Feykir - 29.11.2012, Blaðsíða 5
2012 5
Jólasnjór
Þessi aðventuskreyting var í
einfaldari kantinum. Fjórar
krukkur undan barnamat
fylltar með sykri og sprittkerti
sett ofan í þær, og svo
var ofsalega jólalegum og
fallegum borða vafið utan um
tvær af þeim. Jólagrenigrein
og berjagrein notaðar saman
og lagðar á bakkann við
hliðina á krukkunum og
svo var negulnöglum stráð í
botninn á bakkanum. Einfalt,
fljótlegt og fallegt!
Það er aðventan!
UMSJÓN
Hrafnhildur Viðarsdóttir
Krans eða ekki krans?
Þar sem aðventan er tæplega
korteri frá því að vera handan við
hornið ákvað Fröken Fabjúlöss,
fegurðarkúnstner Feykis, að taka sig til í glitrandi
andlitinu og hrista fram úr erminni nokkrar hugmyndir að
misjafnlega hefðbundnum aðventukrönsum.
Það er nefnilega með aðventukransana góðu eins og svo margt
annað að ef hugmyndaflug er til staðar, þá eru reglurnar engar
svo lengi sem fjögur kerti skrýða skúlptúrinn einhversstaðar!
Út af örkinni rigsaðum við hérna í aðventukransadeild
Fabjúlössmans og fengum til liðs við okkur búsáhaldateymi
Skagfirðingarbúðar og skreytingameistara Blóma- og gjafa-
búðarinnar sem voru svo yndisleg að leyfa okkur að láta greypar
sópa og taka það sem til þarf í svona aðgerðir.
Þetta eru bara nokkrar hugmyndir sem Fröken Fabjúlöss
ákvað að smella fram til þess að sýna lesendum JólaFeykis að
aðventukransar þurfi ekki alltaf að innihalda greni, þó svo að greni-
kransarnir séu svo sannarlega bæði gullfallegir og ákaflega jólalegir.
Og englarnir sungu!
Bakki, gerfigreinar og negulnaglar fást í Skagfirðingabúð.
Borði fæst í Blóma- og gjafabúðinni
Krukkur eru í einkaeign Fröken Fabjúlöss
Eplakökukaffi
Þessi er í hefðbundnari kant-
inum, svona miðað við hina.
Kringlótt kökuform var fyllt
með kaffibaunum svo kertin
stæðu betur. Svo voru lítil
gerviepli, jólakúlur og könglar
notuð til skrauts!
Kökuform, kaffibaunir og kerti fást
í Skagfirðingabúð
Skreytingaefni koma frá Blóma-
og gjafabúðinni
Þegar piparkökur...
Þrjár krukkur undan barnamat og ein
flaska undan sveskjusafa fyllt með sykri,
sprittkerti sett í krukkurnar og langt kerti sett
í flöskuna. Flaskan er skreytt með því að binda
piparkökuform í skrautbandi utan um efsta
hlutann og svo voru krukkurnar skreyttar með
kanilstöngum í skrautbandi. Piparkökuform,
Nóa konfekt og piparkökur svo notaðar til
skrauts á diskinn.
Diskur, piparkökuform, piparkökur
og konfekt fást í Skagfirðingabúð
Skreytingaefni fæst í Blóma- og gjafabúðinni
Krukkur og flaska í einkaeign Fröken Fabjúlöss
Gleðileg
Glamúrjól
Fröken Fabjúlöss náði ekki að hemja
sig í kransagerðinni og eftir að hafa
gramsað í gegnum græjuhilluna heima
hjá sér varð til þessi dásamlega falleg
glamúraðventuskreyting. Í skreytinguna
notaði hún varalit, augnskugga, naglalökk,
eyrnalokka og fleira skemmtilegt sem
glamúrpía þarf til að viðhalda status
sínum sem pjattrófa. Allt í þessum krans
er í einkaeign Fröken Fabjúlöss.
Í þennann „krans“ notaði Frökenin 3 ljómandi fallega kaffibolla
og einn sprittkertastjaka. Bollarnir voru fylltir með hnetum
og skreyttir með kanilstöngum og öðru dútli til að halda
kertunum hnarreistum. Falleg englastytta fékk að fljóta með
og svo var kaffibaunum, glerskrauti og könglum komið fyrir á
hernaðarlega mikilvægum stöðum á bakkanum.
Bakki, stytta, bollar og sprittkertastjaki fást í Skagfirðingabúð
Skreytingaefni fæst í Blóma- og gjafabúðinni
Ilmur af jólum
Þessi er í raun bara kransinn Jólasnjór
eftir smá breytingar! Skrautgreinunum
skipt út fyrir eina appelsínu sem hefur
verið skreytt með negulnöglum. Þess má
geta að jólaskapið lét svo sannarlega ekki
á sér standa á meðan Fab var að skreyta
appelsínuna af því að þegar appelsínulyktin
og lyktin af negulnöglunum blandast
saman gýs upp þessi líka dásemdar
jólailmur!
Rauð jól
Einfaldur, flótlegur en ofsalega smart! Fröken
Fabjúlöss féll alveg fyrir þessum stórglæsilega
járnbakka þegar hún sá hann. Fjögur rauð
kerti í mismunandi stærðum sett á þennann
dásemdarbakka, ein rauð jólakúla og tveir
könglar notaðir til skreytinga og voila! Þessi
fíni aðventukrans.
Járnbakki, kerti og jólakúla fást í Skagfirðingabúð
Könglar koma frá Blóma- og gjafabúðinni