Morgunblaðið - 17.10.2017, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland
Eitt best geymda
leyndarmálið á
markaðnum
Weleda Skin Food er í miklu uppáhaldi hjá þekktum tísku-
fyrirsætum og förðunarfræðingum um allan heim. Skin
Food er 100% lífrænt árangursríkt alhliða krem sem nærir
þurra og viðkvæma húð og kemur jafnvægi á húðina.
Skin Food kom fyrst á markað fyrir meira en 80 árum síðan
og hefur uppskriftin verið óbreytt síðan.
Kremið er unnið úr lífrænt ræktuðum Stjúpum, Baldursbrá,
Morgunfrú og Rósmarín, gott krem fyrir alla fjölskylduna
– Í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is
Þú kaupir Weleda vörur í heilsuverslunum og apótekum um
allt land
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Ríkisstjórn Spánar veitti í gær Carl-
es Puigdemont, forseta héraðs-
stjórnar Katalóníu, þriggja daga
lokafrest til að tilkynna að hann
hefði ekki lýst yfir sjálfstæði héraðs-
ins. Spænska stjórnin hafði krafist
þess að Puigdemont svaraði því af-
dráttarlaust hvort hann hefði lýst yf-
ir sjálfstæði Katalóníu en hann virti
þá kröfu að vettugi.
Puigdemont sagði í ræðu á þingi
Katalóníu 10. október að leiðtogar
héraðsins hefðu fengið umboð kata-
lónsku þjóðarinnar til að lýsa yfir
sjálfstæði en lagði síðan til að sjálf-
stæðisyfirlýsingunni yrði frestað.
Hann kvaðst ætla að fara eftir niður-
stöðu umdeildrar þjóðaratkvæða-
greiðslu í Katalóníu 1. október um
sjálfstæði héraðsins en reyna fyrst
að leysa deiluna með viðræðum við
spænsku stjórnina. Puigdemont og
tugir þingmanna undirrituðu síðan
yfirlýsingu um sjálfstæði Katalóníu
utan þingsalarins en sögðu að gildis-
töku hennar hefði verið frestað.
Hafnar viðræðum
Daginn eftir varaði spænska
stjórnin Puigdemont formlega við
því að hún kynni að nýta heimild í
stjórnarskránni til að afturkalla
sjálfstjórnarréttindi Katalóníu og
setja héraðið undir beina stjórn frá
Madríd. Til að geta gert það þurfti
spænska stjórnin fyrst að krefjast
afdráttarlauss svars við því hvort
Puigdemont hefði lýst yfir sjálfstæði
og fyrri frestur hans til að svara því
rann út í gær. Hann svaraði með
bréfi þar sem hann sagði að megin-
markmið héraðsstjórnar Katalóníu
væri að ná fram viðræðum á næstu
tveimur mánuðum við stjórnvöld á
Spáni. „Við viljum hefja viðræður –
eins og gert er í lýðræðisríkjum – um
vanda meirihluta katalónsku þjóðar-
innar sem vill hefja ferð sína sem
sjálfstætt ríki í Evrópu. Sú ákvörðun
okkar að fresta pólitíska umboðinu
sem við fengum í atkvæðagreiðsl-
unni 1. október sýnir eindreginn
vilja okkar til að finna lausn og forð-
ast átök,“ sagði Puigdemont í svari
sínu.
„Það hefði ekki átt að vera of erfitt
að svara því með jái eða neii hvort
hann lýsti yfir sjálfstæði,“ sagði að-
stoðarforsætisráðherra Spánar,
Soraya Sáenz de Santamaría. Í skrif-
legu svari Marianos Rajoys forsætis-
ráðherra við bréfinu áréttaði hann
að héraðsforsetinn þyrfti að leggja
fram skýrt svar ekki síðar en á
fimmtudagsmorgun.
Spænska stjórnin hefur hafnað
viðræðum um sjálfstæði Katalóníu
og sagt að þær myndu vera brot á
ákvæði stjórnarskrár Spánar um
órjúfanlega einingu landsins.
Sagðir vilja auka spennuna
Neiti Puigdemont að gefa eftir í
deilunni er líklegt að spænska
stjórnin nýti heimildina til að svipta
Katalóníu sjálfstjórnarréttindum.
Verði það gert gæti það orðið vatn á
myllu sjálfstæðssinna, aukið stuðn-
inginn við sjálfstæði Katalóníu og
leitt til verkfalla og götumótmæla í
héraðinu.
Stjórnmálaskýrendur segja að
markmiðið með óljósri yfirlýsingu
Puigdemonts á katalónska þinginu
hafi verið að reyna að sætta fylking-
ar sjálfstæðissinna. Flokkar, sem
styðja sjálfstæði Katalóníu, fengu
47,6% atkvæða og nauman meiri-
hluta á þingi héraðsins í kosningum í
fyrra en þeir deila um hvernig ná
eigi fram sjálfstæði. Sumir þeirra
vilja að lýst verði yfir sjálfstæði
tafarlaust og hafa gagnrýnt yfirlýs-
ingu Puigdemonts á þinginu, sagt að
hann hafi ef til vill glutrað niður
sögulegu tækifæri til að knýja fram
aðskilnað. Aðrir eru ánægðir með
framgöngu héraðsforsetans og segja
kröfuna um tafarlaust sjálfstæði
óraunhæfa. Þeir telja að héraðið sé
illa í stakk búið til að stofna sjálf-
stætt ríki, meðal annars vegna mik-
illa skulda við ríkissjóð Spánar, og
njóti ekki nægilegs stuðnings ann-
arra landa.
