Morgunblaðið - 17.10.2017, Síða 13
Kennarinn Thelma Björk Jóhannesdóttir, kennari í Holtaskóla, segir starfsgreinakynninguna sýna fjölbreytnina og
auka virðingu fyrir öllum störfum, bæði innan þeirra og út á við í samfélaginu.
skiptin hafa stúlkur verið mun áhuga-
samari en strákar. Einar, sem er
menntaður einkaþjálfari, segist auk
tækninnar kynna hvaða námsleiðir
hægt sé að fara í einkaþjálfarann, en
meðfram störfum er Einar kennari í
Einkaþjálfaraskólanum.
„Ég útskýri líka fyrir þeim hvern-
ig hægt sé að vera með einn og einn í
þjálfun, hóp eða stýra fjarþjálfun. Í
raun bara hvernig starfið virkar. Það
eru margar leiðir á boðstólum í þjálfun
og ég nota þær allar í minni þjálfun.“
Einar og Telma hafa rekið tvær
stöðvar undir merkjum Sport 4 You
um nokkurra ára skeið. Þau sögðust
finna á kynningunni að krakkarnir
hefðu mikinn áhuga á að lyfta og vera í
íþróttum yfirhöfuð, verða sterkari.
„Þau eru því mikið að spá í það hvern-
ig og hvaða æfingar eigi að gera,“ seg-
ir Einar.
Félagarnir Brynjar Árnason,
Tony Kristinn og Birgir Olsen í 8.
bekk í Grunnskóla Sandgerðis urðu á
vegi blaðamanns á leið sinni um salinn.
Brynjar var ánægður með starfs-
greinakynninguna, sagði hana bæði
skemmtilega og flotta. Ekki spillti að
draumastarfið hans var kynnt, en
hann langar að verða dýralæknir.
Leiðsögumaðurinn og
Tollurinn komu á óvart
Tony Kristni fannst kynningin
frábær þar sem hann gat séð alls kon-
ar störf og spurt spurninga og yfirhöf-
uð séð hvað fólk væri að gera. Grafíski
hönnuðurinn hafði hins vegar brugðið
sér frá þegar Tony Kristinn leit inn en
hann ætlaði að fara aftur þangað. Birgi
fannst hún „geggjað kúl“, því þarna
gæti hann séð svo margt sem hann sæi
ekki á hverjum degi. Birgi langar að
verða arkitekt og brá sér í kynningu til
hans. Hann fékk m.a. að sjá þrívíddar-
myndir og teikningar frá arkitekt-
inum, sem hann var ánægður með.
Upptækir hlutir Starfsmenn Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli sýndu
hluti sem teknir hafa verið af ferðamönnum. Þeir vöktu athygli nemenda.
Vinsælt Eitt af því vinsælasta var
að láta starfsmenn HS Veitna fara
með sér upp í körfubíl fyrirtækisins.
Afl Hægt var að kanna hversu mik-
inn kraft og orku þarf til að tendra
ljósaperu með því að hjóla af afli.
Enginn saknaði neins starfs en það var
ýmislegt sem kom þeim piltum á
óvart, s.s. leiðsögumaðurinn sem Tony
Kristinn nefndi og Tollurinn, sér-
staklega allt dótið sem starfsfólkið var
að sýna sem hafði verið tekið af fólki
við tollskoðun og Brynjar og Birgir
nefndu.
Daria Cegielska og Stefanía Ösp
Ásgrímsdóttir úr 8. bekk í Holtaskóla
voru gripnar eftir að hafa kynnt sér
starf flugmanns og flugfreyju. Þær
voru nokkuð ánægðar með starfs-
greinakynninguna, en Daria stefnir að
því að verða flugfreyja. „Mig langaði
t.d. að vita hver launin væru og um erf-
iðleika í starfi. Ég held að það geti ver-
ið erfitt þegar einhver kemur um borð
og er erfiður.“
Draumastarf Stefaníu var hins
vegar ekki á kynningunni þetta árið og
það er fatahönnun. „Ég sakna þess en
vona að það verði þegar ég kem aftur í
10. bekk.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við fólkið sitt og náttúruna. Á fjórhjóladrifnum KODIAQ
með val um sjö sæti og glerþak, getur þú sameinað þetta tvennt og notið þess að ferðast með ánægju.
Endurnýjaðu tengslin við það mikilvægasta í lífinu á nýjum ŠKODA KODIAQ.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ www.skoda.is
ENDURNÝJAÐU TENGSLIN
VIÐ ÞAÐ MIKILVÆGA Í LÍFINU
NÝR ŠKODA KODIAQ MEÐ MÖGULEIKA Á 7 SÆTUM.
ŠKODA KODIAQ frá:
5.590.000 kr.