Morgunblaðið - 10.11.2017, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
UPPHENGDAR HILLUR SEM BJÓÐA UPP ÓTAL UPPRÖÐUNAR MÖGULEIKA - HVER HILLA 70x70x32 cm kr. 35.800
* 4 HILLUR Á MYND
Z CUBE HILLUR
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Transporter hefur fylgt kynslóðum
af fólki sem hefur þurft á traustum
og áreiðanlegum vinnuþjarki
að halda sem leysir krefjandi og
fjölbreytt verkefni. Hann er með
fullkominni stöðugleikastýringu og
spólvörn og
sjö þrepa sjálfskiptingu.
Volkswagen Transporter
kostar frá
4.040.000 kr.
(3.232.000 kr. án vsk)
BYGGIR Á TRAUSTUM GRUNNI
Volkswagen Transporter
4Motion
FJÓRHJÓLADRIFI
FÁANLEGURMEÐ
Við látum framtíðina rætast.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Uppleggið með hátíðinni er að bæta bjór-
menninguna hér á landi og að fagna Bjórdeg-
inum 1. mars,“ segir Hinrik Carl Ellertsson,
einn skipuleggjenda The Annual Icelandic
Beer Festival sem haldin verður í sjöunda sinn
22.-24. febrúar næstkomandi. Hátíðin fer fram
á jarðhæð KEX hostels í Reykjavík.
Hátíðin tekur mikinn vaxtarkipp að þessu
sinni, bæði brugghúsum og gestum verður
fjölgað umtalsvert. Alls mun erlendum brugg-
húsum sem hingað koma fjölga úr 17 í 30. Þeim
íslensku fjölgar einnig umtalsvert. „Það er öll-
um íslenskum brugghúsum boðið og undir
þeim komið hvort þau taka þátt. Við giskum á
að alls verði 45-47 brugghús á hátíðinni,“ segir
Hinrik en í fyrra voru þau 23.
Gestum fjölgar sömuleiðis og alls verða
500 miðar boðnir til sölu, 43% fleiri en á síð-
ustu hátíð.
„Við höfum aldrei lagt upp með að koma
út í plús, hátíðin hefur alltaf verið rekin með
tapi. Tilgangurinn er að bæta bjórmenninguna
og koma á fót vinskap og tengslum í bjórheim-
inum. Það hefur til dæmis skilað því að brugg-
húsið okkar, KEX Brewing, hefur bruggað
með frábærum brugghúsum úti í heimi og
fengið dreifingu víða.“
Fjölmargir erlendir gestir koma hingað
til lands í tengslum við hátíðina.
„Við leggjum upp með að 20% seldra miða
séu til erlendra gesta sem koma þá gagngert
hingað á hátíðina. Á bakvið hvert erlent brugg-
hús koma svo að meðaltali 2,8 gestir. Við bjóð-
um öllum tvo flugmiða og margir bæta nokkr-
um við. Í fyrra komu 18 manns frá einu
brugghúsi. Þegar við vorum að byrja sögðu all-
ir nei en nú vilja allir koma. Við erum farnir að
segja nei og þegar er kominn listi fyrir 2019.“
Auk fólksins eru fluttir hingað nokkrir
gámar af bjór. Hvert brugghús kemur með sex
tegundir af bjór. Segir Hinrik að á hverjum
degi hátíðarinnar verði því 120 bjórar í boði til
að smakka. Á þeim þremur dögum sem hún
stendur er því hægt að kynna sér hátt í 400
bjóra. Miðasala er hafin á Kexland.is.
Íslensk bjórhátíð stækkar um helming
The Annual Icelandic Beer Festival haldin í sjöunda sinn 30 erlend brugghús kynna bjóra sína
og öllum íslenskum brugghúsið boðið Hátt í 400 bjórar verða í boði Gestum fjölgar um 43%
Mynd/Lilja Jónsdóttir
Hátíð Hundruð gesta sækja árlega bjórhátíð á
KEX hostel, nú í febrúar næstkomandi.
„Barnabókahöfundar ræddu m.a.
mikilvægi þess að fá greitt fyrir upp-
lestra þegar þeir sækja skóla lands-
ins heim,“ segir Kristín Helga Gunn-
arsdóttir, formaður Rithöfunda-
sambands Íslands (RSÍ), og vísar í
máli sínu til þess að félagsmenn RSÍ
fjölmenntu á hádegisfund sem hald-
inn var í Gunnarshúsi við Dyngjuveg
í Reykjavík í fyrradag. Voru þar
taxtar ræddir auk þess sem upp-
lestrarverkefni RSÍ fyrir grunn-
skóla voru kynnt.
Kristín Helga segir RSÍ áður hafa
minnt félagsmenn sína á mikilvægi
þess að fá greitt fyrir áðurnefnda
þjónustu. „Höfundamiðstöð Rithöf-
undasambandsins er með gjaldskrá,
sem er afar hófsöm, og við höfum
brýnt fyrir okkar fólki að vera ófeim-
ið við að setja upp verð fyrir upp-
lestra og framkomur ýmiskonar,“
segir hún og bendir á að nú sé anna-
samasti tími rithöfunda að hefjast,
þ.e. jólabókaflóðið. Þá segir hún eðli-
legt að skólar og stofnanir sem óska
eftir upplestrum og skemmtidag-
skrá í kringum nýkomnar bækur
greiði fyrir slíkar heimsóknir. Ekki
sé um að ræða auglýsingastarf höf-
unda heldur listviðburð.
Á umræðuvettvangi félagsmanna
RSÍ hafa skapast nokkrar umræður
um kjör höfunda og þar m.a. bent á
að eintakagreiðsla fyrir nýútgefna
skáldsögu í harðbandi sé nánast hin
sama og hún var árið 1996.
„Róðurinn er mjög þungur og höf-
undum mun að óbreyttu fækka. Við
sem þjóðfélag þurfum hins vegar að
leita ráða til að fjölga höfundum, vilj-
um við halda áfram að tala okkar
tungu og skrifa til framtíðar,“ segir
Kristín Helga. khj@mbl.is
Fái greitt fyrir
veitta þjónustu
Róðurinn þungur hjá rithöfundum
Morgunblaðið/Ómar
Bækur Það er mikilvægt að lesa fyr-
ir börn og að þau læri að lesa sjálf.