Morgunblaðið - 20.12.2017, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
Hágæða
umhverfisvænar
hreinsivörur
fyrir bílinn þinn
Glansandi
flottur
Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum.
„Við erum komin á beinu brautina
aftur,“ segir Guðjón Argrímsson,
upplýsingafulltrúi Icelandair. Samn-
ingar í kjaradeilu flugvirkja hjá fé-
laginu og viðsemjenda þeirra náðust
í fyrrinótt, en verkfall hafði þá stað-
ið í 46 klukkustundir. Starfsemi fé-
lagsins komst með því aftur í samt
horf.
Evrópuvélarnar flugu utan strax
um morguninn þótt ekki væru allar
á áætlun. Þegar leið á daginn náðu
hlutirnir svo jafnvægi og flug vestur
um haf síðdegis var á réttu róli.
Verkfallið stóð sunnudag og
mánudag og á þeim tíma voru alls
122 ferðir á uppsettri áætlun Ice-
landair. Alls 64 þeirra ferða þurfti
að fella niður og náði það til þús-
unda flugfarþega, sem ýmist fengu
far með öðrum félögum, breyttu
áætlunum sínum eða fengu farmiða
sinn endurgreiddan. Enn hefur ekki
verið metið hjá Icelandair hver
áhrifin voru af verkfallinu á starf-
semi félagsins, s.s. beinn kostnaður.
Flug Icelandair er „komið
á beinu brautina aftur“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Icelandair Áætlun félagsins, sem er með um 30 þotur, er komin í lag.
Áhrif verkfalls-
ins enn ekki metin
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Í kjarasamningsumhverfi okkar er
enginn samningur eyland heldur er
þetta allt tengt á einn eða annan
máta,“ segir Halldór Benjamín Þor-
bergsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, spurður um ný-
gerðan kjarasamning við flugvirkja
sem starfa hjá Icelandair og möguleg
áhrif hans á stöðugleika og þær
kjaraviðræður sem fram undan eru.
„Stöðugleikinn er ekki í hættu að
mínu viti en það er hins vegar viðvar-
andi áskorun að viðhalda stöðugleika,
það er ekki einnar umferðar leikur.
Við reynum að hugsa marga leiki
fram í tímann, enda kemur samn-
ingur á eftir þessum samningi og síð-
an koll af kolli.“
Samninganefndir Flugvirkjafélags
Íslands og SA vegna Icelandair und-
irrituðu kjarasamninginn klukkan
fjögur í fyrrinótt. Var verkfalli flug-
virkja frestað um fjórar vikur á með-
an samningurinn er í kynningu og at-
kvæðagreiðslu félagsmanna.
Gildistími hans er 28 mánuðir.
Ríflega 20 aðgerðir frá 2009
Halldór bendir á að SA geri tugi
kjarasamninga að jafnaði á hverju ári
og það sé alveg á hreinu að samtökin
beiti sér sem ábyrgur aðili með
ákveðnum hætti. „Ég stend alveg fast
á því að halda staðreyndum til haga
og í kjaraviðræðum verða menn að
geta talað um staðreyndir. Það er það
sem við gerðum og við munum halda
áfram að gera það í komandi kjara-
viðræðum.“
Spurður hvort hann telji að aðrir
hópar sem samið verður við á næst-
unni muni horfa til þessa samnings
segir Halldór að samningar við stétt-
arfélög í fluginu séu sérstakir vegna
þess umhverfis sem þeir eru gerðir í
og þeirra úrræða sem stéttarfélög í
fluginu hafa gripið til með reglulegu
millibili með boðun vinnustöðvana og
verkföllum. Frá 2009 hafi flugtengdar
stéttir gripið til ríflega tuttugu slíkra
aðgerða í kjaradeilum. „Auðvitað set-
ur þetta mark sitt á samnings-
umhverfið en Samtök atvinnulífsins
eru í eðli sínu stefnumarkandi og við
sem ábyrgur aðili höfum það að sjálf-
sögðu í huga.“
Óskar Einarsson, formaður Flug-
virkjafélags Íslands, sagði við mbl.is í
gær að flugvirkjar hefðu komist lang-
leiðina með að ná fram þeirri leiðrétt-
ingu sem þeir fóru fram á í samn-
ingnum. Hann fæli í sér hefðbundnar
kjarabætur, þ.á.m. hækkun grunn-
launa, auk breytinga á vinnutilhögun.
