Morgunblaðið - 10.11.2017, Síða 35
snemma á síðustu öld til að aðstoða
systur sína við heimilishaldið þar
en systir hennar eignaðist 12 börn.
Jensína vann um áratuga skeið
hjá nokkrum læknum við að þrífa
læknastofur þeirra. Einnig vann
hún við þrif á nokkrum heimilum í
Reykjavík. Hugur hennar stóð til
að læra hjúkrun en aðstæður henn-
ar á þeim tíma komu í veg fyrir að
sá draumur rættist.
Jensína flutti á Hrafnistu í
Reykjavík árið 1997 og hefur því
átt þar heima í 10 ár.
Jensína hefur alltaf prjónað mik-
ið, sérstaklega fyrir börn, barna-
börn og langömmubörn systra
sinna. Hún prjónaði fram að 104
ára aldri og fannst þá súrt í broti
að þurfa að leggja prjónana á hill-
una.
Fjölskylda
Systkini Jensínu voru Guðbjörg,
f. 21.3. 1893, d. 24.6. 1892; Sig-
urbjörn, f. 1.4. 1894, d. 5.8. 1945,
bóndi í Djúpadal í Gufudalshreppi;
Guðmundur Jóhann, f. 20.4. 1895, d.
11.11. 1968, gullsmiður í Reykjavík;
Vilborg, f. 22.5. 1896, d. 23.3. 1967,
saumakona í Reykjavík; Sigurður
Kristján, f. 28.7. 1897, d. 28.2. 1974,
bóndi í Djúpadal; Ólafur, f. 19.9.
1898, d. 13.1. 1974, afgreiðslumaður
Akraborgarinnar í Borgarnesi; Val-
gerður Elín, f. 17.7. 1902, d. 20.9.
1981, húsfreyja í Fremri-Gufudal
og í Reykjavík; Þórður, f. 25.9.
1903, d. 28.9. 1997, bóndi á Hjöllum
og á Þórisstöðum í Gufudalshreppi;
Jónas Aðalbjörn, f. 27.3. 1905, d.
14.7. 1974, bóndi í Skógum og í
Múlakoti í Þorskafirði, síðar í
Reykjavík; Herborg, f. 26.7. 1906,
d. 20.12. 1978, húsfreyja í Reykja-
vík; Kristján Pétur, f. 20.4. 1908, d.
28.7. 1965, bóndi í Miðhúsum í
Gufudalshreppi, síðar skósmiður í
Stykkishólmi; Fanný Sigurrós, f.
19.3. 1911, d. 6.12. 2005, verkakona
í Reykjavík; Ásgerður Aðalbjörg, f.
12.7. 1914, d. 6.11. 1988, verkakona
í Reykjavík, og Sigríður, f. 22.10.
1915, d. 4.3. 1997, verkakona í
Reykjavík.
Foreldrar Jensínu voru Andrés
Sigurðsson, f. 29.9. 1868, d. 22.11.
1957, bóndi og oddviti á Hjöllum og
á Þórisstöðum í Gufudalshreppi, og
k.h., Guðrún Sigríður Jónsdóttir, f.
17.4. 1870, d. 30.10. 1949, húsfreyja
á Hjöllum og á Þórisstöðum.
Jensína fagnar afmæli sínu með
vinum og ættingjum á Hrafnistu.
Þar hefur enginn náð hærri aldri í
60 ára sögu heimilisins.
Jensína
Andrésdóttir
Valgerður Þórðardóttir
húsfr. á Laugarbóli
Hafliði Guðmundsson
b. á Laugarbóli
Valgerður Hafliðadóttir
húsfr. á Kleifarstöðum
Jón Jónsson
b. á Kleifarstöðum í Gufu-
dalssveit
Guðrún Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Hjöllum og á Þórisstöðum
Helga Guðmundsdóttir
húsfr. á Galtará
Jón Guðnason eldri
b. á Galtará í Gufudalssveit
Sigurður Kristján Andrésson b. í Djúpadal
Guðmundur Jóhann Andrésson gullsm. í Rvík
Ásgerður Aðalbjörg Andrésdóttir verkak. í Rvík
Fanney Sigurrós
Andrésdóttir
verkak. í Rvík
Kolbrún Jóhannsdóttir
húsfr. í Noregi
Ólafía Bjarney
Ólafsdóttir húsfr.
á Breiðabólstað á
Fellsströnd
Ólafur Andrésson
afgreiðslum.
Akraborgarinnar í
Borgarnesi
Kristján Pétur Andrésson
b. í Miðhúsum og síðar
skósmiður í Stykkishólmi
Sverrir
Kristjánsson fyrrv.
fasteignasali
Sigríður Andrésdóttir verkak. í Rvík
Lýður Björnsson
sagnfr. og rithöfundur
Valgerður Elín
Andrésdóttir
húsfr. í Fremri
Gufudal og í
Rvík
Valbjörn Jón
Höskuldsson
yfirvélstj. í
Kóp.
