Morgunblaðið - 10.11.2017, Side 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
Eftir nýafstaðnar
kosningar til Alþingis
er ljóst að nýr aðili
tekur við stjórn-
artaumunum í
heilbrigðismálum
þjóðarinnar. Þegar
þetta er ritað er ekki
ljóst hver fær það
mikilvæga hlutverk.
Miðað við umræðuna
fyrir kosningarnar,
þar sem heilbrigðismál voru of-
arlega á baugi hjá öllum, er ljóst
að nú er tækifæri til að gera betur
í málaflokknum.
Aukið fjármagn
er nauðsynlegt
Í dag verjum við um 8,9% af
vergri þjóðarframleiðslu til heil-
brigðismála en gróflega séð ver
ríkið um 25% af útgjöldum sínum
til málaflokksins í heild. Þrátt fyr-
ir það stendur Ísland ekki sérlega
vel að vígi séu útgjöldin borin
saman við útgjöld nágrannalanda
okkar því hér er hlutfall af vergri
þjóðarframleiðslu til heilbrigðis-
mála lægst á Norðurlöndum. Ég
held að allir séu orðnir sammála
um að aukið fjármagn þurfi til
öldrunar- og heilbrigðisþjónustu.
Margir stjórnmálamenn töluðu
þannig í aðdraganda kosninga og
rétt er að minna á stærstu undir-
skriftasöfnun Íslandssögunnar
sem fram fór í fyrra á vegum
Kára Stefánssonar þar sem þess
var krafist hlutfallið yrði aukið í
11%. Nálega 87 þúsund lands-
manna skrifuðu undir yfirlýsingu
Kára.
Þetta er staðan í dag. Á sama
tíma gerir Hagstofa
Íslands ráð fyrir að
árið 2020, eftir aðeins
þrjú ár, muni ein-
staklingum, 75 ára og
eldri, hafa fjölgað hér
á landi um 35% frá
2012. Íslendingum
mun fjölga um 33% til
2060 þegar lands-
menn verða orðnir
430 þúsund. Í dag eru
landsmenn 67 ára og
eldri rúm 10% þjóð-
arinnar. Þeir verða
yfir 18% árið 2040 og er gert ráð
fyrir að 67 ára og eldri fjölgi um
30% á hverju tíu ára tímabili á
sama tíma. Við sem störfum í
öldrunarþjónustu sjáum fram á að
þeim sem njóta öldrunarþjónustu
muni fjölga um 2-3% á hverju ein-
asta ári á næstu árum og áratug-
um. Það er því alveg ljóst að
meira fjármagn þarf til öldr-
unarmála, bara til að viðhalda
sama þjónustustigi og var árið áð-
ur því við þessa fjölgun bætast
launahækkanir heilbrigðisstétta,
vísitöluhækkanir og fleira. Þegar
allir þessir þættir hafa verið leið-
réttir verður fyrst hægt að átta
sig á því hvort raunverulegar
hækkanir á fjárframlagi hafa orðið
milli ára. Það getur því stundum
verið þreytandi fyrir stjórnendur
heilbrigðisþjónustunnar þegar
stjórnmálamenn stæra sig af
auknum fjárframlögum milli ára –
sem vissulega hafa hækkað í krón-
um talið – en raunhækkanir eru
litlar sem engar.
Ekki sjálfgefið að aukið fjár-
magn auki gæði og þjónustu
Áður en lengra er haldið er
nauðsynlegt að benda á að það er
alls ekki sjálfgefið að aukið fjár-
magn bæti heilbrigðisþjónustuna.
Við, stjórnendur og starfsfólk,
þurfum sífellt að leita leiða til að
finna út hvort eitthvað í fram-
kvæmdinni, verkferlum eða þjón-
ustunni megi gera betur. Því ferli
lýkur aldrei. Eftir efnahagshrunið
árið 2008 hefur verið mikið unnið í
slíkum málum. Að mínu mati eru
einnig ennþá ónýttir miklir sam-
þættingarmöguleikar í veitingu
heilbrigðisþjónustunnar hér á
landi. Því miður er heilbrigðis-
kerfinu enn skipt í of margar ein-
ingar þar sem skortir á samskipti
og flæði, stundum á kostnað lífs-
gæða skjólstæðinganna. Þar er
hægt að sækja ýmsar góðar hug-
myndir til nágrannalanda og að-
laga og innleiða Íslendingum til
hagsbóta.
Ég sakna þess jafnframt að ekki
skuli til dæmis vera fyrir löngu
búið að blása miklu kröftugar til
eflingar á hreyfingu aldraðra og
endurhæfingarstarfsemi af ýmsu
tagi sem auka lífsgæði og seinka
þörf fyrir dvöl á hjúkrunarheimili
eða sjúkrahúsum. Þessir þættir,
sem og eðlileg fjölgun hjúkr-
unarrýma fyrir þá sem þurfa á
mikilli þjónustu að halda, hafa í
för með sér mikinn þjóðhagslegan
sparnað og betri nýtingu ríkis-
útgjalda sem eru á meðal meg-
inviðfangsefna á vettvangi stjórn-
málanna.
