Fréttablaðið - 02.05.2018, Side 8
Á fundinum verður samband ESB við nánustu
nágrannaríki skoðað; hvað er sameiginlegt,
hvað er ólíkt og litið verður til áskorana og
framtíðarþróunar í þessum efnum.
PALLBORÐSUMRÆÐUR:
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður
Vinstri-grænna, Dóra Sif Tynes, lögmaður
og Smári McCarthy, þingmaður Pírata
Fundarstjóri: Davíð Þór Björgvinsson, rannsóknaprófessor
við lagadeild Háskóla Íslands
Fundurinn fer fram á ensku og er opinn öllum.
Angelina Eichhorst, varaframkvæmda stjóri
innan utanríkisþjónustu ESB, og forstöðu-
maður fyrir málefni Vestur-Evrópu (þ.m.t.
EFTA), Vestur-Balkanskaga og Tyrkland
Nánari upplýsingar: www.ams.hi.is
Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun
Fimmtudaginn 3. maí kl. 12:00-13:30 í Norræna húsinu
Sendinefnd ESB
á Íslandi
Angelina Eichhorst
EES-samningurinn
og samskipti ESB
við nánustu
nágrannaríkin
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
og sendinefndar ESB á Íslandi
FUNDARBOÐ
Aðalfundur MS-félags Íslands
Aðalfundur MS-félags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 16. maí
kl. 17:00 í MS-húsinu að Sléttuvegi 5 í Reykjavík.
Húsið opnar kl. 16:30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Vinsamlegast athugið að framboð til stjórnar og nefnda skal tilkynna til
skrifstofu eigi síðar en viku fyrir aðalfund og jafnframt að atkvæðisrétt á
aðalfundi hafa einungis þeir sem eru skráðir í félagið eigi síðar en viku fyrir
fundinn. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins www.msfelag.is
Veitingar í boði félagsins. Hvetjum félagsmenn að mæta!
Virðingarfyllst,
Stjórn MS-félags Íslands
Kúbverjar fagna 1. maí
Baráttudegi verkalýðsins var fagnað víða um heim í gær, ekki bara hér á Íslandi. Kommúnistarnir Miguel
Diaz-Canel og Raúl Castro, nýr forseti og fyrrverandi forseti Kúbu, tóku þátt í hátíðarhöldunum á Byltingar-
torginu í höfuðborginni Havana. Sá fyrrnefndi varð forseti í síðasta mánuði og lauk því áratugalangri valda-
tíð Castro-bræðra. Raúl og Fidel bróðir hans höfðu haldið um valdataumana frá 1959. Nordicphotos/AFp
Kjaramál Stjórn Hörpu tónlistar-
og ráðstefnuhúss ohf. hækkaði laun
forstjórans, Svanhildar Konráðs-
dóttur, um rúm 20 prósent á síðasta
ári skömmu eftir að ákvörðunarvald
launa forstjórans var fært frá kjara-
ráði. Var þetta önnur launaákvörð-
unin sem forstjóri Hörpu fékk á
síðasta ári því í febrúar í fyrra hafði
kjararáð ákvarðað forstjóranum
1,3 milljónir króna í mánaðarlaun.
Stjórnin hækkaði hins vegar launin í
1.567 þúsund krónur á mánuði.
Í nýbirtum ársreikningi Hörpu
má sjá að laun og launatengd gjöld
til forstjóra Hörpu höfðu hækkað
nokkuð milli áranna 2016 og 2017
og umfram það sem nemur þeim
launum sem kjararáð ákvarðaði
þáverandi forstjóra þann 13. febrúar
2017.
Forstjóraskipti urðu hjá Hörpu
þann 1. maí í fyrra þegar Svanhildur
Konráðsdóttir tók við af Halldóri
Guðmundssyni sem verið hafði
forstjóri í fimm ár. Launakjör Svan-
hildar voru þá þau sömu og kjararáð
hafði ákvarðað Halldóri.
Ný lög um kjararáð tóku hins
vegar gildi 1. júlí 2017 sem höfðu
þann tilgang að fækka verulega
þeim sem kjararáð ákvarðar laun
og færa ákvörðunarvaldið í mörgum
tilfellum aftur til stjórna viðkom-
andi fyrirtækja og félaga í opinberri
eigu. Eitt þessara félaga var Harpa
ohf.
Fréttablaðið leitaði skýringa
á þessum launahækkunum sem
birtust í ársreikningi Hörpu. Þórð-
ur Sverrisson, stjórnarformaður
Hörpu, staðfestir að stjórnin hafi
hækkað laun Svanhildar í fyrra, eftir
að hún tók við starfinu, en það
hafi verið fyrir hans tíð í stjórn.
