Morgunblaðið - 20.12.2017, Síða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017
Ármúla 24 • S. 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16 – www.rafkaup.is
DOKKA frá
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú stendur á tímamótum og ættir
ekki að líta um öxl. Sannur meistari hefur
ekki bara tök á kunnáttu, tækni eða tungu-
máli.
20. apríl - 20. maí
Naut Peningar eru tengdir verkefnum sem
eru framúrstefnuleg og leiðandi. Farðu á
þínar uppáhaldsslóðir og finndu þann frið og
þá ró sem endurnýja þig til frekari athafna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu ekki erfiðar minningar úr
fortíðinni standa í vegi fyrir þér, þegar þú
hefst nú handa á nýrri öld. Ef þú leyfir þér
munað gætir þú lent í vandræðum að láta
enda ná saman.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hvert augnablik dagsins þarf ekki að
vera skipulagt. Ekki taka óþarfa áhættu í
fjárfestingum samt sem áður. Gríptu til
þinna ráða, hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dagurinn í dag er ekki hentugur til inn-
kaupa. Bættu úr þeim til þess að lífið getið
haldið áfram snurðulaust.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er hættulegt að trúa öllu sem þú
heyrir, og ekki er mælt með að eyða öllu
sem þú átt. Eyðsluklóin á ekki eftir að gef-
ast upp, fyrr eða síðar fær hún það sem hún
vill.
23. sept. - 22. okt.
Vog Samræður við maka og nána vini eru í
alvarlegri kantinum um þessar mundir, en á
sama tíma innihaldsríkar og hagnýtar.
Gættu þess að halda utan um þína nánustu
eins og þeir halda utan um þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ævintýri blikka þig. Svo má líka
alltaf koma sér upp nýjum draumi. Ef þú ýtir
of mikið á aðra er líklegast að þeir ýti á
móti.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt óvæntir hlutir gerist átt þú
að vera undir þá búinn og geta tekið á þeim
með réttum hætti. Gættu þess bara að tala
ekki svo mikið sjálfur að aðrir komist ekki
að.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Allir vilja vera við stjórnvölinn en
það gengur auðvitað ekki upp. Viðurkenn-
ingin kemur en hún tekur sinn tíma.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það eru viss atriði í fari þín sem
þú ert ekki nógu hress með og hefur ekki
getað breytt hingað til. Ef hik er á manni er
best að láta kyrrt liggja.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú vinnur líklega í þágu barna í dag
eða sinnir krefjandi sköpunarferli. Bíddu að-
eins og sjáðu til hvernig málin þróast.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir:Þeir átu slík býsn af baunum,
bræðurnir þrír á Hraunum,
að kokmæltir urðu
þeir öllum til furðu,
því orðnir þeir voru að Baunum
Í síðustu viku sagði Hólmfríður
Bjartmarsdóttir frá þorrablóti í
tvinnahrundaklúbbnum – lét slatta
af kvenkenningum fylgja og spurði:
„Kunna menn ekki fleiri?“
Auðarhlín og auðargná
áttu von á silkihlín
baugagrund og baugagná
og báru inn trog og þorravín.
Tvinnahrundir hresstust vel
hringafoldin unga
ekki vildi súran sel
en silkihlín át punga.
Fálabaugahringahrund
hringabrúna grætti
svo freyjutáragullþornsgrund
grét og hár sitt tætti.
Engan vefinn ofið hefur
eðalsilkihrundin.
Menjaristin reyndar sefur
röflar keytugrundin.
Jón Gissurarson brást vel:
Ýmis kynni forn og flá
falin sinni undir
seggi minna sífellt á
silkitvinnahrundir.
Og vísur Ísleifs Gíslasonar eru
klassískar en þær eru skreyttar
„nýtísku kenningum“:
Sé ég vappa á síðkvöldum
síst þó happ að verði
í ástatappa umbúðum
iljatappagerði.
Undirlífasólin sæt
sveiflaði hrífuskafti.
Raka þýfi mundi mæt
með legghlífarafti.
Rýmdi klókur vonavöll
viður smókingsspjara
þegar brókarblúndu þöll
brosin tók að spara.
