Morgunblaðið - 10.11.2017, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
EITT
ER VÍST: ALNO
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti
íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn
auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl.
20, 1. desember 2017. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@byggdastofnun.is og
bréflega á póstfangið Byggðastofnun v/AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Ártorgi 1, 550
Sauðárkrókur. Vakin er athygli á því að umsóknum þarf bæði að skila rafrænt og bréflega.
Styrkir sem sjóðurinn veitir
falla undir tvo flokka:
a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna
Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunar-
verkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur
er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera
grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur
getur numið allt að tólf milljónum króna.
Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verk-
efna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri
tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um
styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt,
þarf að gera grein fyrir framvindu þess áður en
styrkumsókn er afgreidd.
b. Smá- eða forverkefni
Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða
til að undirbúa stærri verkefni á sviði rannsókna og/
eða þróunar. Styrkupphæð er allt að einni milljón
króna og skal verkefnið unnið innan tólf mánaða.
Um alla styrki gildir að framlag
sjóðsins má ekki fara fram
yfir 50% af heildarkostnaði og
sjóðurinn tekur ekki þátt í að
styrkja fjárfestingar
Nánari upplýsingar og
umsóknarblað er að finna á
heimasíðu sjóðsins www.avs.is
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Ártorgi 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 455 5400 ∙ www.avs.is
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi
starfar á vegum Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytis
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi
auglýsir eftir umsóknum
Sýrlenskar hersveitir náðu bænum
Albu Kamal á sitt vald í gær, en hann
var síðasta vígi hryðjuverkasamtak-
anna Ríkis íslams á sýrlenskri grund.
Lítið er eftir af því landsvæði sem
samtökin héldu á hátindi valda sinna í
bæði Írak og Sýrlandi, og er talið að
skæruliðar samtakanna hafist nú við í
felum í eyðimörkum Sýrlands.
Vígamenn andsnúnir Ríki íslams
hófu sókn sína inn í bæinn á miðviku-
daginn áður en sýrlenski stjórnar-
herinn kom þeim til aðstoðar. Voru
bardagar sagðir harðir, en þó voru
úrslit þeirra fyrirsjáanleg frá upp-
hafi.
„Frelsun Albu Kamal er mikilvæg,
þar sem hún táknar fall hryðjuverka-
samtakanna í þessum heimshluta,“
sagði í opinberri tilkynningu sýr-
lenska hersins, sem flutt var í rík-
isfjölmiðlinum SANA.
Enn óvíst um örlög Abu Bakr
Skæruliðar samtakanna flúðu í
norðurátt frá Albu Kamal í átt að
Deir Ezzor, en þar hafa hersveitir
Kúrda sótt að Ríki íslams með stuðn-
ingi Bandaríkjanna. Má segja að
flóttinn frá Albu Kamal marki loka-
hnykk samstillts átaks gegn Ríki ísl-
ams sem staðið hefur yfir frá því í
haust, þar sem hersveitir í Írak og
Sýrlandi hafa sótt fram gegn samtök-
unum með stuðningi Rússa og Írana
annars vegar og Bandaríkjamanna
og bandamanna þeirra hins vegar.
Bæði Raqqa, hin óopinbera „höfuð-
borg“ samtakanna og Mósul, stærsta
borgin sem þau náðu á vald sitt féllu í
því átaki. Er talið að geta samtak-
anna til þess að ná undir sig land-
svæði hafi verið stórlega skert, og að
vígamenn samtakanna muni neyðast
til þess að beita skæruliðaaðferðum í
náinni framtíð.
Enn er hins vegar allt á huldu um
örlög helstu forvígismanna samtak-
anna, þá einkum Abu Bakr al-Bagh-
dadi, hins sjálftitlaða „kalífa“. Greint
hefur verið frá andláti hans nokkrum
sinnum á undanförnum misserum, en
aldrei hefur tekist að staðfesta að
andlátsfregnirnar hafi verið tíma-
bærar.
Stórsóknin gegn Ríki íslams hefur
þó einnig haft sínar skuggahliðar, þar
sem almennir borgarar hafa lent á
milli stríðandi fylkinga og jafnvel
neyðst til þess að leggja á flótta.
