Morgunblaðið - 17.10.2017, Blaðsíða 31
Menning
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2017
Þetta er ekkert flókið, þaðeru tvær manngerðir íheiminum. Annars vegarþeir sem fá sér sykur út í
kaffið og svo hinir. Það sem öllu
skiptir er að gera sér ljóst hvorum
hópnum maður tilheyrir.“
Heimsmynd Andrés, aðalpersónu
Föðurins eftir franska leikskáldið
og rithöfundinn Florian Zeller, er
heimsmynd verkfræðingsins. Ná-
kvæmni, stundvísi og viðtekið stig-
veldi er umhugsunarlaust í háveg-
um haft.
Einnig stuðandi hreinskilni sem
iðulega fer yfir strikið út í grimmd
sem líklega er oftast ómeðvituð, en
mögulega ekki alltaf. Sérstaklega í
samskiptum við dótturina Anne, og
sérstaklega þar sem André er að
gamlast og er smátt og smátt að
missa tökin, hætta að gera sér ljóst
hvort hann er maður tveggja syk-
urmola eða ekki.
Grunnhugmynd verksins er ákaf-
lega snjöll. Zeller nýtir sér þá stað-
reynd að áhorfandinn þekkir ekki
þetta fólk og veit almennt ekki
hvað gerist næst og setur hann í
spor Andrés þar sem heimur hans
liðast í sundur og fyllist af óvissu
og ógnum. Þetta tekst á stundum
einstaklega vel, með hrollvekjandi
áhrifum. Jafnframt fylgjumst við
með álaginu sem ástand Andrés og
krefjandi persónuleiki leggur á
hans nánustu, hvernig dóttir hans
glímir við og vinnur úr bæði hvers-
dagslegum uppákomum og tilfinn-
ingum sem samvera með André
kveikja. Höfundur hefur valið að
halda þeim þráðum, kringum-
stæðum Andrés, einföldum og
dæmigerðum, þetta fólk getur
staðið fyrir nánast hverja sem er í
svipuðum kringumstæðum. Skiljan-
leg ákvörðun, en gerir verkið dálít-
ið sviplaust og formlegt. Dæmisaga
frekar en raunverulegar kringum-
stæður lifandi fólks með öllum sér-
kennum, sögu og tiktúrum sem
einkenna okkur. Eðlilega hljóm-
andi þýðing Kristjáns Þórðar
Hrafnssonar kemur þessu látlausa
eðli textans vel til skila.
Kristín Jóhannesdóttir vinnur
gegn þessari deyfð í verkinu með
ýmsum ráðum í túlkun sinni.
Þeirra veigamestar eru hvernig
persónurnar í kringum André eru
málaðar sterkari litum en textinn
virðist kalla á. Á stundum reynir
um of á þanþol hans, eins og til
dæmis í skoplegri tilraun Anne og
sambýlismannsins til að eiga náið
samneyti ofurölvi.
Harpa Arnardóttir er annars
sannfærandi og kröftug í hlutverki
Anne, full af spennu og óþoli í sín-
um erfiðu aðstæðum. Þröstur Leó
Gunnarsson er einnig prýðilega
trúverðugur sem Pierre, sem reyn-
ir hvað hann getur að halda sig til
hlés og lúta vilja konu sinnar, en
hafa jafnframt áhrif á hann.
Ýkjukennd og gleðikonuleg túlk-
unin á persónu heimilishjálpar-
innar þykir mér sérkennileg
ákvörðun. Hún verður vissulega
fyndin í athyglisbresti sínum hjá
Eddu Arnljótsdóttur, og samleikur
þeirra Hörpu þegar Anne er að
átta sig á hvers konar fyrirbæri er
komið inn á gólf hjá henni er
skemmtilegur, en erfitt er að sjá að
erindi eða áhrifamætti verksins sé
þjónað með þessari túlkun. Fyrir
utan að erfitt er að skilja hvað er
unnið með því að fela hlutverkið
ekki leikkonu á réttum aldri, en
fram kemur að Laura er um þrí-
tugt. Ólafía Hrönn Jónsdóttir og
Sveinn Ólafur Gunnarsson skila
sínum litlu hlutverkum með sóma.
