Morgunblaðið - 20.12.2017, Page 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
✝ Sigríður Eiríks-dóttir fæddist á
Eskifirði 26. febr-
úar 1931. Hún lést á
dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Upp-
sölum, Fáskrúðs-
firði, 14. desember
2017.
Foreldrar henn-
ar voru Guðjón Ei-
ríkur Kristjánsson
frá Eskifirði, f.
1903, d. 1964, og Ingunn Þor-
leifsdóttir frá Bæ í Lóni, f. 1906,
d. 1984. Sigríður var þriðja í röð
fimm systkina, þau eru Lovísa, f.
1928, d. 2013, Sveinbjörg, f. 1929,
d. 2011, Hörður, f. 1937, og Þor-
leifur, f. 1945.
Sigríður giftist Arnþóri Þór-
ólfssyni frá Reyðarfirði 30. apríl
1949. Arnþór lést árið 1999. Sig-
ríður og Arnþór eignuðust sex
börn en þau eru: 1) Eiríkur Ingi,
f. 1949, maki Inga Elísabet Tóm-
asdóttir, f. 1949, sonur þeirra
Arnar Már, maki Alma Sigríðar
Sigurbjörnsdóttir, sonur þeirra
er Eron Gauti, fyrir á Arnar tvö
börn, Alexander Örn og Elínu
Ingu. Fyrir á Alma Maron Fann-
ar og Nóel Darra. Inga á fyrir
ar er Sölvi Snær. Lilja, maki Ey-
þór Guðjónsson, börn þeirra eru
Engilbert Viðar og Viktor Elías.
Eiríkur Viðar, maki Cathrine
Linh. Fyrir á Erlendur Elías Má
og Eggert Orra. 6) Agnar, f.
1967, maki Sigríður Rut Hilm-
arsdóttir, f. 1978, börn þeirra eru
Hilmar Ingi og Arnþór Rúnar.
Ömmu- og langömmubörnin
fylla brátt fimmta tuginn.
Sigríður ólst upp í Múla á
Eskifirði. Þar gekk hún í barna-
og unglingaskóla Eskifjarðar og
stundaði síðan nám í Húsmæðra-
skólanum á Hallormsstað. Árið
1953 byggðu þau hjón, Sigríður
og Arnþór, sér hús á Heiðarvegi
1 á Reyðarfirði sem þau nefndu
Þórsmörk. Þar bjuggu þau alla
sína búskapartíð. Hún var heima-
vinnandi húsmóðir meðan þau
komu börnum sínum á legg. Með-
fram húsmóðurstörfum stýrði
hún versluninni Addabúð sem
þau hjónin ráku í húsi sínu. Síðar
gerðist hún starfsmaður Pósts og
síma og vann á pósthúsinu á
Reyðarfirði þar til hún fór á
eftirlaun 1997. Eftir það ráku
þau hjón heimagistingu í Þórs-
mörk og var hún ein í nokkurn
tíma eftir lát Arnþórs 1999. Sig-
ríður flutti síðar að Tungumel 19
en var nýlega komin á Dvalar- og
hjúkrunarheimilið Uppsali á Fá-
skrúðsfirði er hún lést.
Útför Sigríðar fer fram frá
Reyðarfjarðarkirkju í dag, 20.
desember 2017, klukkan 14.
þrjú börn, þau eru
Guðrún Birna, Ingi-
mar Örn og Hilmar
Tómas. 2) Kjartan
Þór, f. 1952, maki
Þorgerður Björk
Tryggvadóttir, f.
1955, d. 2015, dóttir
þeirra er Berglind
Björk. Fyrir átti
Þorgerður tvær
dætur Kristínu Evu
og Karen. 3) Erna,
f. 1954, maki Sigurður Eiríkur
Aðalsteinsson, f. 1953, synir
þeirra eru Arnþór Ingi, f. 1978,
d. 1997, og Sigurður Örn, maki
Hulda Björk Haraldsdóttir, börn
þeirra Rakel Lilja, Amelía Dröfn
og Arnþór Ingi. 4) Adda Sigríð-
ur, f. 1956, d. 2002, var gift Stef-
áni Rúnari Garðarssyni, f. 1954,
börn þeirra eru Hilmar Þór, Guð-
finna, maki Ásmundur Sigurjón
Guðmundsson, börn þeirra Adda
Sigríður, Guðmundur Arnar og
Rúnar Ingi. Fyrir á Ásmundur
Viktor Brimi. Kjartan Már, maki
Erna Valborg Björgvinsdóttir,
dóttir þeirra Bergdís Adda. 5)
Harpa, f. 1958, maki Erlendur
Viðar Tryggvason, f. 1950. Börn
þeirra eru Sigríður, sonur henn-
Í dag er tengdamóðir mín borin
til grafar og langar mig að minn-
ast hennar í nokkrum orðum. Mér
er minnisstætt þegar ég hitti
Siggu í fyrsta sinn fyrir 40 árum.
