Morgunblaðið - 10.11.2017, Side 16

Morgunblaðið - 10.11.2017, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017 Ólafur Bernódusson Skagaströnd Ágætis aflabrögð hafa verið hjá línu- og snurvoðarbátunum sem hafa róið frá Skagaströnd á þessu kvótaári. Verðið á fiskinum hefur líka verið ásættanlegt eftir að strandveiðunum lauk. Heldur hefur þó dregið úr síð- ustu daga eins og oft vill verða á haustin á miðunum sem bátarnir sækja. Þar sem engin fiskvinnsla er á staðnum lengur er stöðugur straum- ur stórra bíla með aftanívagna gegn- um bæinn, sérstaklega síðdegis og á kvöldin. Þeir flytja fisk frá fiskmark- aðnum til kaupenda um allt land. Sáttir við sinn hlut Landanir hjá fiskmarkaðnum á síðasta kvótaári voru um 10.000 tonn og allur sá fiskur var fluttur burtu annaðhvort frosinn í gámum eða ferskur með þessum stóru bílum. Að sögn starfsmanna fiskmarkaðarins er haustið núna á svipuðu róli hvað varðar landaðan afla eins og haustið í fyrra og eru þeir sáttir við sinn hlut hvað það varðar. Þeir voru reyndar frekar daufir karlarnir á línubátnum Dúdda Gísla þar sem þeir voru að landa rúmum þremur tonnum eftir brælutúr síð- degis á þriðjudag. „Það nær ekki 100 kílóum á bala í dag og það hefur verið að draga úr þessu að undanförnu. Annars er þetta búið að vera ágætt í haust. Það var bara mikil hreyfing í dag og þá gefur hann sig ekki eins vel,“ sagði einn þeirra um leið og hann húkkaði úr kari fullu af stórýsu. Tvö búmm og svo kom voðin upp í tætlum Þeir voru heldur ekkert ánægðir karlarnir á Hafrúnu HU 12 þar sem þeir voru á fullu á bryggjunni að gera við snurvoðina með Jóni neta- manni. „Það eru ekki allar ferðir til fjár. Við skelltum okkur í Skaga- fjörðinn í gær og innfyrir nýopnuðu smábátalínuna þar og ætluðum að fiska heil ósköp. Fengum tvö búmm og svo kom voðin upp í tætlum eftir þriðja holið, rifin frá kúlulínu og al- veg aftur í heis.“ Ekki vissu þeir hvað hefði rifið svona illa en giskuðu á að það hefði jafnvel verið hvalur. „Stórhvelin voru að blása þarna allt í kringum okkur. Þetta var eins og gosbrunna- garður,“ sögðu þeir og glottu. Á sama tíma var verið að landa úr togaranum Steinunni SF 10 frá Hornafirði á að giska 40 tonnum af blönduðum afla eftir nokkurra daga túr og þrír litlir færabátar voru með sáralítinn afla. „Mér leist svo vel á hann í morgun og svo kom bara haugasjór strax um hádegið og ekk- ert hægt að vera við þetta,“ sagði einn af færakörlunum vonsvikinn með daginn. Allur fiskur fluttur annað  Straumur stórra bíla með aftanívagna í gegnum Skagaströnd  Aðeins hefur dregið úr aflabrögðum eftir líflegt haust  Í kompaníi við stórhveli í Skagafirði Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Skagaströnd Löndun úr Dúdda Gísla og fallegur fiskur í körum á bryggjunni. Sjómennirnir voru þó ekki ánægðir með magnið, 100 kíló á bala. Haust Þeir voru fegnir að vera loksins búnir að bæta voðina í næðingnum á bryggjunni, Jón Sveinsson er til vinstri og Hafþór Gylfason til hægri. Beint í bíl Á góðum dögum koma flutningabílar í röðum til að sækja afla. Á þriðjudag var megninu af afla Steinunnar SF landað beint í flutningabíl. Hópur á vegum Ferðafélagsins lagaði nýlega aðkomuna að göngu- brúnni sem liggur yfir Emstruá, skammt sunnan skálanna í Emstr- um eða Botnum eins og réttara er að kalla skálasvæðið, segir á vef FÍ. Síðasti spölurinn niður að Emstrubrúnni hefur lengi þótt erfiður og göngumenn þurft að klöngrast niður hála klöpp þar sem eini stuðningurinn var spotti og keðja. Þetta basl heyrir nú sög- unni til því miklar umbætur voru gerðar á gönguleiðinni. Teinar voru reknir ofan í klappirnar og sett upp sambærilegt handrið og er á öllum göngubrúnum á Lauga- veginum. Þá voru mótaðar tröppur í steininn svo nú er hægt að ganga öruggum fótum niður að brúnni. Jafnframt voru festingarnar á keðjunni sunnan árinnar lagaðar og bergboltaðar við gljúfur- vegginn. Það mæddi mikið á vinnufólkinu því alls þurfti að bera ríflega 200 kíló af efni og verkfærum niður að ánni, þar á meðal níðþunga raf- stöð. Valdimar G. Valdimarsson rafeindavirki bar þungann og heiðurinn af verkinu, eins og segir á vef FÍ. aij@mbl.is Umbætur við brú yfir Emstruá Ljósmynd/Stefán Jökull Jakobsson Lagfæringar Baslið á göngustígn- um á að heyra sögunni til.  Með 200 kíló af efni og verkfærum Á fyrsta fundi verkefnisstjórnar Brothættra byggða á Borgarfirði eystra í byrjun mánaðarins var meðal annars rætt um stöðuna í byggðarlaginu og bar þar margt á góma, segir á vef Byggðastofn- unar. Meðal annars ófullnægjandi stöðu í vegamálum, fækkun íbúa í yngri árgöngum, stöðuna í heil- brigðisþjónustu en einnig árangur og tækifæri í ferðaþjónustu og aðra möguleika byggðarlagsins. Farið var yfir verklag í byggða- þróunarverkefninu Brothættum byggðum og rætt hvernig verk- efnið geti nýst samfélaginu á Borgarfirði. Næstu skref eru að halda íbúaþing og vinna að stefnu- mótun fyrir verkefnið. Stefnt er að þinginu helgina 9.-10. desem- ber. Einnig verður hugað að því hvernig verkefnisstjórnun verður háttað. Staðan rædd á Borgar- firði eystra flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.