Morgunblaðið - 17.10.2017, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Ég er sveitastelpa úr Flóanum semfór 17 ára gömul til Reykjavíkurtil að vinna fyrir sér,“ segir María
Kristín Einarsdóttir listakona sem á 80 ára
afmæli í dag. „Foreldrar mínir, sem
bjuggu í Vatnsholti, voru bændafólk með
stóran barnahóp. Þau höfðu ekki svigrúm
til að kosta börnin í frekara nám eftir
ferminguna. Svo þurfti að rýma fyrir yngri
börnunum og þeim sem voru ófædd.“
María varð fljótt lagin í höndunum, fór
snemma að sauma fatnað á sjálfa sig og
aðra í fjölskyldunni. Svo það var ekki til-
viljun að fyrsta starf hennar í Reykjavík
var að sauma karlmannaföt hjá Gefjuni-
Iðunni. „Áður en krían snerti steininn var
ég komin í hjónaband með Svavari Þor-
valdssyni og eignaðist með honum þrjár
yndislegar dætur, Helen, Huldu og Hug-
rúnu.“ Við tilkomu fjölskyldu hófst lífsbar-
áttan; að koma þaki yfir höfuðið, og það
takmark náðist með mikilli vinnu. „Þegar dæturnar uxu úr grasi fór ég
að vinna utan heimilis og fékk aukið fjárhagslegt svigrúm til að sækja
mér menntun hér og þar.“
María hefur alltaf haft yndi af söng, var einn af stofnendum Samkórs
Kópavogs og söng með kórnum á 50 ára afmæli hans á síðasta ári. „Ég
hef sungið í ýmsum kórum, s.s. Heimskórnum, og tók þrisvar þátt í stór-
tónleikum þar sem heimsfrægir söngvarar, Domingo, Pavarotti og
fleiri þekkt nöfn, komu fram.“ María vildi hafa einhverja haldbæra
kunnáttu í faginu og skráði sig inn í Nýja tónlistarskólann og lauk 8.
stigs prófi þegar hún var 53 ára. „Lengst söng ég með Skagfirsku söng-
sveitinni, eða í 30 ár, en þar vorum við samferða ég og seinni maður
minn, Gestur Bjarki Pálsson. Eftir það fór ég að föndra við að mála og
hélt nokkrar sýningar.
Þar sem fatatískan breyttist og allflestar konur ganga í gallabuxum,
sem og ég geri, lagði ég kjólasaum á hilluna. Ég á ennþá nokkra kjóla
frá fyrri tíð en ég er vaxin upp úr þeim.
Ég hef lifað góðu lífi, fest fingur á flest mín áhugamál að einhverju
marki og á 60 ára afmæli mínu gaf ég út ljóðabókina Undir laufþaki og
núna á 80 ára afmælinu ætla ég að sækja heim tónleikahöll í Montréal.“
María yrkir enn og sendir fólkinu sínu tækifærisljóð þegar stór-
viðburðir eru, brúðkaup og afmæli.
María hefur einnig fengist við blómarækt. „Við Gestur, maðurinn
minn, byggðum sumarhús í Grímsnesinu og þar plöntuðum við trjám í
einn hektara lands, en ég vildi líka hafa þar rósir og dalíur. Ég hef alltaf
elskað að hafa litrík falleg blóm og gróður í kringum mig.“
Úti í sólinni María á
Torreveja árið 2013.
Hefur náð að sinna
sínum áhugamálum
María K. Einarsdóttir er áttræð í dag
E
rla Sigríður Ragnars-
dóttir fæddist á fæð-
ingarheimilinu 17.10.
1967 og átti heima í
miðbæ Reykjavíkur
fyrstu sjö árin. Þá flutti fjölskyldan
til Egilsstaða þar sem faðir hennar
var tannlæknir næstu 12 árin. Þá
flutti fjölskyldan aftur suður en
Erla var þá komin í menntaskóla.
Eftir stúdentspróf fór Erla til
Bandaríkjanna, lærði sögu, stjórn-
málafræði og fjölmiðlun í háskól-
anum í Wisconsin, en lauk BA-námi
í sagnfræði við HÍ 1993 og cand.
mag.-prófi frá háskólanum í Árós-
um 1995.
Erla kenndi í afleysingum í
Garðaskóla og síðan við FS: „ Þetta
var góður og lærdómsríkur tími. Ég
fann strax að það átti vel við mig að
starfa með ungu fólki. Þegar
kennslustaða bauðst í Hafnarfirði
var ég því fljót að ganga til liðs við
Flensborgarskólann.“ Auk kennslu-
réttinda hefur Erla lokið diplóma-
námi í stjórnun og fræðslu og er
langt komin með nám í stjórnsýslu-
fræðum við HÍ: „Eins og hjá svo
mörgum þá á ég bara ritgerðina eft-
ir. Kannski gef ég mér tíma til
næsta sumar. Mér hefur alltaf fund-
ist gaman í skóla og fæ aldrei nóg
af því að læra.“
Erla Sigríður Ragnarsdóttir, kennari við Flensborg – 50 ára
Í Spánarferð Erla Sigríður og eiginmaðurinn, Magnús Teitsson, njóta kvöldsólarinnar í Barcelona með börnunum.
Dúkkulísurnar syngja
enn um Pamelu í Dallas
Alltaf jafn hressar Dúkkulísurnar koma sér fyrir á sviði í Hofi á Akureyri.
Reykjavík Róbert
Atlason fæddist
4. apríl 2017.
Hann vó 3.500 g
og var 50 cm
langur. Foreldrar
hans eru Atli
Björgvin Odds-
son og Kristín
Anna Tryggva-
dóttir.
Nýr borgari
Tinna Líf Teitsdóttir og Árni Atlason héldu tombólu við Nettó í Kórahverfinu í
Kópavogi og söfnuðu 5.508 kr. sem þau færðu Rauða krossinum á Íslandi að gjöf.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.