Morgunblaðið - 17.10.2017, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
17. október 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 104.68 105.18 104.93
Sterlingspund 139.1 139.78 139.44
Kanadadalur 83.85 84.35 84.1
Dönsk króna 16.615 16.713 16.664
Norsk króna 13.244 13.322 13.283
Sænsk króna 12.899 12.975 12.937
Svissn. franki 107.26 107.86 107.56
Japanskt jen 0.933 0.9384 0.9357
SDR 147.98 148.86 148.42
Evra 123.7 124.4 124.05
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.4837
Hrávöruverð
Gull 1305.15 ($/únsa)
Ál 2139.0 ($/tonn) LME
Hráolía 56.44 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Héraðsdómur
Reykjavíkur hefur
fellt úr gildi skrán-
ingu Einkaleyfa-
stofunnar á orð-
merkinu „tíma-
flakk“, sem þýðir
að öllum er frjálst
að nota orðmerkið
að vild.
Í mars 2015 greindu Fjarskipti, Voda-
fone á Íslandi, frá því að félaginu hefði
borist krafa frá Símanum um skaðabæt-
ur vegna meintrar ólögmætrar notkunar
á vörumerkinu „tímaflakk“. Var krafan
að fjárhæð 400 milljónir króna.
Fjarskipti töldu ekki grundvöll fyrir
kröfunni þar sem ágreiningurinn um
skráningu Símans á vörumerkinu væri
ekki til lykta leiddur fyrir dómstólum.
Héraðsdómur komst svo að þeirri nið-
urstöðu í gær að merkið „tímaflakk“
uppfyllti ekki skilyrði laga um skráningu
og hafnaði því að notkun Símans á
merkinu hefði skapað vörumerkjarétt.
Öllum frjálst að nota
orðmerkið „tímaflakk“
Vodafone Má nota
orðið „tímaflakk“.
STUTT
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Viðskiptabankarnir gætu greitt
allt að 240 milljarða króna í arð til
eigenda til þess að eiginfjárhlutfall
þeirra verði með svipuðu sniði og
annars staðar á Norðurlöndum,
samkvæmt útreikningum Morgun-
blaðsins.
Fram kemur í nýrri greiningu
Danske Bank að eigið fé íslensku
bankanna sé mun ríflegra en hjá
öðrum norrænum bönkum. Eigin-
fjárhlutfall fjármálastofnana, sem
kallað hefur verið „almennt eigið fé
þáttar 1“ (e. Common Equity Tier
1), var um 23% að meðaltali hjá ís-
lensku bönkunum í lok annars árs-
fjórðungs, en er um 16% að meðal-
tali hjá sambærilegum bönkum
annars staðar á Norðurlöndum.
Markmið Arion og Íslands-
banka er að lækka hlutfallið
Íslandsbanki setti á fjórða fjórð-
ungi síðasta árs markmið um að
lágmarkseiginfjárhlutfall almenns
þáttar 1 sé hærra en 15%, að því er
segir í afkomutilkynningu bank-
ans.
Á seinni hluta síðasta árs setti
Arion banki markmið um að téð
eiginfjárhlutfall fari undir 17% á
næstu fjórum til fimm árum, að því
er kemur fram í afkomukynningu
bankans. Arion banki þarf, sam-
kvæmt kvöðum Fjármálaeftirlits-
ins, að vera með eiginfjárgrunn
upp á 20,7% og af varúðarsjónar-
miðum kjósa stjórnendur bankans
að hlutfallið sé ekki lægra en
22,2%. Eiginfjárgrunnurinn má
vera samsettur úr blöndu af al-
mennu eigin fé (16,8%), eiginfjár-
þætti 1 (2,3%) og eiginfjárþætti 2
(3,1%).
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði í þætt-
inum Forystusætið í Ríkissjón-
varpinu að hægt væri að minnka
bankakerfið með því að taka tugi,
jafnvel hundruð milljarða úr því áð-
ur en bankarnir verði seldir til að
fjármagna innviðauppbyggingu í
landinu. Á meðal kosningamála
Miðflokks Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar er að bankarnir
greiði umfram eigið fé í ríkissjóð.
