Fréttablaðið - 28.04.2018, Síða 2

Fréttablaðið - 28.04.2018, Síða 2
Veður Hæg norðlæg eða breytileg átt í dag og víða dálítilar skúrir eða él. Hiti víða 2 til 8 stig að deginum, mildast sunnan- og suðvestanlands. sjá síðu 48 Allt að gerast Verðandi stúdentar settu líflegan svip á höfuðborgina í gær þegar lokaársnemar framhaldsskóla fóru í fríðum flokkum um götur og torg og skemmtu sjálfum sér og öðrum með innilegu gleðisprelli dimittantanna. Þessar stúlkur slógu ekki slöku við í fögnuðinum. Fréttablaðið/Eyþór Höfum gaman af 'essu Kynntu þér Vinahópinn á olis.is Framkvæmdir Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar hefur óskað eftir heimild borgar- ráðs til að bjóða út framkvæmdir við endurnýjun eldri búnings- og baðaðstöðu kvenna í Sundhöll Reykjavíkur. Er talið að fram- kvæmdirnar geti kostað allt að 120 milljónir króna. Í greinargerð kemur fram að með opnun nýrrar útilaugar í desember hafi aðsókn að Sundhöllinni stór- aukist og að mikið mæði nú á inn- viðum. Núverandi aðstaða dugi ekki til að anna aðsókn á álagstímum. „Með endurnýjun gömlu kvenna- klefanna á jarðhæð Sundhallarinn- ar er hægt að mæta aukinni aðsókn. Aðstaðan getur nýst hvort heldur fyrir konur eða karla þar sem unnt er að stýra notkun eins og best þykir henta hverju sinni.“ Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í júní og standi í fimm mán- uði. Meðal annars sem þarf að gera er að endurnýja flísalögn kvennabaða gömlu Sundhallarinnar og stiga upp að innilaug. Þá eru flísar í sturtuklefa orðnar mattar, múr milli flísa farinn að losna og rakaskemmdir sjáanlegar á máluðum flötum. Viðgerðirnar eiga að vera í samráði við hönnuði, Minja- stofnun Íslands og notendur. Sundhöllin var friðuð árið 2004. – smj Vilja setja 120 milljónir í gamla kvennaklefann Fréttablaðið Glöggir lesendur Fréttablaðsins taka eflaust eftir því að blað dagsins er ögn stærra en venjulega. Þrír af fimm prent- turnum í prentsmiðju Ísafoldar biluðu um miðjan dag í gær. Þar með þurfti að færa prentun Frétta- blaðsins óvænt til Árvakurs. Blaðamenn og annað starfsfólk Fréttablaðsins er alvant því að vinna undir álagi og mæta skilafresti klukkan tíu að kveldi. Hins vegar þurfti að flýta loka- skilum blaðsins í gær  til klukkan 18.00. Ritstjórn Frétta- b l a ð s i n s ný t i r tækifærið hér og óskar lesendum s í n u m g ó ð ra r helgar. – khn Bilun breytir Fréttablaðinu bækur Forlagið gefur í dag út hljóðbókar-app sem gerir not- endum mögulegt að hlusta á bækur frá fjölda íslenskra bóka- útgefanda í símum og öðrum snjalltækjum. „Við höfum fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir lausn sem þessari og erum afskaplega ánægð með að geta loksins boðið bóka- unnendum upp á þessa lausn,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins. Egill Örn segir nýja appið ekki sérstakt viðbragð við sænsku hljóðbókaveitunni Storytel sem haslaði sér völl á íslenskum hljóðbókamarkaði í febrúar. „Við erum að selja allt aðra vöru. Hér kaupirðu ein- stakar hljóðbækur án skuld- bindinga á meðan Storytel býður upp á áskrift,“ segir Egill Örn. Þegar sú Storytel var opnuð lýstu nokkrir íslenskir rithöf- undar, meðal annars For- lagshöfundar, efasemdum og óánægju með. „Þessar óánægjuraddir snerust fyrst og fremst um áhyggjur af því hvernig gert er upp í svona hlaðborðsfyrirkomulagi. Það er ekki vandamál þegar við erum að selja stök eintök og ég veit að margir höfundar sem voru óánægðir á sínum tíma bíða spenntir eftir þessu appi.