Feykir


Feykir - 29.11.2012, Blaðsíða 14

Feykir - 29.11.2012, Blaðsíða 14
Flestir eru sammála um að jólahátíðin er tími samverustunda með fjölskyldunni en að öðru leyti getur hún haft sérstaka Jólin mín Jólin eru... alltaf jafn yndisleg og best að njóta þeirra með fjölskyldunni. Hvað kemur þér í jólaskap? Falleg aðventu- og jólatónlist. Hvað er besta jólalagið? Það er erfitt að ganga framhjá O helga natt með Jussi Björling en ég verð líka að fá að nefna uppáhalds jóladiskinn á heimilinu sem er Friðarjól með Pálma Gunnarssyni og syni hans. Alveg nauðsynlegt að hlusta á hann þegar jólin nálgast. Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir hátíðirnar? Lesa góðar bækur og hlusta á fallega jólatónlist, taka í spil og almennt að njóta hvíldar og samvista við gott fólk. Hvað langar þig í jólagjöf? Rafmótor á hjólið mitt. Bakar þú fyrir jólin? Smávegis. Laufa- brauðsgerð er til dæmis alveg nauðsynleg í jólaundirbúningi. Konfektgerð hefur að hluta til tekið við af smákökubakstri síðustu árin. Þórdís Friðbjörnsdóttir frá Varmahlíð Laufabrauðsgerð nauðsynleg í jólaundirbúningi Jólin eru... í mínum huga hátíð ljóss og friðar - fyrst og fremst. Hátíð, þar sem fjölskyldur eiga góða samveru, hvílast, borða góðan mat, lesa svolítið og spila! Það finnst mér mjög gaman. Hvað kemur þér í jóla- skap? Það sem kemur mér í jólaskap er nýfallin snjór í logni. Og svo jólalögin í útvarpinu. Þetta með snjó- inn versnar stundum þegar hann fellur í október – þá fer ég í þvílíkan jólafíling sem gufar svo upp með snjónum, ef hlánar. Þetta er auðvitað eitthvað sem maður ræður ekki við – en er frekar bagalegt og stundum hef ég óskað þess að hægt væri „að flýta“ jólunum. Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir hátíðirnar? Ég segi nú bara „Ekkert ER ómissandi“. Lífið er breytingum háð – ég hef t.d. margoft unnið á sjúkrahúsinu á Hvammstanga á aðfangadagskvöld og það er MJÖG gefandi og skemmtilegt – vera hjá vistmönnum, hjálpa þeim að opna jólakortin og pakkana. Sumir eiga fáa að og engin kemur í heimsókn. Þá er bara fínt að aðstoða þá. Ég hef líka upplifað „öðruvísi“ jól á Kanarí og það var líka lærdómsríkt. Ég er líka ekkert mjög mikil jólamanneskja, er frekar fyrir aðventuna, t.d. eiga eina kökusort fyrir þá sem rekast inn. Hvað langar þig í jólagjöf? JÓLAGJÖF – Ja, það er spurning, mig vantar EKKI neitt og ég held að það Elín Ása Ólafsdóttir frá Hvammstanga Nýfallin snjór í logni kemur mér í jólaskap Jólin eru... hátíð ljóss og friðar þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi. Þá á helst að gleyma stressi og böl og njóta kyrrðarinnar. Hvað kemur þér í jólaskap? Mér finnst undirbúningur jólanna svo skemmtilegur tími. Samvera með fjölskyldu og vinum, notalegheit við kertaljós og hugljúfa jóla- tónlist. Fara og finna jólatré í skóginum með fjölskyldunni og jólailmurinn af greninu. Svo er alltaf gaman að spila sjálf fallega jólatónlist á tónleikum og með nemendum. Hvað er besta jólalagið? Ég held að mitt uppáhalds jólalag sé hið íslenska lag Hátíð fer að höndum ein. Þegar það er fallega flutt fæ ég alltaf kökk í hálsinn. En það eru svo mörg lög að ég gæti talið endalaust upp. Lagið Jól eftir Jórunni Viðar er líka fallegt og svo Hin fyrstu jól eftir Ingibjörgu Þorbergs. Nýjasta uppáhaldslagið er Mitt Hjerte flutt af Sissel Kyrkjebo. Annars er yfirleitt þannig hjá mér að ef tónlist er flutt af einlægni þá er hún yfirleitt falleg. Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir hátíðirnar? Kveikja á kerti og njóta tímans og kyrrðarinnar með fjölskyldunni minni. Líka að fara í kirkju á aðfangadagskvöld en svo sakna ég þess alltaf að heyra ekki í kirkjuklukkunum slá inn jólin kl. 6 eins og ég heyrði í Reykjavík. Að fara á fallega jólatónleika er líka alltaf gaman og svo sjálfsögðu að fara í smá jólaboð og hitta stórfjölskylduna. Kristín Halla Bergsdóttir á Grænumýri í Blönduhlíð Skemmtilegt að finna jólatré í skóginum með fjölskyldunni Jólin eru... tími til að slaka á og njóta þess að vera í faðmi fjölskyldunnar og góðra vina. Borða góðan mat og yfirleitt of mikið af honum þannig að manni verður illt af en það er bara partur af þessu öllu saman. Hvað kemur þér í jólaskap? Fjölskyldan hefur undanfarin ár farið til Akureyrar ca. mánuði fyrir jól og átt góðan tíma þar. Það kemur mér í jólaskapið. Einnig er algjörlega ómissandi að ganga til rjúpnaveiða og ég er ekki frá því að það komi mér líka í jólaskapið en það kann að hljóma undarlega fyrir suma. Hvað er besta jólalagið? Heims um ból, ekki spurning. Ég fæ hreinlega gæsahúð þegar ég hlusta á það í jólamessunni á aðfangadagskvöld. Hvað finnst þér ómissandi að gera yfir hátíðirnar? Algjörlega ómissandi að borða hangikjöt, laufabrauð og skyr með rjóma í hádeginu á aðfangadag, fá jólasveinana í heimsókn með jólapóstinn og að borða rjúpur um kvöldið. Hvað langar þig í jólagjöf? Þarna er ég gripinn í bólinu. Er alveg hættur að gera óskalista en börnin hafa alveg tekið við af mér í þeim efnum. Kannski væri samt gott að fá eitthvað fyrir skotveiðina. Bakar þú fyrir jólin? Já, reyndar geri ég það. Ég sé alveg um að baka Vanilludrauminn en það eru smákökur sem mamma bakaði og bakar enn fyrir jólin. Svo reyni ég að aðstoða konuna við aðrar sortir eins og Mömmukökur og Sírópskökur. Þá má ekki gleyma laufabrauðinu en það sker maður út og steikir með öðrum fjölskyldumeðlimum fyrir jólin. Hver er uppáhalds smákökusortin þín? Það eru Vanilludraumur og Mömmukökur. Auðunn Steinn Sigurðsson frá Blönduósi Rjúpnaveiðar koma mér í jólaskapið hafi alltaf verið frekar erfitt að gefa mér gjafir, því mér finnst „sælla að gefa en þiggja“. Mér finnst t.d. mjög gaman að gefa jólagjafir. Það er svosem alltaf gott að fá bók en núna nenni ég ekki lengur að eiga margar bækur – þá eru það CD - diskar sem koma helst til greina, og þá er svosem ýmislegt sem mér finnst skemmtilegt, t.d. Jónas Sig og Ásgeir Trausti. Svo sá ég líka um daginn disk með lögum Bergþóru Árnadóttur sem ég á ekki en væri til í að eiga. Bakar þú fyrir jólin? Bakstri hefur farið aftur með árunum eins og mér sjálfri. Stundum hef ég ekki bakað neitt en ég stefni á að baka 2-3 sortir af smákökum í ár. Kannski stend ég við það eða ekki – aldrei að vita.... Hver er uppáhalds smákökusortin þín? Uppá- haldskökur eru Engiferkökur, Mömmukökur og Vanilluhringir. UMSJÓN Berglind Þorsteinsdóttir þýðingu fyrir hvern og einn. Hér má sjá dæmi um þau mismun- andi svör sem Feykir fékk um jólin. Hver er uppáhalds smákökusortin þín? Verð að nefna tvær. Sírópskökurnar hennar mömmu og engiferkökur Diddu frá Litlubrekku. Hvað langar þig í jólagjöf? Ég er nú ekki farin að hugsa um það, ég er meira að hugsa hvernig ég geti glatt aðra. Bakar þú fyrir jólin? Já, það er alveg ómissandi. Hver er uppáhalds smákökusortin þín? Það eru piparkökurnar sem ég baka en í fjölskyldunni er til gömul sænsk uppskrift þar sem maður sýður fyrst saman smjör, síróp, krydd og koníak og lyktin af þessu er dásamleg og fyllir húsið af jólailmi. Svo setur maður hveitið í daginn eftir. Þetta er ekki auðveldasta uppskriftin en alveg ómissandi. Og svo er deigið líka svo gott! 20121 4

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.