Fréttablaðið - 28.04.2018, Síða 40
Fæst í apótekum og heilsuverslunum, í Melabúðinni, Hagkaup og
Fræinu, Fjarðarkaupum auk valdra útsölustaða um land allt.
Það styttist í sumarið og Berglind Sigmarsdóttir, veitingahúsaeigandi og matreiðslu
bókarhöfundur, er farin að hlakka
til sumarsins í Vestmannaeyjum
þar sem hún býr og rekur veitinga
staðinn GOTT ásamt eiginmanni
sínum Sigurði Gíslasyni. „Við erum
mjög spennt fyrir sumrinu. Hér
er eitthvað að gerast um hverja
helgi yfir sumarið, t.d. golfmót,
fótboltamót, Goslokahátíð, Þjóð
hátíð og svo mætti lengi telja. Því
er heilmikið um að vera alla daga
yfir sumartímann. Einnig er von á
nýrri ferju í haust svo hér ríkir mikil
bjartsýni og gleði. Svo verðum við
aðeins á ferðinni og fylgjumst með
GOTT Reykjavík auðvitað.“
Sem fyrr er mottóið hjá henni að
bjóða upp á næringarríkan en um
leið safaríkan og bragðmikinn mat
sem búinn er til nánast frá grunni.
„Glænýr fiskur dagsins er alltaf vin
sæll á sumrin enda fimm mínútna
gangur niður á höfn. Einnig má
nefna vinsælu klassísku vefjurnar
sem við bökum um leið og við
fyllum. En svo er alltaf eitthvað nýtt
á boðstólum yfir sumartímann, t.d.
meira úrval af grænmetisréttum,
nýjar útfærslur af fiskréttum og ný
matarmikil salöt. Einnig erum við
að flytja inn einstakt lífrænt hvítvín
frá Toskana á Ítalíu.“
Berglind gefur lesendum upp
skrift að rúgbrauði í dós
Hvað er það besta við að búa í Vest-
mannaeyjum?
Nálægðin við náttúruna, að geta
labbað allt eða hjólað sem maður
þarf að fara. Getað reddað öllu á
fimm mínútum og eiga þá meiri
tíma eftir fyrir sína nánustu.
Hvað finnst þér best að fá í
morgunmat um helgi?
Heimagerðar hafrapönnukökur
með bönunum, fullt af berjum og
jafnvel stevíu nutella (spari) ásamt
vel sterku espresso með smá mjólk.
Ef þú vilt gera vel við þig í mat og
drykk um helgi, hvað verður fyrir
valinu?
Þetta er mjög erfið spurning
fyrir manneskju sem er alltaf að
spá í mat og fer svolítið efir augna
blikinu. Alvöru eldbökuð pitsa
með rauðvínsglasi er frábær yfir
enska boltanum. Laugardagskvöld
með kallinum og vinum gæti inni
haldið nautacarpaccio, ostafyllt
ravioli með fullt af parmesan og
eðal tiramisu í eftirrétt. Eða bara
nýbökuð skúffukaka og ísköld
mjólk með krökkunum mínum á
góðum sunnudegi.
Hvernig er draumahelgin?
Þá sef ég til níu og tek svo góðan
bröns með allri fjölskyldunni.
Næst tekur við Facetime með
elsta syninum sem er í skiptinámi
í Frakklandi. Svo myndi ég taka
góða göngu með hundinn. Einn
ig er gaman að sitja úti í góða
veðrinu og horfa á fótbolta. Best er
ef það væri kvenna og karlaleikur
sömu helgi hjá ÍBV. Síðan myndi
ég grilla með vinum mínum um
kvöldið og eiga svo sunnudaginn
í hengirúminu í garðinum og
fá þá símtal frá GOTT og GOTT
Reykjavík þess efnis að það sé
brjálað að gera en samt sé allt
„under control“. Ekki væri verra ef
skúffukakan með mjólkinni yrði
þá tilbúin.
Hvernig mat færðu þér þegar þú
borðar úti?
Ég er orðin frekar leið á þessum
klassíska mat. Ég væri miklu
spenntari fyrir nýrri útgáfu af
„spicy“ kebab þar sem vefjan er
bökuð um leið og allt er ferskt og
bragðmikið, frekar en venjulegri
steik og sósu.
Hvaða áhugamál áttu utan mat-
reiðslunnar?
Ég elska íþróttir og þá helst
handbolta og fótbolta. Ég á eina
unglingalandsliðsstelpu í fótbolta
og við hjónin eltum U16 ára
landsliðið til Litháen fyrir tveimur
vikum þar sem hún var fyrirliði. Ég
er í knattspyrnuráði kvenna ÍBV
og Anton, níu ára strákurinn minn,
er líka í fótbolta svo margar helgar
fara í að horfa á leiki.
Ertu spennt yfir HM í fótbolta í
sumar?
Já, geggjað spennt. Ég fór á EM
kvenna í Hollandi í fyrra og á eftir
að fylgjast mjög spennt með HM
í sumar.
Rúgbrauð í dós
Margir Vestmannaeyingar nýttu
hitann í hrauninu eftir eld
gosið 1973 til að baka rúgbrauð.
Deiginu var skellt í dós sem var
grafin í hrauninu og 68 klukku
tímum síðar var það tilbúið. Þetta
gerðu Eyjamenn til margra ára en
nú hefur hraunið náð að kólna
mikið og erfiðara að finna staði til
að baka.
Þó svo að fólk baki ekki lengur
rúgbrauð í hrauninu er mjög
sniðugt að baka rúgbrauð í dós
inni í ofni því lokuð dósin heldur
rakanum inni svo brauðið verður
mjúkt og gott.
Bíður spennt eftir sumrinu
Matreiðsla og íþróttir skipa stóran sess í lífi Berglindar Sigmarsdóttur sem rekur veitingastaðinn
GOTT. Fram undan er líflegt sumar sem inniheldur góðan mat og fullt af skemmtilegum fótbolta.
Berglind Sigmarsdóttir, veitinga
húsaeigandi og matreiðslubókar
höfundur.
Dósin heldur rakanum inni svo að brauðið verður mjúkt og gott.
Vestmannaeyjar skarta sínu fegursta jafnan yfir sumartímann. MYNDiR/KRiSTBJÖRG SiGURJÓNSDÓTTiR
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
6 bollar rúgmjöl (110120 g hver
bolli)
3 bollar heilhveiti (110120 g hver
bolli)
2 tsk. matarsódi
2½ tsk. lyftiduft
1 tsk. sjávarsalt
2 dl lífrænt hlynsíróp
1 lítri abmjólk
Smjör til þess að smyrja með
1 bolli vatn
Hitið ofninn í 100 gráður (ég nota
blástur). Blandið öllum þurrefnum
saman í skál og hrærið. Blandið þá
abmjólk og hlynsírópi saman við
og hrærið þar til allt hefur blandast
vel saman en athugið að þetta er
klístrað deig. Setjið bökunarpappír
í dósina og smyrjið létt með smjöri
eða olíu. Hellið deigi í formið,
jafnið út og hellið svo vatninu yfir
deigið. Lokið dósinni og setjið
beint inn í ofn. Bakið í 6½ klst.
4 KYNNiNGARBLAÐ FÓLK 2 8 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
8
-0
4
-2
0
1
8
0
0
:2
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
A
0
-0
3
D
0
1
F
A
0
-0
2
9
4
1
F
A
0
-0
1
5
8
1
F
A
0
-0
0
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K