Fréttablaðið - 02.05.2018, Page 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Það er því
mikið þjóð-
þrifamál að
vel takist til
og ef svo á að
verða þurfum
við að vera
meðvituð um
að tileinka
okkur þessa
nýjung og
styðja vel við
framtakið
með ráðum
og dáð.
Eftir talsverða
yfirferð hef ég
ákveðið að
setja af stað
vinnu við að
endurskoða
félagslega
umgjörð
þegar kemur
að málefnum
barna með
sérstakri
áherslu á
snemmtæka
íhlutun. 569 6900 8–16www.ils.is
Hvernig upplifir
almenningur
leigumarkaðinn?
Íbúðalánasjóður stendur fyrir opnum fundi þar sem niðurstöður nýrrar
viðhorfskönnunar verða kynntar. Tíu þúsund nýir leigjendur hafa bæst
við leigumarkaðinn frá árinu 2011 og er ekkert útlit fyrir að hann
minnki á næstunni. Hvernig er hagur leigjenda samanborið við aðra
hópa á húsnæðismarkaði? Hvernig virka stofnframlögin sem
Íbúðalánasjóður úthlutar?
Fundurinn er í dag, miðvikudaginn 2. maí, kl. 12:00-12:45 í
höfuðstöðvum Íbúðalánasjóðs, Borgartúni 21. Boðið verður
upp á léttar veitingar.
Það er auðvitað margsinnis búið að gefa út dánarvottorð á íslenskuna fram í tímann. Fullyrða að hún muni visna upp og hverfa inn í söguna á kostnað enskunnar. Falla fyrir hendi upplýsingatækni og afþrey-ingar í sjónvarpi, tölvum og símum. En
samt er hún þarna enn, þraukar í munni þeirra sem
þrjóskast við, forsenda þess að við skiljum hvert
annað, hver við erum og hvaðan við komum. Það er
umfram allt hún sem gerir okkur að þjóð.
Síðustu ár og áratugir hafa óneitanlega ekki verið
þrautalaus. Það er sótt að íslenskunni úr ótal áttum
en það eru líka fjölmargir sem koma henni til varnar
og auðga hana á hverjum degi. Þar má nefna kvik-
myndagerðarfólk, rithöfunda, tónlistarmenn, leikara,
bókaútgefendur og fleiri mætti vissulega tiltaka en allt
á þetta varnarafl það sameiginlegt að vera skapandi.
Að segja sögur og syngja söngva á íslensku, lyfta þann-
ig tungumálinu í stöðugt nýjar hæðir og miðla því til
allra sem tala og vilja tala íslensku. Það er lykillinn að
lífi íslenskunnar og án þessa sköpunarkrafts er hætt
við að illa fari.
Það er því fagnaðarefni þegar fram koma nýjar leiðir
fyrir almenning til þess að meðtaka íslenskuna og
allar þær bókmenntir sem eru skapaðar með henni
á hverju ári. Fyrir nokkrum vikum hélt innreið sína
á íslenskan markað hljóðbókaveitan Storytel, með
nokkur hundruð titla á íslensku og reyndar einn-
ig yfir 30 þúsund titla á ensku. Í síðustu viku gaf svo
bókaútgáfan Forlagið út nýtt hljóðbókar-app sem
kemur til með að gera fólki kleift að hlusta á bækur frá
fjölda íslenskra útgefanda í símum og öðrum snjall-
tækjum. Í þessu er fólgið gríðarlegt sóknarfæri fyrir
bókmenntir í landinu og þar með íslenskuna því með
þessum nýjungum opnast neytendum ný leið að því að
njóta þess sem okkar færu rithöfundar, þýðendur og
lesendur hafa að bjóða.
Þessu ber að fagna vegna þess að góðar hljóðbóka-
veitur geta komið sem allt að því hrein viðbót inn
á bókamarkaðinn og eflt hann til muna á komandi
árum. Þessi nýja leið við miðlum bókmennta til fólks
á öllum aldri gæti líka orðið til þess að styðja myndar-
lega við viðhald, verndun og þroska íslenskunnar. Hér
er til að mynda frábært tækifæri til þess að höfða sér-
staklega til yngri kynslóðanna þar sem enskan hefur
herjað hvað harðast. Það er því mikið þjóðþrifamál
að vel takist til og ef svo á að verða þurfum við að vera
meðvituð um að tileinka okkur þessa nýjung og styðja
vel við framtakið með ráðum og dáð.
Til þess að þetta gangi allt saman upp er líka bráð-
nauðsynlegt að gæta þess að höfundarréttur sé virtur
og að viðkomandi listamenn fái greitt í samræmi við
notkun. Að auki þarf að gæta þess að veiturnar geti
boðið frambærilegt úrval á íslensku fyrir alla aldurs-
hópa, því gott aðgengi að góðum bókum er lykilatriði
í því að skapa íslenskunni lífvænlegt umhverfi. Það er
því mikilvægt fyrir hið opinbera að bregðast nú fljótt
við og sækja fram með bókmenntunum og íslenskunni
en ekki ætla að bregðast við þegar allt er komið í óefni.