Til þess að eiginfjárhlutfallið
færi í 16% yrði Arion að greiða út
88,7 milljarða króna, Íslandsbanki
um 53,5 milljarða og Landsbankinn
um 97 milljarða. Ef af því yrði
myndi arðsemi eigin fjár íslensku
bankanna vera á pari við arðsemi
norrænu bankanna, samkvæmt
greiningu Danske Bank. Þegar fyr-
irtæki státa af ríkulegu eigin fé
getur reynst erfitt að ná viðunandi
arðsemi á það. Danske Bank getur
þess sérstaklega að bankaskattur-
inn, sem komið var á árið 2013,
dragi úr arðsemi eigin fjár bank-
anna sem nemur 1,5% á ári.
Mikil arðgreiðslugeta
Þeir sem til þekkja segja að ekki
væri hægt að greiða þá fjármuni út
hratt. Útreikningarnir gefi hins
vegar til kynna hver arðgreiðslu-
getan er á næstu árum ef rekstr-
arumhverfið verður hagstætt. Sam-
hliða yrðu bankarnir að gefa út
víkjandi skuldabréf, sem eru ígildi
eigin fjár, til þess að uppfylla heild-
arkröfur Fjármálaeftirlitsins um
eigið fé og er útgáfa þeirra háð
markaðsaðstæðum hverju sinni.
Enn fremur gætu stjórnendur eða
eftirlitsaðilar gert ríkari kröfur um
eigið fé.
Bankarnir gætu greitt allt
að 240 milljarða króna
Morgunblaðið/Ómar
Ríkiseignir Stjórnmálamenn gætu fengið háar fjárhæðir í hendur ef bankarnir greiða út myndarlegan arð.
Landsbankinn gæti
greitt 97 milljarða
» Landsbankinn gæti greitt
mest út af bönkunum til þess
að ákveðið eiginfjárhlutfall
fjármálafyrirtækja færi í 16%
eða um 97 milljarða.
» Arion banki er í stakk búinn
til að greiða út 88,7 milljarða
króna
» Íslandsbanki gæti greitt út
53,5 milljarða.
Íslensku bankarnir ríflega fjármagnaðir í samanburði við aðra norræna banka
Verðlag íslenskra sjávarafurða í
erlendri mynt var hærra í sumar en
það hefur áður mælst. Verðið náði
tímabundnu lágmarki í janúar 2014
en hefur síðan hækkað um tæplega
fjórðung mælt í erlendri mynt, að því
er fram kemur í umfjöllun í Hagsjá
hagfræðideildar Landsbankans.
Hækkunina má einkum rekja til
verðhækkunar á botnfiski. Lands-
bankinn bendir á að hækkun botn-
fisks að undanförnu hafi komið
íslenskum sjávarútvegi sérlega vel,
sem glímir við minnkandi sam-
keppnishæfni vegna sterkrar krónu.
Hækkun verðs í erlendri mynt dragi
úr því höggi sem styrking krónunnar
hafi valdið á tekjustreymi útgerðar-
fyrirtækja.
Á fyrstu 8 mánuðum ársins hafi
verð á íslenskum sjávarafurðum ver-
ið 6,4% hærra en á sama tímabili í
fyrra. Meðalgengi krónunnar var
hins vegar 17% sterkara milli sömu
tímabila og að öðru óbreyttu ættu
tekjur sjávarútvegsins að hafa verið
9% minni á þessu ári en því síðasta,
að því er segir í umfjöllun Lands-
bankans.
Útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða nam 128,4 milljörðum króna á
fyrstu 8 mánuðum ársins á föstu
gengi ágústmánaðar. Það er 7%
lægra en á sama tímabili í fyrra.
Minna útflutningsverðmæti skýrist
helst af minna útfluttu magni, sem
að stærstu leyti má rekja til sjó-
mannaverkfallsins sem stóð yfir í
rúmlega tvo mánuði fram undir lok
febrúar.
Veiðar á þorski í desember, janúar
og febrúar síðastliðnum voru saman-
lagt helmingi minni en í sömu mán-
uðum árið á undan, en á síðustu mán-
uðum hafa veiðarnar reynst í
kringum fjórðungi meiri en í sömu
mánuðum í fyrra, segir í umfjöllun
Landsbankans.
Morgunblaðið/Ómar
Útgerð Veiðar hafa aukist um fjórð-
ung milli ára undanfarna mánuði.
Verðlag sjávar-
afurða í hæðum
Hækkað um
fjórðung í erlendri
mynt frá 2014