Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Skútuvogur 1c, 104 Reykjavík | Sími 550 8500 | www.vv.is
sjáu
mst!
Frískleg og hugvitsamleg hönnun,
þau eru afar létt og þæginleg í notkun.
Lýsing og rafhlöðuending er framúrskarandi.
• Ljósstyrkur: 220 lm
• Drægni: 130 m
• Þyngd: 93 g
• Endurhlaðanlegt
• Vatnsvarið: IPX6
• Stillanlegur fókus og halli
• Hvítt kraftmikið LED ljós og
eitt rautt LED ljós sem hentar vel
til að halda nætursjón
Útsölustaðir:
Ísleifur Jónson, Gangleri Outfitters, Hverfisgötu 82, Rvk. Afreksvörur, Glæsibæ, Rvk.
Byko Granda, Rvk. KM Þjónustan, Vesturbraut 20, Búðardal.
Eins og fætur toga, Bæjarlind 4, Kópavogi.
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Starfsgreinakynningar fyrirgrunnskólanemendur á Suð-urnesjum hafa verið haldnarreglulega frá árinu 2012 og
orðið stærri og glæsilegri með hverju
árinu. Síðustu ár hefur kynningin ver-
ið hluti af Sóknaráætlun Suðurnesja,
haldin af Sambandi sveitarfélaga á
Suðurnesjum en skipulögð af Þekking-
arsetri Suðurnesja. Að sögn Hönnu
Maríu Kristjánsdóttur, forstöðumanns
Þekkingarsetursins, er markmið
starfsgreinakynningarinnar að efla
starfsfræðslu grunnskólanemenda í 8.
og 10. bekk. Mikilvægt sé að stuðla að
sambærilegri fræðslu fyrir alla á
svæðinu og því sé það gert með þess-
um hætti. „Kynningin er einnig mikil-
vægur þáttur í því að auka starfsvit-
und og skerpa framtíðarsýn ungs
fólks. Henni er sérstaklega beint að
eldri nemendum grunnskólanna ekki
síst vegna þess að hlutfall þeirra 10.
bekkinga sem halda áfram námi að
loknum grunnskóla hefur verið lægra
á Suðurnesjum en annars staðar á
landinu á síðustu árum,“ segir Hanna
María
Minnkar líkur á brottfalli
Vel hefur tekist að skipuleggja og
halda starfsgreinakynningarnar, ekki
síst vegna mikillar velvildar fyrirtækja
og einstaklinga á Suðurnesjum og höf-
uðborgarsvæðinu, að sögn Hönnu
Maríu. „Sömu aðilar hafa verið með ár
eftir ár og gefið tíma sinn. Án þessa
mikla stuðnings atvinnulífsins væri
ómögulegt að halda kynningu sem
þessa, sem er þýðingarmikið fyrir alla
sem að henni koma; nemendur, skóla
og fyrirtæki.“
Hún segir öfluga náms- og starfs-
fræðslu mikilvæga til að auka líkur á
því að nemendur velji það framhalds-
nám sem þeir hafa mestan áhuga á og
henti þeim best. Rétt val dragi úr lík-
um á brotthvarfi úr námi sem hafi ver-
ið of mikið hér á landi á síðustu árum.
„Kynningin styrkir einnig tengsl at-
vinnulífs og skóla sem skiptir miklu
máli, sérstaklega þegar kemur að iðn-
og starfsnámi sem og námi í tækni-
greinum.
Að þau velji leiðina
en ekki lífið fyrir þau
Thelma Björk Jóhannesdóttir,
grunnskólakennari í Holtaskóla, tók í
svipaðan streng og Hanna María þeg-
ar kemur að gagnsemi starfsgreina-
kynningar sem þessarar. „Þetta bend-
ir okkur á fjölbreytnina og eykur
virðingu fyrir öllum störfum. Starfs-
greinarnar sem kynntar eru breytast
ár frá ári. Mér finnst þetta ekki síður
auka virðingu innan hvers starfs en
líka út á við, út í samfélagið. Við skilj-
um betur hvað fólk er að gera.“
Thelma segir mikilvægt að opna huga
barnanna fyrr, kynna þeim hvaða
möguleika þau hafi. Það auðveldi þeim
að sjá hvaða val þau hafi í lífinu, upp að
því marki sem þau geti haft áhrif.
