Morgunblaðið - 17.10.2017, Page 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
✝ Stefán ÁrniSigurðsson
fæddist 28. júlí 1932
að Merki á Borgar-
firði eystri. Hann
andaðist á Heil-
brigðisstofnun
Suðurnesja 9. októ-
ber 2017.
Foreldrar hans
voru Sigurður Ein-
arsson, f. 5. júlí
1889, d. 6. desem-
ber 1939, og Una Kristín Árna-
dóttir, f. 4. ágúst 1895, d. 21. apr-
íl 1943.
Stefán Árni eignaðist 11 systk-
ini og eru tvö þeirra á lífi í dag.
Hinn 1. janúar 1958 kvæntist
Stefán Árni eftirlifandi eigin-
konu sinni, Þórunni Gíslínu Þór-
arinsdóttur frá Húsatóftum í
Garði, f. 6. júní 1933. Börn þeirra
eru: 1) Sigurþór, f. 12. ágúst
1997, og Tanja Marín, f. 2. mars
2004. 3) Una Kristín, f. 12. febr-
úar 1970, gift Trausta Má Haf-
steinsyni, f. 6. apríl 1967, börn
þeirra eru Arnór Ingvi, f. 30.
apríl 1993, Samúel Þór, f. 12.
apríl 1998, Hjördís Lilja, f. 20.
maí 2002, og Viktor Árni, f. 6.
júní 2007.
Stefán Árni var ungur þegar
hann missti foreldra sína en með
samheldni systkinanna héldu
þau hópinn. Ungur fór hann að
vinna fyrir sér bæði á sjó og
landi. Árið 1957 fer Stefán Árni í
Skipstjóra- og stýrimannaskól-
ann og var þá fluttur til Keflavík-
ur þar sem hann átti farsæl góð
ár með fjölskyldu sinni. Stefán
Árni starfaði sem sjómaður til
margra ára en síðast sem annar
stýrimaður á Gísla Árna. Eftir að
heilsunni hrakaði starfaði hann
við fiskeldi og við Íþróttahúsið
við Sunnubraut í Keflavík.
Stefán Árni dvaldi á
hjúkrunarheimilinu Hlévangi í
Reykjanesbæ síðustu æviár sín.
Útför Stefáns Árna fer fram
frá Keflavíkurkirkju í dag, 17.
október 2017, klukkan 13.
1957, kona hans er
Elsa Pálsdóttir, f.
14. október 1960,
börn þeirra eru
Stefán Páll, f. 26.
ágúst 1982, í sam-
búð með Sigurlaugu
Sigurðardóttur, f.
20. apríl 1985, börn
þeirra eru Gerður
Líf, f. 2012, og Sig-
urður Þór, f. 2016;
Þóra Björg, f. 24.
ágúst 1987, í sambúð með Kára
Harðarsyni, f. 16. maí 1986, börn
þeirra eru Róbert Ingi, f. 2012,
Elsa Karen, f. 2014, og óskírður
drengur, f. 2017. 2) Unnar
Sveinn, f. 19. janúar 1962, kvænt-
ur Maríu I.G. Fisher, f. 25. júlí
1965, börn þeirra eru Jenný
María, f. 25. september 1994,
Unnar Már, f. 25. september
1994, Andri Þór, f. 9. janúar
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Kveðja, þinn sonur
Sigurþór.
Góðar minningar streyma nú
um huga minn, en samt með
söknuði eftir að hann pabbi
minn, Stefán Árni, hefur kvatt
okkur.
Sú ímynd sem er sterkust í
mínum huga er dugnaðarfork-
urinn hann pabbi, gerði allt af
miklum krafti og taldi aldrei
neitt eftir sér.
Sjómaður var hann mín fyrstu
ár og var alltaf kátt í höllinni
þegar pabbi kom af Norðursjón-
um.
Fyrir jólin færði hann okkur
ilmandi jólaepli og -appelsínur
ásamt Jolly-cola, sem var ekki
auðvelt að fá á Íslandi þá og
þurfti ekki mikið til að gleðja
barnshjörtun.
Pabba var mjög í mun að við
systkinin yrðum og værum dug-
leg í því sem við tækjum okkur
fyrir hendur og að við myndum
ávallt halda áfram þótt á móti
blési í lífinu og að búa yfir þeirri
list að geta siglt á milli skers og
báru þegar á reyndi. Það var list
sem hann kunni okkar allra best,
lífið var honum ekki alltaf auð-
velt og þurfti hann að standa
marga storma af sér s.s. for-
eldramissi á unga aldri ásamt því
að greinast með erfiðan sjúk-
dóm, MND, sem rændi hann
starfsþreki sínu smátt og smátt
en æðruleysið og jákvætt viðhorf
hans til þess sem hann mat mest
í sínu lífi stóð alltaf upp úr – fjöl-
skyldan og barnabörnin áttu hug
hans allan og fylltu hjarta hans
gleði.
