkorka sjálf, eru mennt-
aðir dansarar og aðallega þekkt
sem slíkir. Hreyfingar sem krefjast
dansþjálfunar eru þó ekki áberandi
í verkinu heldur frekar almennar
hreyfingar og hreyfingar sem fylgja
tónlistarflutningi á sviði. Tónlistar-
flutningur er líka stór partur af
verkinu. Þar mæðir mikið á tveimur
söngvurum sem eru meðal flytj-
enda, þeim Auðuni Lútherssyni og
Gunnari Ragnarssyni, sem báðir eru
þekktir fyrir sterka sviðsframkomu.
Hlutverkaskipan er þó ekki sú að
dansararnir dansi og söngvararnir
syngi heldur ferðast flytjendurnir
yfir mörk sinna listgreina og sýna
þar á sér nýjar hliðar. Auðunn og
Gunnar voru vel liðtækir í dans-
inum og Melkorka, Elísa Lind og
Ásgeir sungu eins og englar. Þar
kom Ásgeir Helgi ekki síst á óvart
því að hann hefur ekki mikið sýnt
þessa hlið á sér áður. Tónlistin
samin af Árna Rúnari er grípandi
og kröftug og gefur flytjendunum
færi á að tjá fjölbreyttar aðstæður
og tilfinningar í gegnum sönginn.
Textar Auðar Övu sem allir eru á
íslensku hafa líka sterkan hljóm
og hrynjandi og ýta undir sterka
tjáningu. Leikmynd og búningar
voru afbragð þó að það megi spyrja
sig hverjum detti í hug að vera í
svörtum sokkum í ljósum krokks-
skóm. Umgjörðin var svo skýr og
sterk að undirrituð velti fyrir sér á
meðan á sýningunni stóð hvort hún
væri að horfa á myndlistargjörning,
tónleika eða dansverk.
Efni verksins er það verkefni að
skapa nýjan heim úr engu og gefa
honum merkingu. Það er í tóma-
rúminu sem allt getur gerst. Þessi
hugmynd kemst ágætlega til skila
frá upphafi þar sem flytjendur eru
fastir inni í plastkassa og þar til þeir
hverfa þangað aftur eftir að hafa
rannsakað það sem er fyrir utan og
hvert annað. Í ítalskri hugmynda-
fræði um uppeldi barna, sem kennd
er við borgina Reggio Emilia, er
áhersla á að barninu sé ekki kennt á
heiminn heldur fái það að rannsaka
og uppgötva hann á eigin forsend-
um. Fullorðnir skapa kveikjur fyrir
börnin til að uppgötva en halda sig
annars í bakgrunninum. Stemm-
ingin í verkinu Vakúm minnti á
þessa hugmynd. Flytjendurnir
höfðu kveikjur til að vinna út frá
en rannsökuðu og sköpuðu annars
sinn eigin heim sem ekki var hægt
að vita fyrir fram hvernig yrði. Þau
könnuðu rýmið, formin, hljóðin og
áferð þess sem var á sviðinu, auk
þess að kanna hið mannlega sem
fylgir því að vera manneskja með
öðrum manneskjum.
Verkið er mannlegt, fullt af leik
og glensi en á sama tíma með grafal-
varlegan undirtón sem bjó ekki síst
í textum Auðar Övu. Hugmyndin
um að skapa úr engu minnir á
eftir-heimsendamyndir eða sögur
og þrána eftir að byrja með hreint
borð. Óræðir en áhugaverðir textar
Auðar Övu sem finna má á íslensku
í leikskrá og álteppin sem voru hluti
af sviðsmyndinni undirstrikuðu
þessa tilfinningu og gáfu áhorf-
endum tækifæri til að búa til sínar
eigin sögur í huganum um leið og
þeir fylgdust með flytjendunum
kanna umhverfi sitt. En rétt eins og í
eftir-heimsendamyndum þá er ekki
tóm eftir heimsendinn heldur rústir
og litleysa. Áhorfandinn sá því ekki
eitthvað verða úr engu heldur eitt-
hvað sem orðið hafði úr engu og
kveikjur til að halda áfram sinni
eigin uppgötvun á því hvað það sem
gerðist á sviðinu merkti fyrir þá.
