Morgunblaðið - 15.01.2018, Page 11

Morgunblaðið - 15.01.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 2018 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Sérfræðingar í erfiðum blettum! Þriðjudagskvöld 16. janúar kl. 20.00 Norðurljós, Hörpu Sigvaldi Kaldalóns og samskipti hans við læknasamtökin Miðvikudagskvöld 17. janúar kl. 20.00 Silfurberg, Hörpu Geðheilbrigði og samfélag málþing Tónlistardagskrá helguð einu ástsælasta tónskáldi þjóðarinnar, Sigvalda Kaldalóns lækni. Óttar Guðmundsson leiðir þessa yfirferð um feril hans og lög. Tónlistarflutninginn annast Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar ásamt Hildigunni Einarsdótturmezzosópran og Aðalheiði Þorsteinsdóttur píanóleikara. Setning: Engilbert Sigurðsson geðlæknir, prófessor í geðlæknisfræði opnar fundinn. Nútíminn og geðheilsan: Þórgunnur Ársælsdóttir geðlæknir. Umhverfið og geðheilsan: Gunnlaug Thorlacius félagsráðgjafi, formaður Geðverndarfélags Íslands. Skólinn og geðheilsan: Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Fjölmiðlar og geðheilsan: Ferdinand Jónsson yfirlæknir samfélagsgeðlækningateymis í London. Geðheilbrigði til framtíðar: Páll Matthíasson geðlæknir, forstjóri Landspítala. Fyrirspurnir úr sal og umræða um geðheilbrigði og samfélag. Fundarstjóri: Engilbert Sigurðsson. Hinir árlegu Læknadagar standa nú yfir í Hörpu og er hluti dagskrárinnar tileinkaður 100 ára afmæli Læknafélags Íslands. Meðal annars er efnt til tónlistarskemmtunar og málþings þar sem öllum er heimill aðgangur án endurgjalds. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þingiðn, félag iðnaðarmanna í Þing- eyjarsýslum, ætlar ekkert að gefa eftir í deilunum um þá ákvörðun fé- lagsins að stækka félagssvæðið yfir landið allt, þrátt fyrir andstöðu ASÍ. Fram kom í Morgunblaðinu fyrir skömmu að Þingiðn brást við með þessum hætti þegar félaginu bárust fréttir af því að Félag málmiðn- aðarmanna á Akureyri hefði ákveðið að stækka fé- lagssvæði sitt svo það nær nú yfir allt Norðurland, þ. á m. fé- lagssvæði Þing- iðnar. Aðalsteinn Á. Baldursson, for- maður Fram- sýnar og fram- kvæmdastjóri Þingiðnar, gagnrýnir sjónarmið ASÍ í málinu og hann gefur lítið fyrir túlkun lögfræðings ASÍ, sem sagði í frétt Morgunblaðsins að landsfélög yrðu ekki stofnuð nema þau væru með kjarasamninga sem taka til alls landsins, en það ætti ekki við um Þingiðn. Segir þetta prinsippmál Þótt Þingiðn sé ekki stórt félag þá er þetta prinsippmál, að sögn Aðal- steins. Hann bendir á að önnur iðn- aðarmannafélög hafi fengið því fram- gengt á vettvangi ASÍ að þau yrðu landsfélög, t.a.m. FIT, Félag iðn- og tæknigreina og svo VM. ,,Síðan gerist það 2016 að Félag málmiðnaðarmanna gerir allt Norð- urland að sínu félagssvæði. Allt í einu fórum við að verða vör við það t.d. á Bakka að þangað koma menn sem sögðust geta verið í Málmiðn- aðarfélaginu á Akureyri eða FIT fyr- ir sunnan, því þeir hefðu yfirtekið fé- lagssvæðið. Málmiðarmenn auglýstu stækkað félagssvæði á N4 og það fór í mína menn. Ég tók þetta upp á for- mannafundi Alþýðusambandsins og gerði alvarlegar athugasemdir við þetta en það var lítið um svör,“ segir Aðalsteinn. Samiðn ekki á móti stækkun Frá fornu fari hafi menn í verka- lýðshreyfingunni virt félagssvæði hvers svæðisbundins félags, sem get- ur náð yfir eitt eða fleiri sveitarfélög og svo þegar sveitarfélög eru sam- einuð semji félög sem skarast við það um félagssvæði í nýju sveitarfélagi. Aðalsteinn segir að með einhliða stækkun félagssvæðis Félags málm- iðnaðarmanna nái það allt frá Hrúta- firði að Langanesi og taki