Þá kom ég sem ungur maður
ásamt verðandi eiginkonu minni í
heimsókn í hús þeirra, Þórsmörk.
Ég var kvíðinn en það var alveg
óþarfi þar sem þau Sigga og Addi
tóku á móti mér opnum örmum.
Margar áttum við heimsóknirnar í
Þórsmörk í gegnum árin og ekki
fækkaði heimsóknunum eftir að
börnin okkar fæddust enda Sigga
einstök amma. Sigga var orðin
veik og var búin að vera það síð-
ustu ár en aldrei kvartaði hún
heldur var það alltaf sama svar-
ið:„Ég er nú heldur betri í dag en í
gær.“
Takk fyrir allt, elsku Sigga mín,
ég veit að það hefur verið tekið vel
á móti þér af þínu fólki sem farið
er.
Guð blessi minningu þína.
Stefán Rúnar Garðarsson.
Fyrir nokkrum dögum sat ég
og skrifaði jólakort til elsku ömmu
Siggu. Nú sit ég með tár í augum
og skrifa minningarorð um hana
og á erfitt með að trúa því hún sé
farin frá okkur. Ég á margar góð-
ar minningar um hana en það var
alltaf gott að koma til hennar á
Reyðarfjörð. Amma átti alltaf
brúntertu í ísskápnum og gaf mér
gott að borða. Þegar maður fékk
sér morgunmat var hún alltaf
byrjuð að undirbúa hádegismat-
inn. Síðan þegar maður var enn að
kyngja hádegismatnum var hún
yfirleitt staðin upp frá borðinu og
farin að taka úr frystinum og ræða
kvöldmatinn. Og svo auðvitað
kvöldkaffið sem var bara leyfilegt
þegar maður var hjá ömmu. Einu
sinni kom ég ömmu á óvart og
birtist í dyrunum án þess að hafa
látið hana vita af komu minni. Hún
var ánægð að sjá mig en skamm-
aði mig svo fyrir að láta hana ekki
vita svo hún gæti hafa undirbúið
komu mína en hún átti ekki nema
eina brúntertu í ísskápnum.
Ég gleymi aldrei þegar ég var
hjá ömmu fyrir nokkrum árum og
við Sölvi ætluðum í sund á Eski-
firði. Hún var fljót að nefna að hún
ætti sundbol handa mér og áður
en ég gat svarað að ég væri með
minn eigin sundbol var hún staðin
upp og kemur svo fram með þenn-
an fína „ömmu sundbol“ sem hún
vildi lána mér. En það var nú bara
dæmi um hana ömmu, hún vildi
alltaf allt fyrir mann gera. Þetta
atvik minnir mig líka á eldri minn-
ingu frá því ég var lítil stelpa hjá
henni. Við höfðum verið úti og
lentum í rigningu þannig ég kom
inn blaut og köld. Amma kemur
með gamla peysu sem hún sagði
mér að fara í meðan hin fötin væru
að þorna en mér leist mjög illa á
hana. Svo gaf hún mér heitt kakó
til að hlýja mér en ég hellti því nið-
ur á mig og peysuna sem hún lét
mig fara í.
Amma sagði mér þessa sögu í
hvert skipti sem ég kom austur
þar sem hún sagðist enn ekki viss
hvort ég hellti yfir mig viljandi eða
ekki.
Símtölin við ömmu voru yfir-
leitt ekki löng. Hún var enn með
hugann í gamla tímanum þegar
það kostaði mikið að hringja á
milli landshluta. Við ræddum
hvernig veðrið væri, hvað væri að
frétta í stuttu máli og svo var
kvatt áður en símareikningurinn
yrði of hár.
Þegar hún hringdi á afmælinu
mínu í ár var ég stödd erlendis.
Ég byrjaði að hlusta á heillaóskir,
hvað ég væri nú orðin gömul, hún
sagði ég væri bara alveg að ná
henni! Síðan spyr hún mig hvað ég
ætli að gera á afmælinu og þá
fyrst komst ég að og sagði henni
ég væri erlendis. Hún skildi ekk-
ert í því af hverju ég hefði bara
leyft henni tala og tala án þess að
segja hvar ég væri og þar með var
símtalinu lokið.