„Ákvörðun fyrri stjórnar
um laun forstjóra var 1.567
þúsund í heildarlaun á mán-
uði og engar aukagreiðslur
fyrir setu í öðrum stjórnum,“
segir Þórður
Aðspurður hvenær hækk-
unin hafi komið til fram-
kvæmda segir Þórður telja
að það hafi verið annað
hvort 1. júlí eða 1. ágúst.
Stjórnarákvörðunin í
fyrra gerði það að verk-
um að laun forstjórans
hækkuðu um ríflega
260 þúsund krónur á
mánuði, eða 20,5 pró-
sent. Eftir því sem næst
verður komist leiddi
ákvörðun kjararáðs í
febrúar 2017 ekki til
teljandi launahækkunar
hjá forstjóra Hörpu.
Fréttir hafa borist af launaskriði
æðstu stjórnenda ríkisfyrirtækja
og stofnana undanfarnar vikur, en
fjallað hefur verið um að Hörður
Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
fékk 32 prósenta launahækkun í
fyrra og að Magnús Geir Þórðar-
son útvarpsstjóri fékk 16 prósenta
launahækkun hjá RÚV, svo dæmi
séu tekin. Hækkanir sem fallið
hafa í grýttan jarðveg hjá
verkalýðsforystunni.
Þessar umtalsverðu launa-
hækkanir til handa for-
stjórum og stjórnendum
o p i n b e r ra f y r i r t æ k j a
og félaga, nýfrjálsum
undan ákvörðunar-
valdi kjararáðs, ganga
í berhögg við tilmæli
fjármála- og efna-
hagsráðuneytisins til
stjórna fyrirtækja í
ríkiseigu í fyrra. Þar var
þeim ráðlagt að stilla
öllum launahækkunum
forstjóra í hóf eftir að
ákvarðanir um laun
þeirra færðust undan
kjararáði af ótta við
hugsanleg áhrif launa-
ákvarðana á stöðug-
leika á vinnumarkaði.
mikael@frettabladid.is
Forstjóri Hörpu fékk 20
prósenta launahækkun
Stjórnin veitti nýráðnum forstjóra Hörpu launahækkun upp á rúm 20 pró-
sent síðasta sumar. Stjórnin var nýkomin með ákvörðunarvald yfir launum
forstjórans sem áður heyrði undir kjararáð. Ráðið hafði ákvarðað forstjór-
anum 1,3 milljónir í mánaðarlaun nokkrum mánuðum fyrr, í febrúar 2017.
svanhildur
Konráðsdóttir.
TæKni Apple sér í fyrsta sinn fram á
samdrátt í sölu iPhone-snjallsíma í
Bandaríkjunum. Þetta sögðu grein-
endur sem tæknifréttasíðan Cnet
ræddi við í gær og töldu þeir jafn-
framt að nýjasta símanum í vöru-
línunni, iPhone X, væri um
að kenna.
Þetta er þveröfugt við
þær spár sem settar voru
fram þegar síminn var fyrst
kynntur. Þótti greinendum
þá líklegt að ný hönnun
iPhone X „væri framtíðin“.
Vonast var til þess að
iPhone X myndi drífa
staðnandi snjallsímamark-
að áfram en markaðurinn
minnkaði í fyrsta sinn á
síðasta ársfjórðungi 2017.
„Það verður augljósara
með hverjum deginum að
Apple á við vaxtarverki að
stríða. Fyrirtækið er fórnarlamb eigin
velgengni,“ sagði Andrew Uerkwitz,
greinandi hjá fjárfestingarbankanum
Oppenheimer. Sagði jafnframt að sala
á Apple Watch, AirPods og Apple
Music hafi valdið vonbrigðum.
Undanfarna daga hafa
birgjar Apple, til að mynda
Samsung, TSMC, AMS og
SK Hynix, er sjá fyrirtæk-
inu fyrir íhlutum í iPhone-
símana, talað um minnk-
andi eftirspurn. Þykir
greinendum það benda til
þess að Apple sé að draga úr
framleiðslu iPhone X. – þea
Spá minnkandi iPhone-sölu
iphone X er einkar laglegur
sími, en Apple virðist vera í
vandræðum með að koma
honum í hendur neytenda.
FréttAblAðið/EpA
2 . m a í 2 0 1 8 m i Ð V i K U D a G U r6 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a Ð i Ð
0
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
A
4
-7
2
3
4
1
F
A
4
-7
0
F
8
1
F
A
4
-6
F
B
C
1
F
A
4
-6
E
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K