Morgunblaðið - 17.10.2017, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Örugg langtímaleiga
al.is
Langtíma
leigusamningur
Sveigjanleiki
24/7 þjónusta
Almenna leigufélagið býður viðskiptavinum sínum upp
á hátt þjónustustig, langtímaleigu og sveigjanleika.
Þannig stuðlum við að faglegum og traustum leigumarkaði.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt tillögu
skrifstofu eigna og atvinnuþróunar
Reykjavíkurborgar um að bygging-
arréttur fyrir 15 íbúðir á Fossvogs-
vegi 8 verði seldur með útboðsfyrir-
komulagi. Um er að ræða mjög
verðmætar lóðir á vinsælum stað í
Fossvogi.
Borgarráð samþykkti hinn 26.
janúar 2017 að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi svæðis í vestan-
verðum Fossvogi. Svæði þetta kall-
ast Vigdísarlundur og er sunnan við
Borgarspítalann. Lundurinn ber
nafn Vigdísar Finnbogadóttur,
fyrrverandi forseta. Að lokinni aug-
lýsingu tók deiliskipulagið gildi 4.
júlí sl. Reiturinn afmarkast af Foss-
vogsvegi í norðri, Árlandi í suðri,
göngustíg á móts við Kjalarveg og
Ræktunarstöð Reykjavíkur í vestri
og lóðarmörkum aðliggjandi byggð-
ar við Ánaland í austri. Stærð reits-
ins er um 1,55 hektarar. Landi hall-
ar aðallega til suðurs en einnig
lítillega til austurs.
„Nokkur trjágróður er á reitnum
en annars má segja að svæðið sé í
órækt og nýtist að takmörkuðu
leyti til útivistar eins og það er í
dag. Helstu kostir svæðisins eru
miðlæg lega á höfuðborgarsvæðinu,
rólegt og skjólsælt umhverfi og ná-
lægð við víðáttumikil og fjölbreytt
útivistarsvæði,“ segir m.a. í grein-
argerð með deiliskipulagstillög-
unni.
Á reitnum er sem fyrr segir gert
ráð fyrir 15 íbúðum, þar af eru 11
íbúðir á tveimur hæðum og fjórar á
einni hæð. Íbúðunum fylgja þak-
svalir og garðskikar. Fasteignaverð
er hátt í Fossvoginum og fram kom
í fréttum í fyrra að gera megi ráð
fyrir að sala lóða í Vigdísarlundi
getið skilað borginni hátt í 200
milljónum króna.
Borgarráð hefur samþykkt út-
boðsskilmála fyrir sölu bygginga-
réttar fyrir Fossvogsveg 8 og verð-
ur hann væntanlega auglýstur
bráðlega. Byggingarréttur á lóð-
unum verður seldur til hæstbjóð-
anda, sem uppfyllir skilyrði útboðs-
ins. Verði tvö eða fleiri tilboð jafn
há, ræður hlutkesti.
Á sama reit er gert ráð fyrir að
rísi íbúðarhús með átta íbúðum fyr-
ir fatlaða. Félagsbústaðir munu
byggja það hús.
Dýrar lóðir boðnar út
Íbúðarbyggð verður skipulögð í Vigdísarlundi í Fossvogi
Vigdísarlundur Verðmætt byggingaland á góðum stað í Fossvogi.
Aðalfundur Landssambands smá-
bátaeigenda verður haldinn á
Grand hóteli í Reykjavík 19. og 20.
október og er fundurinn sá 33. í
röðinni frá stofnun LS. Axel
Helgason, formaður LS, setur
fundinn á fimmtudag kl. 13, en síð-
an flytur Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir sjávarútvegsráðherra
ávarp. Þá taka við venjuleg aðal-
fundarstörf á fimmtudag og föstu-
dag.
Samkvæmt upplýsingum frá
Erni Pálssyni, framkvæmdastjóra
LS, má reikna með að umræður
um veiðigjald, strandveiðar, íviln-
un til umhverfisvænna veiða og að
aflétt verði veiðarfæratakmörkun-
um á krókaaflamarksbáta verði
áberandi á fundinum. Í sambandi
við síðastnefnda málið má nefna að
mörg félög smábátaeigenda hafa
ályktað um málið og skiptar skoð-
anir komið fram.
Skorað á ráðherra
Í sambandi við veiðigjald bendir
Örn á samþykkt stjórnar LS frá
28. júlí í sumar þar sem segir með-
al annars: „Stjórn LS skorar á
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra að beita sér nú þegar fyrir
breytingu á lögum um veiðigjald.
Hæg eru heimatökin þar sem al-
þingismenn í öllum flokkum og
hagsmunasamtök hafa sagt hækk-
unina koma sér einkar illa fyrir
„litlar og meðalstórar útgerðir“.
Verði ekkert að gert munu skil-
yrðin, auk rekstrarstöðvunar, leiða
til áframhaldandi samþjöppunar
veiðiheimilda og fábreyttari út-
gerðarflóru,“ segir í samþykktinni.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bryggjuspjall Smábátaeigendur munu eflaust hafa um nóg að ræða.
Ræða veiðigjald
og strandveiðar
33. aðalfundur smábátaeigenda