Morgunblaðið - 10.11.2017, Page 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
✝ Lára Jóns-dóttir fæddist
í Borgarnesi 4.
nóvember 1942.
Hún lést á heimili
sínu 31. október
2017.
Foreldrar henn-
ar voru Jón
Úlfarsson bifreið-
arstjóri, f. 20.
ágúst 1912, d. 12.
september 1981,
og Guðlaug Sigurjónsdóttir
húsmóðir, f. 12. apríl 1918, d.
31. maí 2007. Systkini hennar
eru Úlfar Gunnar, f. 1936, d.
2014, Rannveig, f. 1944, Sig-
urjón, f. 1945, Ásta, f. 1947,
Anna, f. 1949, d. 2017, Jóna, f.
1951, Baldur, f. 1953, Ragnar,
f. 1954, og Hulda, f. 1958.
Lára giftist 25. desember
1964 Magnúsi Guðbrandssyni,
f. 26.3. 1938. Foreldrar hans
voru Guðbrandur Magnússon
bóndi, f. 4. nóvember 1894, d.
24. október 1973, og Bjargey
Guðmundsdóttir húsfreyja, f.
14. nóvember 1910, d. 29.
ágúst 1970. Börn Láru og
Magnúsar eru: 1) Bjargey
Magnúsdóttir, f. 1963, gift
Þórði Sigurðssyni, f. 1961.
Þeirra börn eru: a) Magnús
Óskar, f. 1983, kvæntur Sig-
rúnu Ástu Brynjarsdóttur, f.
1995. Barn þeirra er Emma, f.
2017, d. 2017. b) Atli Örn, f.
1987, í sambúð með Sarah
Skindbjerg Larsen, f. 1990 c)
Eyþór Orri, f. 1992 d) El-
ínborg Ósk, f. 1994, e) Hörður
Óli, f. 1997. 2) Guðbrandur
Magnússon, f. 1964, kvæntur
Margréti Þórðardóttur, f.
1967, þau skildu.
Börn Margrétar
eru Hermundur, f.
1983, Hanna Dóra,
f. 1993, Elín
Björg, f. 1995, og
Helga Þóra, f.
1998. 3) Sig-
urbjörn Guðlaugur
Magnússon, f.
1966, kvæntur
Katrínu Gísladótt-
ur, f. 1975. Börn
þeirra eru Kristín Perla, f.
1994, Inga Dóra, f. 2000, Haf-
dís Lóa, f. 2004, og Gísli, f.
2006. 4) Jón Magnússon, f.
1967. 5) Jófríður Magnús-
dóttir, f. 1970, gift Hannesi
Gunnari Guðmundssyni, f.
1964. Börn þeirra eru Jónas
Þór, f. 1995, Gunnar Helgi, f.
1997, og Sesselja Lára, f. 2003.
5) Sigríður Herdís Magnús-
dóttir, f. 1971. Sonur hennar
er Magnús Heiðar Sigríðarson,
f. 2004. 6) Hákon Magnús
Magnússon, f. 1983.
Lára ólst upp í Borgarnesi í
stórum systkinahópi, gekk í
barnaskóla Borgarness og síð-
ar í gagnfræðaskóla Borgar-
ness, var hálfan vetur í Hús-
stjórnarskóla Reykjavíkur.
Lára fluttist að Álftá 18 ára
gömul og vann nánast allan
sinn starfsaldur sem húsmóðir.
Hún starfaði mikið við fé-
lagsmál, var lengi í Kvenfélagi
Hraunhrepps, var í barna-
verndarnefnd og sat í kjör-
stjórn Lyngbrekkukjördeildar.
Útför Láru fer fram frá
Borgarneskirkju í dag, 10.
nóvember 2017, og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Amma Lára, þegar ég segi
þessi orð brosi ég alltaf út að eyr-
um. Því einu minningarnar sem
ég á um ömmu vekja fram hlátur
og gleði. Fyrir utan kannski eina
og eina, þá aðallega ef við krakk-
arnir vorum óþekk. Amma var
einstök kona sem vissi nákvæm-
lega hvernig hún vildi hafa hlut-
ina. Amma var líka mjög vana-
föst, við barnabörnin fengum til
dæmis alltaf varma sokka í jóla-
gjöf. Allir fengu alltaf sama lit ár
eftir ár. Ég er svo þakklát fyrir
tímann sem við fengum saman í
sumar, þegar ég lánaði henni her-
bergið mitt. En mest af öllu er ég
þakklát fyrir að hafa fengið að
vera ömmubarnið hennar í 23 ár.