Stúlka fór af kvennaskóla í dans-
skóla. Ísleifur orti:
Menntun þráði og meiri arð –
mörg voru ráð að henda.
Loksins þráðaliljan varð
lærð í báða enda.
Gömul beinakerlingarvísa í lokin:
Sækir að mér sveinaval
sem þeir væru óðir,
kúri ég ein í Kaldadal,
komið þið, piltar góðir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Frá tvinnahrunda-
klúbbnum og Ísleifi
FINNIÐ FRAMTÍÐARSPÆJARANN „ER ÞETTA OF FÁTÆKLEGT FYRIR
STRÖNDINA?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að laga sig að lífsstíl
hennar
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VEGAN VEIT
INGAR
GÓÐ SAGA.
VERST HÚN
GENGUR
EKKI UPP
EKKERT FÆR STÖÐVAÐ
MIG Í DAG, GRETTIR!
FYNDIÐ EKKERT KEMUR
MÉR AF STAÐ
ÞAÐ MÁ KOMAST AÐ MÖRGU
UM FÓLK Í ÞESSU STARFI
ÞESSI FENGUR
SEGIR MÉR MARGT
UM HERTOGANN
JÁ. VIÐ GÆTUM VEL
VERIÐ VINIR
SKÍÐABÚÐ
Alfreð Finnbogason hefur vakiðathygli fyrir marksækni sína í
Þýskalandi. Um helgina skoraði
hann þrennu fyrir lið sitt, Augsburg,
og er nú þriðji markahæsti leik-
maður þýsku fyrstu deildarinnar
með 11 mörk. Fyrir ofan hann eru
Robert Lewandowski, leikmaður FC
Bayern, með 15 mörk og Pierre-
Emerick Aubameyang, leikmaður
Borussia Dortmund, með 13 mörk.
Evrópska íþróttatímaritið Euro-
pean Sports Media fylgist með
markaskorurum í Evrópu. Þar er
Úrúgvæinn Edinson Cavani, sem
spilar fyrir Paris St. Germain, efstur
með 18 mörk. Alfreð er þar í 24. sæti
og deilir því með Brasilíumanninum
Neymar, sem einnig reimar á sig
skóna fyrir áðurnefnt Parísarlið.
Það er ekki amalegur félagsskapur.
Listi þessi byggist ekki aðeins á
mörkum, sem leikmenn hafa skorað.
Einnig er horft til styrkleika deild-
anna, sem þeir leika í, og notaðir
margfeldisstuðlar. Fyrir það gjalda
markahæstu leikmenn Evrópu um
þessar mundir, þeir Albert Prosa
hjá Infonet Tallinn og Rauno Sapp-
inen hjá Flora Tallinn. Þeir hafa
hvor um sig skorað 27 mörk, en þar
sem eistneska deildin telst með þeim
veikari í álfunni er henni aðeins út-
hlutað margfeldisstuðlinum einum.
Þýska deildin hefur hins vegar
margfeldisstuðulinn tvo. Hvert
mark skorað í þýsku deildinni gildir
því tvöfalt meira en mark skorað í
þeirri eistnesku á þessum ágæta
lista.
x x x
Þýska knattspyrnublaðið Kickerfjallaði sérstaklega um Alfreð
og valdi hann leikmann síðustu um-
ferðar fyrir jól. Alfreð skoraði fyrsta
markið sitt þegar 54 sekúndur voru
liðnar af leiknum á laugardag. Þetta
er annað markið á tímabilinu sem
hann skorar á fyrstu mínútu leiks.
Það gerði markahrókurinn Miroslav
Klose síðast er hann lék fyrir Wer-
der Bremen tímabilið 2005/06. Jafn-
framt var þetta önnur þrenna Al-
freðs. Síðasta leikmaður, sem tókst
að skora þrennu í tvígang á fyrri
hluta tímabils í Þýskalandi, var Mar-
io Gomez þegar hann lék fyrir Bæj-
ara tímabilið 2011/12.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Hjá Guði er hjálpræði mitt og veg-
semd, minn örugga klett og athvarf
mitt hef ég í Guði.
(Sálm. 62:8)