Ég er svo þakklát fyrir að Sölvi
minn hafi fengið tækifæri til að
kynnast langömmu sinni sem hon-
um þótti svo vænt um. Amma var
mjög dugleg að spyrja frétta og
fylgdist vel með honum vaxa og
dafna.
Ég gæti rifjað upp margar góð-
ar minningar en læt þessar duga.
Við geymum í hjarta okkar marg-
ar hlýjar og fallegar minningar
um elsku ömmu Siggu á Reyðar-
firði.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Hvíldu í friði, elsku amma mín,
ég mun aldrei gleyma þér.
Sigríður Erlendsdóttir
(Sigga).
Elsku amma Sigga.
Þú varst alltaf svo góð við okk-
ur og það var svo gott að knúsa
þig þegar við hittumst. Það var
gaman að fá þig í heimsókn til
Reykjavíkur og það var líka svo
gaman að heimsækja þig á Reyð-
arfjörð á sumrin og fá að vera hjá
þér. Við hlökkuðum alltaf svo til
að fara í sumarfrí til að geta komið
og vorum heppnir að fá að koma
þrisvar sinnum í ár til þín. Við vor-
um alltaf duglegir að hjálpa þér að
þvo gluggana og vökva blómin og
fórum svo með þér í gönguferðir.
Gaman var að fara saman á kaffi-
hús þegar við fengum okkur heitt
súkkulaði með rjóma.
Svo hafðir þú mikinn áhuga á
fótbolta og vildir alltaf vita hvern-
ig okkur gengi og hvað við vorum
að gera í bæði leikskólanum og
skólanum.
Okkur finnst mjög leiðinlegt að
þú sért farin frá okkur og munum
sakna þín mikið en við munum
alltaf muna eftir þér í hjarta okkar
og munum elska þig allt okkar líf.
Þínir ömmustrákar
Hilmar Ingi og
Arnþór Rúnar.
Elsku amma Sigga.
Nú er komið að kveðjustund.
Margs er að minnast, söknuð-
urinn er ljúfsár og sé ég gleðina
fyrir mér hinum megin þar sem
mamma, Addi afi og Addi frændi
taka á móti þér. Hvílík sæla og
gleði sem það hlýtur að vera.
Elsku amma, það er fyrir svo
margt að þakka.
Undanfarna daga hef ég yljað
mér við æskuminningarnar. Hví-
líkt ævintýri sem það var alltaf að
sækja ykkur afa heim á Heiðar-
veginn.
Ég man hversu stór mér þótti
Heiðarvegurinn, þar var enda-
laust pláss fyrir okkur öll, þar hitt-
umst við frændsystkinin og lékum
og klettarnir í garðinum eru fjall í
minningunni.
Mér eru afar minnisstæðir
páskarnir sem ég kom austur til
ykkar afa en þá kom ég til að læra
fyrir samræmdu prófin. Ég fékk
sérherbergi niðri á hostelinu hjá
ykkur sem mér þótti auðvitað
geggjað.
Þú varst alltaf berandi í mann
mat og man ég eftir því þegar þú
varst að fara í búðina eitt skipti og
spurðir mig hvaða súkku-
laðistykki mér þætti gott og ég
nefndi Mars. Þú komst heim ekki
með eitt eða tvö stykki heldur
heilan kassa. Mér þótti þetta svo
fyndið en mér fannst ég aldrei
gera neitt annað heldur en borða
hjá þér.
Þessi tími var svo dásamlegur,
þú að dekstra við mig og afi að
redda gömlum prófum og spyrja
mig út úr námsefninu.
Elsku amma, þú varst alveg
einstök.
Þú gleymdir aldrei afmælisdegi
hjá neinum og hversu mikið kunni
ég að meta það þegar ég varð
eldri. Það hættir aldrei að vera
gaman að eiga afmæli og vissan að
fá pakka frá þér var ómetanleg, en
það minnti mig á mömmu sem var
mín stoð og stytta og klikkaði
aldrei.
Ég verð að nefna hversu vænt
mér þykir um að þú mundir alltaf
eftir honum Viktor Brimi mínum
og tókst honum alltaf sem einu af
langömmubörnunum þínum líkt
og þú hefur alltaf gert við öll stjú-
pömmu- og langömmubörn.
Elsku amma, ég er svo þakklát
fyrir allar minningarnar sem ég
mun eiga um ókomna tíð.
Þangað til næst, þín,
Guðfinna.
Þegar ég nú kveð Siggu, sem
var mér svo kær, koma margar
minningar í hugann. Góðar minn-
ingar allt frá barnæsku til dagsins
í dag.
Sigga, alltaf kölluð Sigga
frænka í minni fjölskyldu, var gift
móðurbróður mínum, Adda, sem
var yngstur systkinanna í Sjólist.
