Morgunblaðið - 17.10.2017, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 7. O K T Ó B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 244. tölublað 105. árgangur
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ
AÐ VERÐA ÞEGAR
ÞÚ VERÐUR STÓR? FAÐIRINN
HAUSTTÍSKA
OG HIMNESK-
IR BÍLAR
★★★★ 31 BÍLARSTARFSGREINAKYNNING 12
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Viðskiptabankarnir eru í stakk
búnir til þess að greiða allt að 240
milljarða króna í arð til eigenda í
því skyni að eiginfjárhlutfall þeirra
verði með svipuðu sniði og annars
staðar á Norðurlöndum, sam-
kvæmt útreikningum Morgun-
blaðsins.
Fram kemur í nýrri greiningu
Danske Bank að eigið fé íslensku
bankanna sé mun ríflegra en hjá
öðrum norrænum bönkum. Eigin-
fjárhlutfall fjármálastofnana, sem
kallað hefur verið „almennt eigið
fé þáttar 1“ (e. Common Equity
Tier 1), var um 23% að meðaltali
hjá íslensku bönkunum í lok ann-
ars ársfjórðungs en er um 16% að
meðaltali hjá bönkum á Norður-
löndum.
Ef sú háa arðgreiðsla yrði innt
af hendi myndi arðsemi eigin fjár
íslensku bankanna vera á pari við
arðsemi norrænu bankanna, sam-
kvæmt greiningu Danske Bank.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði í þætt-
inum Forystusætið í Ríkissjón-
varpinu að hægt væri að minnka
bankakerfið með því að taka tugi,
jafnvel hundrað milljarða úr því
áður en bankarnir verði seldir til
að fjármagna innviðauppbyggingu
í landinu. Á meðal kosningamála
Miðflokks Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar er að bankarnir
greiði umfram eigið fé í ríkissjóð.
240 milljarða arðgreiðslur
Íslensku bankarnir eru mun betur fjármagnaðir en aðrir norrænir bankar
Þeir gætu greitt mikinn arð til þess að færa eiginfjárhlutfallið í svipað horf
M Bankarnir gætu greitt … »16
Ekki í einum munnbita
» Bankarnir myndu gefa sér
nokkur ár í að greiða út svo
háa fjárhæð til eigenda.
» Stjórnmálamenn hafa sagt
að umtalsverðar fjárhæðir
megi sækja til bankanna, sem
leggja megi í uppbyggingu t.d.
innviða.
Ólafur B. Einarsson, verkefnis-
stjóri lyfjamála hjá Embætti land-
læknis, segir barnalækna verða að
svara fyrir mikla lyfjaávísun til
ungra barna, en almennt eru fleiri
börn á leik- og grunnskólaaldri sem
fá ávísuð tauga- og geðlyf hér á
landi en meðal jafnaldra þeirra í
Svíþjóð, Noregi og Danmörku.
„Mörg þessara lyfja eru ekki ætl-
uð börnum,“ segir Ólafur B. í sam-
tali við Morgunblaðið og vísar með-
al annars í máli sínu til ópíóíða,
sterkra verkjalyfja, en algengustu
ópíóíðar meðal barna á leikskóla-
aldri eru Parkódín og SEM-mixtúra
sem ekki eru ætluð börnum. »4
Læknar svari fyrir
mikla ávísun
Þessi litla kisa, sem verslunarfólkið kallar Mangó, kemur daglega í verslun
Cintamani í Bankastræti og stillir sér upp úti í glugga til að horfa á mann-
lífið fyrir utan, við fögnuð vegfarenda og viðskiptavina. Kisan byrjaði að
venja komur sínar þangað nýlega, m.a. til að horfa á fiskana í tjörninni sem
er í kjallara verslunarinnar. Heyrst hefur að hún líti stundum inn í verslun
Víðis og mæti í drekkutíma á Ölstofu Kormáks og Skjaldar. ernayr@mbl.is
Veraldarvön miðbæjarkisa stillir sér upp úti í glugga
Morgunblaðið/Eggert
Þúsundir
kvenna hafa stig-
ið fram á sam-
félagsmiðlum
undir myllu-
merkinu #MeToo
og greint frá því
að þær hafi orðið
fyrir kynferðis-
legu ofbeldi eða
áreitni, en tilefni
ummælanna má
m.a. rekja til ásakana leikkvenna í
garð kvikmyndaframleiðanda.
Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stígamóta, segir þetta framhald af
þeirri vitundarvakningu sem átt
hefur sér stað undanfarið. »10
Mörg þúsund konur
greina frá ofbeldi
Margmenni í
Druslugöngu.
Hálf öld skilur að elsta frambjóð-
andann í oddvitasæti fyrir alþing-
iskosningarnar og þann yngsta.
Ari Trausti Guðmundsson er sá
elsti, 69 ára gamall á þessu ári.
Hann býður sig fram fyrir Vinstri
græn í Suðurkjördæmi. Sú yngsta
er Erna Lína Örnudóttir Baldvins-
dóttir, 19 ára. Hún býður sig fram
fyrir Alþýðufylkinguna í Suð-
vesturkjördæmi.
Þegar horft er til kynjaskipt-
ingar oddvita í kjördæmunum eru
karlar í miklum meirihluta. 37 karl-
ar sitja í oddvitasæti á móti 22
konum. Það þýðir að 63% oddvita
eru karlar en 37% eru konur. Hlut-
fallið jafnaðist aðeins eftir að Ís-
lenska þjóðfylkingin dró lista sína
til baka.
Fjölmargir þekktir einstaklingar
sitja á framboðslistum, til að mynda
Rúrik Gíslason, Edda Björgvins-
dóttir og Almar í kassanum. »6
Hálfrar aldar aldursmunur er á
oddvitunum Ara Trausta og Ernu Línu
Morgunblaðið/Eggert
Kosningar Meirihluti oddvita er karlar,
63%, en 37% þeirra eru konur.
„Núverandi reglur og valnefnd-
arreglurnar sem áður giltu og ég
tel að hafi verið mun betri eru til að
sætta tvö sjónarmið, faglegheit og
rétt sókna til að velja hvern sem er.
Það er ekki hægt nema úr verði
hálfgerður bastarður sem við verð-
um aldrei sátt við,“ segir séra Guð-
rún Karls Helgudóttir, varafor-
maður Prestafélags Íslands, um
starfsreglur um val og veitingu
prestsembætta sem til umræðu
hafa verið í kjölfar mála sem komið
hafa upp í Þjóðkirkjunni.
Guðrún telur að reynslan af nú-
verandi reglum sé ekki nógu góð.
Nefnir hún að kjörnefnd þurfi ekki
að rökstyðja val sitt eftir leynilega
kosningu og sé þar með ekki bundin
af jafnréttislögum og öðrum lögum.
Telur hún vafasamt að það standist.
Skiptar skoðanir eru meðal presta
og leikmanna um það hvernig
standa eigi að ráðningum. »18
Reglur um val og veitingu prestsembætta
sagðar bastarður sem aldrei náist sátt um
Morgunblaðið/Eggert
Prestastefna Prestar koma saman við
setningu árlegrar samkomu þeirra.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæð-
inu féllst í gær á beiðni Glitnis
HoldCo ehf. um að lögbann yrði
lagt á fréttaflutning Stundarinnar
og Reykjavík Media byggðan á
gögnum úr fallna bankanum. Ing-
ólfur Hauksson, framkvæmdastjóri
Glitnis HoldCo, segir að gögnin séu
klárlega úr kerfum Glitnis banka en
í tilkynningu frá eignarhaldsfélag-
inu kemur fram að það telji yfir-
gnæfandi líkur á að einkamálefni
þúsunda fyrrverandi viðskiptavina
Glitnis séu í húfi og taldi stjórnin
nauðsynlegt að grípa til fyrirbyggj-
andi aðgerða. Forsvarsmenn
Stundarinnar og Hjálmar Jónsson,
formaður Blaðamannfélags Íslands
(BÍ), hafa mótmælt lögbanninu
harðlega. »2
Einkamál-
efni þúsunda
Aðför að tjáningar-
frelsi, segir formaður BÍ
Glitnir Lögbannsbeiðni samþykkt.