Morgunblaðið - 10.11.2017, Síða 44
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 314. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Dæmd til að búa í myrkri
2. Andlát: Atli Steinarsson
3. Andlát: Eggert Þorfinnsson
4. Talinn hafa nauðgað börnum sínum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tríó Reykjavíkur heldur tónleika í
hádeginu í dag, kl. 12.15, á Kjarvals-
stöðum og á efnisskránni verða tvö
verk eftir Jóhannes Brahms. Fyrra
verkið er sónötuþáttur fyrir fiðlu og
píanó og hið seinna tríó fyrir horn,
fiðlu og píanó. Flytjendur eru Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari og Rich-
ard Simm píanóleikari. Sérstakur
gestur tríósins að þessu sinni er
bandaríski hornleikarinn Joseph
Ognibene. Aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Ernir
Brahms í hádeginu
Myndlistarsýn-
ingin Díana, að ei-
lífu verður opnuð í
dag kl. 17 í gall-
eríunum Ekkisens
og Gallery Porti.
Sýningin er sam-
sýning 12 lista-
manna sem allir
fjalla um Díönu
prinsessu. Einnig verður haldið
gjörningakvöld tengt sýningunni
18. nóvember kl. 19 í Mengi.
Sýningarstjórar eru Auður Lóa
Guðnadóttir, Starkaður Sigurð-
arson og Andrea Arnarsdóttir.
Samsýning um Díönu
Verk KverK í Mengi
Tónlistarmaðurinn KverK, sem er
listamannsnafn Tom Manoury, og
Edda Erlendsdóttir píanóleikari halda
tónleika í Mengi í kvöld kl. 21. Edda
mun flytja verk KverK, Yrkjum fyrir
píanó og rafhljóð. KverK forritar raf-
eindahljóðfæri með
gagnvirkni og lifandi
spilamennsku í
huga, vinnur úr
hljóðum frá litlum
hjóðfærum og
blásturs-
hljóðfærum.
Á laugardag Norðan 5-10 m/s, en 10-15 með austurströndinni.
Snjókoma norðantil á landinu, en léttskýjað syðra. Heldur hægari
og úrkomuminna seinnipartinn. Víða frost, 0 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í norðvestan 18-25 m/s austast og
él norðaustan- og suðvestanlands, en snjókoma um landið norðan-
vert í kvöld, annars þurrt. Hiti um og undir frostmarki.
VEÐUR
Stjarnan á erfitt verkefni
fyrir höndum í Tékklandi í
næstu viku eftir 2:1-tap
gegn Tékklandsmeisturum
Slavia Prag í fyrri leik lið-
anna í 16-liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu á Samsung-
vellinum í gærkvöldi. Lára
Kristín Pedersen jafnaði
metin í seinni hálfleiknum
en Tékkarnir skoruðu sig-
urmarkið úr vítaspyrnu rétt
á eftir. »2-3
Erfitt verkefni
bíður Stjörnunnar
Íslenska U21-landsliði karla í knatt-
spyrnu tókst vel að halda ungstirnum
kollega sinna frá Spáni í skefjum þeg-
ar liðin mættust í Murcia í gærkvöld, í
undankeppni EM. Í liði Spánar voru
meðal annars þrír leikmenn Evrópu-
meistara Real Madrid, en í liði Íslands
sex leikmenn 19 ára eða yngri. Spán-
verjar unnu 1:0 en Ísland var hárs-
breidd frá því að jafna í lokin. »4
Ungstirni Spánar fengu
ekki að skína glatt
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Örplast í sjónum, flóðið sem skall á
þjóðvegi 1 á dögunum og hvernig á
að endurnýta vatn í þvottavélum eru
rannsóknarverkefni sem nemendur í
7. bekk í Grunnskóla Hornafjarðar
reyna að leysa í tækni- og hönnunar-
keppninni First Lego League sem
fer fram á morgun.
Hátt í 200 grunnskólanemendur í
21 liði frá 18 skólum eru skráðir til
þátttöku í keppninni þar sem þau
þurfa að spreyta sig á forritun, rann-
sóknarverkefnum, teymisvinnu og
vélmennakappleik. Þema keppninnar
í ár er vatn og þurfa þátttakendur að
forrita vélmenni úr tölvustýrðu legói
sem á að leysa þrautir tengdar vatn-
inu.