Sigurbjörg
G.S.
Björns-
dóttir
bóka-
safnsfr. í
Kóp.
Vilborg Edda
Jóhannsdóttir
flugfreyja í
Rvík
Vilborg
Andrésdóttir
saumak. í
Rvík
Lydia
Edda Thejl
húsfr. í
Rvík
Jónas Aðalbjörn
Andrésson b.
í Skógum og
í Múlakoti í
Þorskafirði
Ingi Borgþór Jónasson
bifvélavirki í Rvík
Margrét Bjarnadóttir
húsfr. á Veiðileysu og í Kjós
Magnús Andrésson
b. á Veiðileysu og í Kjós
á Ströndum
Jóhanna Magnúsdóttir
húsfr. í Múla og víðar
Sigurður Jónsson
b. í Múla í Þorskafirði og á Tindum í Geiradal
Vigdís Guðbrandsdóttir
húsfr. á Hólum
Jón „Hóladýrðin“ Jónsson
b. á Hólum í Reykhólasveit
Úr frændgarði Jensínu Andrésdóttur
Andrés Sigurðsson
b. og oddviti á Hjöllum og á
Þórisstöðum í Gufudalssveit
Sigurdís Haraldsdóttir
skrifstofum. í Rvík
Jón
Sigurður
Garðars-
son
framkv.stj.
Kyncera
Guðlaug
Sigríður
Haraldsdóttir
húsfr. í Kóp.
Herbjörg
Andrésdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurður Haraldsson
símvirki í Rvík
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2017
Sími 788-2070 / 787-2070 | hotelrekstur@hotelrekstur.is | hotelrekstur.is
Baðvö
rur
HOTELREKSTUR
ALLT Á EINUM STAÐ
Fyrir hótel, gistiheimili, dvalarheimili, veitingahús,
veisluþjónustur, heilsugæslustofnanir o.fl.
108 ára
Jensína Andrésdóttir
95 ára
Þorsteinn Kristjánsson
90 ára
Anna Sveinsdóttir
Þorbjörg Sveinsdóttir
85 ára
Aðalheiður Jónsdóttir
Einar Frímannsson
Gréta Bentsdóttir
Gunnar Valgeir Sigurðsson
Gunnlaugur Indriðason
Hreinn Jónsson
María Steinunn Gísladóttir
80 ára
Halla Valgerður
Stefánsdóttir
Ingibjörg Þorsteinsdóttir
Jóhannes Johannessen
Petrína Rósa Ágústsdóttir
Theódór Árnason
75 ára
Elsa Gjöveraa
Guðlaugur Ólafsson
Jens Eiríkur Helgason
Jóhanna Birna Sigurðard.
70 ára
Birgir J. Sigurðsson
Erna Kristín Júlíusdóttir
Fjóla Jónsdóttir
Guðlaugur Þórisson
Guðmundur Hjörleifsson
Helga Bjarnadóttir
Herdís Petrína Pálsdóttir
Jón Kristján Hannesson
Karl Þórhalli Haraldsson
Margrét Jóhannsdóttir
Ragnar Gylfi Einarsson
60 ára
Bolli Bjarnason
Estiva Birna Björnsdóttir
Guðrún Gísladóttir
Gunnar Egilsson
Hallur Birgisson
Stefán Jóhann Björnsson
Svava Kristbjörg Héðinsd.
Teresa Slabinska
Vigdís Birna Sveinsdóttir
50 ára
Hallgrímur O. Halldórsson
Jóhann Brimir Benónýsson
Jón Veigar Ólafsson
Marteinn Kristjánsson
Sigríður Hrefna Sigurðard.
Soffía Ólafsdóttir
Þórey Erla Gísladóttir
40 ára
Anna Dúna Steinarsdóttir
Ágústa Rós Árnadóttir
Bryan James Anselmo
Elísabet Svanlaug Ágústsd.
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Björk Einarsdóttir
Margrét Gígja Ragnarsd.
Selma Svavarsdóttir
30 ára
Alexander Arndísarson
Arnar Björnsson
Ásgerður M. Þorsteinsd.
Brynjar Björnsson
Elvar Orri Hreinsson
Heiðrún Halldórsdóttir
Helga Lóa Kristjánsdóttir
Hjalti A. Sigurbjörnsson
Hjördís Þórey Sturludóttir
Hrund Hermannsdóttir
Kári Björn Þorleifsson
Kristinn Arnar Svavarsson
Leifur Ingi Vilhelmsson
Sindri Njáll Hafþórsson
Valgerður Guðrún Valsd.
Þóra Margrét Sveinsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Helga Lóa ólst
upp í Kópavogi, býr í
Reykjavík og er tölvunar-
fræðingur hjá 365.
