Morgunblaðið - 15.01.2018, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 5. J A N Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 12. tölublað 106. árgangur
PRJÓNAÐ MEÐ
HÖNDUNUM
– ÁN PRJÓNA
HREINSAÐ
TIL EFTIR
HERINN
HARKINU
FYLGIR OFT
ÁKVEÐIÐ FRELSI
GRÆNLAND 16 PÁLL SIGÞÓR PÁLSSON 26ERLA SVAVA 12
AFP
Leiðtogar Flokksforingjarnir þrír stilltu
sér upp á mynd á blaðamannafundi í gær.
Fulltrúar Hægriflokksins, Fram-
faraflokksins og Frjálslynda flokks-
ins kynntu í gær helstu áherslur
væntanlegrar ríkisstjórnar í Nor-
egi, en stjórnarsáttmáli flokkanna
var kynntur á blaðamannafundi í
gær. Viðræður flokkanna höfðu þá
staðið yfir í tíu daga.
Sáttmálinn er að vissu leyti talinn
ætlaður sem „gulrót“ fyrir Kristi-
lega þjóðarflokkinn, en helsta
áherslan í honum er á innflytjenda-
og umhverfismál. Flokkarnir þrír
þurfa á þjóðarflokknum að halda
svo stjórnin geti orðið að veruleika.
Ráðherraskipan væntanlegrar
stjórnar er fram undan, en ekki
liggur fyrir hvernig Kristilegi þjóð-
arflokkurinn muni bregðast við
„tilboði“ hinna flokkanna. »15
Áherslan verður
lögð á innflytjenda-
og umhverfismál
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Mjög skiptar skoðanir eru á því innan
raða Alþýðusambandsins hvort rétt
sé að segja upp kjarasamningum þeg-
ar kemur að endurskoðun þeirra í
næsta mánuði, en ljóst þykir að for-
sendur þeirra séu brostnar. Mikil
umæða hefur farið fram á umliðnum
dögum þar sem fulltrúar í verkalýðs-
hreyfingunni hafa kastað á milli sín
hugmyndum og fært fram rök með og
á móti uppsögn.
Sumir forystumenn sem rætt var
við um helgina fullyrða að engin
stemning sé fyrir því innan heildar-
samtakanna að segja upp samningum
og að innan fjölmennra sambanda og
félaga sjái menn ekki ástæðu til að
segja samningum upp núna. Réttast
sé að láta samningstímann renna sitt
skeið í lok ársins, safna liði og hefja
baráttuna í haust. Aðrir heimildar-
menn segja hins vegar að enn séu
margir þeirrar skoðunar að rétt sé að
segja samningunum upp í lok febrúar
og hefja viðræður við atvinnurekend-
ur um gerð nýrra samninga.
Laun eiga að hækka um 3% 1. maí
næstkomandi og lágmarkslaun
hækka í 300 þúsund krónur. Ekkert
verður af þessum hækkunum ef
samningunum er sagt upp. Yfirstand-
andi viðræður fulltrúa vinnumarkað-
arins og stjórnvalda eru sagðar ganga
þokkalega en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru ekki bundnar
miklar væntingar við niðurstöðu
þeirra innan launþegahreyfingarinn-
ar og fullyrt að viðræðurnar við
stjórnvöld muni ekki ráða neinum úr-
slitum um hvort ákveðið verður að
segja samningum upp eða ekki.
Ósammála um uppsögn
Margir í forystu verkalýðshreyfingarinnar vilja ekki segja kjarasamningum upp
Sumir verkalýðsforingjar vilja uppsögn Viðræður við stjórnvöld ráða ekki úrslitum
Heilbrigðismálum á Íslandi hefur
jafnan fleygt mest fram þegar ráð-
herrar í málaflokknum vinna náið
með læknum, sem jafnan hafa mótað
stefnuna í veigamiklum atriðum. Því
veit ekki á gott ef klippt er á streng-
inn milli ráðamanna og lækna, sem
hafa ætíð haft hagsmuni sjúklinga
að leiðarljósi. Þetta segir Reynir
Arngrímsson, formaður Lækna-
félags Íslands sem nú er 100 ára.
