Feykir - 29.11.2012, Side 12
20121 2
Heilir og sælir
lesendur góðir. Það
er minn góði vinur
og ágæti hagyrðingur
Jón Karlsson bóndi í
Gýgjarhólskoti sem
yrkir svo sanna vísu á
haustdögum.
Tíminn ekki gefur grið
gengur jöfnum hraða.
Sína kveðju sumarið
sendir litaglaða.
Næstu vísu Jóns fékk ég
senda á jólakorti.
Ég í huga norður næ
nú er óskin valin.
Vona að jólin blíðan blæ
beri í Svartárdalinn.
Á öðru jólakorti fékk ég
þessa fallegu vísu frá þeim
hjónum í kotinu.
Burtu nóttin brunar svört
bráðum hækkar sólin.
Heimili þitt hitti björt
hamingja um jólin.
Næsta vísa er höfundarlaus
en mun hafa verið skrifuð á
jólakort.
Bráðum ef að birtast jólin
og börnin gleðja kertin fín.
Vona ég að sendi sólin
sína geisla inn til þín.
Sá snjalli hagyrðingur Þor-
móður Pálsson frá Njáls-
stöðum mun hafa ort
þessar skammdegisvísur.
Sá ekki óvanur að með-
höndla hringhenduna.
Dvelur njóla, fellur fjúk
fölskvar sólarvanga.
Felur jólamjöllin mjúk
móa, hóla, dranga.
Hrannir æða, fannir fjúka
foldar næðir bleika kinn,
fjöllin klæðir mjöllin mjúka
myrkrið flæðir til mín inn.
Minnir að það hafi verið
Þóra Jónsdóttir frá Kirkju-
bæ sem orti svo fallega á
jólanótt.
Nú þaggar alkyrr ótta
ysinn fjær og nær.
Fellur að moldar feldi
flosmjúkur jólasnær.
Í umhleypingum í svarta-
skammdegi yrkir Steindór
Sigurðsson á Akureyri svo.
Allt vort líf er stormastríð
stöðug áraun þorsins.
Við að þrauka hret og hríð
og hjara fram til vorsins.
Þó að blikni blóm á hól
og bráðum frjósi í spori,
ég mun geta ort um jól
aftur á næsta vori.
Það mun hafa verið grín-
skáldið Kristján N. Júlíus
sem skrifaði í vasabók sína
er jólin nálguðust eftirfar-
andi vísu.
Prestinn mig fýsir að finna
fara ég ætla til messu,
mundu nú eftir að minna
mig á, að gleyma ekki þessu.
Sá snjalli Friðrik Hansen á
Sauðárkróki mun vera
höfundur að þessari.
Jólakveðjan kallar í
kirkju óska sinna.
Lifðu yndið upp á ný
æskujóla þinna.
María Bjarnadóttir yrkir
svo um áramót.
Þetta líkt sem önnur ár
augum hverfur mínum.
Flytur bæði bros og tár
burt á vængjum sínum.
Mér er lífið tíma tap
á tækifærin gleymin.
Stundin eins og stjörnuhrap
strikar út í geiminn.
Það mun hafa verið Bjarni
frá Gröf sem orti þessa
fallegu jólavísur.
Ungur var ég upp í sveit
átti jólin heima.
Mér þá dýrð ég mesta veit
minningarnar geyma.
Heima vistlegt var og hlýtt
við það tækifæri.
Allir fengu eitthvað nýtt
oft þó lítið væri.
Til að finna fegra líf
flest var reynt að gera.
Laufabrauð með litlum hníf
lék ég mér að skera.
Einhvern veginn færast fjær
fann ég hversdags braginn.
Hátíðlegur helgiblær
hjúpaði gamla bæinn.
Húnvetningurinn Rögn-
valdur Rögnvaldsson yrkir
svo einhverju sinni um
áramót.
Enn eru komin áramót
enn má stokka spilin.
Enn má gera yfirbót
enn má bæta skilin.
Björn Pétursson bóndi á
Sléttu í Fljótum var, eins og
kannski þeir sem eldri eru
kannast við, snjall hagyrð-
ingur. Vel skilur undirritað-
ur gleðina í þessari vísu
hans.
Ekki er fokið öll í skjól
eins og sakir standa.
Gaf mér drottinn gleðileg jól
og Grímur á Tjörnum landa.
Gaman að enda þennan
þátt í Jólablaði Feykis árið
2012 með þessari fallegu
vísu Torfa Sveinssonar frá
Hóli.
Drottinn á dýrlegum stól
dáður vitur og hár.
Gefi þér gleðileg jól
gæfuríkt komandi ár.
Veriði þar með sæl að sinni.
G.V.
Vísur tengdar jólum
Vísnaþáttur 583 Jóladagskráin í Menningarhúsinu Miðgarði
Laugardagur 1. desember kl: 16:00
Jólatónleikar Gospelkórs Akureyrar ásamt
gestasöngvaranum Rúnari Eff og hljómsveit.
Föstudagur 14. desember
Leiksýning eldri nemenda Varmahlíðarskóla.
Þriðjudagur 18. des kl: 20:30
Notalegir jólatónleikar með tónlistarkonunum
Kristínu Höllu og Jóhönnu Marín.
Miðvikudagur 19. desember
Jólaball Varmahlíðarskóla og leikskólans Birkilundar.
Laugardagur 5. janúar
Þrettándaskemmtun Karlakórsins Heimis.
Óskum ykkur öllum
gleðilegra jóla
og þökkum
fyrir samstarfið á árinu
sem er að líða
UMSJÓN
Guðmundur Valtýsson
glettur Úr Skagfirskum skemmtisögum 2
Feykir fékk góðfúslegt leyfi hjá Bókaútgáfunni Hólum og Birni Jóhanni
Björnssyni sem tók saman fjörefnið í Skagfirskar skemmtisögur til að birta
nokkrar laufléttar sögur úr bókinni og eru þær á víð og dreif um Jólablað Feykis.
Framsóknarmenn í Skagafirði hafa jafnan
fengið góða heiðursgesti til sín á árlegt
héraðsmót. Eitt árið mætti Steingrímur
Hermannsson, þá formaður flokksins. Eftir
héraðsmótið kom Guttormur í bókabúðina til
Brynjars og bóksalinn byrjaði að sjálfsögðu á
því að spyrja hvernig samkoman hefði verið.
„Hún var stórkostleg,“ sagði Guttormur.
„Og flutti Steingrímur góða ræðu?“ spurði
Binni.
„Þetta var ekki ræða, Brynjar, þetta var
listaverk!“ HA HAHA