Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.04.2018, Qupperneq 114

Fréttablaðið - 28.04.2018, Qupperneq 114
Fyrirtæki með mikla möguleika Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu. Afkoma er góð og ágætur hagnaður. Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun og heildverslun. Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu. Nokkrar stórkostlegar endurkomur Í tilefni þess að sænska stórsveitin ABBA ætlar að vera með stafrænt „kommbakk“ í des- ember og þess að hin sí-endurkomandi Guns n' Roses er á leiðinni til landsins er ágætt að renna hér yfir nokkrar góðar endurkomur úr tónlistarsögunni sem allir ættu að muna eftir. JOHNNY CASH Svartklæddi maðurinn lenti á lág- punkti ferils síns á níunda og tíunda áratugnum. Columbia Records rifti samningi sínum við hann, hann var pikkaður upp af Mercury Records en ekkert gerðist hjá honum. Forn frægð Cash virtist bara ætla að haldast einmitt þannig, forn. Skyndilega og mjög óvænt gefur hann svo út plötuna American Recordings þar sem hann syngur tökulög eftir aðra tónlistarmenn. Heilinn bak við plötuna, sem varð gífurlega vin- sæl og inniheldur sum bestu lög Cash, var Rick Rubin, pródúser sem fram að því hafði aðallega unnið að rappi og þunga- rokki. Johnny Cash átti rosalega endurkomu. AC/DC Ferill AC/DC var nýfarinn að rúlla eftir 6 ár – lagið Highway to Hell var gífurlega vinsælt og sveitin varð eftirsótt um allan heim – en þá dó söngvarinn Bon Scott úr djammi mjög skyndilega. Öll sund virtust vera lokuð fyrir sveitina, aðalkallinn farinn og lítið í gangi. En einungis ári síðar sneri sveitin aftur með plötuna Back in Black þar sem Brian Johnson tók stöðu Bon Scotts og af aðdáendum sveitarinnar, og jafnvel þeim sem eru ekki aðdáendur hennar, er sú plata talin þeirra besta og jafnvel ein besta plata rokksögunnar. SANTANA Suðrænu rokkararnir í Santana voru alveg sjóðandi í kringum árið 1970 en hurfu svo alveg af kortinu í heil tuttugu ár. Flestir voru búnir að gleyma sveitinni, þó svo að líklega hafi margir saknað gítargoðsins Carlos Santana og plötufyrirtækið þeirra löngu búið að droppa þessum gömlu latínóum af samningi. Öllum að óvörum kom platan Supernatural skyndilega út árið 1999. Súperpródúserinn Clive Davis var bak við útgáfuna og fékk til leiks heilan helling af gestatónlistarfólki svo úr varð sjúk­ lega vinsæl poppplata og eitt ótrúlegasta „kommbakk“ allra tíma. RICK ASTLEY Kannski ekki alveg „komm­ bakk“ í hefðbundnum skiln­ ingi orðsins en Rick Astley var grafið og gleymt „eins smells undur“ frá níunda áratugnum þegar hann var skyndilega vakinn úr dvala af skrítnum internet­ nördum sem fóru að nota Never gonna give you up, smellinn gamla, sem einhvers konar brandara eða hrekk. Allt í einu var nafnið Rick Astley á allra vörum… eða lyklaborðum, honum til mikillar skelfingar. Síðar fór hann þó að mýkjast fyrir þessari endurvöktu frægð því að hann uppgötvaði að það væri hægt að kreista smá aur úr þessu og hóf að túra á ný og gaf út plötu. ELVIS Elvis rauk upp á stjörnuhimin- inn á mjög stuttum tíma, varð konungur rokks og róls og allt þetta. Í kringum 1960 var þó heldur betur farið að síga í hjá Presley karlinum, einhverjir breskir stráklingar voru farnir að láta æpandi unglingsstelpur falla í yfirlið í hans stað á með- an hann var fastur í einhverjum undarlegum samningi sem fólst í því að hann varð að leika í ógeðslega lélegum bíómyndum í gríð og erg. Árið 1968 kom svo „kommbakkið“ í formi tón- leika sem var sjónvarpað þar sem lítill, kósí og leðurklæddur Presley bræddi hjörtu áhorf- enda svo gjörsamlega að það endurræsti feril hans og bjó í leiðinni til innblásturinn fyrir hinni frábæru tónleikaseríu MTV Unplugged. stefanthor@frettabladid.is ABBA Poppgoðin sænsku í ABBA hafa í raun aldrei lagt upp laupana opinberlega en hins vegar spiluðu þau síðast opinberlega árið 1982, þannig að það má alveg kalla það að minnsta kosti langa pásu. Agnetha sagði í viðtali árið 2013 að þau myndu aldrei koma aftur saman enda allt of gömul fyrir allt slíkt og líklega voru margir Mamma mia! aðdáendur í rusli yfir því. En eins og við vitum var ekkert til í þessu og með hjálp nútíma­ tækni mun ABBA koma saman aftur, í stafrænu formi, og taka glænýtt lag í sérstökum sjónvarps­ þætti sem verður sýndur í desember. 2 8 . A P R Í L 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R58 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 2 8 -0 4 -2 0 1 8 0 0 :2 4 F B 1 2 0 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 9 F -A F E 0 1 F 9 F -A E A 4 1 F 9 F -A D 6 8 1 F 9 F -A C 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 2 7 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.