Pabbi sá um að kenna barna-
börnum sínum ýmislegt s.s. olsen
olsen, mannganginn í tafli og oft
var setið yfir fuglabókinni og er
mér minnisstætt þegar elsti son-
ur minn sat í fangi afa nokkurra
ára og þuldi hvert fuglaheitið á
fætur öðru þegar hann fletti í
gegnum bókina og mikið var af-
inn stoltur og hreykinn.
Pabbi og mamma voru falleg
hjón sem stóðu þétt saman öll
þau ár sem þau áttu saman, nutu
lífsins og sinntu fjölskyldu sinni
af kostgæfni, vildu allt fyrir alla
gera og tókust á við þau verkefni
sem þeim voru falin í þessu lífi.
Með þakklæti og virðingu
kveð ég pabba minn sem kenndi
mér og mínum svo margt.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri
lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Guð blessi minningu um góðan
pabba.
Una Kristín.
Í dag kveð ég með söknuði
kæran tengdaföður minn, hann
Stefán Árna. Stebbi, eins og
hann var alltaf kallaður, var mik-
ill baráttujaxl og fór í gegnum
lífið með jákvæðni og bros að
vopni. Stebbi var mikill dugnað-
arforkur og sívinnandi. Þrátt
fyrir veikindi og hindranir barð-
ist hann áfram fram að síðustu
stundu. Fjölskyldan var Stebba
mjög hugleikin. Hann fylgdist
vel með öllu því sem gerðist í lífi
afkomenda sinna og var alltaf til
staðar ef á þyrfti að halda.
Stebbi var natinn við litlu krílin
sín, sama hvort það voru börnin,
barnabörnin eða barnabarna-
börnin, og duglegur að miðla til
þeirra alls konar þekkingu.
Hann kenndi þeim að umgangast
náttúruna og lífríkið og voru sum
ansi ung þegar þau þekktu flest-
ar íslenskar fuglategundir.
Stebbi og Tóta voru samrýnd
hjón sem stóðu þétt við bakið á
fjölskyldu sinni. Alltaf voru þau
boðin og búin að rétta hjálpar-
hönd og vildu allt fyrir alla gera.
Þrátt fyrir veikindi Stebba gafst
hann aldrei upp, hann ætlaði að
vinna þessa baráttu. Hann sýndi
ótrúlegt æðruleysi og viljastyrk í
veikindum sínum og það fleytti
honum langt. Tóta er algjör
hetja og stóð eins og klettur við
bakið á eiginmanni sínum í gegn-
um öll hans veikindi.
Elsku Tóta, söknuður þinn er
mikill eins og okkar allra í fjöl-
skyldunni en minningarnar eig-
um við og þær skulum við varð-
veita og ylja okkur við. Stebba
kveð ég með söknuði og þakka
fyrir samfylgdina í gegnum lífið.
Hvíl í friði, elsku Stebbi.
Kær kveðja,
Elsa.
Tengdapabbi minn er fallinn
frá. Maður sem ég ber mikið
þakklæti til og hefur gefið fjöl-
skyldu minni og sinni í heild afar
mikið.
Hjartahlýr og góður maður
fram í fingurgóma.
Stebbi tengdapabbi hefur allt-
af reynst okkur vel og lagði sitt
af mörkum þegar við vorum að
koma yfir okkur þaki og þótti
aldrei neitt tiltökumál, verkefnin
voru til að takast á við þau.
Við, Una Kristín eiginkona
mín og elsti sonur okkar, bjugg-
um í tæpt ár hjá tengdaforeldr-
um mínum þegar húsbygging á
heimili okkar í Starmóanum stóð
yfir og voru það forréttindi að
eiga þennan tíma með þeim, þar
sem Arnór Ingvi, eins árs peyi,
fékk óskipta athygli hjá afa sín-
um.
Alltaf var gott að koma til
Stebba, bæði heima og á Hlév-
angi þar sem hann dvaldi síðustu
ár sín, glatt brosið tók ávallt á
móti manni og áttu barnabörnin
einstakan stað í hjarta hans.
Stebbi var mjög duglegur
maður og ósérhlífinn í öllu því
sem hann tók sér fyrir hendur.
Þrátt fyrir MND-sjúkdóminn,
sem hann greindist með fyrir um
20 árum síðan, hélt hann alltaf
ótrauður áfram, ófáar voru sund-
ferðirnar til að halda styrk sín-
um, gönguferðir og alls kyns æf-
ingar.
Ég vil þakka fyrir að hafa
fengið það tækifæri að kynnast
tengdapabba og notið samver-
unnar með honum og Tótu
tengdamömmu í ótal myndum.
