Morgunblaðið - 10.11.2017, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Stoðtækjafyrirtækið Össur hf.
hefur keypt allt hlutafé OK
Prosthetics ehf. Seljandinn er
Össur Kristinsson, stofnandi
beggja fyrirtækja. Kaupverð fyr-
irtækisins er sagt trúnaðarmál.
OK Prosthetics hefur m.a. þró-
að og framleitt hið svokallaða
Brim en það er sílíkonhringur sem
nýtist fólki sem misst hefur fram-
an af fæti ofan hnés. Brim kemur
í veg fyrir að hulsa sem kemur
upp á stúfinn, nuddist við notand-
ann með tilheyrandi óþægindum.
Sami frumkvöðull
Össur stofnaði OK Prosthetics
árið 2005 í þeim tilgangi að þróa
áfram aðferð til að smíða fætur
undir fólk með hagkvæmum og
skjótvirkum hætti.
„Ég hafði lengi velt fyrir mér
stöðu þess fólks sem ekki hefur
aðgang að þeim dýru lausnum
sem fólki á Vesturlöndum standa
til boða. Ljóst er að á mörgum
stríðshrjáðustu og fátækustu
svæðum heims er fólk sem misst
hefur útlimi vegna stríðsátaka og
sjúkdóma. Þetta fólk hefur lengst
af ekki haft tækifæri til að fá al-
mennilega gervifætur og sannast
sagna er margt af því sem verið
er að bjóða fólki á þessum svæð-
um hreint og klárt drasl,“ segir
Össur.
Með tækninni sem Össur þróaði
er hægt á rúmri klukkustund að
smíða fót undir einstakling og er
kostnaður við smíði hvers fótar
vel innan við 1.000 dollara, jafn-
virði 100 þúsund króna.
„Þarna erum við að tala um
kostnað sem er vel innan við 10%
af því sem það kostar að smíða fót
undir fólk í þeim heimshluta sem
við tilheyrum. Samt er þetta góð
tækni og gæðin mjög mikil,“ segir
Össur.
Erfitt að sækja fjármagn
Össur segir að hugmyndin að
baki fyrirtækinu hafi alla tíð verið
sú að koma fólki í þröngri stöðu til
hjálpar og að það hafi aldrei verið
rekið á hagnaðardrifnum forsend-
um.
„Við höfum víða leitað samstarfs
um þetta mikilvæga verkefni, m.a.
kynnt það Rauða krossinum og
fleiri hjálparsamtökum. Það er dá-
lítið merkilegt að enginn hefur séð
sér fært að leggja verkefninu lið
og því höfum við aðstandendur
fyrirtækisins borið kostnaðinn af
því. Það er í raun undarlegt að það
vilji enginn í raun koma þessu fólki
til hjálpar og nota til þess bestu
lausnina sem er jafn ódýr og raun
ber vitni.“
Hann segir að ýmis hagsmunaöfl
sjái einnig ofsjónum yfir því að
hægt sé að þjálfa hvern sem er í
að smíða jafn vandaða vöru.
„Eftir viku getur áhugasamur
einstaklingur verið kominn með
færni til að smíða jafngóðan fót og
ég get gert eftir 50 ára þjálfun.
Það er auðvitað bara frábært en
einhverjum kann að þykja það
verra.“
Inn á erfiðustu svæði heims
Frá árinu 2005 hefur Össur,
ásamt samstarfsfólki sínu, sótt
heim lönd á borð við Mósambík,
Pakistan, Kosovo, Gaza-svæðið,
Botswana, Namibíu, Dóminíska
lýðveldið, Haítí, Angóla og Kúbu.
„Mörg þessara landa höfum við
sótt heim oftar en einu sinni og
það er ótrúlegt að sjá fólk reisa sig
við á nýjum fæti og ganga á braut,
rúmri klukkustund eftir að við
hefjumst handa. Það eru allir svo
glaðir og þakklátir þegar það ger-
ist,“ segir Össur.
Össur selur Össuri
Morgunblaðið/Ómar
Stoðtæki Össur hf. hefur keypt nýsköpunarfyrirtæki af stofnanda sínum.
OK Prosthetics ehf. komið í eigu Össurar hf. Fyrirtækið
hefur smíðað yfir 3000 fætur á fólk á stríðshrjáðum svæðum
Í ViðskiptaMogganum í gær sagði
Jón Þór Sturluson, aðstoðarfor-
stjóri Fjármálaeftirlitsins, að
Kortaþjónustan héldi nú lengur
eftir fyrirframgreiðslum viðskipta-
manna sinna en hún gerði fyrir
áfallið sem félagið lenti í þegar
breska lágfargjaldaflugfélagið
Monarch fór í greiðslustöðvun.