Sesselja G. Magnúsdóttir
niðursTaða: Vakúm er flottur
listbræðingur sem fyllir áhorfand-
ann krafti. Verkið er faglega unnið
á allan hátt, sama hvort horft er
til sjónrænnar umgjarðar, dansins,
tónlistarinnar eða ljóðanna sem
sungin voru.
Eitthvað úr engu
Úr sýningunni Vakúm, eftir Melkorku Sigríði, sem var frumsýnd í Tjarnarbíói síðastliðinn fimmtudag. Mynd/MaGnÚS LeiFSSon
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-19
Doktor Proktor & Prumpuduftið 18:00
Pitbull Ostatni Pies 17:45
Doktor Proktor & tímabaðkarið 18:00
Adam 20:00
Narzeczony Na Niby ENG SUB 20:00
The Florida Project 20:00
Hleyptu Sól í hjartað 22:00
Loving Vincent 22:15
Andið eðlilega ENG SUB 22:30
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
18. apríl 2018
Tónlist
Hvað? Vortónleikar Fóstbræðra
2018
Hvenær? 20.00
Hvar? Harpa
Karlakórinn Fóstbræður heldur
árlega vortónleika sína í Norður-
ljósasal Hörpu.
Viðburðir
Hvað? Myndaþraut í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur
Hvenær? 10.00
Hvar? Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Í tilefni af Barnamenningar-
hátíð verður á Ljósmyndasafninu í
Reykjavík boðið upp á skemmtilega
myndaþraut um sýninguna Þessi
eyja jörðin, sem fjallar um íslenskt
landslag. Þrautin gengur út á sam-
veru og samvinnu fjölskyldunnar
sem þarf að hjálpast að við að leysa
það sem fyrir hana er lagt.
Hvað? Fjölskyldustund
Hvenær? 09.30
Hvar? Borgarbókasafnið, Gerðu-
bergi
Samverustundir fyrir ung börn
og fjölskyldur þeirra eru haldnar
í menningarhúsum Borgarbóka-
safnsins í hverri viku. Eldri börn eru
líka velkomin, en stundin er sérstak-
lega sniðin að þörfum lítilla barna.
Hér geta börnin hitt leikfélaga og
foreldrar kynnst öðrum foreldrum.
Frítt inn og allir velkomnir!
Hvað? Bjartir dagar
Hvenær? 10.00
Hvar? Hafnarfjörður
Menningar- og þátttökuhátíðin
Bjartir dagar verður haldin í næstu
viku eða dagana 18.-22. apríl í
tengslum við sumardaginn fyrsta
eins og undanfarin ár. Hátíðin hefst
á því að þriðjubekkingar syngja
inn sumarið á Thorsplani síðasta
vetrardag, bæjarlistamaður Hafnar-
fjarðar verður útnefndur ásamt því
að menningar- og ferðamálanefnd
veitir styrki til viðburða og menn-
ingarstarfsemi.
Hvað? Café Lingua | Svahílí allt um
kring
Hvenær? 17.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Kringlunni
Café Lingua er gátt inn í mis-
munandi menningarheima og er
tilvalinn vettvangur fyrir þá sem
vilja efla tungumálakunnáttu sína
og hafa áhuga á að spreyta sig á
ýmsum tungumálum. Markmið
Cafe Lingua er að virkja þau tungu-
mál sem hafa ratað til Íslands og
hafa auðgað mannlíf og menningu.
Fólk með íslensku sem annað mál
fær tækifæri til þess að tjá sig á
íslensku sem og að kynna móður-
mál sitt fyrir öðrum.
Hvað? Skyggnst inn í huga rað-
morðingja
Hvenær? 14.00 og 17.00
Hvar? Háskólinn í Reykjavík
Þættirnir Mindhunter á Netflix
fjalla um rannsóknir atferlisvís-
indadeildar FBI (Behavioral Science
Unit) á hugarheimi raðmorðingja.