Þótt við amma værum ekki sífellt
að tjá tilfinningar okkar vissum
við samt báðar að okkur þótti
vænt um hvort aðra. Elsku amma
mín, ég græt yfir tímanum sem
við fáum ekki lengur saman, en
gleðst yfir tímanum sem við höfð-
um saman. Ég vona að hvar sem
þú ert núna, amma, líði þér vel og
fylgist með genginu þínu úr fjar-
lægð. Takk fyrir allt. Hvíldu í
friði, elsku amma.
Elínborg Ósk Þórðardóttir.
Lára
Jónsdóttir
✝ Ólöf GuðnýÓlafsdóttir
fæddist að Helgu-
stöðum í Helgu-
staðarhreppi 17.
mars 1921. Hún
lést á Sjúkrahúsinu
í Neskaupstað 6.
nóvember 2017.
Foreldrar hennar
voru hjónin Ólafur
Helgason bóndi frá
Kirkjubóli í Vöðla-
vík, f. 20. janúar 1882, og
Guðný Stefánsdóttir frá Selja-
teigi við Reyðarfjörð, f. 5. nóv-
ember 1881. Ólöf var næst
yngst eftirtalinna systkina:
Gunnlaugur, Helgi, Stefán,
Eggert, Magnús og Unnur. Ólöf
ellefu barna auðið; Eggert
Gunnþór, f. 1943, áður giftur
Berglíni Bergsdóttur f. 1945, d.
9. nóvember 1995, seinni kona
Ragnheiður Valdimarsdóttir,
þau slitu samvistum. Ólöf, f.
1944, gift Guðjóni Ólafssyni,
Sjöfn, f. 1946, í sambúð með
Heiðbergi Hjelm, Lars, f. 1947,
giftur Stefaníu Aronsdóttur,
Ólafur, f. 1953, giftur Jónu
Björgu Jónsdóttur, Jón, f. 1954,
giftur Þórunni Einarsdóttur,
Gunnar, f. 1956, giftur Að-
alheiði H. Hávarðardóttur, Val-
geir, f. 1958, d. 4.4. 1988, sam-
býliskona Ásta S. Gylfadóttir,
Eysteinn, f. 1960, giftur Pet-
rúnu Jónsdóttur, þau slitu sam-
vistum, Stefán, f. 1962, giftur
Hrafnhildi Kristjánsdóttur,
Sigurlínus, f. 1963, giftur Láru
Bjarney Kristinsdóttur. Afkom-
endur Ólafar eru í dag 105.
Útför Ólafar fer fram frá
Eskifjarðarkirkju í dag, 10.
nóvember 2017, klukkan 14.
giftist 23.maí 1942
Gunnari Larssyni
búfræðingi frá Út-
stekk í Helgustaða-
hreppi, f. 13. októ-
ber 1913, d. 29.
desember 1978.
Þau hjónin hófu
búskap að Helgu-
stöðum árið 1942
og bjuggu þar til
ársins 1949 þegar
þau fluttu bú sitt
að Sigmundarhúsum í
Helgustaðarhreppi og bjuggu
þar allan sinn búskapartíma.
Síðustu ár dvaldi Ólöf á dvalar-
og hjúkrunarheimilinu Upp-
sölum á Fáskrúðsfirði.
Þeim Gunnari og Ólöfu varð
Ein mín dýrmætasta perla
hefur kvatt mig í hinsta sinn,
hún Olla amma og nafna mín.
