Morgunblaðið - 20.12.2017, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 0. D E S E M B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 299. tölublað 105. árgangur
S T Y R K TA R F É L A G
L AMAÐ R A O G FAT L A Ð R A
RU G- H & B Õ Ö G Â
Sölutímabil
6. – 20. desember
Gluggagægir kemur í kvöld
4
jolamjolk.is
dagar
til jóla
MANNI ENDIST
VARLA ÆVIN –
TIL AÐ DEYJA
MEÐ EYRA
FYRIR MET-
SÖLULÖGUM
SKRIFAR LÍKA
FYRIR UNDIR-
VITUNDINA
ÍSLENZKIR TÓNAR 12 ODDNÝ EIR ÆVARSDÓTTIR 34ÓSÓMALJÓÐ 41
Hallveig Andrésdóttir, fulltrúi íbúa í
Furugerði, segir borgina ekki hafa
haft neitt samráð við íbúa vegna
fyrirhugaðra fjölbýlishúsa við Bú-
staðaveg. Þau muni rýra verðmæti
íbúða.
Uppbyggingin er hluti af þeirri
stefnu núverandi borgaryfirvalda að
þétta byggð meðfram helstu umferð-
aræðum. Með því á að treysta grund-
völl fyrirhugaðrar borgarlínu.
Í umsögn skipulagsfulltrúa segir
að árið 2007 hafi fyrirspurn um fjöl-
býlishús á lóðinni verið svarað nei-
kvætt. Hvorki hafi verið talið mögu-
legt „að koma fyrir íbúðarbyggingu á
þessari lóð“ né „að hægt væri að upp-
fylla ýtrustu hljóðvistarkröfur. Nú
hafa forsendur breyst og er fyrir-
spurn í samræmi við stefnu aðal-
skipulags um þéttingu byggðar“.
Um 50 þúsund bílar á dag
Lóðin er við Bústaðaveg, eina
fjölförnustu götu borgarhlutans.
Fram kom í Morgunblaðinu í haust
að umferð á höfuðborgarsvæðinu
mældist 19,4% meiri í október en í
sama mánuði 2007. Skv. skýrslu
Mannvits um almenningssamgöngur
fóru 48.500 bílar um Bústaðaveg á
dag 2015. Með aukinni umferð hefur
talan líklega hækkað.
baldura@mbl.is »6
Var hafnað vegna hávaða
Íbúar í Furugerði mótmæla áformum við Bústaðaveginn
Uppbyggingin var ekki leyfð 2007 vegna hávaða frá götu
Drög Hugmynd að hjólastíg og
þrengingu á hluta Bústaðavegar.
Teikning/Arkís
Einn af ævintýrastöðum aðventunnar í höfuðborginni er skautasvellið á
Ingólfstorgi, sem símafyrirtækið Nova stendur fyrir. Þangað hafa margir
komið síðustu daga og skemmt sér vel, eins og þessir strákar gerðu í gær.
Við ljósum prýtt torgið er jólamarkaður og ýmsir viðburðir eins og raunar
eru um alla borg og bæi landsins – nú þegar hátíðin er að ganga í garð.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skautaleikur á Ingólfstorgi
er ævintýri á aðventunni
Strákarnir brunuðu á ísnum í miðborginni
Guðmundur Magnússon
Höskuldur Daði Magnússon
Magnús Heimir Jónasson
Það mikla magn fjár og fíkniefna
sem lögreglan lagði hald á við hand-
töku á þremur Pólverjum sem eru
grunaðir um stórfelldan fíkniefna-
innflutning og peningaþvætti sýnir
hversu stór fíkniefnamarkaðurinn
er orðinn hér á landi. Þetta er mat
Helga Gunnlaugssonar afbrotafræð-
ings. Hann segir umfangið staðfesta
að fíkniefnaneysla sé ekki lengur
bundin við jaðarhópa hér.
Þrír menn sitja í gæsluvarðhaldi
vegna málsins. Lögregla kyrrsetti
fasteignir og lagði hald á hlutabréf,
fjármuni og bíla að verðmæti 200
milljónir króna. Götuverðmæti
fíkniefnanna gæti numið allt að 400
milljónum króna.