Nú hafa stjórnmálamenn lands-
ins tækifæri til að sýna í verki
raunverulegan vilja til breytinga í
heilbrigðismálum. Það er ekki nóg
að tala en benda svo á einhvern
annan þegar kemur að því að
standa við stóru orðin.
Brettum upp ermar í heilbrigð-
ismálum – nú er tækifærið
Eftir Pétur
Magnússon » Það er ekki nóg að
tala en benda svo á
einhvern annan þegar
kemur að því að standa
við stóru orðin.
Pétur Magnússon
Höfundur er forstjóri Hrafnistuheim-
ilanna.
petur.magnusson@hrafnista.is
Atvinna
Allt um sjávarútveg
VINNINGASKRÁ
28. útdráttur 9. nóvember 2017
798 8772 17252 28815 40689 49872 58528 69165
867 8848 17278 28976 40702 50132 58547 69244
964 8936 18302 29072 41080 50164 58924 69460
1621 9090 18624 29145 41306 50431 58998 70109
1650 9149 18938 29698 41370 50510 59104 70752
1658 9594 19256 31181 41377 50555 59625 71093
2164 9633 19345 31718 41984 50644 59826 71268
2310 10008 19365 31724 42128 50773 60808 71817
2449 10262 20399 31915 42287 50855 60935 72186
2592 10281 20523 32344 42487 51007 61818 72577
2872 10437 20530 32503 43241 51304 62041 72961
2989 10460 21081 32965 43739 51501 62266 73679
3016 10559 21431 33130 44067 52102 62887 74361
3095 10652 21634 33234 44301 52335 62925 74894
3172 10714 22332 33538 44377 52385 63392 74985
3257 10809 22468 34194 44379 52638 63526 75414
3296 11278 22899 34425 44554 52657 64159 75499
3586 11787 23585 35129 44562 52705 64234 76363
3618 12160 23789 35332 45452 53328 64309 76676
4544 12343 24257 35450 45453 53335 64692 77966
4945 12439 24402 35956 45624 53726 64863 78211
5215 12529 24498 36380 45675 53968 65095 78369
5256 13300 24705 36792 46233 54181 65247 78696
5381 13780 25001 37183 46454 54492 65617 78900
5518 13824 25045 37846 46673 55587 65928 79183
5645 13930 25082 37866 46934 55759 66093 79257
6243 14504 25518 38166 47026 55908 66941 79543
6726 14651 25790 38344 47337 55989 67030 79651
6784 14989 25801 38832 47432 56020 67037 79901
6965 15025 26290 39023 47557 56068 67070 79928
7235 15259 26325 39151 48002 56259 67340 79987
7727 15732 26333 39166 48351 56366 67428
8141 15793 26540 39614 48376 56386 68013
8556 16139 27150 40147 48639 57024 68356
8579 16329 27472 40195 49036 58068 68590
8672 16957 27924 40198 49276 58101 68628
8674 17215 28765 40661 49464 58188 69078
420 8611 19051 29375 45341 53829 61656 67638
2014 9116 19363 30549 48119 54179 61686 67751
2759 9714 19452 31815 48334 54826 61830 68477
3046 10193 19481 32618 48653 55689 62040 73279
4765 10587 19511 34494 48750 56559 62185 73296
5028 12131 19850 34764 49923 57257 63142 74510
5696 12357 21869 36002 50267 57401 64023 75451
5757 12528 22607 36191 50305 58132 65136 76273
6148 13490 23699 37043 52030 59357 65295 76753
6628 15634 23964 40781 52465 60641 66173
6866 17739 25055 41619 52912 60837 66496
6982 18428 26297 41665 53005 61306 67071
7307 19010 28259 43052 53545 61529 67545
Næstu útdrættir fara fram 16., 23. & 30. nóvember 2017
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
12513 15781 39841 64361
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
7118 10189 21021 35456 42370 57275
7902 10804 25714 37411 45901 58781
8897 11991 27113 39334 47947 68390
10151 18038 28627 39736 54192 74323
Aðalv inningur
Kr. 3.000.000 Kr. 6.000.000 (tvöfaldur)
1 7 3 2 0
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
STELPUR
KONUR
STAÐURINN
RÆKTIN
Ekki eftir
neinu að bíða!
Síðustu TT – námskeiðin fyrir jól
hefjast 19. nóvember
Tökum mataræðið og ræktina föstum
tökum og fyllum okkur af orku og léttleika!
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.