Það er eitthvað svo einkennilegt
að hugsa sér líf án hennar, hún
var svo stór hluti af lífi okkar
stórfjölskyldunnar. Olla amma,
eins og við öll kölluðum hana,
var með hjarta úr gulli, alltaf
svo jákvæð og sá allt það góða í
hverri manneskju. Aldrei heyrði
ég hana segja neitt ljótt um
nokkurn mann og neikvæðni
var ekki til í hennar lífi þótt
langt væri.
Margs er að minnast og
þakka fyrir að hafa átt hana að.
Ég var eins og farfuglarnir,
kom austur í sveitina til ömmu
og afa á vorin og fór ekki suður
aftur fyrr en hausta tók. Á ég
margar yndislegar minningar
frá þessum æskuárum og ótrú-
legt er að þau skyldu gefa okk-
ur barnabörnunum kost á að
koma í sveitasæluna á Sig-
mundarhúsum. Þau áttu ellefu
börn sjálf en samt var enda-
laust pláss og þolinmæði fyrir
barnabörnin og allt gert fyrir
okkur svo okkur liði vel. Miðað
við þessa upptalningu gætu
flestir ímyndað sér að þau hafi
búið í höll en svo var nú aldeilis
ekki. Ekkert rennandi heitt
vatn, vatnið sem notað var við
uppvask og til að þvo okkur
börnunum var soðið á sólóelda-
vélinni, engin þvottavél allt soð-
ið á vélinni í potti, farið svo með
allt út í Stóralæk og þvotturinn
skolaður þar, farið með allt inn
aftur í vindingu og loks út á
snúru og girðingu. Aldrei
heyrði ég ömmu kvarta um að
þetta væri erfitt þó að við vær-
um 10-15 í heimili, í dag heitir
þetta bændagisting. Alla
morgna fengum við heitan
hafragraut, súrt slátur og lifr-
arpylsu, heimabakað súrbrauð
og ekki má gleyma kryddbrauð-
inu hennar sem allir elska og
þriðji ættliður er farinn að baka
og fjórði ættliður farinn að
borða. Við krakkarnir eyddum
mörgum stundum á klöppunum
við veiðar og allur aflinn var
nýttur, ufsabollurnar hennar
ömmu voru lostæti. Hún amma
var ekki bara við sólóeldavélina
að steikja kleinur, baka brauð
eða elda ofan í marga munna,
hún tók fullan þátt í búverk-
unum líka. Fim var hún við
hrífuna og ekki má gleyma hvað
hún var fljót að mjólka kýrnar,
og seinni árin var hún dugleg
með heklunálina og prjónana
sína sem litlir puttar og fætur
fengu í jólapakkann. Amma var
alltaf svo fín og falleg, hún not-
aði hvert tækifæri sem gafst til
að klæðast þjóðbúningnum sín-
um og var hrókur alls fagnaðar
hvert sem hún fór og gleði
skein úr andliti hennar. Ég var
svo heppin að finna lífsförunaut
héðan úr firðinum okkar fagra
þannig börnin mín fengu að
njóta góðmennsku og hlýju
hennar og síðar barnabörnin
okkar. Afkomendur ömmu eru
orðnir 105 og vissi hún um alla
afmælisdaga og fylgdist alltaf
vel með sínu fólki, hvar sem það
var statt í lífinu. Það verður
mér skrítið að geta ekki lengur
kallað amma, eins og ég hef
gert í rúm fimmtíu ár, en mun
ylja mér við síðasta kallið mitt,
amma amma heyrirðu í mér, og
þú opnaðir aðeins augun fyrir
mig á sjúkrahúsinu í Neskaup-
stað. Þetta augnablik er mér
dýrmætt eins og allt sem þú
hefur gefið mér og mínu fólki í
lífinu. Blessuð sé minning henn-
ar. Elsku amma, megir þú hvíla
í friði.
Þín nafna,
Guðný Gunnur Eggerts-
dóttir og fjölskylda.
Olla amma hefur kvatt þetta
tilverustig og haldið inn í sum-
arlandið bjarta. Þar mun henni
fagnað af ástvinum sem sumir
kvöddu alltof snemma.
Mig langar með fátæklegum
orðum að minnast hennar og
þakka fyrir það sem ég ekki
náði fyllilega að koma orðum að
meðan á jarðvist hennar stóð.
