Morgunblaðið - 10.11.2017, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
JÓLASERÍUR
við Fellsmúla | 108 Reykjavík | OPIÐ ALLA DAGA
kr.275
Inni- og útiseríur.
Verð frá
Bók Óttars Sveinssonar, Útkall – Reiðarslag í
Eyjum, var kynnt í Hannesarholti í gær, þar sem
björgun belgíska togarans Pelagusar við Vest-
mannaeyjar árið 1982 eru gerð skil. Þar björg-
uðust sex belgískir sjómenn en tveir fórust
ásamt tveimur íslenskum björgunarmönnum.
Meðal viðstaddra var Bart Gulpen, belgískur
sjómaður sem bjargaðist, þá aðeins 17 ára gam-
all og sést hér heilsa Ástu Kristjánsdóttur, en
sonur hennar, Kristján Víkingsson læknir fórst
við björgunina. Við sama tækifæri hitti Gulpen
líka bjargvætt sinn Guðmund Ólafsson, sem
tókst að bjarga Gulpen og hífa hann upp úr öldu-
rótinu. Guðmundur kom frá Noregi Gulpen að
óvörum og urðu úr því hjartnæmir endurfundir.
Nýjasta Útkallsbók Óttars Sveinssonar fjallar um sjóslysið þegar togarinn Pelagus strandaði við Heimaey
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilfinningaþrungin stund í Hannesarholti
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Perla norðursins hefur mikinn
áhuga á því að koma goshvernum
Strók við Perluna í Öskjuhlíð aftur í
gang. Strókur hefur legið í dvala í
fimm ár eða síðan Reykjavíkurborg
lét loka honum árið 2012 vegna mik-
ils rekstrarkostnaðar.
Áður en Strókur verður tekinn í
gagnið þarf að leysa tæknileg
vandamál og er unnið að því, að
sögn Margrétar Th. Jónsdóttur,
fræðslustjóra Perlu norðursins.
„Það er okkar von að Strókur verði
aftur virkur á árinu 2018, “ segir
Margrét.
Fyrirtækið Perla norðursins tók
Perluna á leigu af Reykjavíkurborg
í apríl 2016 og hefur unnið að því
síðan að koma þar upp stærstu nátt-
úrusýningu landsins. Sýningin verð-
ur byggð upp í áföngum. Hverinn
Strókur fylgdi með í leigunni.
Hitaveita Reykjavíkur byggði
goshverinn árið 1998 og naut hann
mikilla vinsælda frá fyrsta degi,
bæði meðal Íslendinga og erlendra
ferðamanna, sem heimsóttu Perl-
una. Strókur líkti enda eftir hegðun
goshvera í náttúrunni.
125 stiga heitt jarðhitavatn
Boruð var 30 metra djúp hola og í
hana sett stálrör með inntaki fyrir
vatnsleiðslu. Um leiðsluna var leitt
125 stiga heitt jarðhitavatn. Efst í
stálrörinu var komið fyrir þreng-
ingu, þ.e. mjórra röri, og sá búnaður
réð hæð gossins. Steinlögð skál er
umhverfis opið.
Orkuveita Reykjavíkur lenti í
fjárhagserfiðleikum og árið 2012 var
gripið til þess ráðs að Reykjavíkur-
borg keypti Perluna af fyrirtækinu.
Borgin lét loka Stróki það sama ár.
Rekstrarkostnaður var talinn of
mikill til að halda honum opnum.
Meðal annars var kostnaður í því
fólginn að hafa vaktmann á staðnum
til að passa upp á að fólk færi ekki
of nálægt hvernum og brenndist af
sjóðheitu vatninu.
Helgi Hjörvar, þáverandi borgar-
fulltrúi og síðar alþingismaður, lagði
upphaflega fram tillöguna að því að
byggður yrði goshver í Öskjuhlíð-
inni. Efnt var til samkeppni um
nafn á hverinn árið 1998 og bárust
586 tillögur. Þar af gerðu átján til-
lögu um nafnið Strókur, sem dóm-
nefnd valdi á hverinn.
Strókur verður endurvakinn
Manngerði goshverinn Strókur í Öskjuhlíð hefur legið í dvala síðan árið 2012 Perla norðursins
tók hverinn á leigu og vonast til að taka hann í gagnið á næsta ári Strókur hafði mikið aðdráttarafl
Morgunblaðið/Eggert
Strókur Goshverinn er skreyttur steinlagðri skál. Reykjavíkurborg lét loka
hvernum árið 2012 og steinhnullungum var komið fyrir í gosopinu.
Garðabær hefur hug á að minnast 100
ára afmælis fullveldis Íslands á næsta
ári með því að byggja hringtorg við af-
leggjarann að forsetasetrinu á Bessa-
stöðum.
Gunnar Einarsson bæjarstjóri
kynnti hugmynd að þessu verkefni á
síðasta fundi í bæjarráði Garðabæjar.
„Við sendum þessa hugmynd inn eftir
auglýsingu frá forsætisráðuneyti þar
sem óskað var eftir hugmyndum til að
fagna afmælinu,“ segir Gunnar.
„Við höfum látið arkitektana sem
unnu samkeppnina um miðsvæðið á
Álftanesi koma með hugmynd að því
hvernig hringtorgið við innkomu á
Álftanesi gæti litið út. Þeir hafa komið
með ákveðna hugmynd, 100 súlur sem
tákna fullveldið, sem við höfum kynnt
Guðna Th. Jóhannessyni forseta,“ seg-
ir Gunnar. Bærinn hefur einnig haft
samráð við Vegagerðina um verkefnið.
Gunnar segir að það séu ýmis atriði
sem þurfi að taka tillit til svo sem hvað
varðar öryggi. Málið sé á byrjunarstigi
og engin kostnaðaráætlun liggi fyrir né
hvenær hægt sé að fara í svona verk.
„Þegar og ef þessi hugmynd verður að
veruleika verður þetta verkefni kynnt
íbúunum betur,“ segir Gunnar.
sisi@mbl.is
Bessastaðir fái hringtorg
á fullveldisafmælinu 2018
Við torgið verði
100 súlur sem
tákna fullveldið
Morgunblaðið/Ómar
Benedikt Bogason hæstaréttar-
dómari hefur höfðað dómsmál á
hendur Jóni Steinari Gunnlaugs-
syni hæstaréttarlögmanni til
ómerkingar á því sem hann telur
ærumeiðandi ummæli í nýútkom-
inni bók, „Með lognið í fangið – um
afglöp Hæstaréttar eftir hrun“.
„Ég hef nú beinlínis kallað eftir
því í gagnrýni minni á dómstóla að
menn andmæli mér ef þeir telji mig
fara með rangt mál. Ekki kveinka
ég mér undan því, þó menn geri
það. Jafnvel þó það sé á þennan
hátt, þó það sé kannski ekki mjög
klókt af honum,“ sagði Jón Steinar
við mbl.is í gær þegar leitað var
viðbragða hans.
Lögmaður Benedikts tekur fram
að hann tjái sig ekki við fjölmiðla á
meðan málið er rekið fyrir dóm-
stólum. Hann fer fram á að fimm
ummæli í ritinu verði dæmd dauð
og ómerk, meðal annars um að
dómarar Hæstaréttar hafi framið
dómsmorð í máli ákæruvaldsins
gegn Baldri Guðlaugssyni, fyrrver-
andi ráðuneytisstjóra.
Hæstaréttardómari
fer í meiðyrðamál
við Jón Steinar
Benedikt
Bogason
Jón Steinar
Gunnlaugsson