Maki: Valgerður Jóhanns-
dóttir, f. 1988, sjúkraþjálf-
ari.
Systir: María, f. 1982.
Foreldrar: Sjöfn Sigþórs-
dóttir, f. 1956, hjúkr-
unarfræðingur, og Krist-
ján Gunnarsson, f. 1956,
fjármálastjóri hjá Reykja-
víkurborg.
Helga Lóa
Kristjánsdóttir
30 ára Kristinn ólst upp í
Þorlákshöfn og á Selfossi,
býr í Reykjavík, lauk at-
vinnuflugmannsprófi frá
Keili og er flugmaður hjá
Icelandair.
Maki: Kristrún Gúst-
afsdóttir, f. 1985, deild-
arstjóri á leikskóla.
Sonur: Bjarki, f. 2016.
Foreldrar: Svavar Stef-
ánsson, f. 1949, og Auður
Björk Kristinsdóttir, f.
1951, sérkennari. Þau búa
í Reykjavík.
Kristinn Arnar
Svavarsson
30 ára Hjördís ólst upp á
Húsavík, er nýflutt þang-
að aftur og vinnur nú
verslunarstörf í Heima-
bakaríi á Húsavík.
Börn: Eydís Lára Munro,
f. 2008, og Árni Þór Þór-
isson, f. 2014.
Foreldrar: Lára Sig-
þrúður Sigurðardóttir, f.
1963, starfsmaður við
Heimabakarí, og Sturla
Þorgrímsson, f. 1955, sjó-
maður. Þau eru búsett á
Húsavík.
Hjördís Þórey
Sturludóttir
Edda Óskarsdóttir hefur varið dokt-
orsritgerð sína í menntavísindum við
Kennaradeild, Menntavísindasviði Há-
skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið
Skipulag stuðnings í skóla án aðgrein-
ingar: fagleg sjálfsrýni (Constructing
support as inclusive practice: A self-
study). Aðalleiðbeinandi var dr. Hafdís
Guðjónsdóttir, prófessor við Mennta-
vísindasvið Háskóla Íslands, með-
leiðbeinandi var dr. Deborah Tidwell,
prófessor við University of Northen
Iowa.
Hér er um að ræða rannsókn á og
rannsókn í starfi Eddu sem deild-
arstjóra stoðþjónustu í grunnskóla.
Megintilgangur rannsóknarinnar var að
umbreyta skipulagi stoðþjónustu í ein-
um grunnskóla, þannig að stuðningur
yrði án aðgreiningar, auk þess að öðl-
ast dýpri skilning á hlutverki deild-
arstjóra stoðþjónustu í starfi við að
efla forystu og samstarf. Nýttar voru
aðferðir faglegrar sjálfsrýni við rann-
sóknina til að öðlast skilning á breyt-
ingaferlinu og hlutverki forystu í starfi
og var rannsókninni skipt í þrjú skeið;
undirbúningsskeið, framkvæmdaskeið
og ígrundunarskeið.
Á undirbúningsskeiðinu voru tekin
viðtöl við stjórnendur, kennara, starfs-
fólk stoðþjónustu
og námsráðgjafa í
skólanum til að
öðlast innsýn inn í
skilning þeirra á
skóla án aðgrein-
ingar og hug-
myndir þeirra um
stoðþjónustuna og
samstarf.
Á framkvæmdaskeiðinu vann Edda
að breytingum á skipulagi stoðþjón-
ustunnar samkvæmt framkvæmda-
áætlun og skráði í rannsóknardagbók.
Einnig tók hún viðtöl við mæður nokk-
urra barna í skólanum, nemendur og
stuðningsfulltrúa og gerði verkefni
með nemendum.
Á ígrundunarskeiðinu rýndi Edda í
það sem hún hafði lært á rannsókninni
í þeim tilgangi að greina gögnin og
skilja þróun hennar í starfi og hugsun.
Niðurstöðurnar sýna að það reyndist
ekki auðvelt að ná markmiðum verk-
efnisins varðandi umbreytingu á stoð-
þjónustunni. Stærsta áskorunin
reyndist vera að breyta orðræðu fötl-
unar, meðaumkunar og læknisfræði
sem stýrði hugarfari Eddu og annarra
og setti mark sitt á hvernig stoðþjón-
ustunni var háttað.
Edda Óskarsdóttir
Edda Óskarsdóttir (f. 1968) starfar í hlutastarfi við Evrópumiðstöð um sérkennslu
og skóla án aðgreiningar (European Agency for Special Needs and Inclusive Educa-
tion) auk þess sem hún starfar á Menntavísindasviði. Edda lauk B.Ed.-prófi frá
Kennaraháskóla Íslands 1990 og MA í sérkennslu frá University of Oregon 1993.
Edda er gift Ólafi Andra Ragnarssyni og á þrjár dætur og eina stjúpdóttur.
Doktor