Morgunblaðið - 10.11.2017, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
Dr. Bolli Bjarna-son, húð- ogkynsjúkdóma-
læknir hjá Útlitslækn-
ingu, á 60 ára afmæli í
dag. Bolli starfar vítt
innan fagsins, við sjúk-
lingamóttöku, rann-
sóknir og kennslu.
Hann starfar mikið
við þann þátt húðlækn-
inga sem fjallar um lýti
eða svokallaðar lýta-
húðlækningar en í þeim
felast alls kyns fegr-
unaraðgerðir á húð. Má
þar nefna meðferðir
gegn örum, hrukkum,
andlitsfellingum, hár-
um, æðasliti í andliti og
á ganglimum, rósroða,
valbrá, húðflúri, slakri
húð hvar sem er á lík-
amanum, fitufellingum,
appelsínuhúð og húð-
sliti svo dæmi séu tekin.
„Útlitslækning var
stofnuð um síðustu aldamót af mér og eiginkonu minni, Ellenu
Flosadóttur tannlækni. Við Ellen störfuðum á tveimur ólíkum stöð-
um lengi vel en sameinuðum starfsemina nýverið undir eitt þak.“
Í frítíma stundar Bolli helst golf. „Ég hafnaði á Spáni fyrir
nokkrum árum í golfskóla fyrir tilstilli vinafólks og þá fór boltinn
að rúlla. Síðan höfum við Ellen spilað golf víða og nýtum oft frítím-
ann í það.
Við komum heim úr golfferð um daginn frá Spáni í tilefni afmæl-
is okkar en Ellen verður fimmtug eftir viku. Þannig höldum við
saman upp á fimmtugsafmæli hennar og sextugsafmæli mitt.“
Svo má ekki gleyma boltanum, en uppáhaldslið Bolla er íslenska
karlalandsliðið í knattspyrnu. „Velgengni liðsins styður mikið al-
mennan áhuga á íþróttum. Ég man þegar ég bjó erlendis að fólk
sem sagðist ekki hafa áhuga á knattspyrnu var farið að hrópa sem
mest og hvetja sitt lið fyrir framan skjáinn þegar landsliðinu gekk
vel á stórmóti, nokkuð sem ég vona að verði einnig á Íslandi.“
Bolli er giftur Ellen Flosadóttur, sérfræðitannlækni og dósent við
tannlæknadeild HÍ. Börn Bolla eru Gunnlaugur, Fannar og Fjalar.
Hann á þrjú barnabörn.
Læknir Bolli Bjarnason.
Vinnur mikið við
að fegra húðina
Bolli Bjarnason er sextugur í dag
J
ensína Andrésdóttir fædd-
ist á Þórisstöðum við
Þorskafjörð í Austur-
Barðastrandarsýslu 10.
nóvember 1909 og ólst
þar upp í foreldrahúsum og mjög
stórum systkinahópi. Systkini
hennar urðu 14 talsins. Öll þeirra
nema eitt náðu fullorðinsaldri og
urðu 52-94 ára.
Þegar Jensína hleypti heimdrag-
anum var hún vinnukona á ýmsum
bæjum við Ísafjarðardjúp í tvo vet-
ur og síðan víðar.
Jensína fór til Reykjavíkur og
lærði þar sauma í einn vetur. Hún
veiktist alvarlega af mænuveiki árið
1955 og lamaðist þá öðrum megin,
náði sér ekki til fulls en gat engu
að síður slegið með orfi og ljá í
sveitinni.
Jensína flutti til Reykjavíkur
Jensína Andrésdóttir saumakona – 108 ára
Á Hrafnistu Jensína hefur búið á Hrafnistu í Reykjavík í 20 ár og sú elsta sem hefur dvalist á Hrafnistu.
Elst núlifandi Íslendinga
og er nýhætt að prjóna
Fjölskyldan Jensína með foreldrum, móðurafa og yngstu systkinum 1920.
Ísafjörður Emma Matthea Hermannsdóttir fæddist 14. október 2016 kl. 17.20.
Hún vó 3.025 g og var 47,4 cm löng. Foreldrar hennar eru Tanja Rut Pálsdóttir
og Hermann Grétar Jónsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Er bíllinn tilbúinn
TUDOR TUDOR
TUDOR er hannaður til þess að þola
það álag sem kaldar nætur skapa.
Forðastu óvæntar uppákomur.
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start me
ð
TUDOR
fyrir kuldann í vetur?
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón