Feykir


Feykir - 29.11.2012, Blaðsíða 30

Feykir - 29.11.2012, Blaðsíða 30
20123 0 Þórkatla Björt Sumarrós Þrastardóttir lenti í alvarlegu slysi í sumar en líður vel í dag Glöð að þetta skildi ekki fara verr Feykir hafði samband við þessa lífsglöðu stúlku sem ætlar ekki að láta þetta óhapp stoppa sig neitt í að vera með vinum sínum og segist sér líða mjög vel í dag. Hún stundar sitt nám í 6. bekk Varmahlíðarskóla og finnst allt skemmtilegt sem þar er kennt enda með góðan kennara, hana Ólöfu Sigurðar- dóttur. Þegar Þórkatla Björt er spurð að því hvað sé skemmtilegast að gera í sveitinni segir hún það að vera úti og hjálpa til. Hún hefur mikinn áhuga á öllum dýrum og finnst þau öll jafn skemmtileg. Leiðinlegasta verkið í sveitinni er að hreinsa krærnar í fjárhúsunum. Eins og allir vita leynast ýmsar hættur í sveitinni og Þórkatla Björt lýsir atburðum slyssins á þessa leið: -Ég var að leika mér í túninu niður við hvarf, sem ég veit vel að ég má ekki, en þar erum við nýbúin að rækta upp tún. Ég hafði aldrei áður verið á þessu túni og vissi því ekki um stórt dý sem er í túninu. Ég var lengst inn á túninu þar sem ég hélt að ég gæti leikið mér í smá stund því það væri langt þangað til pabbi minn myndi nálgast mig, en hann var að slá. En það sem ég vissi ekki var að hann þurfti að taka stóran sveig framhjá þessu dýi og var að fylgjast með að vélin færi ekki ofaní dýið og því fór sem fór. Ég og við öll erum bara rosalega glöð að þetta skildi ekki hafa farið verr en það fór. Nú vitum við að þú ert búin að fara margar ferðir suður í ýmsar aðgerðir. Geturðu sagt okkur eitthvað um þær? -Eftir að ég útskrifaðist af Barnaspítalanum eftir rúmlega átta vikna dvöl – og þar áður þegar ég var í rétt tæplega viku á gjörgæsludeildinni í Fossvogi – hef ég farið mjög margar VIÐTAL Páll Friðriksson Hún Þórkatla Björt Sumarrós varð fyrir því óhappi í sumar að slasast alvarlega er hún varð undir sláttuvél sem drifin var áfram af dráttarvél. Áverkar voru miklir en hún skarst illa á báðum fótum og vinstri hendi. Þórkatla fór í rúmlega tíu tíma aðgerð um leið og hún kom á Landspítalann í Fossvogi en síðan dvaldi hún á gjörgæsludeild þar til hún var flutt á Barnaspítala Hringsins. Nú er Þórkatla Björt Sumarrós komin heim en fer reglulega suður til lækninga en einnig sækir hún sjúkraþjálfun á Sauðárkróki. ferðir til Reykjavíkur. Fyrst fór ég alltaf einu sinni í viku en núna líður aðeins lengri tími á milli, svona tvær til þrjár vikur. Þar hitti ég þessa frábæru lækna sem ég er búin að vera með frá því í fyrstu aðgerðinni sem ég fór í um leið og ég kom suður eftir slysið. Það eru þeir Jóhann Róbertsson sem sér alfarið um hendina mína og síðan Gunnar Auðólfsson sem er lýtalæknirinn minn. Þeir eru rosalega góðir við mig og vilja allt fyrir mig gera, þeir eru líka alltaf svo skemmtilegir og í góðu skapi, það munar svo miklu. Hvað er framundan hjá þér? -Nú í lok nóvember fer ég suður að hitta þá Jóa og Gunnar og einnig er ég að fara að hitta taugalækni sem ég hef ekki hitt áður. Hann er að fara að skoða á mér hægri fótinn en ég er með svokallaðan dropfót þeim megin. Það á að fara að reyna að laga hann og eins og staðan er í dag er stefnan að ég fari í aðgerð út af fætinum í janúar en það er svolítið spurning hvað