Olla amma var mér mjög kær
og minnisstæð enda stór hluti
af mínu uppeldi þar sem ég
dvaldi sumarlangt í gegnum
flest uppvaxtarárin hjá henni í
Sigmundarhúsum. Konan var
gerð úr gulli og alveg sama
hvað hún tók sér fyrir hendur
þá féll henni aldrei verk úr
hendi. Hún var alltaf trú sínum
og studdi sitt fólk með hverju
því sem hún hafði að gefa.
Skipti ekki máli hvort það var
sem uppalandi eigin barna, af-
kvæma þeirra, enn síðar lang-
ömmubarna og langalangömmu-
barna. Sigmundarhús var eins
og margur sveitabær fyrri tíma
fullur af lífi og áskorunum.
Þarna var yndislegt að vera og
þótt heimilið væri stórt og efnin
ekki mikil þá leið aldrei neinn
skort sem heimsótti ömmu,
hvorki veraldlegan né andlegan.
Allir nutu ástúðar og umhyggju
húsfrúarinnar og hún passaði
vel upp á að enginn upplifði sig
sem afgangsstærð í leik og
starfi. Hennar dagar voru lang-
ir og vinnusemi og elja var ein-
stök, hún var að frá morgun-
mjöltum og þar til síðasti maður
gekk til svefns. Alltaf fyrst upp
á morgnana og síðust í koju.
Umbun hennar lífsstarfs og á
hvern hátt mönnum er launað
erfiðið fannst mér endurspegl-
ast í hamingju hennar með
stóðið sitt. Allan þann hóp af
fyrirmyndarfólki sem hún hefur
átt með einum eða öðrum hætti
þátt í að móta. Með fjölskyld-
unni leið henni best og hún fór
alltaf extra míluna þegar kom
að henni.
Flest okkar, sem hana nú
kveðjum, kannast við að hafa
horft á afkvæmi okkar opna
gjafir frá gömlu konunni þar
sem hún hafði af ástúð og natni
lagt sitt í að prjóna flíkur á
barnaskarann. Ómældur tími
fór í þetta sem hún elskaði að
gefa af sér. Ég er ömmu ávallt
þakklátur fyrir þá visku,
raunsæi, reynslu og ástúð sem
hún lagði á vogarskálarnar að
koma mér til manns. Hún
kenndi manni þann lærdóm að í
lífinu eru vandamál ekki vanda-
mál heldur tækifæri til að gera
betur en áður og hver hindrun á
þeirri leið eykur einungis
þroska okkar sem einstaklinga.
Olla amma var yndisleg kona
sem aldrei sáði neinu nema því
sem gaf gott af sér og það eru
orð að sönnu að enginn veit
hvað átt hefur fyrr en misst
hefur. Ég er innilega þakklátur
fyrir hversu hraust og hress
hún ávallt var og hversu gott og
langt líf hún fékk til að gefa af
sér.
Á morgun er nýr dagur og er
ég þakklátur fyrir það vega-
nesti sem hún lét mér í té. Þess
fróðleiks og þeirrar visku munu
afkvæmi mín fá að njóta, þótt
vissulega hefði mér þótt vænna
um þau hefðu kynnst henni bet-
ur og séð þann persónuleika
sem ég kynntist.
Amma hefur nú haldið á önn-
ur mið. Við vitum í hjarta okkar
að hún er og verður ávallt með-
al okkar og ætti það að styrkja
okkur.
Farvel, elsku Olla amma, ég
á óteljandi minningar sem ylja
hjartarætur og er þakklátur
fyrir allt.
Gunnar Guðjónsson.
Ólöf Guðný
Ólafsdóttir
✝ GuðmundurÓlafsson fædd-
ist 8. október 1924 á
Vatnsenda í Vill-
ingaholtshreppi.
Hann lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði
29. október 2017.
Foreldrar hans
voru Ólafur I. Árna-
son f. 20. mars 1900
að Hurðarbaki og
Ólöf J. Ólafsdóttir f.
27. júlí 1903 á Mjósundi.