„Þetta er allt
tengt á einn eða
annan máta“
Flugvirkjasamningur til 28 mánaða
Komust langleiðina að leiðréttingu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjaraviðræður Flugvirkjar á fundi
með aðstoðarríkissáttasemjara.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Fyrir réttu ári, 20. desember 2016,
var greint frá því hér í Morgun-
blaðinu að arkiektarnir Margrét
Harðardóttir og
Steve M. Chris-
ter, hjá Studio
Granda, hefðu
hlotið 1. verðlaun
í samkeppni um
hönnun á nýju
húsi Alþingis á
Alþingisreitnum,
einskonar tengi-
byggingu, sem
ætlað er að
tengjast Alþing-
ishúsinu og Skálanum. Alls bárust
22 tillögur í samkeppninni.
Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, segir í samtali við
Morgunblaðið að ýmislegt hafi
gerst hvað varðar áform þessarar
nýbyggingar á undanförnu ári.
„Í fyrsta lagi er byggingin komin
á fjármálaáætlun sem samþykkt
var síðasta vor sem er mjög mik-
ilvægt. Þessi framkvæmd er því
fjármögnuð til næstu ára. Við lítum
á þetta sem viðbyggingu við Al-
þingishúsið og rétt í þessu sam-
hengi að benda á að hún mun leysa
af hólmi allt leiguhúsnæði Alþingis
en fyrir það eru greiddar hátt í tvö
hundruð milljónir króna á ári,“
sagði Helgi.
Í nýju byggingunni verða skrif-
stofur alþingismanna, þingflokks-
herbergi, skrifstofur þingnefnda og
starfsfólks Alþingis.
Hann segir að búast megi við því
að jarðvegsframkvæmdir geti haf-
ist upp úr miðju næsta ári og reikn-
að sé með því að framkvæmdin taki
samtals um þrjú ár og hún klárist á
árinu 2020 og að húsið verði tekið í
notkun öðrum hvorum megin við
áramótin 2020-2021.
Í öðru lagi segir Helgi að á
undanförnu ári hafi arkitektarnir
unnið að ýmiss konar lagfæringum
á hönnun sinni innanhúss, og sömu-
leiðis hafi þingmenn og starfsmenn
Alþingis, komið með sínar ábend-
ingar og athugasemdir við ýmislegt
er varðar innanhússhönnunina, frá-
gang og skipulag. Þeirri vinnu sé
nú lokið og hjá Studio Granda sé nú
unnið að fínteikningum.
Nýbyggingin mun skiptast í þrjá
hluta. Meginhlutinn mun snúa að
horntjörn Ráðhússins, framhliðin
verði brotin upp í tvo hluta með
ljósgeil á milli og skrifstofa þing-
forseta verði í stálklæddu húsi sem
myndi tengingu á milli nýbygginga
og eldri húsa við Kirkjustræti.
Tölvuteikning/Studio Granda
Alþingisreiturinn Nýbygging Alþingis, tengibygging, mun leysa af hólmi allt leiguhúsnæði þingsins.
Jarðvegsframkvæmdir
byrja um mitt árið 2018
Nýbygging á Alþingisreitnum verði tekin í notkun 2020
Helgi
Bernódusson
Lítið sem ekkert hefur verið fundað í kjaradeilu Félags
íslenskra atvinnuflugmanna og SA fyrir hönd Icelandair
að undanförnu á meðan sáttatilraunir í flugvirkjadeil-
unni stóðu sem hæst. „Nú er komið fast að jólum þann-
ig að við eigum ekki von á að það verði fundað aftur fyrr
en á nýju ári í okkar deilum,“ segir Örnólfur Jónsson,
formaður FÍA. FÍA vísaði kjaradeilunni við SA vegna Ice-
landair til ríkissáttasemjara 26. september sl. Spurður
hvort nýgerður samningur við flugvirkja geti greitt fyrir
samkomulagi við flugmenn segir Örnólfur: „Þetta hlýt-
ur að hafa fordæmi gagnvart öðrum innan félagsins. Ég geri ráð fyrir því
að allar aðrar stéttir hjá Icelandair horfi til þessa samnings,“ segir hann
en tekur fram að hann þekki ekki innihald samningsins.
Aðrir horfa til þessa samnings
VIÐRÆÐUR FÍA OG ICELANDAIR HALDA ÁFRAM EFTIR ÁRAMÓT
Örnólfur Jónsson