Persónur þáttanna eru byggðar á
raunverulegum persónum og nú
hefur MPM-námið við Háskólann
í Reykjavík boðið dr. Ann Burgess
(dr. Carr í þáttunum) og manni
hennar, dr. Allen G. Burgess, til
Íslands til að segja frá þessu áhuga-
verða rannsóknarverkefni. Fyrir-
lestur fyrir fagaðila hefst kl. 14 og
fyrir almenning kl. 17.
Hvað? Eldhús eftir máli, hversdags-
legar hryllingssögur Svövu og Völu
Hvenær? 20.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Leikhúslistakonur 50+ standa
fyrir leiklestri á leikverkum Svövu
Jakobsdóttur á vordögum 2018 í
Hannesarholti. Eldhús eftir máli,
leikrit Völu Þórsdóttur eftir smá-
sögum Svövu Jakobsdóttur, er
síðast í röðinni í dag.
Hvað? Ljóðakvöld dauðans
Hvenær? 20.00
Hvar? Loft hostel, Bankastræti
Ljóðakvöld dauðans verður haldið
á Loft hosteli í Bankastræti. Lesnir
verða textar sem fjalla um dauða,
sorgir, einsemd og tilvistarvanda. Á
milli ljóðalestra kemur fram Hljóm-
sveit dauðans sem skipuð er ein-
hverjum af skáldum kvöldsins, auk
Uglu Egilsdóttur. Hljómsveitin flytur
tónlist með textum sem hæfa þem-
anu; sungið verður um dauða, biturð,
hatur, hótanir, svefnleysi, brjálæði
og týpuálag manneskjunnar. Skáld
dauðans eru: Bragi Ólafsson, Atli Sig-
þórsson, Þórdís Gísladóttir, Kristín
Ómarsdóttir, Hermann Stefánsson
og Kristín Svava Tómasdóttir.
Hvað? Adam
Hvenær? 20.00
Hvar? Bíó Paradís, Hverfisgötu
Í listamannahverfinu Neuköln í
Berlín stendur hinn ungi Adam
frammi fyrir erfiðustu ákvörðun
lífs síns þegar móður hans, alkó-
hólsjúkri teknótónlistarkonu, er
komið fyrir á stofnun.
sýningar
Hvað? Sumarsýning Grósku
Hvenær? 20.00
Hvar? Gróskusalurinn, Garðabæ
Sumarsýning Grósku, samtaka
myndlistarmanna í Garðabæ, verður
opnuð í dag, síðasta vetrardag. Til
sýnis verður myndlist eftir félags-
menn í Grósku og er fjölbreytnin jafn
mikil og listamennirnir eru margir.
Artemis verða með tónlistaratriði við
opnunina og boðið er upp á léttar
veitingar. Allir listunnendur eru
velkomnir og þeir sem ekki komast
þurfa ekki að örvænta því sýningin
er opin áfram 19.-22. apríl kl. 12-18.
Hvað? Kjarval: Líðandin – la durée
Hvenær? 10.00
Hvar? Kjarvalsstaðir
Á sýningunni eru mörg sjaldséð
verk, einkum frá fyrri hluta starfs-
ævi Jóhannesar Sveinssonar Kjarval
(1885-1972).
Þórdís Gísladóttir og fleiri skáld lesa
upp á Ljóðakvöldi dauðans á Loft
hosteli í kvöld kl. 20.00.
Efni vErksins Er það
vErkEfni að skapa nýjan
HEim úr Engu og gEfa Honum
mErkingu. það Er í tóma-
rúminu sEm allt gEtur
gErst.
1 8 . a p r í l 2 0 1 8 M i ð V i K u D a G u r24 M e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð
menning
1
8
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
7
E
-E
1
3
0
1
F
7
E
-D
F
F
4
1
F
7
E
-D
E
B
8
1
F
7
E
-D
D
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K