Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM OG HEILSUHILLUM STÓRMARKAÐA
Nutrilenk fyrir liðina
Náttúr
ulegt
fyrir li
ðina
GOLD
NNA
Vertu laus við
LIÐVERKINA
Eitt mest selda efnið fyrir liðina hér á landi
„Ég var búinn að fara í þrjár hnéaðgerðir á nokkurra ára tímabili, var mjög slæmur og treysti
mér engan veginn í aðra aðgerð. Semmúrari er ég mikið á hnjánum og starfið reynir gríðarlega
á liðina. Til allrar hamingju ákvað ég að prófaNUTRILENKGOLD. Ég tók inn 6 töflur
fyrstu tvær vikurnar og það dugði mér til að verða góður. Nú tek ég 2 töflur á dag til að viðhalda
batanum. Það má segja að batinn sé kraftaverki líkastur. Ég hvet því kollega mína í iðninni til að
prófa,“ segir Davíð en hann setti hvorki meira né minna en Íslandsmet í keilu í fyrra.„Ég trúi því
aðNUTRILENKGOLD haldi mér góðum í keilunni a.m.k næstu 20 árin.“
Davíð Löve, múrari og keilusnillingur
„ÉG HVET AÐRAMÚRARA TIL AÐ PRÓFA
NUTRILENK GOLD“
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 8.900
Str: S-XXL
Nýjir litir
Rauður og ljós blár
Nanni
jakkar
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ráðuneytin innan Stjórnarráðs Ís-
lands þurfa að sýna aukið frumkvæði
að endurmenntun starfsfólks og
hvetja til hennar með beinum hætti.
Þetta er mat Ríkisendurskoðunar, en
í könnun sem Ríkisendurskoðun lagði
fyrir háskólamenntað starfsfólk
stjórnarráðsins sagðist einungis um
þriðjungur starfsfólks hafa fengið
slíka hvatningu. „Í um 80% tilvika
komi frumkvæði að endurmenntun
frá starfsfólkinu sjálfu. Í könnuninni
kom einnig fram að um fjórðungur
svarenda hafði aldrei farið í starfs-
mannasamtal,“ segir í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar til Alþingis um endur-
menntun starfsmanna stjórnar-
ráðsins til, sem birt var í gær.
„Ráðuneyti Stjórnarráðs Íslands
standa misjafnlega að endurmenntun
starfsfólks síns,“ segir í skýrslunni. Í
ljós kom í könnun Ríkisendurskoðun-
ar meðal háskólamenntaðs starfsfólks
Stjórnarráðsins í janúar sl. að ríflega
61% þátttakenda hafði sótt endur-
menntun í störfum sínum. Fjórir af
hverjum fimm sóttu endurmenntun
að eigin frumkvæði.
Mikill munur milli ráðuneyta
Fram kemur að staða þessara mála
er misjöfn á milli ráðuneytanna.
Fimm af átta ráðuneytum hafa mótað
eigin starfsþróunar- eða fræðsluáætl-
anir. Könnunin leiddi í ljós mikinn
mun á hvatningu til endurmenntunar
milli ráðuneyta, eða á bilinu 17-61%.
„Í öllum ráðuneytum að frátöldu
utanríkisráðuneyti hefur meira en
helmingur starfsfólks sótt endur-
menntun en hlutfallið var á bilinu 47–
81%. Þegar áform um endurmenntun
voru skoðuð mældist hlutfallið 32–
66% [...],“ segir í skýrslunni.
Vakin er athygli á að staða
utanríkisráðuneytisins sé slök innan
stjórnarráðsins. „Best virðist staðið
að endurmenntun hjá mennta- og
menningarmálaráðuneyti en það
mældist hæst í öllum þremur atrið-
unum sem mæld voru: hvatningu um
endurmenntun, ástundun og áform-
um. Athygli vekur að staða fjölmenn-
asta ráðuneytisins, utanríkisráðu-
neytis, er lök í þessum samanburði.
Þar mældist lægsta hlutfall hvatning-
ar og þeirra sem sótt hafa endur-
menntun. Einnig mældist það þriðja
lægst hvað varðar áform um endur-
menntun. Í ljósi stærðar ráðuneytis-
ins er aðkallandi að það móti sér
heildstæða starfsmannastefnu,“ segir
þar.
Þau ráðuneyti sem enn hafa ekki
sett sér sérstaka mannauðs- og
fræðslustefnu eru hvött til að bæta úr
því. Eins eru ráðuneytin almennt
hvött til að leggja aukna áherslu á ár-
leg starfsmannasamtöl
Ríkisendurskoðun bendir á að
ráðuneyti Stjórnarráðs Íslands þurfi
að halda betur utan um endurmennt-
un starfsfólks síns, inntak hennar,
umfang og kostnað svo að meta megi
hvort henni er sinnt á hagkvæman og
skilvirkan hátt og hún skili tilætluð-
um árangri. Eins telur stofnunin að
ráðuneytin þurfi að sýna aukið frum-
kvæði að endurmenntun starfsfólks
síns og hvetja til hennar með beinum
hætti.
Pottur brotinn í endur-
menntun í ráðuneytum
4 af hverjum 5 sóttu endurmenntun að eigin frumkvæði
Hvatning,ástundun og áformum
endurmenntunmilli ráðuneyta
Heimild: Ríkisendurskoðun80
60
40
20
0
%
Hvatning
Sótt endurmenntun
Hyggst sækja endur-
menntun 2017-18
Forsætis-
ráðuneyti
Mennta-
og menn-
ingarm.r.