“ Fréttablaðið hefur haft spurnir af óánægju annarra útgefenda með app Forlagsins. Egill Örn kannast ekki við slíkt. „Nei, alls ekki. Ég hef ekki heyrt um neina kergju og dettur ekki neitt annað til hugar en að hún muni þá stafa af ranghugmyndum um að þeim yrði ekki hleypt inn í þetta app. Það er alls ekki tilfellið. Ég vil, þvert á móti, hafa sem allra flestar bækur annarra útgefenda þarna, rétt eins og í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð. Appið stendur galopið öðrum útgefendum og engum einum útgefanda verður hamp- að umfram annan.“ Meðal þeirra bóka sem koma út sem hljóðbækur í fyrsta sinn í dag eru Amma best eftir Gunnar Helgason, Ekki vera sár eftir Kristínu Steinsdóttur, Elín, ýmislegt eftir Kristínu Eiríks- dóttur, Stofuhiti eftir Berg Ebba, Myrkrið veit og fleiri bækur Arn- alds Indriðasonar eru nú einnig fáanlegar sem hljóðbækur á íslensku í fyrsta sinn. Aðspurður hvort ekkert óeðlilegt sé við að stór útgefandi sé einnig efnisveita af þessu tagi bendir hann á nágrannalöndin. „Þvert á móti. Ef við horfum til nágrannalandanna, svo sem í Svíþjóð og Noregi, þá eru hljóðbókaverslanir stórra útgefenda meðal stærstu endursöluaðilanna.“ thorarinn@frettabladid.is Íslenskar bækur verða í nýju hljóðbóka-appi Forlagið gefur í dag út hljóðbókar-app. Egill Örn Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Forlagsins, segist vonast til þess að sem allra flestar bækur annarra útgef- anda verði aðgengilegar í appinu. Hægt verður að kaupa stakar bækur. — M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i* — 9 9 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r l a u g a r d a g u r 2 8 . a p r Í l 2 0 1 8 plús 2 sérblöð l Fólk l atvin na   *Samkvæmt prentm iðlakönnun Gallup ap ríl-júní 2015 FY RI R2 1 PRAG 27. apríl í 4 nætur Frá kr. 54.900 flugsæti & gisting Verð á mann m.v. tvo í herbergi á Hotel Penta þú spa rar 1000 k r. ef þú k aupir kassa! Kass a díll! 2752 kr. Hámark kass i, 24 stk. Var ekki tilbúinn í borgarstjórann Gísla Marteini Baldurssyni þykir vænna um Reykja- vík en Sjálfstæðis- flokkinn. Hann segir meirihlutann sýna linkind í umhverfismálum. 80 manns deyi á ári af völdum loftmengunar í Reykjavík. ➛24 Enginn ósigur að vera lifandi Ed Viestures segir litlu fjöllin séu ekkert síðri en þau stóru. ➛22 Alinn upp í heimi tákna Dan Brown rithöfundur um uppvöxtinn. ➛32 Gyðjutrú á Íslandi Valgerður Bjarnadóttir um feminíska trúarspeki. ➛34 Fréttablaðið/ste Fán appið, „Forlagið – hljóðbók“, má nálgast í app Store og Play Store. bækur í appinu verða á sérstöky kynningarverði út maí. Ég hef ekki heyrt um neina kergju og dettur ekki neitt annað til hugar en að hún muni þá stafa af ranghug- myndum. Egill Örn Jó- hannsson, fram- kvæmda- stjóri Forlagsins Endurnýja þarf gamla kvenna­ klefann. Fréttablaðið/anton brink 2 8 . a p r í l 2 0 1 8 l a u G a r d a G u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 2 8 -0 4 -2 0 1 8 0 0 :2 4 F B 1 2 0 s _ P 1 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 9 F -7 9 9 0 1 F 9 F -7 8 5 4 1 F 9 F -7 7 1 8 1 F 9 F -7 5 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 2 0 s _ 2 7 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.