Systkini hans voru Guðrún,
Áslaug Margrét, Axel Þórir,
Unnur og Alexía Margrét. Árni
og Jón Ingi lifa systkini sín.
Guðmundur giftist 13. maí
1944 Guðrúnu Vigfúsdóttur, f. 4.
mars 1924, d. 12. maí 2016.
Börn Guðmundar
og Guðrúnar eru
Vigfús L. Guð-
mundsson, Ólöf J.
Guðmundsdóttir,
Þóra Alexía Guð-
mundsdóttir, maki
Kristján Imsland,
Ingvar Guðmunds-
son maki Svava
Mathiesen, barna-
börnin eru 11 og
barnabarnabörnin
eru níu.
Guðmundur og Guðrún
bjuggu allan sinn búskap í Hlíð-
unum. Guðmundur starfaði við
verslunarstörf alla sína tíð.
Útför hans fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 10. nóv-
ember 2017, klukkan 13.
Elsku afi okkar.
Nú er komið að kveðjustund
og kveður þú okkur með hlýjum
og skemmtilegum minningum.
Alltaf fannst þér skemmtilegt að
fá okkur í heimsókn.
Að koma til þín og ömmu er
okkur minnisstætt, þú tókst allt-
af svo vel á móti okkur með bros
á vör.
Ófáar voru stundirnar þar
sem við sátum saman yfir fót-
boltaleikjum og var mikið rætt
og spekúlerað, þú fylgdist vel
með boltaíþróttum og hafðir
sterkar skoðanir.
Ferðirnar í hesthúsið þegar
við vorum yngri voru ómetan-
legar, þar kenndir þú okkur allt
um hestamennsku og skemmti-
legast var að fá að fara í reiðtúr
með afa. Þú varst með sterkt
Valshjarta og var það draumur
þinn að sjá okkur spila í Val-
streyjunni, loksins varð sá
draumur að veruleika. Ekkert
gladdi okkur meira en þegar við
urðum Íslandsmeistarar með
Val í sumar, þessi titill var fyrir
þig, afi.
Með þessum ljóðlínum kveðj-
um við þig, elsku afi.
Þú varst einstakur og munt
þú alltaf eiga stóran stað í hjarta
okkar.
En komin eru leiðarlok og lífsins kerti
brunnið,
og þín er liðin æviönn, á enda skeiðið
runnið.
Í hugann kemur minning mörg og
myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram mörg
ljúf og falleg saga.
Þín vinartryggð var traust og föst og
tengd því sanna og góða,
og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir
fram að bjóða.
Og hjá þér oft var heillastund, við
hryggð varst aldrei kenndur.
Þú komst með gleðigull í mund og
gafst á báðar hendur.
(Höf. ók.)
Þín barnabörn,
Klara, Einar Karl og Davíð.
Guðmundur
ÓlafssonYndislegur eiginmaður minn,
WALTER GUNNLAUGSSON,
hefur verið lagður til hinstu hvílu í
Sóllandinu.
Þakka auðsýnda samúð.
Innilegt þakklæti til starfsfólks Útfararstofu
kirkjugarðanna, Fossvogi, og sr. Þórs Haukssonar
fyrir kærleika.
Anna Lísa Ásgeirsdóttir
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda
samúð, hlýhug og stuðning vegna andláts
elskulegrar móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
STEINUNNAR KRISTÍNAR
GÍSLADÓTTUR,
áður til heimilis að Njálsgötu 102.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Reykjavík fyrir
einstaklega góða umönnun og hlýhug.
Björgvin Sigurðsson Lilja Leifsdóttir
Alda Sigurðardóttir Ómar Kaldal Ágústsson
Sigríður Rúna Sigurðardóttir
og barnabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður, tengdaföður, afa og
langafa,
ALFREÐS KRISTJÁNSSONAR
frá Hrísey.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
hjúkrunarheimilinu Eiri.
Sigurveig Alfreðsdóttir Gunnar H. Hall
Ásta Herdís Hall Einar Guðfinnsson
Alfreð Hall Thi Dar Mwe
Gunnsteinn Hall Yanan Chen
og langafabörn