Morgunblaðið - 20.12.2017, Side 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
CARAT Haukur gullsmiður | Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is
Skoðið glæsilegt úrval á carat.is
Sendum frítt um allt land
Ekkert jólastress
Hjá okkur er opið allan sólarhringinn
á www.carat.is
HÁLSMEN – ARMBÖND – HRINGIR – EYRNALOKKAR
Við vorum að skrifa undir tvo af stærstu samningum sem við höf-um gert,“ segir Guðmundur Þóroddsson, framkvæmdastjórifyrirtækisins Reykjavík Geothermal, en hann á 60 ára afmæli í
dag. Um er að ræða tvö 500 megavatta verkefni í Eþíópíu, annars veg-
ar í Tulu Moye og hins vegar Corbetti.
Guðmundur var enn staddur í Eþíópíu þegar blaðamaður náði tali
af honum í gær, en hann vonaðist til að vera kominn heim í dag. „Það
stendur síðan ekkert til í tilefni dagsins ef ég kemst heim enda langt
ferðalag að baki. Ég er búinn að vera hérna síðan á sunnudaginn en
samningaviðræðurnar um þetta verkefni hafa staðið í sjö ár. Ég er bú-
inn að koma hingað nokkrum sinnum á hverju ári og mér líkar vel
hér. Eþíópía er mjög gott land.“
Reykjavík Geothermal var stofnað árið 2008 af einstaklingum úr ís-
lenska jarðhitageiranum og hefur Guðmundur verið framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins frá upphafi. Fyrirtækið er að vinna við fjögur
virkjanaverkfni í Mexíkó, eitt á eyjunni St. Vincent í Karíbahafi og
hefur sinnt ráðgjöf vítt og breitt um heiminn.
Áhugamál Guðmundar eru laxveiði, gönguferðir og brids. „Ég
reyni að spila vikulega með félögum mínum, en við höfum spilað sam-
an í 30 ár.“
Eiginkona Guðmundar er Halldóra Björnsdóttir hjartalæknir. Börn
þeirra eru Kristín, sem útskrifast sem master í vélaverkfræði í vor, og
Björn, sem útskrifast sem bachelor í hugbúnaðarverkfræði í vor, en
Guðmundur er sjálfur vélaverkfræðingur.
Nýjasta áhugamálið Guðmundur heima hjá sér við bústörf.
Stórum samningum
landað í Eþíópíu
Guðmundur Þóroddsson er sextugur í dag
L
íney Bogadóttir fæddist
að Stóru-Þverá í Fljót-
um 20.12. 1922 en ólst
upp að Minni-Þverá í
Fljótum.
Skólaganga Líneyjar var stuttur
farskóli eins og algengt var með
sveitabörn á þeim árum.
Líney fór ung að heiman í vist, til
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, vann í
mötuneyti starfsmanna þegar bygg-
ing Skeiðsfossvirkjunar í Fljótum
stóð yfir, starfaði við síldarsöltun á
sumrin eftir að hún settist að á
Siglufirði, vann í frystihúsi um tíma
og síðast á Barnaheimili Siglu-
fjarðar.
Líney hóf búskap með manni sín-
um á Siglufirði 1943 og hefur átt þar
heima síðan.
Líney er félagi í Kvenfélagi og
Slysavarnafélagi Siglufjarðar, sat um
árabil í trúnaðarmannaráði Verka-
lýðsfélagsins Vöku, veitti forstöðu
orlofsnefnd húsmæðra og var far-
arstjóri í fjölda ferða á vegum nefnd-
arinnar. Líney stóð auk þess fyrir
óbyggðaferðum sem mæltust vel fyr-
ir en hún var fararstjóri í þeim ferð-
um. Hún söng í áratugi með Kirkju-
kór Siglufjarðarkirkju, með
Kvennakór Siglufjarðar og blönd-
uðum kór eldri borgara sem heitir
Vorboðar en þar söng hún fram á tí-
ræðisaldur. Hún tók einnig virkan
þátt í starfsemi Leikfélags Siglu-
fjarðar um langt árabil, leikur enn
boccia, dansar með eldri borgurum,
fer reglulega í bingó og mætir á
spilakvöld í Skálahlíð.
Þess má geta að Líney, börn
hennar og fjölskyldur þeirra, hafa
um árabil haldið niðjamót á þriggja
ára fresti. Slík samkoma var einmitt
Líney Bogadóttir, húsfreyja á Siglufirði – 95 ára
Brosmild fjölskylda Afmælisbarnið með börnunum sínum sjö. Þau eru öll félagslynd og mjög dugleg að hittast.
Tók þátt í Íslandsmóti
í boccia síðastliðið vor
Afmælisbarnið Líney Bogadóttir.
Nokkrir vaskir krakkar héldu tombólu á Borgarbókasafni í Grófinni í nóvember.
Safnað var fyrir róhingja sem eru á flótta í Bangladess frá heimalandi sínu. Alls
söfnuðu þau rúmum 10.800 krónum.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is