Sóknarfæri
Í velferðarmálum ræðum við oft um hvernig eigi að bregðast við vanda sem þegar er til staðar. En getur samfélagið gripið fyrr inn með aðstoð?
Erum við að leggja nægilega áherslu á forvarnir og
snemmtæka íhlutun með sérstakri áherslu á að
styrkja fjölskyldur og börn í áhættu?
Eftir talsverða yfirferð hef ég ákveðið að setja af
stað vinnu við að endurskoða félagslega umgjörð
þegar kemur að málefnum barna með sérstakri
áherslu á snemmtæka íhlutun. Ráðherrar mála-
flokka sem bera ábyrgð á málasviðum sem tengjast
börnum og fjölskyldum þeirra, sveitarfélög,
grunnskóli, heilbrigðisþjónustan, barnavernd,
frjáls félagasamtök o.fl. þurfa að koma að þessari
umræðu. Við þurfum að stefna að þverpólitískri
nálgun og sátt. Samþætta þarf þjónustu ólíkra
aðila og auka samfellu svo hún sé betur sniðin að
þörfum barna.
Þessi vinna verður formlega sett af stað með ráð-
stefnu 8. maí næstkomandi, þar sem hugsunin er að
fá sem flesta að borðinu. Yfirskriftin er „Snemmtæk
íhlutun í málefnum barna á Íslandi“ eða SIMBI. Þar
verður unnt að hlýða bæði á innlenda og erlenda
fyrirlesara auk þess sem ætlunin er að öllum gefist
færi á að taka þátt í umræðum og koma með ábend-
ingar um forgangsröðun. Skráning, dagskrá og allar
nánari upplýsingar eru á www.radstefna.is.
Í framhaldinu verður skipaður stýrihópur sem
fer með það hlutverk að halda utan um vinnuna í
þverpólitísku samráði og með aðkomu þeirra sem
koma að málefnum barna. Í þeirri vinnu þurfum
við að leyfa okkur að hugsa „út fyrir rammann“
horfa til breyttrar nálgunar í veitingu þjónustu,
mögulegra kerfisbreytinga, sameininga á þjónustu-
tilboðum og leggja enn meiri áherslu á snemm-
tæka íhlutun og samfellu í þjónustu.
Ég tel mikilvægt, fyrir börnin okkar og sam-
félagið í heild, að við náum fram breytingum. Í
þeirri vinnu skipta öll sjónarmið miklu máli og
þess vegna viljum við fá þig að borðinu 8. maí
næstkomandi.
Börnin okkar – 8. maí
Ásmundur
Einar Daðason
félags- og jafn-
réttismálaráð-
herra
Vika langur tími í pólitík
Ásmundur Einar Daðason,
félags- og jafnréttismálaráð-
herra, gerði það sem engum
ráðherra hefur tekist á síðustu
árum í ráðherrastól, að leggja
fram frumvarp um lögfestingu
NPA fyrir fatlaða einstaklinga,
og fá það samþykkt sem lög
frá Alþingi. Þennan árangur
hefði hann getað nýtt út árið
til að auka vinsældir sínar og
styrkja stöðu sína innan ríkis-
stjórnarinnar og innan Fram-
sóknarflokksins. Aftur á móti
hefur honum tekist á einhvern
undraverðan hátt að láta mál
forstjóra Barnaverndarstofu
snúast um sjálfan sig og eigin
embættisfærslur. Það hlýtur að
vera einn mesti afleikur síðari
ára í íslenskri pólitík.
Hnúturinn hertur
Ljósmæður og ríkið virðast
seint ætla að ná saman í
viðræðum um kaup og kjör
stéttarinnar. Þessar konur hafa
árangurslaust reynt að fá kjör
sín bætt svo mánuðum skiptir.
Er nú svo komið að enginn
samningur er í gildi um heima-
vitjanir ljósmæðra. Heldur
voru nú kaldar kveðjurnar frá
hinu opinbera í gær þegar ljós-
mæðrum barst bréf um að þær
hafi ekki val um hvort þær ynnu
yfirvinnu eða ekki. Síst verður
það til að liðka fyrir samningum
ef neyða á stéttina til að vinna
yfirvinnu í óþökk hennar.
sveinna@frettabladid.is
2 . m a í 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U R10 s K o Ð U n ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð
SKOÐUN
0
2
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
A
4
-4
A
B
4
1
F
A
4
-4
9
7
8
1
F
A
4
-4
8
3
C
1
F
A
4
-4
7
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K