Allur 7. bekkur er með
Grunnskóli Hornafjarðar hefur
tekið þátt í First Lego League frá
upphafi og sendir nú þrjú lið. „Við
höfum haft það fyrir reglu í nokkur
ár að senda alltaf einn árgang, allan
7. bekk. Það eru nú 24 krakkar, sem
skiptast í þrjú lið,“ segir Þórgunnur
Torfadóttir skólastjóri.
„Þetta er gríðarlega flott og lær-
dómsríkt verkefni. Nemendurnir
læra forritun og þurfa að takast á
við vandamál, læra að afla upplýs-
inga og koma með hugmyndir að
lausnum, vinna saman sem hópur og
halda utan um hvernig þau vinna.
Þau þurfa síðan að útskýra vinnuna
og keppa með vélmenn-
um og á bak við þau
liggur heilmikil forrit-
unarvinna og þjálfun,“
segir Þórgunnur. Nem-
endunum finnist und-
antekningalaust öllum gaman
að taka þátt í keppninni. „Við
byrjum aðeins að kynna þeim
þetta í 6. bekk, aukum
tæknivinnu og forritun,
svo þau koma aðeins und-
irbúin í 7. bekk. Við höfum líka notað
legó mikið í nýsköpunarvinnuna hjá
okkur sem við byrjum á í 4. bekk.
Krökkunum finnst þetta skemmti-
legt og læra helling á þessu.“
Stigvaxandi áhugi
Guðrún Bachmann, framkvæmda-
stjóri First Lego League-keppninnar
á Íslandi, segir að síðan fyrsta
keppnin var haldin árið 2005 hafi
áhuginn farið stigvaxandi. „Það er
mikill áhugi á að taka þátt í keppn-
inni og við höfum velt því fyrir okk-
ur, til þess að keppnin geti stækkað
eins mikið og áhuginn bendir til, að
skipta henni upp í landshlutakeppnir
og vera síðan með úrslitakeppni að
lokum. Ég held að það gefi miklu
fleirum tækifæri til að vera með.
Þetta er keppni sem reynir á svo
marga ólíka þætti og liðin þurfa að
vera samsett af nemendum með alls
konar hæfni.“
First Lego League er alþjóðleg
keppni og sigurliðinu gefst tækifæri
til að taka þátt í keppninni First
Lego League Scandinavia sem fer
fram í Osló í desember.
Meirihluti liðanna sem keppa á
morgun er úr landsbyggðarskólum.
Spurð hverju það sæti segir Guðrún
margt geta komið til. „Í minni ein-
ingum er kannski meiri sveigjanleiki
til að gefa rými fyrir undirbúninginn
og kennararnir meðvitaðri um að
grípa öll tækifæri til að víkka út
starfið. Í stærri samfélögum er
kannski meira framboð af öllu mögu-
legu. Við sjáum líka að þeir skólar
sem byrja að taka þátt í keppninni
halda áfram ár eftir ár.“
Lærdómsríkt legóverkefni
First Lego
League-keppnin
fer fram á morgun
Ljósmynd/Grunnskóli Hornafjarðar
Lærdómur Nemendur í 7. bekk Grunnskóla Hornafjarðar skipa þrjú lið í First Lego League-keppninni í ár. Þau
hafa undirbúið sig vel undir stjórn umsjónarkennara síns, Guðjóns Arnar Magnússonar.
Legókeppnin fer fram í Há-
skólabíói á morgun, laugardag,
frá kl. 12:30 til 15:30. Á sama
tíma verður boðið upp á fjöl-
skylduskemmtun í anddyri
Háskólabíós. Meðal annars
verður vatn þar til umfjöll-
unar í anda keppninnar og fyr-
irtækið Krumma býður gestum
að glíma við legóþrautir, rafknú-
inn kappakstursbíll Team Spark
verður til sýnis og Vísinda-
smiðjan verður opin.
Margt í boði
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
Verðlaunabikarinn Gerður úr legói.
ÍR og Tindastóll eru í tveimur efstu
sætum Dominos-deildar karla í körfu-
knattleik eftir að hafa unnið góða úti-
sigra í Þorlákshöfn og Keflavík í
sjöttu umferð deildarinnar í gær-
kvöld. Bæði lið hafa unnið fimm af
fyrstu sex leikjum sínum og það er ár
og dagur síðan gamla stórveldið ÍR
hefur verið á toppi efstu deildar.
Haukar unnu öruggan
sigur á Hetti og Njarð-
víkingar lögðu Þór að
velli á Akureyri. »2-3
ÍR og Tindastóll
eru í toppsætunum