Íslenskir bankar hafa brugðist við
auknum tilraunum til fjársvika og
peningaþvættis að undanförnu. Í
Landsbankanum hefur verið fjölgað
sérhæfðu starfsfólki sem annast eft-
irlit auk reglulegra tilkynninga til
peningaþvættisskrifstofu og sam-
skipta við lögreglu. Þá hefur verið
fjárfest í tölvukerfum sem gera eft-
irlit og áhættumat með slíkum mál-
um skilvirkara. Rafrænt eftirlits-
kerfi bankans greinir óeðlilegar
færslur og kannar hvort viðskipti
tengist aðilum á válistum.
Rannsókn málsins miðar vel að
því er Grímur Grímsson yfirlög-
regluþjónn sagði við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
„Yfirheyrslur yfir mönnunum
hafa gengið ágætlega. Gæsluvarð-
hald yfir þeim rennur út á föstudag
en það hefur ekki verið tekin
ákvörðun um hvort farið verður
fram á áframhaldandi varðhald,“
segir Grímur við Morgunblaðið.
Hann staðfesti að fleiri tengdust
málinu en þeir þrír sem eru í gæslu-
varðhaldi. „Það liggur ljóst fyrir að
við handtókum fimm menn og þess-
ir tveir sem ekki eru í varðhaldi eru
með réttarstöðu grunaðs manns. Ég
get ekki sagt meira á þessu stigi.“
Grímur vildi ekki staðfesta að
lagt hefði verið hald á tölvu eða
gögn bókara mannanna. „Það var
farið í húsleitir og lagt hald á ým-
islegt. Þar með talið rafræn gögn.
Hvað nákvæmlega vil ég ekki fara
út í.“
Bankar grípa
til varna gegn
peningaþvætti
Bankar fjölga sérhæfðu starfsfólki
Umfangið innsýn í undirheimana
MUpphæðirnar gefa sýn »6
Ótrúlegt umfang
» Lögregla lagði hald á fimm
bíla, innistæður í bönkum og
eignarhluti í fyrirtækjum.
» Lagt var hald á amfetamín-
basa sem hefði mátt framleiða
50-80 kíló af amfetamíni úr.
» Lagt var hald á MDMA-duft
sem hefði getað skilað 26 þús-
und e-töflum.
» Götuverðmæti fíkniefnanna
metið á um 400 milljónir.
Með nýjum úrskurði kjararáðs
hækka árslaun biskups úr 15,28
milljónum í 18,64 milljónir. Það
samsvarar 22% launahækkun. Með
því hækka árslaunin um 3,35 millj-
ónir. Hækkunin er afturvirk frá 1.
janúar á þessu ári og verða laun
biskups leiðrétt sem þessu nemur.
Þá hækka grunnlaun presta um
allt að 26% og verða allt að 810 þús-
und kr. Við það bætast auka-
greiðslur.
Kristján Björnsson, formaður
Prestafélags Íslands, hafði ekki á
takteinum hversu mikið heildar-
laun vígslubiskupa hækka með nýja
úrskurðinum. Grunnlaunin eru eft-
ir hækkun um 1,024 milljónir á
mánuði. Kjararáð úrskurði jafn-
framt um laun forseta, varaforseta
og dómara við Landsrétt. »2
Heildarlaun biskups
Íslands hækka um
22% milli ára
Skipulagsstofnun er með til skoð-
unar drög að matsáætlun fyrir allt
að 20 þúsund tonna laxeldi í innan-
verðum Eyjafirði. Að baki áform-
unum stendur fyrirtæki sem vinnur
að þróun lokaðra sjókvía og er byrj-
að að framleiða í þeim lax í Norður-
Noregi.
AkvaFuture ehf., sem er íslenskt
dótturfélag AkvaDesign, sækir um
leyfið í Eyjafirði.
Poki sjókvíanna sem dótturfélög
AkvaDesign nota er úr trefjaplasts-
dúk í stað opins nets í hefðbundnum
sjókvíum. Hægt er að stýra lífrík-
inu í kvínni, meðal annars með
straumum, og nota lúsfrían sjó. Þá
er allur fastur úrgangur tekinn úr
kvíunum og minni hætta er talin á
slysasleppingum. »16
Kvíar Lax er framleiddur í lokuðum sjókví-
um AkvaFuture í Noregi.
Vilja nota lokaðar
sjókvíar í Eyjafirði