Margt þú hefur misjafnt reynt,
mörg þín dulið sárin.
Þú hefur alltaf getað greint,
gleði bak við tárin.
(JÁ)
Minning lifir um góðan mann.
Trausti Már.
Elsku Stebbi afi okkar kenndi
okkur systkinunum svo margt og
eigum við fullt af góðum,
skemmtilegum og fallegum
minningum með honum.
Hann fylgdist alltaf náið með
okkur í uppvexti okkar systkin-
anna og samgladdist yfir
minnstu og stærstu áföngum í lífi
okkar.
Þegar við komum með verð-
launapeninga eða bikara eftir hin
ýmsu íþróttamót var það stoltið
og fallega brosið hans sem gaf
okkur svo mikið.
Hans seigla í gegnum lífið og
það viðhorf að gefast aldrei upp
einkenndi afa okkar.
Með jákvæðum straumum og
sínu bjarta brosi kenndi hann
okkur margt um lífið og til-
veruna sem við munum öll taka
með okkur út í lífið og lýsir það
svo vel hvaða góða mann hann
afi okkar hafði að geyma.
Við áttum ótal margar og
ómetanlegar stundir saman og
var hann „meistari“ í Olsen Ol-
sen sem hann kenndi okkur öll-
um, fuglabókinni var flett fram
og til baka og enski boltinn var
fastur liður hjá okkur um helgar,
ásamt rjúkandi heitu pönnsunum
hennar ömmu Tótu.
Afi tileinkaði sér alltaf verk-
efni við hæfi þegar heilsunni
hrakaði til að hafa eitthvað fyrir
stafni, t.a.m. saumaði hann út
ótal púða, jóladagatöl, körfu-
boltanet, hitaplatta og einkenndi
hann alltaf mikil vinnusemi.
Jólin standa upp úr hjá okkur
systkinunum, yndislegar og
dásamlegar stundir og vorum við
alltaf þakklát fyrir hver jól sem
við áttum saman, því heilsunni
hrakaði hjá afa okkar sem þó tók
alltaf öllu með þvílíku æðruleysi.
Þótt hann hafði misst mikið af
getu til samskipta þá voru það
augun hans og brosið sem sögðu
okkur svo margt og kenndu okk-
ur svo margt.
Við þökkum afa okkar fyrir
samfylgdina í þessu lífi og trúum
því að hann njóti sín þar til við
hittumst á ný.
Falleg minning um Stebba afa
okkar mun alltaf lifa í hjörtum
okkar.
Arnór Ingvi, Samúel
Þór, Hjördís Lilja og
Viktor Árni.
Elsku afi. Nú er komið að
kveðjustund. Ég er svo afskap-
lega þakklát fyrir allan þann
tíma sem við fengum með þér og
að mín börn skyldu fá að kynnast
þér er mér svo dýrmætt. Brosið
þitt fallega er það sem er mér
efst í huga þegar ég minnist þín
og mun sú mynd fylgja mér alla
tíð. Brosið var aldrei breiðara og
fegurra en þegar börn voru í
kringum þig og oft þurfti engin
orð, bara að fylgjast með börn-
unum. Brosið sem litli sex vikna
drengurinn minn fékk frá þér nú
á dögunum er eitthvað sem ég
mun aldrei gleyma.
Mér þykir afar vænt um þá
sögu sem ég hef svo oft fengið að
heyra, að þegar ég var lítil stelpa
dró ég þig með mér á eldhúsgólf-
ið þar sem við dönsuðum og
hlógum saman. Þú hefur alla tíð
sinnt okkur barnabörnunum af
bestu getu og passað upp á að
allir kunni að spila Olsen Olsen,
enda var yfirleitt gripið í spil
þegar eitthvert okkar kom í
heimsókn. Það skein alltaf í gegn
stoltið af öllum barnabörnunum
og þeirra afrekum, stórum og
smáum.
Þegar ég hugsa til ykkar
ömmu þá hlýnar mér um hjarta-
rætur. Mér hefur alltaf þótt
óendanlega vænt um ykkur.
Nærvera ykkar var alltaf svo
þægileg og afslöppuð. Þegar ég
var yngri minnist ég þess oft að
hafa komið heim til ykkar og
fengið að leggjast á sófann ykkar
með dúnmjúka teppið yfir mig
og steinsofnað – það voru heims-
ins bestu lúrar.
Það geta allir litið upp til þín
og þinnar þrautseigju, ákveðni
og dugnaðar sem hefur einkennt
þig í gegnum tíðina. Sama hver
líkamleg geta þín var þá lagðir
þú þig 120% fram. Þú varst lengi
vel fastagestur í sundlauginni og
þótti mér alltaf svo ljúft að sjá
þig þar á meðan ég var æfingum.
