Fréttablaðið - 28.04.2018, Qupperneq 56
Rekstrarstjóri fasteigna
Borgarholtsskóli
Laus er til umsóknar staða rekstrarstjóra
fasteigna við Borgarholtsskóla frá og með
13. ágúst 2018.
Á heimasíðu skólans, www.bhs.is, eru upplýsingar
um skólann og starfsemi hans.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist í tölvupósti
til Ársæls Guðmundssonar, skólameistara,
arsaell@bhs.is fyrir 12. maí 2018.
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar -
Ráðgjafi í barnavernd
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar
starf ráðgjafa í barnavernd. Æskilegast er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er
umsóknarfrestur til og með 2. maí 2018. Næsti yfirmaður er
deildarstjóri í barnavernd.
Helstu verkefni
• Móttaka barnaverndartilkynninga og skráning
• Vinnsla barnaverndarmála, samskipti og samvinna við
börn og foreldra
• Samskipti við aðrar stofnanir við vinnslu barnaverndar-
mála
• Situr teymisfundi og aðra fundi samkvæmt samkomulagi
við deildarstjóra í barnavernd
• Tekur þátt í sískráningu
• Virk þátttaka í stefnumótun, mótun verkferla, starfsá-
ætlana og endurskoðun á reglum í málaflokknum
Menntunar og hæfnikröfur
• Starfsréttindi félagsráðgjafa
• Starfsreynsla og þekking á sviði barnaverndar æskileg
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sveigjanleiki
• Góð yfirsýn, vandvirkni og skipulögð vinnubrögð
• Góð tölvukunnátta
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
• Þarf að geta tjáð sig á a.m.k. einu tungumáli öðru en
íslensku
Til greina kemur að ráða starfsmann með aðra háskólamenn-
tun sem nýtist í starfinu ef enginn félagsráðgjafi sækir um.
Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra
sveitarfélaga við Félagsráðgjafafélag Íslands eða viðkomandi
stéttarfélag.
Umsóknum skal skilað til Baldurs Inga Jónassonar mannauðs-
stjóra í tölvupósti baldurjo@isafjordur.is. Umsókn skal fylgja
ferilskrá og kynningarbréf. Við hvetjum konur jafnt sem karla
til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Guðlaug M. Júlíusdóttir, deildarst-
jóri í barnavernd, í síma 450-8000 eða í tölvupósti gudlaugj@
isafjordur.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-
ÍSAFJARÐARBÆR
Upplýsingafulltrúi
Dómsmálaráðuneytið leitar að drífandi og dugmiklum
einstaklingi til að sinna hlutverki upplýsingafulltrúa
ráðuneytisins. Upplýsingafulltrúi ber m.a. ábyrgð á
fjölmiðlatengslum og upplýsingagjöf vegna starfsemi
ráðuneytisins, annast gerð fréttatilkynninga, ritstýrir
innri og ytri vef, annast útgáfumál og kemur að skipu-
lagningu viðburða á vegum ráðuneytisins. Hann er
ráðherra, ráðuneytisstjóra og öðrum starfsmönnum til
ráðgjafar um kynningarmál og samskipti við fjölmiðla
og ber ábyrgð á mótun og eftirfylgni samskiptastefnu
ráðuneytisins.
Hæfniskröfur:
• Hæfni til að koma fram fyrir hönd ráðuneytisins
• Hæfni í miðlun upplýsinga
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Færni í textagerð og framsetningu kynningarefnis
• Góð íslensku og enskukunnátta, kunnátta í öðrum
tungumálum er kostur
• Geta til að vinna hratt og vel undir álagi
• Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Samvinnu- og samskiptalipurð og fagleg framkoma
Nánari upplýsingar veitir Haukur Guðmundsson,
ráðuneytisstjóri í síma 545 9000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir. Umsóknarfrestur er til og með
15. maí nk.
Umsóknir skulu berast í gegnum starfatorg.is
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningar-
bréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu um
sóknar og hæfni til að gegna starfinu.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda
í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Um fullt starf er að ræða. Laun greiðast samkvæmt
kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna
Stjórnarráðsins og fjármála- og efnahagsráðherra.
Við Grunnskóla
Grindavíkur eru eftir-
farandi stöður lausar:
Stöður umsjónarkennara á öll skólastig
Staða námsráðgjafa til eins árs
Umsóknarfrestur er til 13. maí en ráðið er í stöðurnar
frá 1. ágúst 2018.
Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar.
Sjá nánar á heimasíðu skólans
http://www.grindavik.is/grunnskolinn.
• Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í
grunnskóla sem eru metnaðarfullir, og góðir í mannlegum
samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og
tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2,
240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri
í síma 420-1200.
STARF ÞERAPISTA Í FJÖLKERFAMEÐFERÐ (MST)
Sálfræðingur / Félagsráðgjafi
Um er að ræða fullt starf sem felst í meðferðarvinnu með
fjölskyldum unglinga sem glíma við alvarlegan hegð-
unar- og vímuefnavanda. Meðferðin fer fram á heimili
og í nærsamfélagi fjölskyldunnar í samstarfi við skóla
og aðra lykilaðila svo sem heilbrigðisstofnanir, barna-
vernd og aðra sérfræðinga. Þerapistar starfa undir stjórn
sálfræðings sem er handleiðari og teymisstjóri og eftir
meðferðarreglum og aðferðum MST. Nánari upplýsingar
um starfið má finna á starfatorg.is
Menntun og reynsla
• Krafa um masterspróf og starfsréttindi sem sálfræðingur eða félagsráðgjafi.
• Æskileg sérmenntun í meðferðarvinnu og/eða reynsla meðferð alvarlegs hegðunarvanda barna og unglinga og
fjölskyldna þeirra.
• Krafa um staðgóða þekkingu á kenningarlegum bakgrunni MST.
• Hæfni til að vinna sjálfstætt og kerfisbundið og að geta sett fram niðurstöður skriflega.
• Góð enskukunnátta, bæði munnlega og skriflega.
Persónulegir eiginleikar
• Lögð er áhersla á góða samstarfshæfni, sveigjanleika og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og samstarfsaðila.
• Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega, markmiðatengt og lausnarmiðað.
Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna-
verndarstofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Tekið er mið af jafnréttisáætlun
Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí n.k.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Barnaverndarstofu í
síma 530 2600 (www.bvs.is). Með umsóknum skulu fylgja
upplýsingar um menntun og fyrri störf. Umsóknir skulu
berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík
eða á netfangið bvs@bvs.is
Barnaverndarstofa
VILTU HAFA
GAMAN?
Vegna aukinna umsvifa þarf Ferðaskrifstofan
Gaman Ferðir að bæta við sig röggsömum
og duglegum starfskrafti sem allra fyrst.
Helstu verkefni eru sala, símsvörun og bakvinnsla
ásamt öðrum verkefnum sem falla til á
skemmtilegum vinnustað.
Reynsla af ferðamannabrasi er mikill kostur.
Mikilvægast er þó að viðkomandi umsækjandi
sé hress og skemmtilegur, geti unnið sjálfstætt
og sé fljótur að tileinka sér nýja hluti.
Vinnutími er alla virka daga milli klukkan 9-17.
Áhugasamir geta sent tölvupóst með umsókn
á vinna@gaman.is. Umsóknarfrestur er til 7. maí.
14 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 8 . A p R í L 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
8
-0
4
-2
0
1
8
0
0
:2
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
8
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
A
0
-0
8
C
0
1
F
A
0
-0
7
8
4
1
F
A
0
-0
6
4
8
1
F
A
0
-0
5
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K