Morgunblaðið - 20.12.2017, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 354. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Veit ekki hverjar ásakanirnar eru
2. Svali kominn með vinnu á Tenerife
3. Illa fengið fé í íslensk fyrirtæki
4. Sagt upp störfum í Borgarleikhúsinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Karlakórinn Fóstbræður heldur
jólatónleika sína í Langholtskirkju í
kvöld kl. 20 og bera þeir yfirskriftina
„Stafa frá stjörnu“ en hún er sótt í
jólasálm Matthíasar Jochumssonar
sem Árni Harðarson, söngstjóri Fóst-
bræðra, samdi lag við. Lagið var jóla-
lag Ríkisútvarpsins árið 1998 í flutn-
ingi kórsins og er nú orðið fastur
liður á efnisskrá hans á aðventu.
Högni Egilsson verður sérstakur
gestasöngvari á tónleikunum ásamt
Auði Gunnarsdóttur sópransöngkonu
en þau hafa bæði starfað með kórn-
um á undanförnum árum. Á efnisskrá
tónleikanna í kvöld eru hefðbundin
innlend og erlend jólalög í bland við
lög sem heyrast sjaldnar.
Stjórnandi á tónleikunum verður
Árni Harðarson, söngstjóri Fóst-
bræðra, og meðleikari á píanó Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Högni og Auður
gestir Fóstbræðra
Dúettinn Sycamore heldur tónleika
í menningarhúsinu Mengi í kvöld kl.
21. Dúettinn skipa þau Ágústa Eva Er-
lendsdóttir og Gunnar Hilmarsson og
sendu þau frá sér sína fyrstu plötu í
september. Þar sem stutt er til jóla
verða tónleikarnir í kvöld lág-
stemmdir og verður platan, Shelter,
leikin í heild ásamt nýju efni og
nokkrum jóla-
lögum sem
eru í uppá-
haldi hjá
dúett-
inum.
Lágstemmdir
tónleikar í Mengi
Á fimmtudag Vestan 10-15 m/s og éljagangur framan af degi, en
dregur úr vindi og éljum síðdegis. Léttskýjað austantil á landinu.
Frost 0 til 5 stig. Á föstudag Gengur í suðaustan 13-18 m/s. Dálítil
snjókoma í fyrstu, síðan rigning eða slydda, talsverð syðra.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestanátt, víða 13-18 m/s. Él eða slyddu-
él en bjartviðri norðaustantil á landinu. Hiti um frostmark.
VEÐUR
Í fyrrinótt voru tvær
keppnistreyjur körfubolta-
stjörnunnar Kobe Bryant
hengdar upp í Staples
Center, heimahöll Los
Angeles Lakers. Gunnar
Valgeirsson, NBA-
sérfræðingur Morgun-
blaðsins, var á staðnum
og segir frá viðburðinum
ásamt því að fara yfir
gang mála í NBA-deildinni
í ítarlegum pistli í íþrótta-
blaðinu. »4
Treyjur Bryants
hengdar upp
Keppnin í Dominos-deild karla í
körfuknattleik er hálfnuð og baráttan
er hörð. Benedikt Guðmundsson, sér-
fræðingur Morgunblaðsins, fer yfir
fyrri hluta mótsins og velur bestu
leikmennina, íslenska og erlenda,
efnilegustu leikmennina og þá sem
eru vanmetnir. Erfiðast segir
Benedikt hafa verið að velja
lið erlendra leikmanna,
sem margir hafi aðeins
verið miðlungsgóðir
og gætu verið á
förum. Benedikt
hefur sjálfur
staðið í þeim
sporum að
skipta út Kana
og hans fyrsta
reynsla af því
var miður
skemmti-
leg. »2-3
Benedikt bendir á þá
sem sköruðu fram úr
Helena Sverrisdóttir, landsliðskona í
körfubolta, mun væntanlega spila á
næstunni í sterkustu deild í Evrópu,
Euroleague. Helena mun fara tíma-
bundið til Slóvakíu og leika þar með
sínu gamla liði, Good Angels Kosice,
sem hún lék með sem atvinnumaður í
tvö ár. Helena fagnaði á sínum tíma
bæði Slóvakíumeistara- og bikar-
meistaratitli með liðinu. »1
Helena leikur aftur í
bestu keppni Evrópu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Íslenska sprotafyrirtækið Nordic
Style Magazine hefur gert dreif-
ingar- og sölusamning við stærstu
bókaverslun í heimi, Barnes &
Noble. Tímaritið sérhæfir sig í
tísku, hönnun, listum og menningu
á Norðurlöndunum og er með vef-
inn www.nordicstylemag.com.
