Feykir - 29.11.2012, Blaðsíða 35
2012 3 5
Glæsileg matreiðslubók úr skagfirsku matarkistunni kemur út fyrir jólin
Eldað undir bláhimni
Heiðdísi fannst þetta spenn-
andi áskorun og ákvað að slá
til. Fékk hún frjálsar hendur
varðandi það hvernig bókin
yrði uppbyggð og samansett
og segist mjög
ánægð með út-
komuna.
Auk þess að
ritstýra skrifar
Heiðdís Lilja
íslenska textann
í bókinni en
u p p s k r i f t i r
fékk hún frá
s k a g f i r s k u m
veitingahúsum, kokkum og
einstaklingum með brennandi
áhuga á matargerð. Allt eldað
úr skagfirsku gæðahráefni.
-Þetta er bók um skag-
firska matarmenningu, þar
sem kynntir eru til leiks í
máli og myndum helstu
matvælaframleiðendur og
veitingahús í Skagafirði. Fólk
sem hefur unnið ötult starf
við að efla og kynna matar-
ferðaþjónustu í Skagafirði með
þróunarverkefninu Matarkista
Skagafjarðar. Í bókinni
förum við í sælkeraferð um
Skagafjörð þar sem fögur
náttúra og ljúffengir réttir
eru í öndvegi. Við kynnumst
fólkinu á bak við tjöldin,
matvælaframleiðendum og
atvinnukokkum, en förum
líka í heimsókn á einkaheim-
ili þar sem heimilisfólk laum-
ar að okkur fjölskylduupp-
skriftunum sínum.
Þá bregðum við
okkur í bjargsig í
Drangey með Ástu
Birnu Jónsdóttur
og félögum, á sjó
með grásleppu-
karlinum Hauki
Steingríms og
upplifum iðandi
mannlífið á
Lummudögum, hrossablóti,
þorrablóti og sælkeraveislum
af ýmsu tagi, segir Heiðdís.
Bókin er bæði á íslensku
og ensku og henni er skipt í
kafla eftir árstíðum, auk þess
sem fjallað er um þjóðlegar
matarhefðir í sérstökum kafla.
Hún inniheldur rúmlega 40
uppskriftir og fjölda stórglæsi-
legra ljósmynda af skagfirskri
matargerð, náttúrufegurð og
mannlífi. Allflestar myndirnar
eru eftir Pétur Inga Björnsson
og Óla Arnar Brynjarsson.
Sérstaða bókarinnar, segir
Heiðdís vera án efa sú að
hún er tileinkuð skagfirskri
matarmenningu, sem byggir
á þeirri hugmyndafræði að
VIÐTAL
Páll Friðriksson
Fyrir einu og hálfu ári kom
Áskell Heiðar Ásgeirsson, fyrrum
sviðsstjóri markaðs- og þróunarsviðs
Sveitarfélagsins Skagafjarðar, að máli við Heiðdísi Lilju
Magnúsdóttur og spurði hvort hún væri til í að taka að
sér að ritstýra matreiðslubók þar sem lögð yrði áhersla á
skagfirskt hráefni og matarmenningu.
nýta það spennandi hráefni
sem finna má í skagfirsku
matarkistunni, til dæmis
skagfirskt fjallalamb, rækjur,
naut, hross, þorsk, Hólableikju
og ferskan mozzarellaost.
Leitast er við að tengja saman
umfjöllun um umhverfi, mat-
vælaframleiðendur, veitinga-
hús og ástríðukokka.
-Þetta er sem sagt ekki bara
uppskriftabók. Þetta er í takt
við þá vitundarvakningu sem
orðið hefur um allan heim að
nýta það sem náttúran gefur,
velja hráefni úr heimabyggð
og styrkja tengslin milli
framleiðenda og neytenda.
Bókin var unnin í samstarfi
við stjórn Matarkistu Skaga-
fjarðar og þau veitingahús
sem taka þátt í því verkefni.
Svo er hún auðvitað unnin
af hreinræktuðum Skagfirð-
ingum, segir Heiðdís.
Eldað undir bláhimni
verður til sölu á öllum helstu
sölustöðum eftir áramót en í
desember verður hún fáanleg
í Skagfirðingabúð og í verslun
Kaupfélags Skagfirðinga í
Varmahlíð. -Við sem stöndum
að bókinni vonum að hún
verði fólki hvatning til að
nálgast allt þetta spennandi
hráefni úr skagfirsku matar-
kistunni og prófa sig áfram í
eldhúsinu með þær uppskriftir
sem í henni er að finna.
Það er Nýprent sem gefur
bókina út en bókin er hönnuð
og sett upp af sama aðila.
Kveikt á
jólatrénu
Sunnudaginn 9. desember að aflokinni
aðventumessu í Blönduóskirkju, um kl. 17:00
verða ljósin á jólatrénu tendruð.
Tréð verður reist við Blönduóskirkju.
Sungin verða jólalög og fregnir herma
að jólasveinar verði komnir á stjá.
Bæjarstjóri
Þessar myndir ásamt fjölda annarra er að finna í bókinni, Eldað undir bláhimni.