Þannig hafa um 120.000 manns
neyðst til þess að flýja heimili sín í
Albu Kamal síðan sókn Sýrlandshers
gegn bænum hófst.
Síðasta vígi Ríkis íslams í Sýrlandi fallið
Talið að síðustu skæruliðar samtak-
anna muni hafast við í eyðimörkinni
AFP
Bardagar Íraskir hermenn stóðu vörð við Al-Qaim landamærastöðina til
þess að varna því að skæruliðar Ríkis íslams flýðu inn í Írak frá Albu Kamal.
Madríd. AFP | Fyrrverandi forseti
héraðsþings Katalóníuhéraðs var
dreginn fyrir hæstarétt Spánar í
gær í nýjasta dómsmálinu sem sótt
hefur verið á hendur þeim sem
leiddu tilraun
héraðsstjórn-
arinnar til þess að
lýsa yfir sjálf-
stæði í síðasta
mánuði.
Þingforsetinn,
Carme Forcadell,
verður hugsan-
lega dæmd í varð-
hald ásamt fimm
öðrum þingmönn-
um héraðsins á
grundvelli ákæru um að þau hafi
hvatt til liðhlaups, ýtt undir byltingu
og misnotað almannafé þegar kata-
lónska þingið samþykkti sjálfstæð-
isyfirlýsinguna hinn 27. október síð-
astliðinn, en sú ákvörðun var ógilt af
stjórnlagadómstóli Spánar á mið-
vikudaginn.
Katalóníudeilan hefur ýtt undir
flótta fjölmargra fyrirtækja frá hér-
aðinu, auk þess sem hún er sögð
hafa valdið ugg innan Evrópusam-
bandsins, sem sé enn í basli með þá
ákvörðun Breta að yfirgefa það.
Allsherjarskyndiverkfall var boð-
að á miðvikudaginn í mótmælaskyni
og olli það gríðarlegum töfum hjá
ferðalöngum, þar sem helstu um-
ferðaræðar á milli Frakklands og
Spánar voru stíflaðar, auk þess sem
lestarferðir frá Barselóna til Par-
ísar, Marseille og Lyon stöðvuðust.
Höfðu aðgerðirnar áhrif á um
150.000 manns samkvæmt áætl-
unum lögreglunnar.
Mótmæli á báða bóga
Mótmælt var fyrir framan dóms-
hús hæstaréttar, þar sem stuðnings-
menn og andstæðingar sjálfstæðis
héldu á borðum og hrópuðu vígorð.
Kröfðust andstæðingar sjálfstæðis
þess að Carles Puigdemont, fyrrver-
andi leiðtoga heimastjórnarinnar,
yrði varpað í fangelsi fyrir að hafa
hvatt til sjálfstæðisyfirlýsingarinnar
ólöglegu. Puigdemont er nú í sjálf-
skipaðri útlegð í Brussel, höfuðborg
Belgíu, en hann á að mæta fyrir dóm
á Spáni í næstu viku.
Forseti héraðs-
þingsins í haldi
Puigdemont á að mæta í næstu viku
AFP
Mótmæli Samgöngur til og frá
Barselóna stífluðust í fyrradag.
Carme
Forcadell
Áfrýjunardóm-
stóll í Máritaníu
úrskurðaði í gær
að dauðadómur
yfir blogg-
aranum Moha-
med Cheikh Ould
Mkhaitir yrði
mildaður í
tveggja ára fang-
elsi. Mkhaitir var
upphaflega sak-
felldur fyrir guðlast og höfðu
mannréttindasamtök mótmælt
mjög væntanlegri aftöku hans.
Mkhaitir verður hins vegar lát-
inn laus fljótlega, þar sem hann
hefur nú þegar setið inni í meira en
tvö ár. Áfrýjunardómstóllinn ákvað
einnig að sekta hann um 60.000
ouguíur, eða sem nemur tæpum
170 bandaríkjadölum. Fagnaði lög-
fræðingur Mkhaitirs niðurstöðunni
mjög og sagði hana sigur fyrir
bæði landslög og trúarbrögðin ísl-
am.
MÁRITANÍA
Dauðadómi breytt í
tveggja ára fangelsi
Mohamed Cheikh
Ould Mkhaitir