Svo virðist sem ætlun Kristínar
sé að styrkja þá tilfinningu áhorf-
andans að hann horfi á verkið allt
með augum aðalpersónunnar, líka
þá hluta þar sem André er ekki á
sviðinu. Það held ég sé ekki sér-
lega gagnleg ákvörðun. Ráðvilla
Andrés þarf held ég þvert á móti
að standa í skýrri andstöðu við trú-
verðugan, rökréttan og raunsæis-
lega teiknaðan hversdag, til að öll-
um slagkraftinum í stefnumóti
hans við ástand sitt sé til skila
haldið.
Þessi afstaða endurspeglast í
áferðarfallegri leikmynd Stígs
Steinþórssonar. Hin mjög svo
stofnanalega stofa sem myndar
umgjörð sýningarinnar tekur
breytingum eftir því sem líður á
verkið, en það hversu kaldranaleg
og óheimilislega uppstillt hún er
frá upphafi dregur úr áhrifunum af
þeim breytingum. Gerir áhrifin vit-
ræn frekar en tilfinningaleg.
Tæknilegum möguleikum
veggjanna, í samspili við lýsingu
Halldórs Arnar Óskarssonar, er
aftur á móti beitt á verulega slá-
andi hátt áður en yfir lýkur. Tón-
list Borgars Magnasonar er líka
hið besta innlegg í andrúmsloftið
og búningar Þórunnar Maríu Jóns-
dóttur styðja á látlausan hátt við
túlkun leikenda.
Það verður síðan að segjast eins
og er að tækni- og túlkunarlegar
efasemdir mínar hverfa nánast al-
gerlega í skuggann af frammistöðu
aðalleikarans. Hér nær Eggert
Þorleifsson að setja alla sína þraut-
þjálfuðu nákvæmni í tímasetn-
ingum, allt sitt glæsilega næmi í
náttúrulegri meðferð texta, í þjón-
ustu makalaust vel unninnar per-
sónusköpunar. Hrokabrynja Andr-
és í byrjun, brestirnir sem smátt
og smátt koma í hana uns hann
stendur berskjaldaður með hana
molnaða í kringum sig; allt er þetta
jafn trúverðugt, sannfærandi og
áhrifaríkt í meðförum Eggerts.
Fátt er eins æsandi í leikhúsi og
stjörnuleikur í þessum gæðaflokki.
Það er þetta sem svo margir leik-
húsgestir eru komnir til að sjá. Það
kemur auðvitað engum á óvart að
Eggert Þorleifsson geri leikhúsið
heimsóknarinnar virði. Hitt er gott
að láta minna sig á, að stjörnu-
frammistaða og leiksigrar eru ekki
bara flugeldasýningar eða afreks-
íþróttir. Við færumst nær persón-
unum. Skiljum þær betur, látum
örlög þeirra okkur varða. Leikrit
Florians Zeller vill með sinni
snjöllu uppbyggingu gefa okkur
innsýn í hugarheim sem eðli máls
samkvæmt er okkur lokaður. Egg-
ert lýkur honum upp og býður okk-
ur inn. Það boð ættu sem flestir að
þiggja.
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Næmi „Hér nær Eggert Þorleifsson að setja alla sína þrautþjálfuðu nákvæmni í tímasetningum, allt sitt glæsilega
næmi í náttúrulegri meðferð texta, í þjónustu makalaust vel unninnar persónusköpunar,“ segir í rýni um Föðurinn.
Á útleið
Þjóðleikhúsið
Faðirinn bbbbn
Eftir Florian Zeller. Íslensk þýðing:
Kristján Þórður Hrafnsson. Leikstjórn:
Kristín Jóhannesdóttir. Leikmynd: Stíg-
ur Steinþórsson. Búningar: Þórunn
María Jónsdóttir. Lýsing: Halldór Örn
Óskarsson. Tónlist: Borgar Magnason.