„Við ræðum það mikið í Holta-
skóla hvaða hæfniskröfur séu fyrir
hvert starf og þá hvaða vali þau standi
frammi fyrir. Ef þú ert litblindur verð-
urðu ekki flugmaður. Við gerum okk-
ur grein fyrir styrkleikum okkar og
veikleikum og við kennararnir, sem
komum að undirbúningi þessarar
kynningar fyrir nemendur, leggjum
áherslu á að þau geti haft mikil áhrif
en um leið að lífið hafi heilmikil áhrif.
Ef þau hafi nokkrar aukaleiðir með
leiðinni sem þau langar að fara sé lík-
legra að þau velji leiðina sem gleðji en
að lífið velji leiðina fyrir þau,“ segir
Thelma Björk.
Skiptir máli að fá að prófa
Það mátti sjá í íþróttahúsinu í
Reykjanesbæ, þar sem kynningin fór
fram, að þátttakendur leggja mikinn
metnað í að koma kynningu á sinni
starfsgrein vel frá sér, ekki síður en
börnin að vera tilbúin með spurningar
til þeirra. Margir höfðu meðferðis ým-
is tól og tæki til að gera kynninguna
áhrifameiri og hægt var að prófa og
horfa á ýmiskonar kynningarefni.
Nemendur gátu brugðið sér á bæjar-
stjórnarfund með aðstoð tækninnar,
látið hífa sig upp í körfubíl, notað kraft
sinn til að tendra ljósaperu, kynnt sér
hönnun og teikningar í þrívídd, mátað
prestshempu og látið handjárna sig,
svo fátt sé nefnt.
Einar Ingi Kristjánsson og
Telma Ýr Þórarinsdóttir frá
Sport4You voru með lóð með sér og
sýndu hvernig á að beita líkamanum í
réttstöðulyftu, ásamt því að svara
spurningum og ræða málin. Þetta var
í annað sinn sem þau tóku þátt í
starfsgreinakynningunni og í bæði
Hvað ætlar þú
að verða þegar
þú verður stór?
Þær voru margar og fjölbreyttar starfsgreinarnar
sem kynntar voru nemendum í 8. og 10. bekk grunn-
skólanna á Suðurnesjum í liðinni viku, samtals 108.
Kynningin er mikilvæg til að auka starfsvitund
og skerpa framtíðarsýn ungs fólks. Forstöðumaðurinn Hanna María Kristjánsdóttir, forstöðumaður Þekking-
arseturs Suðurnesja, segir markmið kynningarinnar að efla starfsfræðslu.
Flug Daria Cegielska og Stefanía Ösp Ásgrímsdóttir, nem-
endur í Holtaskóla, kynntu sér störf flugmanns og flugfreyju.
Ánægðir Sandgerðispiltarnir Brynjar Árnason, Tony Kristinn
og Birgir Olsen voru ánægðir með starfsgreinakynninguna.
Einkaþjálfun Einar Ingi Kristjánsson einkaþjálfari sýndi
áhugasömum hvernig beita á líkamanum í réttstöðulyftu.
Föndursmiðja Ísabellu Leifs-
dóttur fyrir foreldra og
börn yngri en þriggja ára
verður haldin kl. 14-15 í
dag, þriðjudaginn 17. októ-
ber, í Borgarbókasafninu
Spönginni.
Búast má við að handa-
gangur verði í öskjunni í
föndursmiðjnni, sem jafn-
framt er fjölskyldustund og
ber yfirskriftina Rífa, tæta,
raða og líma! Efniviðurinn er af-
skrifaðar bækur og fá börnin að rífa
að vild og líma saman aftur
með hveitilími. Útkoman
getur vissulega orðið stór-
brotið listaverk, en niður-
staðan er ekki endilega það
sem skiptir mestu máli,
heldur ferlið sjálft og sam-
veran.
Í Spönginni stendur yfir
sýning Ísabellu, Endur-
speglun, þar sem hún sýnir
verk unnin upp úr leik-
föngum og smáglingri sem hún fær
frá Góða hirðinum.
Föndursmiðja fyrir foreldra og börn yngri en þriggja ára
Stórbrotið listaverk? Útkoman skiptir ekki endilega mestu máli, heldur ferlið
sjálft og samveran við sköpun listaverkanna, í föndursmiðju Ísabellu.
Ísabella
Leifsdóttir
Afskrifaðar bækur verða
rifnar, tættar og límdar af list