kemur út úr þessari skoðun hjá Jólagullmolar barnanna [spurt í leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki] Luka Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú hugsar um jólin? -Þá koma jólasveinarnir, ég er alltaf að bíða og bíða eftir þeim. Emilía Björk Af hverju höldum við jólin? -Af því þá á jólabarnið afmæli. Sæþór Pétur Hvað getur þú sagt mér um jólasveina? -Þeir eru átta en ég veit ekkert meira um þá. María Hvað dettur þér í hug þegar þú hugsar um jólin? -Ég fæ pakka og fer í spari- fötin. Ég er búin að fá jólafötin, það er gulllitaður kjóll með glimmeri svo keypti pabbi fyrir mig gullskó í London. Samúel Ingi Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú hugsar um jólin? -Þá sækja mamma og pabbi jólatréð, við kaupum jólagjafir og svo er dansað í kringum jólatréð. Markús Máni Hvað getur þú sagt mér um jólasveina? -Þeir hafa náttúrulega jólasveinahúfu og eru í jólasveinafötum, svo gefa þeir krökkum gjafir. Nema ef maður er óþekkur, þá fær maður kartöflu. /BÞ taugalækninum. Annars er ég hjá henni Lenu vinkonu minni í sjúkraþjálfun á sjúkrahúsinu á Króknum þrisvar til fjórum sinnum í viku og síðan fer ég í tækjasalinn í íþróttahúsinu í Varmahlíð tvisvar sinnum í viku þegar bekkurinn minn er í leikfimi. Þórkatla Sumarrós vill fá að koma góðum kveðjum með þökkum til allra þeirra sem hugsuðu hlýtt til hennar og fjölskyldunnar í sumar þegar slysið varð. -Ég fékk fullt af pökkum sent á sjúkrahúsið, blóm, konfekt og ýmislegt fleira frá fólki sem ég þekki og líka fólki sem ég þekki ekki neitt. Ekki má gleyma spjaldtölvunni sem ég fékk frá bekknum mínum og fleira góðu fólki sem gaf í söfnunina sem Ingibjörg Skarphéðinsdóttir hrinti af stað til að styrkja mig. Mér fannst ótrúlegt að finna að allt þetta góða fólk væri að hugsa til mín. Það er aldrei hægt að fullþakka fyrir það. Bara takk allir saman. Nú eru jólin framundan og segist Þórkatla hlakka til þeirra enda skemmtilegast við jólin að vera með fjölskyldunni. Áttu uppskrift að uppáhalds kökunni? -Já, og hún heitir Súkkulaði- bitakökur Hefðarkattanna og þó að þetta sé nú ekki beinlínis jólasmákökur þá bökum við Kolbrún systir þetta alltaf fyrir jólin og skemmtum okkur vel á meðan. Þórkatla Björt Sumarrós á leið í sína fjórðu aðgerð, komin inn á skurðstofu. Með henni á myndinni er bangsinn hennar Kári Ingimarsson sem hún fékk í gjöf frá Atla Kárasyni sjúkraflutningamanni þegar hún var að fara í þyrluna sem flutti hana suður. Þess má geta að Kári Ingimarsson hefur fylgt Þórkötlu alveg frá því hún fékk hann fyrst og er allt starfsfólk sem hefur umgengist Þórkötlu allan þennan tíma mjög kunnugt um hann og hans hlutverk. Súkkulaðibitakökur Hefðarkattanna 225 g púðursykur / 125 g smjör (við stofuhita) 2 egg / 190 g hveiti 1/2 tsk salt / 1 tsk matarsódi, sléttfull 2 tsk vanilludropar / 500 g súkkulaði, saxað Aðferð: Hitið ofninn í 180°C. Saxið súkkulaðið og blandið öllu hráefninu saman og hnoðið í hrærivél. Setjið skálina með deiginu inn í frysti í u.þ.b. 10 mín. en þá er auðveldara að vinna með deigið. Takið síðan deigið úr skálinni og hnoðið á borði og mótið í rúllu. Skerið í 1 sm þykkar sneiðar. Leggið sneiðarnar á bökunarplötu og bakið við 180°C í 10 mín.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.