Hljóðmynd: Elvar Geir Sævarsson og
Borgar Magnason. Leikarar: Eggert Þor-
leifsson, Edda Arnljótsdóttir, Harpa
Arnardóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Sveinn Ólafur Gunnarsson og Þröstur
Leó Gunnarsson. Frumsýning í Kass-
anum í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn
12. október 2017.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Lau 21/10 kl. 20:00 21. s Sun 19/11 kl. 20:00 28. s Lau 9/12 kl. 20:00 36. s
Sun 22/10 kl. 20:00 22. s Mið 22/11 kl. 20:00 29. s Sun 10/12 kl. 20:00 37. s
Sun 29/10 kl. 20:00 23. s Fim 23/11 kl. 20:00 30. s Fim 14/12 kl. 20:00 38. s
Lau 4/11 kl. 20:00 24. s Fös 24/11 kl. 20:00 31. s Fös 15/12 kl. 20:00 39. s
Fös 10/11 kl. 20:00 25. s Mið 29/11 kl. 20:00 32. s Lau 16/12 kl. 20:00 40. s
Sun 12/11 kl. 20:00 26. s Fös 1/12 kl. 20:00 33. s Þri 26/12 kl. 20:00 41. s
Þri 14/11 kl. 20:00 auk. Lau 2/12 kl. 20:00 auk. Mið 27/12 kl. 20:00 42. s
Fim 16/11 kl. 20:00 auk. Sun 3/12 kl. 20:00 34. s Fim 28/12 kl. 20:00 43. s
Fös 17/11 kl. 20:00 auk. Mið 6/12 kl. 20:00 35. s
Lau 18/11 kl. 20:00 27. s Fös 8/12 kl. 20:00 auk.
Stjarna er fædd!
Guð blessi Ísland (Stóra sviðið)
Fös 20/10 kl. 20:00 Frums. Fim 26/10 kl. 20:00 3. s Mið 1/11 kl. 20:00 5. s
Mið 25/10 kl. 20:00 2. s Fös 27/10 kl. 20:00 4. s Fim 2/11 kl. 20:00 6. s
Þetta er 11. september Íslendinga, gjörsamlega.
1984 (Nýja sviðið)
Fim 19/10 kl. 20:00 16. s Sun 22/10 kl. 20:00 17. s Fim 26/10 kl. 20:00 Lokas.
Stóri bróðir fylgist með þér
Kartöfluæturnar (Litla sviðið)
Fös 20/10 kl. 20:00 9. s Sun 29/10 kl. 20:00 12. s Fim 16/11 kl. 20:00 16. s
Lau 21/10 kl. 20:00 aukas. Fim 2/11 kl. 20:00 13. s Þri 21/11 kl. 20:00 aukas.
Sun 22/10 kl. 20:00 10. s Sun 5/11 kl. 20:00 15. s
Fjölskyldukeppni í meðvirkni!
Úti að aka (Stóra sviðið)
Lau 28/10 kl. 20:00 5. s Lau 11/11 kl. 20:00 6. s Lau 25/11 kl. 20:00 7. s
Sprenghlægilegur farsi!
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 10/11 kl. 20:00 1. s Sun 19/11 kl. 20:00 6. s Fim 30/11 kl. 20:00 11. s
Lau 11/11 kl. 20:00 2. s Mið 22/11 kl. 20:00 7. s Fös 1/12 kl. 20:00 12. s
Sun 12/11 kl. 20:00 3. s Fim 23/11 kl. 20:00 8. s Lau 2/12 kl. 20:00 13. s
Mið 15/11 kl. 20:00 4. s Fös 24/11 kl. 20:00 9. s Sun 3/12 kl. 20:00 14. s
Lau 18/11 kl. 20:00 5. s Mið 29/11 kl. 20:00 10. s Fös 8/12 kl. 20:00 15. s
Draumur um eilífa ást
Natan (Litla sviðið)
Fim 26/10 kl. 20:00 Frums. Mið 1/11 kl. 20:00 3. s Lau 4/11 kl. 20:00 5. s
Lau 28/10 kl. 20:00 2. s Fös 3/11 kl. 20:00 4. s Fim 9/11 kl. 20:00 6. s
Hvers vegna drepur maður mann?
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 29/10 kl. 13:00 48. s Mið 1/11 kl. 13:00 aukas. Fim 9/11 kl. 13:00 aukas.
Þri 31/10 kl. 13:00 aukas. Sun 5/11 kl. 13:00 49. s Sun 12/11 kl. 13:00 50. s
Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor.
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 22/10 kl. 13:00 Sun 5/11 kl. 13:00
Sun 29/10 kl. 13:00 Sun 12/11 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Faðirinn (Kassinn)
Lau 21/10 kl. 19:30 5.sýn Fim 2/11 kl. 19:30 Auka Fös 24/11 kl. 19:30 11.sýn
Fim 26/10 kl. 19:30 4.sýn Fös 3/11 kl. 19:30 8.sýn Lau 25/11 kl. 19:30 12.sýn
Fös 27/10 kl. 19:30 6.sýn Lau 4/11 kl. 19:30 9.sýn Fim 30/11 kl. 19:30 13.sýn
Sun 29/10 kl. 19:30 7.sýn Fim 23/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 1/12 kl. 19:30 14.sýn
Óvenjulegt og áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Mið 18/10 kl. 19:30 Auka Fös 20/10 kl. 19:30 Auka
Fim 19/10 kl. 19:30 33.sýn Sun 22/10 kl. 19:30 Lokas
Fimm Grímutilnefningar!
Eniga Meniga (Stóra sviðið)
Lau 28/10 kl. 13:00 Lau 28/10 kl. 16:00
Fjölskyldutónleikar í Þjóðleikhúsinu með lögum Ólafs Hauks.
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fös 20/10 kl. 19:30 Frum Fös 10/11 kl. 19:30 5.sýn Fim 23/11 kl. 19:30 9.sýn
Fim 26/10 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/11 kl. 19:30 6.sýn Fös 24/11 kl. 19:30 10.sýn
Fös 27/10 kl. 19:30 3.sýn Fös 17/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/12 kl. 19:30 11.sýn
Fös 3/11 kl. 19:30 4.sýn Lau 18/11 kl. 19:30 8.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Óvinur fólksins (Stóra sviðið)
Lau 21/10 kl. 19:30 9.sýn Lau 4/11 kl. 19:30 10.sýn
Eitt frægasta leikverk Henriks Ibsens í nýrri leikgerð
Smán (Kúlan)
Lau 21/10 kl. 17:00 11.sýn Sun 29/10 kl. 17:00 13.sýn Sun 5/11 kl. 19:30 15.sýn
Lau 28/10 kl. 19:30 12.sýn Lau 4/11 kl. 17:00 14.sýn
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 18/10 kl. 20:00 Mið 8/11 kl. 20:00 Mið 29/11 kl. 20:00
Mið 25/10 kl. 20:00 Mið 15/11 kl. 20:00
Mið 1/11 kl. 20:00 Mið 22/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Landsbyggðin)
Þri 17/10 kl. 10:00
Eskifjörður
Mið 18/10 kl. 10:00
Egilsstaðir
Þri 17/10 kl. 13:00
Eskifjörður
Mið 18/10 kl. 13:00
Egilsstaðir
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 21/10 kl. 13:00 Sun 29/10 kl. 16:00 Lau 4/11 kl. 15:00
Lau 21/10 kl. 15:00 Lau 4/11 kl. 13:00
Brúðusýning
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 10/11 kl. 19:30 57.sýn Sun 12/11 kl. 19:30 59.sýn Lau 18/11 kl. 19:30 61.sýn
Lau 11/11 kl. 19:30 58.sýn Fös 17/11 kl. 19:30 60.sýn Sun 19/11 kl. 19:30 62.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200