Aðspurður hvort þessar breyt-
ingar hefðu áhrif á rekstur WOW
air, sem er viðskiptavinur Korta-
þjónustunnar, segir Skúli Mogen-
sen, forstjóri félagsins, að WOW
air hafi verið byrjað að færa er-
lendar færslur til annarra
greiðslufyrirtækja áður en til skil-
málabreytinganna kom. „Korta er
í dag með innan við 20% af okkar
færslum og þá fyrst og fremst ís-
lensk kort,“ segir Skúli.
Í svari Svanhvítar Friðriks-
dóttur, upplýsingafulltrúa WOW
air, við fyrirspurn Morgunblaðsins
um hvenær WOW hafi byrjað að
færa færslur til annarra fyr-
irtækja og hvort þeir aðilar bjóði
upp á sambærileg kjör og Korta-
þjónustan, kemur fram að WOW
air hafi verið með fleiri en einn
færsluhirði erlendis í þó nokkurn
tíma og muni halda því áfram en
að samningar um kjör séu mis-
munandi eftir færsluhirðum og
trúnaðarmál hvaða kjör séu í boði
hverju sinni.
Færðu sig annað
20% af færslum WOW hjá Korta
Kort WOW notar Kortaþjónustuna í dag einkum fyrir íslensk kort.
10. nóvember 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 105.58 106.08 105.83
Sterlingspund 138.52 139.2 138.86
Kanadadalur 82.83 83.31 83.07
Dönsk króna 16.443 16.539 16.491
Norsk króna 12.919 12.995 12.957
Sænsk króna 12.588 12.662 12.625
Svissn. franki 105.68 106.28 105.98
Japanskt jen 0.9288 0.9342 0.9315
SDR 147.93 148.81 148.37
Evra 122.41 123.09 122.75
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.8569
Hrávöruverð
Gull 1282.25 ($/únsa)
Ál 2103.0 ($/tonn) LME
Hráolía 63.69 ($/fatið) Brent
● Greiningardeild
Arion banka spáir
því að stýrivextir
haldist óbreyttir í
4,25% þegar pen-
ingastefnunefnd
Seðlabankans til-
kynnir vaxta-
ákvörðun sína í
næstu viku. Í
markaðspunktum
greiningardeildar
bankans segir að það sem mæli
helst með óbreyttum vöxtum sé það
að aðhald peningastefnunnar hafi
slaknað ef eitthvað er, enda hafi
verðbólgan aukist úr 1,4% í 1,9% í
október. Þá hafi aðrir áhrifaþættir lít-
ið breyst.
Í markaðspunktunum er þó ekki
útilokað að vextir verði lækkaðir í
ljósi þess að vaxtalækkunin í októ-
ber hafi komið flestum á óvart og
verið í talsverðri mótsögn við fyrri
orð nefndarinnar.
Greiningardeild Arion
spáir óbreyttum vöxtum
Arion Segja aðhald-
ið hafa slaknað.
STUTT
eldu á milli fimm girnilegra tegunda
f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru
ægilegir, ljúffengir og fljótlegir.
ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS
V
a
þ
Hagnaður Íslandsbanka á þriðja árs-
fjórðungi nam 2,1 milljarði króna eftir
skatta samanborið við 2,5 milljarða á
sama tímabili í fyrra og lækkar því
um 16% á milli fjórðunga. Arðsemi
eigin fjár bankans var 4,7% á tíma-
bilinu samanborið við 5,1% á sama
tímabili í fyrra.
Hreinar vaxtatekjur bankans voru
7,5 milljarðar á ársfjórðungnum og
vaxtamunurinn var 2,8% en á sama
ársfjórðungi síðasta árs voru hreinar
vaxtatekjur 7,8 milljarðar og vaxta-
munurinn 3%. Hreinar þóknunar-
tekjur tímabilsins hækkuðu aftur á
móti í 3,3 milljarða króna samanborið
við 3,2 milljarða í fyrra.
Fyrstu níu mánuði ársins hefur Ís-
landsbanki hagnast um 10,1 milljarð
króna eftir skatta samanborið við 15,6
milljarða á sama tímabili síðasta árs
en sá munur skýrist aðallega af ein-
skiptishagnaði af sölu Borgunar á
hlutum í Visa Europe í fyrra.
Heildareignir bankans voru 1.078
milljarðar en útlán til viðskipta og
lausafjársafn bankans voru 96% af
stærð efnahagsreiknings við lok tíma-
bilsins.
Morgunblaðið/Ófeigur
Rekstur Arðsemi eigin fjár bankans
var 4,7% á þriðja ársfjórðungi.
Hagnaður
dregst
saman
Íslandsbanki hagn-
aðist um 2,1 milljarð