Heimili þeirra heiðurshjóna
stóð alltaf opið gestum og gang-
andi. Á barnmörgu og annasömu
heimili réð Sigga ríkjum ásamt því
að standa vaktina í Addabúð sem
þau hjónin ráku um árabil.
Ég sótti mikið til þeirra á mín-
um æskuárum. Í Addabúð fékk ég
að vigta sykur og hveiti og pakka
inn smávöru. Þvílík upphefð og
traust.
Á heimilinu var talað við börnin
sem jafningja en festa og regla á
öllu. Börnin höfðu öll hlutverk á
heimilinu. Þar ríkti glaðværð og
oft mikið hlegið, spiluð tónlist og
sungið.
Árin liðu og Kjartani eigin-
manni mínum var vel tekið og
varð fljótt heimavanur og kunni
vel að meta gott atlæti hjá Siggu
frænku
Margar ferðir voru farnar aust-
ur og alltaf stóð heimilið – okkur
og börnunum opið.
Á fyrstu búskaparárum mínum
var síminn óspart notaður. Sigga
leiðbeindi mér í basli mínu við
bakstur og eldamennsku. Alltaf
svo þolinmóð og ráðagóð. Sagði
gjarnan; „Hringdu og segðu mér
hvernig til tókst.“ Það skipti ekki
máli hvorum megin við miðnætti
klukkan var.
Alla tíð fylgdist hún með okkur
og börnunum og alltaf símtal á af-
mælum frá Siggu frænku. Það
brást ekki.
Fyrir alla hlýju og umhyggju í
gegnum árin – ásamt skemmtileg-
um samverustundum erum við
Kjartan innilega þakklát.
Sigga var glæsileg kona.
Hláturmild og skemmtileg en um
leið ákveðin og föst fyrir.
Hún lifði áföll – sorg og söknuð.
En hún kunni vel að höndla
þetta líf bæði í gleði og sorg.
Með virðingu og þakklæti
kveðjum við Kjartan einstaka
konu.
Elsku Erna, Harpa, Eiríkur,
Kjartan og Agnar. Hugur okkar
og samúð er hjá ykkur og fjöl-
skyldum ykkar.
Katrín Þórlindsdóttir
(Bubba).
Sigríður
Eiríksdóttir
Fleiri minningargreinar
um Sigríði Eiríksdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi,
VICTOR M. STRANGE
málmsteypumaður,
Hringbraut 50, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 29. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Grétar L. Strange Edda Sigurðardóttir
Ruth S. Vanderpool John Vanderpool
og frændsystkin
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GAUJA GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 14.
desember. Útför fer fram frá
Keflavíkurkirkju 28. desember klukkan 13.
Magnús Jón Kjartansson Sigríður Kolbrún Oddsdóttir
Finnbogi G. Kjartansson Þuríður Kristín Hallgrímsdóttir
Sigrún Kjartansdóttir Bjarni Jóh. Guðmundsson
Ingvi Jón Kjartansson Erna Ólafsdóttir
Kjartan Már Kjartansson Jónína Guðjónsdóttir
Viktor Borgar Kjartansson Margrethe Ödegaard
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Ástkær móðir okkar,
JAKOBÍNA G. FINNBOGADÓTTIR,
Bíbí,
er látin.
Nanna D. Björnsdóttir
Ólöf G. Björnsdóttir
Sveinbjörn E. Björnsson
Helga L. Björnsdóttir
Guðrún Þ. Björnsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÓSK ELÍN JÓHANNESDÓTTIR,
Álftahólum 4, Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans
mánudaginn 4. desember, verður
jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 22. desember
klukkan 13.
Ólafur Sverrisson
Sigurlaug Ragnhildur Sævarsdóttir
Sævar Unnar Ólafsson
Ólöf Bessa Ólafsdóttir Berntzen
Sverrir Halldór Ólafsson
Jóhannes Ragnar Ólafsson
Margrét Rebekka Ólafsdóttir
Óskar Elías Ólafsson
tengdabörn og barnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
UNA ÞÓRA STEINÞÓRSDÓTTIR,
kennari,
Barmahlíð 7,
lést á líknardeildinni í Kópavogi
sunnudaginn 17. desember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 28. desember
klukkan 13.
Bessi Gíslason
Gísli Þór Bessason
Sólveig Bessadóttir
Sigrún Bessadóttir Iiro Nummela
Margrét Bessadóttir Kristinn Kristjánsson
Una Ásrún, Ásmundur Bessi, Katla, Ása Kristín,
Bjarmi, Kolbrá Una og Emil Mikael