yfir svæði Iðnsveinafélagsins í Húnavatns- sýslu, Verkalýðsfélags Þórshafnar og félagssvæði Þingiðnar. Þetta hafi verið látið óáreitt en laganefnd ASÍ hafi hins vegar hafnað ákvörðun Þingiðnar um að gera landið allt að sínu félagssvæði. Þingiðn er innan landssambandsins Samiðnar, og það hafi ekki gert neinar athugasemdir við stækkun félagssvæðis Þingiðnar en miðstjórn ASÍ hafi hins vegar hafnað félagslögum Þingiðnar. Aðal- steinn segir það bara útúrsnúning hjá lögmanni ASÍ að félag geti ekki stækkað sitt félagssvæði yfir landið allt af því að það hafi ekki kjara- samning yfir landið. Þingiðn sé sem stéttarfélag aðili að samningi Sam- iðnar sem nær yfir allt landið. „Ég tel að þarna sé gróflega brotið á jafnræðisreglu Alþýðusambands Íslands og við höfum þegar komið málinu í hendur okkar lögfræðinga, sem eru að skoða það fyrir okkur. Það getur ekki staðist að eitt félag geti ekki útvíkkað sitt félagssvæði í takt við það sem málmiðnaðarmenn og FIT hafa gert,“ segir hann. Eru í ýmsum félögum Miklar framkvæmdir hafa verið á félagssvæði Þingiðnar við virkjanir og stóriðjuna á Bakka og gerir Aðal- steinn engar athugasemdir við að fyrirtæki sem koma inn á svæðið vegna tiltekinna verkefna hafi sinn mannskap með sér sem sé í ýmsum stéttarfélögum en allt öðru máli gegni um þá sem hafa fasta búsetu á svæðinu. Iðnaðarmenn sem eru t.d. á Húsavík eigi skv. reglum verkalýðs- hreyfingarinnar að vera í einu félagi en ekki mörgum félögum eins og nú virðist blasa við að geti orðið þegar einstök félög stækka sitt svæði yfir félagssvæði annarra. Segir gróflega brotið á jafnræðisreglu ASÍ  Þingiðn ætlar ekki að gefa eftir í deilum um félagssvæði Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Bakki Iðnaðarmenn að störfum við uppbygginguna á lóð kísilvers PCC. Aðalsteinn Árni Baldursson Fulltrúaráð Samfylkingarfélag- anna í Reykjavík ákvað á fundi sín- um sl. laugardag, 13. janúar, að viðhafa flokksval til að velja fram- bjóðendur í efstu sæti á lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosn- ingar í Reykjavík í vor. Valið fer fram með prófkjöri 10. febrúar og framboðsfrestur er til fimmtudags- ins 25. janúar. Kosið verður um allt að 10 sæti og kosning bindandi í efstu 5 sæti listans með fyrirvara um kynjareglur flokksins, það er að hluti karla og kvenna sé jafn. Á kjörseðli skulu kjósendur merkja með tölustafnum 1 við þann sem þeir vilja kjósa í 1. sæti, með tölustafnum 2 við þann sem þeir vilja setja í 2. sæti og þannig koll af kolli. Merkja skal við minnst 8 frambjóðendur, en mest 10 frambjóðendur. Strax að lokinni talningu skilar kjörstjórn niður- stöðum til uppstillingarnefndar sem raðar frambjóðendum í sæti. Það gerist þá annað hvort á flét- tulista með karla og konur á víxl eða paralista þar sem geta til dæmis verið tveir karlar í sætum og tvær konur í sætunum þar fyrir neðan. Í reglum prófkjörsins sem sendar voru út um helgina segir að frambjóðanda sé heimilt að stofna til hóflegs kostnaðar við framboð sitt. Hámark þess kostnaðar er 750 þúsund króna. „Frambjóðendur skulu í flokksvalinu sýna hver öðr- um tillitssemi og forðast illmæli og rógburð hver um annan,“ segir í reglunum. Heiða Björk Hilmisdóttir borg- arfulltrúi og varaformaður Sam- fylkingar, hefur ákveðið að taka þátt í flokksvalinu og óskar eftir stuðningi í 2. sæti. Þá hefur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fyrir nokkru lýst því yfir að hann gefi kost á sér áfram. sbs@mbl.is Samfylkingin með flokksval í borginni  Undirbúa borgarstjórnarkosningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.