Feykir - 29.11.2012, Blaðsíða 8
20128
Regína Jóna Gunnarsdóttir og Pétur
Ingi Björnsson eignuðust dreng þann
24. ágúst sem hlotið hefur nafnið
Sigurbjörn Darri.
Regína segir að skagfirska stemning-
Fjör á fæðingadeildinni
UMSJÓN
Páll Friðriksson
Skagfirsk stemning á fæðingadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
Eins og margir vita þá var fæðingadeild Skagfirð-
inga á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki lokað
fyrir nokkrum misserum og fæðingar færðust
annað. Langflest skagfirsku börnin koma í heiminn á Akureyri enda eru
nágrannar okkar í austri agndofa yfir þeirri fjölgun fæðinga sem skráðar
eru á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Í sumar seint í ágúst, eins og skáldið sagði, gerðist það að þrjú skagfirsk börn
heimtuðu að líta dagsins ljós á sama tíma og lögðust því mæðurnar nánast
saman inn á FSA og skagfirska stemningin sveif yfir vötnum þann daginn. Ekki
minnkaði hún þegar fleiri mæður komu inn til eftirlits og skoðunar.
Þó ekki sé boðið upp á fæðingaþjónustu lengur á HS þá er ljósmóðir á
vakt frá kl. 8-20 alla virka daga og kl. 8-16 um helgar. Utan þess tíma er ekki
þjónusta en Anna María Oddsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur segir
það ljóst að ljósmæðurnar á HS tengjast konunum mikið og sinna þeim utan
vinnutíma ef þess er kostur. -Fyrir mér snýst þetta fyrst og fremst um það að
konurnar upplifi sig öruggar og fái þá heilbrigðisþjónustu sem þær eiga rétt
á og vissulega fylgir því fórnarkostnaður í frítíma af hálfu ljósmæðra en það
skilar sér tilbaka margfalt, segir Anna María. Feykir sendi mæðrunum þremur
póst og forvitnaðist aðeins um foreldrana og börnin og bað að sjálfsögðu um
uppskrift að jólasmákökum.
Ameríski draumurinn
330 g hveiti / 160 g haframjöl
310 g sykur / 120 g rúsínur
125g smjörlíki / ¼ tsk matarsóti
1 stk egg
Aðferð: Setjið allt saman í skál og vinnið vel
saman, látið deigið aðeins standa, gerið kúlur og
setjið á plötu með smjörpappír
og bakið við 180°C í 11-13 mín.
Regína og Pétur
Sigurbjörn Darri
in á FSA hafi verið fín þar sem fyrsta
sólahringinn voru bara Skagfirðingar á
deildinni. Þrátt fyrir góða stemningu á
Akureyri hefði hún viljað fæða í sinni
heimabyggð.
Þó jólin nálgist óðfluga er Regína
ekkert stressuð með að Sigurbjörn Darri
fari í jólaköttinn og er ekki ennþá búin að
ákveða jólafötin á barnið.
Regína ákvað að gefa uppskrift að
uppáhalds smákökum húsbóndans.
Um sex leytið föstudagsmorguninn 24.
ágúst fæddist Rebekka Ýr dóttir þeirra
Elmu Hrannar Þorleifsdóttur og Inga
Björns Árnasonar.
Hvað skagfirsku stemninguna áhrærir
segir Elma það hafa verið svolítið skrítið
Snickersmákökur
200 g saxað snickers (ekki of smátt)
300 g saxað súkkulaði (suðusúkkulaði)
300 g púðursykur / 160 g smjör
2 egg / 320 g hveiti / 1/2 tsk natron
2/3 tsk salt / vanilludropar
Aðferð: Öllu hnoðað saman, rúlla í lengjur og
skera niður í sneiðar. Baka við ca. 180-200°C í ein-
hverjar mínútur (ekki of lengi, eiga að vera frekar
ljósar). Gott að gera deigið kvöldið áður og kæla.
Elma Hrönn og Ingi Björn
Rebekka Ýr
en skemmtilegt að fara í morgunmat og
hitta bara Skagfirðinga. Aðspurð um það
hvað henni finnist um að þurfa að fara
til Akureyrar til að fæða barn segir hún
það fáránlegt. -Aðstaðan er til staðar hér
heima og börnin spyrja ekki að því hvort
heiðin er fær eða ekki, þegar þau ætla að
koma í heiminn. Þessi ferð er klárlega ekki
skemmtileg.
Ekki er búið að ákveða jóladressið á
Rebekku Ýr en „ætli ég finni ekki einhvern
sætan kjól á dömuna“, segir Elma sem að
endingu gefur okkur uppskrift af rosa
góðum smákökum.
Elísa Nótt er daman nefnd sem fæddist
klukkan 06:45 þann 23. ágúst sl. og
verður hún skírð 2. desember. Foreldrar
Elísu eru þau Jenny Marta Charlotte
Larsson og Jóhann Jónsson.
Jenny segir að það hafi verið svolítið
skondið að sjá svo mörg kunnugleg
andlit á göngum FSA er hún var á
Karamellukökur
100 g mjúkt smjör / 1 dl sykur
2 msk síróp / 2 ¼ dl hveiti
1/2 tsk natron / 1 tsk vanillusykur
1 tsk þurrkað engifer, eða aðeins minna
ef maður notar ferskt engifer.
Aðferð: Ofn 175°C. Blandið smjöri, sykri og sírópi
og hrærið saman. Hrærið hinu við og skiptið
deiginu í tvennt. Rúllið út í tvær lengjur. Fletjið
lítillega út með gaffli. Þetta er svo bakað í 12-15
mínútur, skerið svo lengjurnar í hæfilega kökur
strax og kökurnar koma úr ofninum.
Jenny og Jóhann
Elísa Nótt
fæðingardeildinni en það hafi verið
skemmtilegt. Ekki er Jenny ánægð með
að þurfa að fara til Akureyrar til að
fæða barn og segir það til háborinnar
skammar að hafa þessa fínu aðstöðu á
Króknum og fá ekki að nota hana og
leggja sig jafnvel í lífshættu við að koma
sér á Akureyri í allskyns veðrum. Elísa
Nótt verður sannkallað jólabarn því
Jenny segist vera búin að velja jólakjólinn
sem verður rauður og hvítur í anda
jólasveinabúningsins.
Uppáhalds jólasmákökur Jennyar eru
karamellukökur með engifer.