Utanríkis-
ráðuneyti
Atvinnu-
vega- og
nýsköpunrr.
Innanríkis-
ráðuneyti
Velferðar-
ráðuneyti
Fjármála-
og efna-
hagsráðun.
Umhverfis-
og auðlinda-
ráðun.
42
65
61
55
49
41 37
17
47
23
32
66
40
66
45
57
29
44
81
63 64
57
70
50
Morgunblaðið/Ófeigur
Stjórnarráðið Ráðuneytin þurfa að halda betur utan um endurmenntun
starfsfólks, m.a. inntak hennar og kostnað að mati Ríkisendurskoðunar.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
Mikill meirihluti landsmanna er and-
vígur því að Ísland gangi í Evrópu-
sambandið og fleiri eru andvígir því
að taka upp aðildarviðræður við
sambandið en þeir sem eru hlynntir
því. Þetta kemur fram í niðurstöðum
skoðanakönnunar sem Gallup gerði
fyrir samtökin Já Ísland, sem eru
hlynnt inngöngu Íslands í ESB.
59,8% Íslendinga eru andvíg inn-
göngu í ESB og 40,2% eru hlynnt
henni. Undanfarin átta ár hafa allar
kannanir sýnt að meirihluti lands-
manna er andvígur inngöngu í sam-
bandið.
Mikill munur eftir flokkum
Ef aðeins er miðað við þá sem
segjast vera annaðhvort örugglega
með eða örugglega á móti inngöngu í
ESB eru 72% andvíg inngöngu en
28% eru henni hlynnt. Stuðningur
við inngöngu hefur aukist nokkuð
frá því að Gallup kannaði afstöðu
fólks síðast í febrúar.
Mest andstaða við inngöngu í Evr-
ópusambandið er á meðal kjósenda
Sjálfstæðisflokksins, eða 90%. Þar af
eru 70% örugglega andvíg. 83%
kjósenda Framsóknarflokksins eru
andvíg inngöngu og 71% kjósenda
Flokks fólksins.
Mestur stuðningur við inngöngu í
Evrópusambandið er á meðal kjós-
enda Samfylkingarinnar, eða 93%.
Næst koma Píratar með 79% og loks
VG með 51%. 49% kjósenda VG eru
hins vegar andvíg inngöngu í sam-
bandið.
Fáir vilja viðræður
Þegar spurt var um afstöðu til
þess að taka upp aðildarviðræður við
Evrópusambandið á nýjan leik sögð-
ust 47,8% vera því andvíg og 38,3%
voru því hlynnt.
Fleiri eru andvígir því en hlynntir
að taka upp aðildarviðræður við
Evrópusambandið, óháð kyni, aldri,
búsetu, tekjum og menntun, fyrir ut-
an aldurshópinn 18-24 ára, íbúa
Reykjavíkur, þá sem hafa eina millj-
ón eða meira í mánaðartekjur og þá
sem hafa háskólapróf.
Meirihluti kjósenda
Samfylkingarinnar, Pírata og
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs vill taka upp viðræður um
inngöngu í Evrópusambandið en
meirihluti kjósenda Sjálfstæðis-
flokksins, Framsóknarflokksins og
Flokks fólksins er því andvígur.
Þannig vilja 87% kjósenda Sam-
fylkingarinnar taka upp aðildar-
viðræður við Evrópusambandið en
9% eru því andvíg. 83% kjósenda
Pírata er hlynnt slíkum viðræðum
en 15% andvíg og 45% kjósenda VG
vilja aðildarviðræður við sambandið
en 34% eru á móti því.
Hins vegar vilja 78% kjósenda
Sjálfstæðisflokksins ekki taka upp
slíkar viðræður við Evrópusam-
bandið en 10% eru því hlynnt. Hjá
Framsóknarflokknum eru hlutföllin
72% gegn 14% og hjá Flokki fólksins
65% gegn 26%.
Skoðanakönnunin var gerð dag-
ana 11.24. september. Úrtakið var
1.435 manns á öllu landinu. Fjöldi
svarenda var 854 og svarhlutfall
59,5%.
Mikill meirihluti
vill ekki í ESB
Ný könnun Gallup sýnir andstöðu
bæði við aðild og viðræður
Morgunblaðið/Golli
Evrópusambandið Fáir Íslend-
ingar vilja aðild að sambandinu.
Í frétt sem birtist í gær um úrslit
kosninganna í Austurríki var Seb-
astian Kurz kallaður verðandi for-
sætisráðherra og flokkur hans kall-
aður íhaldsflokkur. Í Austurríki er
forsætisráðherra landsins kallaður
kanslari og Österreichische Volks-
partei (ÖVP) er kallaður Þjóðar-
flokkurinn á Íslandi. Það leiðréttist
hér með.
LEIÐRÉTT
Kanslari og Þjóðar-
flokkurinn
Starfsfólk Isavia
fagnaði á dög-
unum sjö millj-
ónasta farþeg-
anum sem fór um
Keflavíkur-
flugvöll í ár er
hann kom til
landsins frá Bel-
fast með Easy
Jet. Chris og Jo-
anne Bradley
voru þau heppnu en þau fengu
fjölda gjafa frá verslunarsvæðinu á
Keflavíkurflugvelli, m.a. vörur frá
Blá lóninu, íslenskt ullarteppi frá
Rammagerðinni og bók frá Penn-
anum Eymundsson.
Hjónin voru ánægð með móttök-
urnar og sögðust spennt að upplifa
öðruvísi frí en að liggja á sólbekk
við sundlaug.
Yfir sjö milljón farþeg-
ar fara um flugvöllinn