Seinna tók við þjálfun hjá
sjúkraþjálfurum og lifnaði yfir
þér þegar við ræddum um hvað
þú hafðir verið að gera, sérstak-
lega þegar þú tókst extra vel á.
Ég á svo margar fallegar
minningar um þig sem ég mun
geyma og segja börnunum mín-
um þegar þau eldast.
Ég elska þig afi.
Þín,
Þóra Björg.
Stefán Árni
Sigurðsson
✝ Helgi SævarSveinsson
fæddist í Reykjavík
13. nóvember 1953.
Hann lést í Borgar-
nesi 5. október
2017.
Foreldrar hans
voru María Erna
Hjálmarsdóttir og
Sveinn Bjarnason.
Alsystkini Helga
eru: Frímann, Haf-
dís og Sigríður
Ólafía. Hálfsystkini
Helga eru Margrét,
Sævar, Bjarni,
Erna og Hulda.
Helgi var ókvæntur
og barnlaus.
Útför Helga
Sævars fer fram frá
Kolbeinsstaða-
kirkju í dag, 17.
október 2017, kl.
14.
Helgi ólst upp til 11 ára ald-
urs hjá foreldrum sínum og
systkinum í Hafnarfirði. Þegar
faðir hans deyr er hann níu ára
gamall og 11 ára fer hann í fóst-
ur að Syðri-Rauðamel í
Hnappadal, til þeirra yndislegu
systkina Guðmundar, Guðríðar
og Sæmundar. Það var hans
gæfa, því þar leið honum vel.
Þau systkini höfðu þann með-
fædda eiginleika að laða fram
það góða í einstaklingum og
koma þeim til þroska.
Þarna átti Helgi sínar ljúf-
ustu stundir. Með hjálp þeirra
systkina lærði hann að umgang-
ast dýr og virða. Hann var mik-
ill dýravinur og smám saman
eignaðist hann nokkurn bú-
stofn, sem hann var mjög stolt-
ur af. Hann átti hesta og hafði
yndi af hestamennsku og út-
reiðum.
Helgi var félagslyndur og
hrókur alls fagnaðar, hvar sem
hann kom. Hann eignaðist bíl
og meðan hann hafði heilsu til
naut hann þess að heimsækja
ættingja og vini.
Hann hringdi reglulega í vini
og kunningja til að fá fréttir af
veðri og búskaparháttum.
Honum var umhugað um
fólkið sitt og fylgdist vel með
hvernig því vegnaði.
Hann hafði mikið og gott
skopskyn, var hnyttinn í tilsvör-
um og sló menn oft út af laginu
og eigum við í minningunni
margar og skemmtilegar sögur.
Það voru Helga þung spor,
þegar Guðmundur féll frá og
hann þurfti að yfirgefa sína
sveit. Helgi flutti þá í Borgar-
nes á sambýlið við Kveldúlfs-
götu því fjær vildi hann ekki
vera sínum heimahögum. Á
Kveldúlfsgötunni leið honum
vel í góðu samneyti við heimilis-
og starfsfólk. Meðan heilsan
leyfði starfaði hann í Vírneti og
Fjöliðjunni, þar sem hann naut
þess að hitta vini og kunningja
einkum úr sinni gömlu sveit.
Síðustu árin hrakaði heilsu
hans hratt bæði á sál og líkama
og undir lokin var hann orðinn
óvinnufær.
Ég og mín fjölskylda viljum
þakka honum fyrir allt sem
hann var okkur og gerði. Minn-
ing hans mun geymast í hjört-
um okkar.
Hvíl í friði elsku bróðir.
Margrét systir.
Helgi Sævar
Sveinsson
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BENEDIKT SIGURÐSSON
lyfjafræðingur,
lést miðvikudaginn 11. október á líknardeild
Landspítalans. Útför fer fram frá
Lindakirkju í Kópavogi fimmtudaginn 19. október klukkan 13.
Heiðrún Þorgeirsdóttir
Jón Benediktsson
Rafn Benediktsson Hildur Kristjánsdóttir
Halla Benediktsdóttir Hafsteinn Lárusson
Sigurður Benediktsson
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
VALGERÐUR ÁRMANNSDÓTTIR,
Hvassaleiti 56, Reykjavík,
áður til heimilis að
Móavegi 9, Njarðvík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eiri sunnudaginn
8. október. Útförin fer fram frá Áskirkju
föstudaginn 20. október klukkan 13.
Kristberg Kristbergsson Guðrún Marteinsdóttir
Guðjón Ólafur Kristbergsson Berglind Friðþjófsdóttir
Ásta Kristbergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ERLA EYJÓLFSDÓTTIR,
Aflagranda 40, áður til heimilis að
Bergstaðastræti 50b,
lést 13. október á líknardeild Landspítalans.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Bergur Jónsson
börn og fjölskyldur þeirra