Morgunblaðið - 20.12.2017, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
GEFÐU TÖFRA
FRÁ PROVENCE
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
Provence er gjafmilt land þar sem birta, litur, ilmur og hljómur
eru í hávegum höfð. Dekraðu við fjölskyldu og vini um jólin
með gersemum, beint frá Provence.
Vegagerðin hefur tilkynnt bæjaryfir-
völdum í Garðabæ að sveitarfélagið ann-
ist að fullu og beri ábyrgð á veghaldi
Álftanesvegar frá og með 1. janúar 2018.
Bæjarráð Garðabæjar ræddi málið á
fundi í gærmorgun og þar var bæjar-
stjóra falið að mótmæla einhliða ákvörð-
un Vegagerðarinnar um yfirfærslu á veg-
haldi Álftanesvegar. Bent er á að yfir-
færslan eigi að gerast á grundvelli
samnings milli aðila þar sem m.a. sé
tryggt fjármagn til sveitarfélagsins
vegna breytinga á veghaldi.
Um er að ræða 4,1 kílómetra langan
vegarkafla frá Hafnarfjarðarvegi í Engi-
dal að Bessastaðavegi, ásamt tveimur
hringtorgum. Í bréfi Vegagerðarinnar er
vísað til fyrri samskipta vegna fyrirhug-
aðra skila á Álftanesveggi.
„Samkvæmt 59. gr. a. vegalaga nr. 80/
2007 sem fjallar um sameiningu sveitar-
félaga, kemur fram að þegar sameining
sveitarfélaga hefur þau áhrif að vegur
færist úr flokki stofnvega í flokk sveit-
arafélagsvega skuli Vegagerðin halda við
veginum í að hámarki fimm ár frá sam-
einingu. Að þeim tíma loknum skal veg-
urinn afhentur sveitarfélaginu að fullu,
en heimilt er að semja um styttri tíma í
þessu sambandi.
Sameining Álftaness og Garðabæjar
tók gildi hinn 1. janúar 2013 og við sam-
eininguna færðist Álftanesvegur úr
flokki þjóðvega í flokk sveitarfélagsvega.
Því er ljóst að Vegagerðin hefur ekki
heimild til að halda veginum við lengur
en til næstkomandi áramóta þegar 5 ár
eru liðin frá sameiningu,“ segir í bréfi
Vegagerðarinnar. aij@mbl.is
Veghaldið til Garðabæjar
Mótmæla ákvörðun Vegagerðar Fimm ár frá sameiningu
Garðabæjar og Álftaness Færist úr flokki stofnvega
Morgunblaðið/Eggert
Álftanesvegur Unnið við undirgöng í Garðahrauni sumarið 2014.
Á haustmánuðum buðu Ríkiskaup
út innkaup á sjö rafmagnsbílum
fyrir hönd fimm ríkisstofnana. Til-
boð bárust frá þremur seljendum
en tilboði var tekið frá BL í Nissan
Leaf. Þær stofnanir sem tóku þátt
að þessu sinni voru ÁTVR, Háskóli
Íslands, Landbúnaðarháskóli Ís-
lands, Náttúrufræðistofnun Íslands
og Tollstjóri. Bifreiðarnar verða af-
hentar stofnununum á næstu vik-
um.
Fram kemur í frétt á vef Ríkis-
kaupa að vaxandi áhugi sé hjá
stjórnendum og rekstraraðilum
ríkisstofnana að auka vægi vist-
vænni bifreiða í þjónustu þeirra.
Þannig séu jafnt og þétt að aukast
kaup á rafmagns- og hybridbifreið-
um, fólksbifreiðum, sendibifreiðum
og jepplingum. Í dag eru um 4,5%
af bifreiðaflota ríkisins vistvænar
bifreiðar. Ríkiskaup hyggst fylgjast
náið með þessari þróun og fylgja
henni eftir eins og kostur er.
„Áherslur stjórnvalda og ný lög
um opinber innkaup hafa aukið
vægi vistvænna og samfélagslega
ábyrgra innkaupa frá sem áður var.
Ríkiskaup sem miðlæg innkaupa-
stofnun ríkisins hefur þegar stigið
skref í þessa átt með því að taka til-
lit til umhverfissjónarmiða við gerð
rammasamninga um kaup á vöru og
þjónustu fyrir ríkið,“ segir í frétt-
inni. sisi@mbl.is
Ríkið festir kaup
á sjö rafbílum
Um 4,5% af bifreiðaflota ríkisins vist-
vænar bifreiðar Áhuginn er vaxandi
Nissan Sjö nýjar ríkisbifreiðar
koma á götuna innan skamms.
Nýverið þreyttu ellefu áhugasamir
verðandi bifvélavirkjar, sem nú
stunda iðnnám í Borgarholtsskóla og
sótt hafa um starfsnám hjá BL, inn-
tökupróf hjá bílaumboðinu.
Prófið var í formi krefjandi legó-
þrautar þar sem nemendur þurftu að
leysa ýmis sérhönnuð verkefni fyrir
bifvélavirkja. Verkefnið var sett
saman fyrir BL með aðstoð legó-sér-
fræðings þar sem markmiðið var að
sýna nemendum fram á nauðsyn
þess að hugur og hönd vinni sem
best saman við lausn flókinna við-
fangsefna. Fjórum nemendanna hef-
ur þegar verið boðinn starfssamn-
ingur hjá fyrirtækinu.
10 nemar fá samning árlega
BL heldur árlega fjórar starfs-
kynningar fyrir nemendur grunn-
skólanna í Reykjavík í samráði við
Tómstunda- og frístundasvið
Reykjavíkurborgar. Hlutverk kynn-
inganna er að kynna nemendum
annars vegar þá miklu breytingu
sem starfsumhverfið hefur tekið
samfara þeirri tæknibyltingu sem
orðið hefur í greininni og hins vegar
þá möguleika sem fyrirtækið getur
boðið verðandi bifvélavirkjum, bíla-
smiðum og bílamálurum með starfs-
námi. BL hefur langa reynslu á
þessu sviði og býður árlega allt að tíu
nemendum vinnustaðarsamning og á
þessu ári einnig í fyrsta sinn fjár-
hagsstuðning meðan á samningnum
stendur.
Fyrir nemendur sem fá samning
hjá BL greiðir fyrirtækið skólagjöld,
auk þess sem þeir ganga að vísu
sumarstafi hjá BL. Á námstímanum
úthlutar BL nemendum meistara í
viðkomandi iðngrein sem sinnir
reglulegum samskiptum við þá, for-
eldra þeirra eða kennara eftir atvik-
um og undirbýr þá að lokum undir
töku sveinsprófsins. Iðnú útvegar
nemendunum öll námsgögn þeim að
kostnaðarlausu. Í febrúar verður
næsta grunnskólakynning haldin hjá
BL og haustið 2018 fer næsta inn-
tökupróf fram fyrir nemendur í bíl-
greinum í Borgarholtsskóla sem sótt
hafa um námssamning hjá BL.
Legóþraut í
inntökuprófi BL
Fjórir nemar af 11 fara í starfsnám
Starfsnám Nemendur Borgarholts-
skóla þurftu að leysa legóþrautir.