Feykir


Feykir - 29.11.2012, Blaðsíða 24

Feykir - 29.11.2012, Blaðsíða 24
20122 4 Gleðileg jól ferfætlinganna Gæludýrin og jólin UMSJÓN Berglind Þorsteinsdóttir Þar sem talað er um að jólin séu tími fjölskyldunnar er varla annað hægt en að fá sögur af jólahaldi litlu, loðnu og ferfættu fjölskyldumeðlimanna. Feyki lék forvitni á að vita um sérstakar jólahefðir í kringum gæludýrin, hvað þau fá að borða á jólunum og fara þau kannski í sérstakt jólabað? Feykir kannaði málið. Í Afahúsi eru tvö gæludýr, það er hundurinn Alfreð og kötturinn Lappi Hansen (frá Sigga í Kringlumýri). Alfreð verður 6 ára um jólin, en við fengum hann í júlí 2011. Lappi Hansen er 11 ára og við höfum átt hann frá því hann var nokkurra vikna. Hafa skapast einhverjar sérstakar jólahefðir í kringum gæludýrin? -Það hafa nú ekki skapast miklar hefðir í sambandi við Alfreð því hann hefur bara verið ein jól hjá okkur. Hann fékk að sjálfsögðu slaufu um hálsinn á aðfangadag í fyrra og slátur að borða. Við áttum einu sinni hund sem hét Lenni og við suðum alltaf slátur handa honum á aðfangadag og gamlársdag, hann var alltaf með breiðan rauðan jólaborða um hálsinn á aðfangadagskvöld. Lappi fær alltaf túnfisk að borða um jól og áramót, en það þýðir ekkert að ætla að setja slaufu um hálsinn á honum – herra Lappi Hansen lætur ekki skreyta sig! Mig langar til að lýsa aðfangadegi hjá Lenna, hundi sem við áttum í mörg ár. Hann vissi alveg hvað stóð til og var í hátíðaskapi eins og „hitt fólkið“ á heimilinu (já - hann hélt að hann væri maður). Þegar pakkarnir voru komnir undir tréð þá var hann ekki lengi að sigta út með þefskyninu án þess að snerta nokkuð, hvaða pakka hann ætti því það var alltaf hundanammi eða nagbein eða eitthvað svoleiðis í hans pakka. Eitt árið var hann búinn að finna út hvaða pakka hann ætti og lagðist fyrir framan tréð með nefið alveg upp við pakkann þegar við settumst inn í stofu. Þegar við fórum að taka pakkana og afhenda öllum sína tók Lenni sinn og fór út í horn með hann, ég fylgdist með honum með öðru auganu og sá að þetta var eitthvað skrítið því í pakkanum voru leðurhanskar. Kom þá upp úr kafinu að Röggi tengdasonur okkar hafði komið með pakka frá ömmu sinni sem var að gefa honum leðurhanska, en við vorum viss um að Röggi væri að koma með pakka handa Lenna eins og hann gerði oftast. Þetta fór nú allt vel og það var mikið hlegið. Hvernig kunna dýrin að meta þessa fyrirhöfn? -Dýrin í Afahúsi kunna vel að meta umstangið við jólaskreytingarnar. Alfreð var nú frekar hissa á þessu öllu í fyrra en Lappi Hansen hefur alltaf gaman af að láta jólaóróana hreyfast með því að slá í þá með framfætinum, við munum samt ekki eftir að hann hafi skemmt jólaskraut. Hvað finnst fjölskyldumeðlimum um jólahefðir dýranna? -Litla „stórfjölskyldan“ okkar hefur alltaf verið ánægð með að hafa dýrin með í jólahaldinu og passar upp á að halda í hefðirnar. Alfreð og Lappi Hansen þeirra Maríu Grétu Ólafsdóttur og Viðars Sverrissonar í Hjaltadal Slaufa um hálsinn og slátur að borða Gæludýrið okkar er smá hundur af tegundinni Pomeranian frá Dals- mynni. Hann er fæddur 7. ágúst 2004 og er því í ljónsmerkinu, eins og eigandinn, og heitir Leo. Foreldrar hans eru, Pomina‘s Brand In Your Heart, og Dalsmynnis Birta Dís. Maðurinn minn fékk hann í afmælisgjöf frá mér, börnum og barnabörnum þegar hann varð sextugur. Hafa skapast einhverjar sér- stakar jólahefðir í kringum gæludýrið? -Það eru nú ekki neinar