Frederico Santi, sérfræðingur í
málefnum Suður-Evrópulanda, telur
að eitt af markmiðum héraðsstjórn-
ar Katalóníu sé að fá spænsk stjórn-
völd til að bregðast of harkalega við
sjálfstæðiskröfunni. Héraðsstjórnin
vilji auka spennuna í von um að of
harkaleg viðbrögð spænskra ráða-
manna verði til þess að stjórnvöld og
almenningur í öðrum ESB-löndum
snúist á sveif með katalónskum sjálf-
stæðissinnum og knýi spænsku
stjórnina til að fallast á viðræður um
sjálfstæði Katalóníu.
Hunsaði kröfu um
afdráttarlaust svar
Of harkaleg viðbrögð yrðu vatn á myllu aðskilnaðarsinna
AFP
Nei eða já? Carles Puigdemont,
forseti héraðsstjórnar Katalóníu.
Efnahagsbati í hættu
» Spænska stjórnin segir að
óvissan um framtíð Katalóníu
grafi undan efnahagsbata
Spánar eftir fjármálakreppuna
sem skall á árið 2008.
» Hundruð fyrirtækja hafa
flutt skráð aðsetur sitt frá
Katalóníu vegna óvissunnar,
þeirra á meðal tveir stærstu
bankar héraðsins.
Stjórnarher Íraks réðst í gær inn í
miðborg Kirkuk sem hafði verið á
valdi hersveita Kúrda. Fregnir
hermdu að liðsmenn stjórnarhersins
hefðu náð opinberum byggingum á
sitt vald, meðal annars skrifstofu
héraðsstjórans. Þúsundir íbúa flúðu
úr borginni af ótta við blóðsúthell-
ingar.
Árásin var gerð þremur vikum eft-
ir umdeilda þjóðaratkvæðagreiðslu á
sjálfstjórnarsvæði Kúrda í Norður-
Írak, Íraska Kúrdistan, um hvort
lýsa ætti yfir sjálfstæði þess. Tæp
93% þeirra sem greiddu atkvæði
studdu sjálfstæði, að sögn leiðtoga
Kúrda. Þótt Kirkuk sé ekki hluti af
Kúrdistan var íbúum héraðsins leyft
að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.
Kúrdar og ríkisstjórn Íraks hafa
deilt um yfirráð yfir Kirkuk-héraði
sem er ríkt af olíu. Talið er að Kúrd-
ar séu í meirihluta í héraðinu en
margir arabar og Túrkmenar búa í
Kirkuk-borg.
Sögð stríðsyfirlýsing
Yfirmenn hersveita Kúrda sögðu
að árásin á Kirkuk jafngilti „stríðs-
yfirlýsingu gegn kúrdísku þjóðinni“.
Ríkisstjórn Tyrklands fagnaði hins
vegar árásinni og kvaðst vera tilbúin
til að hefja samstarf við stjórnvöld í
Írak til að berjast gegn liðsmönnum
Verkamannaflokks Kúrdistans
(PKK) sem Tyrkir skilgreina sem
hryðjuverkasamtök.
Stjórn Íraks hefur neitað að viður-
kenna þjóðaratkvæðagreiðslu tyrk-
neskra Kúrda og segir að hún sé brot
á stjórnarskrá landsins. Tyrkir eru
einnig andvígir því að Íraska Kúr-
distan fái sjálfstæði þar sem þeir ótt-
ast að það verði til þess að Kúrdum í
norðanverðu Sýrlandi takist að
stofna sjálfstætt lýðveldi og kúrd-
íska þjóðarbrotið í Tyrklandi krefjist
einnig aðskilnaðar.
100 km
Efrat
T
íg
ris
Kirkuk og Kúrdistan í Írak
ÍRAK
ÍRAN
TYRKLAND
SÝRLAND
BAGDAD
Kirkuk Sulaimaniyah
Arbil
Duhok
Mosúl
Íraska
Kúrdistan
Kirkuk-
hérað
Íraksher ræðst
inn í Kirkuk
Þúsundir íbúa borgarinnar flúðu
AFP
Fagnað Börn veifa til íraskra her-
manna við eitt úthverfa Kirkuk.
Að minnsta kosti 34 menn höfðu í gær beðið bana í skógareldum í Portúgal
og á Spáni. Minnst 31 lét lífið á einum sólarhring í Portúgal og þrír á
Spáni. Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, sagði að brennuvargar
hefðu kveikt flesta eldana sem geisuðu í Galisíuhéraði á Norðvestur-Spáni
og þeir hefðu breiðst mjög hratt út vegna hvassviðris. Fyrir eldana í gær
höfðu um 216.000 hektarar skóglendis brunnið í Portúgal frá janúar til
september. 64 biðu bana 17. júní í mannskæðasta skógareldi í sögu lands-
ins. Eldarnir eru raktir til óvenjumikils hita og þurrka.
40 km
Eldar sem
loguðu
í gær
Skógareldar í Portúgal og á Spáni
Heimild: Effis
PORTÚGAL
SPÁNN
ATLANTSHAF
LISSABON
MADRÍD
Coimbra
Viseu
Guarda
Vigo
Porto
Ourense
Lugo
Nigran
Castelo BrancoSerta
maps4news.com/©HERE
Mannskæðir skógareldar