„Nú horfir svo við að innviðaupp-
bygging hefur lengi setið á hakanum
og ekki verið hlustað á aðvörunarorð
lækna og samtaka þeirra,“ segir
Reynir sem telur
að sennilega hafi
aðrir á síðari ár-
um betur náð
eyrum ráða-
manna en
læknar. Það geti
orðið dýrkeypt.
Miklar fram-
farir eiga sér nú
stað í heilbrigðis-
þjónustunni og sú
þróun er meðal annars drifin áfram
af nýrri þekkingu í erfðafræði, en
með henni er hægt að greina sjúk-
dóma hvers sjúklings mjög ná-
kvæmlega og haga meðferð sam-
kvæmt því. Framfarir þessar taki þó
sannarlega í. „Alls staðar í heim-
inum glíma menn við þetta vanda-
mál. Kostnaður við ný lyf og tækni
sem tengjast nýjum meðferðar-
úrræðum er áhyggjuefni,“ segir
Reynir sem bendir á að íslenskir
læknar séu eftirsóttir til starfa hvar
sem er í heiminum. Því þurfi heil-
brigðisyfirvöld að vera vakandi
gagnvart læknaskorti því ekki megi
mikið bera út af svo neyðarástand
skapist. »6
Ekki er hlustað á lækna
Ný lyf og tækni eru dýr Læknafélag Íslands 100 ára
Reynir
Arngrímsson
Vetrarhraglandi var á landinu í gær og vegna
þess var mörgum leiðum lokað. Í borginni tók
fólk sjálft til óspilltra málanna og mokaði stéttir
og stíga við hús sín, eins og þessi íbúi við Kjarr-
hólma í Kópavogi gerði þótt kafaldsbylur væri.
Áfram verður harðlynt vetrarveður á landinu
þegar lægð úr norðri kemur inn yfir landið, en
að sögn veðurfræðings gæti hún valdið usla við
Húnaflóa og í Skagafirði. »2
Mokaði snjó í kafaldsbyl í Kjarrhólmanum
Morgunblaðið/Hari
Áfram verður harðlynt vetrarveður á landinu
Árlegt eins
milljarðs króna
framlag ríkisins
til samgöngubóta
í Reykjavík sem
borgaryfirvöld
afþökkuðu 2013
og láta renna til
reksturs Strætó
er tilraun sem
mistókst. Þetta
segir Eyþór Arnalds, frambjóðandi
í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, í Morgun-
blaðinu í dag. Ætlunin hafi verið að
fá fleiri til að nýta strætó sem hafi
ekki tekist en borgin orðið af fimm
milljörðum króna. »17
Borgin hefur orðið
af fimm milljörðum
Eyþór Arnalds
Ný Evrópureglugerð um persónu-
vernd tekur gildi hér á landi 25. maí
næstkomandi. Dómsmálaráðherra
hyggst leggja fram frumvarp er snýr
að þessari reglugerð síðar í þessum
mánuði. Björg Thorarensen prófess-
or stýrir vinnu við gerð frumvarps-
ins.
Þessi nýja reglugerð snýr að öll-
um fyrirtækjum, stofnunum og öðr-
um sem vinna með persónuupplýs-
ingar, hvort heldur sem er um eigið
starfsfólk, viðskiptavini, notendur
eða aðra. Skuldbindingar viðkom-
andi aðila eru fleiri og strangari en
áður hefur þekkst og brot geta varð-
að himinháum sektum.
Á Landspítalanum hefur vinna
vegna innleiðingar reglugerðarinnar
staðið yfir frá því í haust. Hefur spít-
alinn sett á fót stýrihóp innanhúss og
leitað sér utanaðkomandi sérfræði-
aðstoðar. „Við vinnum með mikið af
viðkvæmum persónuupplýsingum
en jafnvel varsla þeirra er flokkuð
sem vinnsla og við leggjum mikið
upp úr öryggi við geymslu gagna,“
segir Páll Matthíasson forstjóri.
Hann segir að allnokkur kostnaður
hljótist af þessu. » 10
Brot á löggjöf geta
varðað háum sektum