fastar jólahefðir, en hann fær að sjálfsögðu að borða af jólamatnum okkar og líkar vel. Hvernig myndu þið lýsa að- fangadegi hjá gæludýrinu? -Hann er náttúrulega settur í bað, þurrkaður með hár- blásara og síðan kembdur og snyrtur. Svo er sett á hann jólahúfan sem hann er með svona af og til. Svo fær hann alltaf jólapakka eins og aðrir á heimilinu og finnst gaman að rífa pakkann upp með smá hjálp. Hvernig kann dýrið að meta þessa fyrirhöfn ? -Ég hef aldrei spurt hann. Hvað finnst fjölskyldumeð- limum um jólahefðir dýrsins? -Bara gaman af þessu. Leo þeirra Herdísar Fjeldsted og Páls Magnússonar á Hofsósi Fær jólabað og blástur Við eigum tvo ketti, þá Ými og Stuart Gunnarssyni. Ýmir, sem er persi, eignuðumst við árið 2000 en Stuart, sem er af skógarkattarkyni, fengum við þremur árum áður. Hafa skapast einhverjar sér- stakar jólahefðir í kringum gæludýrið? -Nei, ekkert sérstaklega. Við reynum að gefa þeim gott að borða, annars vilja þeir oftast bara fá sinn mat, Stuart vill fisk en hinn blautmat. Ýmir á eftir að fara í jólaklippinguna en hann er mjög loðinn og þarf að fara reglulega í klippingu. Hann vill alls ekki láta greiða sér. Hann ætti í sjálfu sér að vera inniköttur en hann vill helst bara sitja út í rigningu og snjókomu, þar líður honum best. Hvernig myndir þú lýsa aðfangadegi hjá gæludýr- unum? -Stuart er bara samur við sig en Ýmir er glysgjarn og er mjög hrifinn af jólaskrauti og eyðir miklum tíma í að skoða það. Það má helst ekki setja blóm í vasa, sama á hvaða árstíma það er, eða kveikja á kertum þá slekkur hann á þeim með loppunum. Hann skemmir skrautið ekki en hann vill alltaf sitja hjá því og skoða það. Svo vill hann setjast til borðs með okkur um kvöldið. Hvernig kunna dýrin að meta þessa fyrirhöfn? -Þeir kunna mjög vel við hana, sérstaklega Ýmir hann er mjög félagslyndur. Hann sest hjá okkur þegar við sitjum við eldhúsborðið og sækir mikið í okkur. Hann sækir líka mikið í börn, t.d. ef þau eru að leika sér á gólfinu þá vill hann vera með þeim. Stuart er heldur styggari, þá ekki við okkur heldur við aðkomufólk. Hvað finnst fjölskyldumeð- limum um jólahefðir dýr- anna? -Við erum bara tvö í heimili en börnin koma oft að heimsækja okkur. Sonur okkur ætlar að eyða jólunum hjá okkur í ár en hann býr í Kína og hann er mikill dýravinur. Svo finnst barnabörnunum mjög gaman að koma og leika við kettina. Ýmir og Stuart þeirra Guðríðar Daníelsdóttur og Gunnars Reynissonar á Skagaströnd Glysgjarn og vill sitja til borðs glettur Úr Skagfirskum skemmtisögum 2 Feðgarnir á Vöglum, Magnús og Gísli, voru duglegir að rækta kartöflur, sér í lagi sonurinn Gísli. Hann var fyrst og fremst kúabóndi á meðan Maggi sá um féð. Gísli átti samt nokkrar rolluskjátur en Maggi var fjárglöggur maður og þekkti sínar kindur. Síðan gerðist það að ein kindin vandi komur sínar meira en góðu hófi gegndi í kartöfluakra Gísla. Henti hann henni út fyrir og sagði við föður sinn að þetta gengi ekki. „Pabbi, þú verður að fjarlægja þessa rolluskjátu þína, annars sker ég hana.“ „Skerðu hana bara,“ sagði Maggi, „þá erum við lausir við hana.“ Síðan fór blessuð kindin auðvitað aftur í kartöflugarðinn og stóð Gísli viðsitt. Átti Magnús þá leið hjá, á hinsta degi hinnar kartöfluóðu kindar, og sagði sposkur við soninn: „Já, þú hefur skorið hana, karlinn, og áttir hana sjálfur.“ HA HAHA Alfreð. Leo. Ýmir Gunnarsson. Stuart Gunnarsson.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.