„Ég byrjaði með veftímaritið
Nordic Style Magazine árið 2012
og við gáfum út sjö eintök áður en
við ákváðum að einblína á heima-
síðuna,“ segir Soffía Theódóra
Tryggvadóttir, stofnandi og annar
eigenda tímaritsins.
Norræn hönnun eftirsótt
„Ég stofnaði blaðið þegar ég bjó
í New York og sá að það var mikil
eftirpurn eftir að fá að vita hvað
væri að gerast í hönnun og tísku á
Norðurlöndunum. Það er eftir-
sóknarvert fyrir norræn merki og
hæfileikafólk að koma inn á
Bandaríkjamarkað og ég sá tæki-
færi til að tengja þessa hópa á
skapandi hátt. Okkar sérstaða er
að við fjöllum einungis um efni
tengt Norðurlöndunum og erum
búin að byggja upp lesendahóp í
Bandaríkjunum, sem hefur verið
okkar helsti markaður frá stofnun.
Við nálgumst efnið á meira ögr-
andi hátt en vanalega er gert og
fáum ólík sjónarhorn frá þeim fjöl-
mörgu sem skrifa fyrir okkur og
hafa óbilandi ástríðu fyrir nor-
ræna stílnum.
Barnes & Noble-bókakeðjan tók
eftir heimasíðunni og veftímarit-
unum og hafði samband við okkur
í febrúar á þessu ári. Við fáum svo
mikið af tölvupósti að við tókum
ekki mark á þessu fyrst fyrr en
þeir gerðu þriðju tilraun til að
hafa samband við okkur,“ segir
Soffía og hlær.
„Við gerðum samning við þau
fyrr á árinu og byrjuðum und-
irbúning á prentuðu blaði sem
kemur út og verður dreift um öll
Bandaríkin í febrúar á næsta ári.
Við vitum ekki til þess að öðru ís-
lensku tímariti hafi verið dreift í
Bandaríkjunum eða heiminum á
þennan mælikvarða og erum ótrú-
lega ánægð og þakklát fyrir að
mörg af flottustu hönnunar- og
tískufyrirtækjunum á Íslandi
koma til með að auglýsa í fyrstu
útgáfu af fyrsta íslenska blaðinu
sem fer á markað í Bandaríkj-
unum.
„Ég er gríðarlega stolt af
árangrinum og að íslensk hönnun
og list fái meiri athygli. Mig
hreinlega óraði ekki fyrir því að
svo skömmu eftir að við byrjuðum
myndum við ná slíkum árangri.“
Kynna norræna hönnun vestra
Íslenskt tímarit
í sölu hjá risanum
Barnes & Noble
Morgunblaðið/Eggert
Útgefandi Soffía Theódóra Tryggvadóttir er stofnandi og annar eigenda tímaritsins Nordic Style Magazine.
Nordic Style Magazine er í eigu Soffíu Theódóru
Tryggvadóttur og Signýjar Kristinsdóttur en þær
stofnuðu tímaritið árið 2012. Þær stöllur deila
ástríðu fyrir að koma norrænni og þá sérstaklega ís-
lenskri hönnun á framfæri á heimsvísu. Síðan þá
hefur miðillinn stækkað og dafnað og fjallar núna
daglega um tísku, hönnun, listir og menningu frá öll-
um Norðurlandaþjóðunum.
Nordic Style hefur fundið og fjallað um nýja hönn-
uði og hæfileikafólk. Sumt af því hefur fengið sínar fyrstu umfjallanir á
vefnum þeirra, www.nordicstylemag.com.
Í dag skrifa um 15 manns fyrir Nordic Style Magazine frá níu mis-
munandi löndum. Blaðið verður áfram á vefnum en verður nú einnig
gefið út tvisvar á ári á prenti.
Nordic Style Magazine
KEMUR HÖNNUÐUM FRÁ NORÐURLÖNDUNUM Á FRAMFÆRI